Þjóðviljinn - 09.07.1987, Síða 4
_________________LEIÐARI____________
Fagnaðarlaus stjbmarskipti
Þaö ríkir nánast sérkennilegt fagnaöarleysi viö
formlega tilurö þeirrar ríkisstjórnar sem í gær kom
saman fyrsta sinni í Ráðherrabústaönum viö
Tjarnargötu.
Þaö er ekkert undrunarefni aö talsmenn flokk-
anna þriggja sem pólitísk tilviljun hefur nú raðað
saman utan stjórnar skuli ekki Ijósta upp gleðióp-
um, en hinsvegar er athyglisvert að talsmenn
þessara ólíku stjórnmálaafla eru samhljóða um að
allt sé gamalkunnugt viö ráðherranaellefu. „Þetta
er gamla stjórnin," segir Svavar Gestsson. Albert
Guðmundsson kallar rúmfrekan málefnasáttmála \
„samtíning af því sem verið hefur í stjórnarsátt-
málum síðustu ára“. Þórhildur Þorleifsdóttir talar
um loðið orðalag, þunnan þrettánda og karlapóli-
tík í fyrirrúmi.
Helstu samtök launafólks, ASI og BSRB, hafa
einum rómi gagnrýnt harðlega fyrstu efnahagsað-
gerðir stjórnarinnar, sem einkum felast í því að
skattleggja matarkaup og bifreiðaeign eftir þyngd
og koma þannig enn einu sinni verst niður á þeim
sem fyrir stóðu höllustum fæti.
Meira að segja iðnrekendafélagið hefur sent frá
sér hörkulega orðaða ályktun þarsem segir fullum
fetum að skattahækkanir stjórnarinnar hafi þau
áhrif ein að herða á verðbólgunni og skerða sam-
keppnisstöðu íslenskra atvinnufyrirtækja.
Og megi draga ályktanir af svörum fólks á förn-
um vegi við spurningum fréttamanna, til dæmis
hér í Þjóðviljanum og á Stöð tvö, virðist almenn-
ingur ekki trúaður á farsælt stjórnarsamstarf út
það sem eftir er af kjörtímabilinu.
Mesta athygli vekur þó að meðal helstu að-
standenda virðist ríkja megn óánægja með stefnu
hinnar nýju stjórnar og skipan hennar. Þingmenn
Sjálfstæðisflokksins eru með hundshaus yfir nýju
ráðherrunum sínum, og tveir þeirra sáu sér ekki
fært að sýna þeim táknræna samstöðu á þing-
flokksfundi. Formanni Sjálfstæðisflokksins hef-
ur enn einu sinni tekist að koma innanflokksmál-
um þannig fyrir að allir eru óánægðir. Konur í
flokknum horfa nú upp á það að eftir mikinn kosn-
ingabyr kvennaframboðs er kvenráðherra flokks-
ins vikið til hliðar. Landsbyggðarmenn eiga að
sætta sig við að eini fulltrúi þeirra í ráðherrastól sé
Reykvíkingurinn Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi
ritstjóri Vísis. Og ungtyrkirnir í stuttbuxunum mega
una því að margboðuð kynslóðaskipti koðnuðu
niður í einn stól handa varaformanninum.
Það ólgar undir niðri í flokknum, einsog best
sést á leiðara Morgunblaðsins í gær. Þar er gert
grín að stefnu nýju stjórnarinnar með þeim orðum
að alltaf megi bæta samgöngur á Reykjanesi,
bændakvóta á Suðurlandi og fiskverslun á
Austurlandi. í leiðaranum er leiðtogi nýju stjórnar-
innar, formaður Sjálfstæðisflokksins, hund-
skammaður fyrir ráðherraval sitt, og Morgunblað-
ið lýsir beinni andstöðu við ráðherradóm forystu-
manns flokksins í Reykjanesi.
Framsóknarflokkurinn gengur heldur ekki glað-
ur til verka. Fimmtungur miðstjórnarmanna flokks-
ins sat hjá við þátttökusamþykktina, og einn af
fyrri ráðherrum flokksins, Alexander Stefánsson,
segir um stjórnarsáttmálann að framkvæmdin sé
„hvergi nægilega skilgreind" og óttast „margar
mismunandi skoðanir og erfiðleika" þegar á líður.
Dagblað Framsóknarflokksins leggur svo for-
síðu sína í gær undir þá gleðilausu tilkynningu til
stuðningsmanna sinna á landsbyggðinni að í nýju
stjórninni séu sjö af ellefu ráðherrum úr Reykjavík
og nágrenni.
Innan Alþýðuflokksins er skál nýju stjórnarinnar
þó drukkin af einna minnstri ákefð. Einn þing-
manna flokksins hefur lýst yfir að hann styðji ekki
ríkisstjórn flokks síns, og fleiri munu svipaðs sinnis
undir niðri.
Ástæðunum fyrir þunglyndi krata er best lýst
með frásögn Tímans af miðstjórnarfundi Fram-
sóknarflokksins. Þar sagði Steingrímur Her-
mannsson að flokkur sinn hefði gengið án ákefðar
til viðræðnanna, en komið hefði á daginn „að
minna bjó á bak við“ yfirlýsingar Jóns Baldvins en
mátt hefði ætla. Alþýðuflokkurinn hefði reynst
mun samningsliprari en efni stóðu til og fallið frá
eða dregið úr flestum meginkröfum sínum.
Og til að strá salti í hið opna sár „lýsti Steingrím-
ur því að það væri góðs viti ef þessir gömlu sam-
starfsflokkar næðu saman í ríkisstjórn því þeir
væru um margt líkir. Þarna hefðu verið stigin fyrstu
skrefin til að ná sögulegum sættum.“
Almennt áhugaleysi, innri óeining og óvinsældir
fyrstu aðgerða boða ráðuneyti Þorsteins Páls-
sonar ekki sérlega bjarta framtíð, þrátt fyrir tölu-
lega öflugan þingmeirihluta og mesta góðæri
síðari tíma í heimanmund.
-m
KLIPPT OG SKORIÐ
Einn og yfirgefinn en á þó samúð flestra flokksbræðra sinna: Ólafur G. Einarsson varð að lúta í lægra haldi fyrir Matta
Matt, en víst að stuðningsmenn hans ætla að hefna harma sinna í næsta prófkjöri. Mynd: E.ÓI.
- Það er ekki rétt að vera of
bölsýnn á fyrsta starfsdegi ríkis-
stjórnar Þorsteins Pálssonar, en í
ljósi þess hvernig aðdragandi að
myndun þessarar ríkisstjórnar
hefur verið og með hliðsjón af því
hvernig fór um endurnýjun ráð-
herraliðs Sjálfstæðisflokksins, er
ekki ástæða til þess að vera alltof
bjartsýnn á að ríkisstjórnin eigi
langa lífdaga fyrir höndum.
Þannig hljóðar niðurlagið á at-
hyglisverðri fréttaskýringu Agn-
esar Bragadóttur í Morgunblað-
inu í gær þar sem hún fjallar á
hálfri annarri síðu um átökin í
þingflokki Sjálfstæðismanna í
ráðherrarallýinu og aumkunar-
verða stöðu Þorsteins Pálssonar
sem varla stendur undir for-
mannsnafnbót í flokknum eftir
að hann varð að lúffa fyrir Matta
Matt og þar með hluta af „gamla
genginu“ á þingflokksfundinum í
fyrradag.
Ónýt og
skammlíf stjórn
Það er sjálfsagt einsdæmi í pó-
litískri sögu undanfarinna ára-
tuga, að yfirlýst málgagn ákveð-
ins stjórnmálaflokks lýsi því
beinlínis yfir sama dag og for-
maður viðkomandi flokks tekur
við völdum sem forsætisráð-
herra, að ríkisstjórnin hans sé
hundónýt og verði skammlíf og
sjálfur sé formaðurinn ómögu-
legur og valdalaus. Það er ekki
hægt að túlka þessi skrif Morgun-
blaðsins í gær á annan hátt en að
blaðið ætli sér á engan hátt að
taka ábyrgð á starfi þessar ný-
fæddu ríkisstjórnar né að standa
vörð um stöðu Þorsteins Páls-
sonar sem formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Orð leiðarahöfundar
Mbl. ýta enn frekar undir þetta
þar sem hann segir í gær: „Það
eru því miður nokkur þreytu-
merki á nýrri stjórn Þorsteins
Pálssonar. Þau veikja tiltrúna í
upphafi. En vonandi tekst þó vel
til og alltaf má bæta síma- og sam-
göngumál í Reykjaneskjördæmi,
kvótann á Suðurlandi og sölutil-
högun á óveiddum fiski fyrir
Austurlandi.“
Matthías
í slæmri stöðu
Matthías Á. Mathiesen fær
slíka dembu yfir sig frá Morgun-
blaðshöllinni í gær, að víst er að
honum verður ekki rótt á ráð-
herrastóli: - Matthías Á. Mathie-
sen átti að víkja fyrir nýjum
manni, hann hefur gegnt ráðherr-
aembætti í átta ár. Hann átti þess
kost að hliðra til fyrir nýjum
manni og sýna samstarfsmönnum
stórhug en valdi ylvolgan stólinn
eftir Matthías Bjarnason...held-
ur leiðarahöfundur áfram.
Sigur Matthíasar í ráðherra-
glímunni sýnir fyrst og fremst
veika stöðu Þorsteins Pálssonar
sem reynir af veikum mætti að
halda sundruðum Sjálfstæðis-
flokki saman. En það er ekki
bara Matthías sem mun sitja í
aumlegu embætti og umdeildum
stól, heldur eru hlutskipti hinna
nýju ráðherra flokksins, Friðriks
Sophussonar og Birgis ísleifs
Gunnarssonar, nýju kynslóðar-
innar, ekki hótinu skárri.
Enn erfir Friðrik
sæti Alberts
Friðrik erfði efsta sætið á list-
anum í Reykjavík fyrir þingkosn-
ingarnar í vor eftir að Albert
gekk frá borði og hann er enn í
sama hlutverkinu og erfir nú
gamla ráðherraembættið hans
Alberts líka. Það er greinilega
ekki leiðum að líkjast. Hitt er líka
athyglisvert að Friðrik er þriðji
Sjálfstæðismaðurinn sem sest í
sæti iðnaðarráðherra á sl. 5 árum
og það eina sem bíður hans þar er
þrotastefna stjóriðjudraumanna.
Það er ekki síður athyglisvert
að einn helsti stóriðjuspekúlant
Sjálfstæðisflokksins á liðnum
árum, Birgir ísleifur Gunnars-
son, formaður ótal stjóriðju-
nefnda og einn ferðakónga stór-
iðjudraumsins, er settur hjá þeg-
ar embætti iðnaðarráðherra er
annars vegar. Annaðhvort er
Birgi ekki treyst af formanni
flokksins til að halda utan um
þessi mál vegna árangursleysis í
stóriðjusölunni undanfarin ár,
eða þá að hann hefur viðurkennt
gjaldþrota stefnu flokksins í þess-
um málum. Birgir er hins vegar
laginn píanisti og því kjörinn í
embætti menntamálaráðherra að
mati formannsins.
Óspennandi
framtíð
Framtíðarverkefni hinna út-
völdu Sjálfstæðisráðherra eru
sannarlega glæsileg, eða hitt þó
heldur. Þorsteinn Pálsson stýrir
nær andvana fæddri stjórn, án
þess að hafa til þess fullt traust
flokksbræðra sinna á þingi og
með Morgunblaðið í fýlu. Matt-
hías Á. Mathiesen þröngvaði sér í
stólinn í óþökk flokksbræðra
sinna og fær það stóra verkefni að
bæta samgöngur á milli Hafnar-
fjarðar og Reykjavíkur sem
vissulega er ekki vanþörf á. Frið-
rik Sophusson er enn að erfa stó-
lana hans Alberts Guðmunds-
sonar og fær lítið að dunda í af-
skrifuðum stórdraumum og Birg-
ir ísleifur verður trúlega að slá á
nokkuð léttari strengi í ráðuneyti
menntamála en forveri hans
Sverrir Hermannsson, ætli hann
á annað borð að eiga von á fram-
tíðarvist í ráðuneytismusterinu.
-fg-
þlÓÐVILIINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttaatjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: GarðarGuðjónsson, Guðmundur RúnarHeiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
RagnarKarfsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljóamyndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson.
Útlitateiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifatofu8tjórl: Jóhannes Harðarson.
Skrlf8tofa: Guörún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýalngaatjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýaingar: Unnur Ágústdóttir, Olga Clausen, GuðmundaKristins-
dóttir.
Simvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Soffía Björgúlfsdóttir.
Bílatjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbreiðalu-og afgreiðaluatjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðala: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson.
Útkeyr8la, afgrelðsla, ritstjórn:
Sfðumúla 6, Reykja vík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setnlng: Prentsmlðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð: 60 kr.
AskrHtarvorð á mánuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. júli 1987