Þjóðviljinn - 09.07.1987, Side 2
P^SPURNÍNGIN—
Hvemig leggst kíló-
skattur ríkistjórnarinnar
af bifreiöum í þig?
Óskar Lárusson, trésmiður:
Okkur líst alltaf illa á alla skatta, er
það ekki venjan? Einhversstaðar
verður ríkið vitanlega að taka pening-
ana. En mér sýnist þessi skattlagn-
ingarleið helst koma niður á þeim
sem minnst mega sín.
Jón Friðrik, kælitæknir:
Mér finnst sjálfsagt að láta menn
borga skatt af bifreiðaeign umfram
einn bíl. Ég er ekki sammála því að
þeir sem eiga aðeins einn bíl þurfi að
borga skatt af honum.
Örn Erlingsson, kælitæknir:
Mér líst ekkert á að skattleggja bif-
reiðaeign landsmanna. Maður borg-
ar nóg önnur gjöld, þó svo þessi bæt-
ist ekki við.
Rakel H. Pétursdóttir, útivinn-
andi húsmóðir:
Þetta er allt í lagi svo fremi það sé
tryggt að þessir peningar skili sér í
vegina.
Gunnur R. Gunnarsdóttir, vinn-
ur við innskrift:
Mér finnst þetta alveg vera I anda
nýju ríkisstjórnarinnar. Síðasta bens-
ínhækkun er fullnóg fyrir barnafólk og
þá sem standa í húsbyggingum.
_________________________FRETTIR_________________________
Mjólkurbœndur
Margir búnir með kvótann
Mjólkurbú Flóamanna: Um 15 bœndur búnir með kvótann. ífyrra á sama tíma voruþeir 70.
Mjólkurbú Borgfirðinga: 20 bœndur búnir með kvótann. Mjólkurbú KEA á Akureyri: Um tugur
bœnda búinn með sinn kvóta. Ekki farið að hella niður mjólk
Margir mjólkurbændur víðs-
vegar um landið eru þessa
dagana að klára mjólkurkvóta
sína fyrir verðiagsárið 1986-1987
sem lýkur 31. ágúst næstkom-
andi, en nýtt verðlagsár byrjar 1.
september ár hvert. Þó er enginn
bóndi farinn að heila niður
mjólk, að því best er vitað, enn
sem komið er. Mjög mismunandi
er eftir landsvæðum hvað margir
eru búnir með mjólkurkvótann
sinn, en það er samdóma áiit
þeirra mjólkurbústjóra sem
Þjóðviljinn hafði samband við í
gær, að ástandið í þessum málum
væri mun betra en í fyrra.
Að sögn Birgis Guðmunds-
sonar mjólkurbústjóra hjá
Mjólkurbúi Flóamanna eru um
15 bændur á samlagssvæði Mjólk-
urbúsins þegar búnir með sinn
mjólkurkvóta og er það mun
betra ástand en í fyrra, en þá voru
á sama tíma um 70 bændur búnir
með kvótann. Bjóst Birgir við að
þegar upp væri staðið í lok verð-
lagsársins væri umframmagnið af
mjólk um hálfa til ein milljón
lítra, en mjólkurkvóti Mjólkur-
bús Flóamanna þetta árið 37,6
„Nú hafa verið veiddar 57 lang-
reyðar og „vísindaveiðarnar“
virðast ganga vel. Við urðum var-
ir við nokkuð mikla hvalgengd
vestan við landið en ennþá er ekki
hægt að draga neinar marktækar
ályktanir af talningunni. Þegar
við fáum yfirsýn yfir alla talning-
una sem í gangi er þá getum við
farið að gera það,“ sagði Jóhann,
en hann er nú um borð í Árna
Friðrikssyni.
„Við erum nú undir Jan Mayen
og það er svolítið þokusamt en
þetta hefur gengið vel. Við byrj-
uðum vestan við landið og fórum
upp að ísröndinni. Það hefur ver-
milljónir lítra. Þeir bændur sem
eru búnir með kvótann reyna að
fá leigða kvóta af þeim bændum
sem ekki geta nýtt sinn til
fullnustu.
Jón Guðmundsson verkstjóri í
Mjólkurbúi Borgfirðinga í Borg-
arnesi segir að þar séu um 20
bændur búnir með sinn mjólkur-
kvóta en ekki farnir að hella nið-
ur mjólk. Sagði Jón að þessir
bændur sendu þrátt fyrir það
áfram inn mjólk til mjólkurbús-
ins endaþótt þeir fengju ekkert
borgað fyrir innlögnina. Kvóti
Borgfirðinga í ár er um 9,3
milljónir lítra.
Júlíus Kristjánsson verkstjóri
hjá Mjólkurbúi KEA á Akureyri
segir að ástandið á samlagssvæð-
inu sé með besta móti í ár og að-
eins rúmur tugur bænda sé búinn
með sinn mjólkurkvóta. Þar eins
og á hinum stöðunum, reyna
menn að bjarga sér með því að fá
leigðan fullvirðisrétt frá öðrum
bændum til að geta fengið verð
fyrir mjólkina, en þar eins og
annarsstaðar fá bændur ekkert
borgað fyrir umframinnlögn af
mjólk. Mjólkurkvótinn á sam-
ið óvenjumikil hreyfing á ísnum
og hann hefur verið að stríða
okkur öðru hverju. Við höldum
svo suður Jan Mayen-hrygginn
og munum hitta þar rannsóknar-
skipið Keflvíking fyrir. Austur-
svæðið er tölvert spennandi þar
sem litlar rannsóknir hafa farið
fram á því á undanförnum
árum,“ sagði Jóhann Sigurjóns-
son.
Um þessar mundir standa yfir
umfangsmiklar hvalatalningar
um allt Norður-Atlantshafið.
Þátt í þeim taka íslendingar, Fær-
eyingar, Norðmenn og Spánverj-
ar. Þrjú íslensk rannsóknaskip
lagssvæði Mjólkurbús KEA er
tæpar 21 milljón lítrar fyrir þetta
verðlagsár.
Á þessum þremur stærstu
eru í þessu verkefni. Árni Frið-
riksson fyrir norðan land, Skírnir
fyrir vestan land og Keflvíkingur
allt suður undir Rockall-svæðinu.
Rannsóknamenn á Skírni AK
16 fundu á sunnudaginn var ís-
landssléttbak þar sem þeir voru
staddir um 260 sjómílur vestur af
Bjargtöngum. Dýrið er mjög
sjaldgæf hvaltegund í Norður-
Atlantshafinu. Að sögn Jóhanns
Sigurjónssonar eru aðeins til 2-3
heimildir um tilvist þessa dýrs
síðustu 70 árin á norðursvæðum.
Hann sást síðast á Grímseyjar-
sundi árið 1972.
-gsv
mjólkurbúum landsins er reynt
eftir megni að vinna úr umfram-
mjólkinni ýmist í mjólkurduft
eða osta. grh
Vestmannaeyjar
Næturverslun
Byggingarvöruverslunin Brim-
nes í Vestmannaeyjum hefur opið
allan sólarhringinn. Að sögn
starfsmanns verslunarinnar geta
menn ef þá vantar eitthvað til
sinna verka, hringt í vakthafandi
verslunarmann og fengið af-
greiðslu um helgar eða að kvöld-
og næturlagi.
„Þetta er talsvert notað því
margir vilja nota frítíma sinn vel
og vinna kvöld og nætur í húsinu
sínu í blíðviðrinu. Menn geta
hringt heim til okkar og við erum
alltaf tilbúnir að sinna þörfum
kúnnans," sagði starfsmaður
verslunarinnar.
í auglýsingu frá versluninni
segir m.a. að greiðslukjör séu við
allra hæfi og opið sé allan sólar-
hringinn. _gSV
Hvalarannsóknir
57 hvalir veiddir
Jóhann Sigurjónsson á Árna Friðrikssyni: Hvalatalningin gengurvel.
Eystra svœðið spennandi og lítið verið skoðað áður
Myndlist
Nína sýnir
í París
Nína Gautadóttir listmálari
hefur opnað sýningu á 20 nýjum
málverkum í Gallerí Etienne
Causanne í París.
Hún sýndi í fyrsta sinn málverk
á Kjarvalsstöðum í fyrravor en
áður hafði hún haslað sér völl
sem veflistamaður.
Nína hefur aðallega búið í Afr-
íku síðustu ár en eiginmaður
hennar Antonie Mercier hefur
stjórnað byggingaframkvæmdum
víða þar í álfunni.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. júlí 1987