Þjóðviljinn - 09.07.1987, Síða 5
Kringlan
Strelst við
dag og nótt
✓
I hita og þunga dagsins. Þar láta menn hendur standa fram úr ermum
Séö inn í iður Kringlunnar. Undir
Kringlunni liggurniðurgrafin hæð.
Gangveginum í kjallaranum má líkja
við Austurstræti hvað lengd og breidd
viðkemur. Gera má þó ráð fyrir að
stemmningin verði ekki sú sama og í
gamla góða Austurstrætinu.
Þjóðviljamenn litu við í Kringl-
unni á dögunum og skyggndust
um. Um öll gólf og í öllum
skúmaskotum, voru hópar iðnað-
armanna önnum kafnir við að
fullgera húsnæðið áður en það
verður formlega tekið í notkun í
næsta mánuði.
Eitt það fyrsta sem augu manns
staldra við þegar inn í herleg-
heitin er komið, er marmarinn
sem þekur öll gólf. Á gólfbleðli á
annarri hæð, djöflaðist Sigurður
Gestsson, einn hinna fjölmörgu
iðnaðarmanna, sem leggja nótt
við dag til að fullgera Kringluna
fyrir tilsettan opnunartíma, við
slípirokk einn mikinn. „Við vinn-
um hér nánast dag og nótt. í gær
unnum við aðeins í 14 stundir, en
yfirleitt vinnum við 16 tíma á dag.
Jú, jú, blessaður vertu, þetta er
tómt púl og erfiði og lítið eftir-
sóknarvert til lengdar," sagði Sig-
urður Gestsson, um leið og hann
Það hefur sjálfsagt ekki farið
framhjá neinum, sem leið hefur
átt hjá nýja miðbænum í Reykja-
vík, að þar hefur risið ferlíki eitt
mikið, sem í daglegu tali manna
er nefnt Hagkaupshúsið, en heitir
Jögformlega Kringlan. Að utan-
verðu er í fljótu bragði hægt að
ímynda sér að hér sé um kirkju að
ræða, þar sem uppúr bygging-
unni að framanverðu skagar
turn, sem lítur út eins og kluk-
knaport kirkju.
Kringlan er á þremur hæðum
og er heildar gólfflöturinn kring-
um 30.000 fermetrar. Á hverri
hæð verður fjöldinn allur af versl-
unum, eða um 70 í það heila. Víst
er að þar innan dyra geta
neytendur orðið sér úti um hvern
þann varning sem þá kann að
vanhaga um, þótt kaupgleðin
hljóti að ráðast af innihaldi budd-
unnar.
t
stöðvaði slípirokkinn og rétti úr
sér.
„Þessi gífurlega vinna er ekki
samkvæmt okkar óskum, Við
ráðum ansi litlu um þetta. Þegar
maður er búinn að vera að slípa
marmara frá því í september á
síðasta ári, sex daga vikunnar, fer
maður að verða ansi leiður og
andlaus," sagði Sigurður.
„Jú, það kemur vitanlega tölu-
vert í budduna með slíku hátta-
lagi. En það er ekki víst að þetta
borgi þegar upp er staðið, ef
maður þarf að kaupa sér nudd-
tíma á 2-3000 krónur til að láta
lappa uppá sig eftir þessa törn,“
sagði Sigurður Gestsson og setti
maskínuna í gang, sem fretaði á-
kaft um leið og hún gljáfægði
marmarann.
Næstur á vegi okkar Þjóðvilja-
manna var ungur blikksmiður,
Óskar Jónsson. „Ég er búinn að
vinna hér í húsinu í átta mánuði.
Við vinnum sex daga vikunnar. Á
morgnana byrjum við klukkan
hálf átta og vinnum yfirleitt til
hálf tíu á kvöldin. Jú, þetta er
ærið langur vinnudagur, en það
er þó bót í máli að maður veit að
þetta er að taka enda,“ sagði
Óskar Jónsson.
Óskar sagði að hann og félagar
hans ynnu ekki eftir uppmælingu,
eða öðru afkastahvetjandi
launakerfi. „Við erum á kaupi,
Sigurður Gestsson fægir marmarann
í Kringlunni: Ég er búinn að pússa
marmara síðan í september í fyrra-
sex daga vikunnar. Ég get ekki neitaö
því að ég er að verða dálítið lúinn og
andlega sljór eftir allt slípiríið.
Óskar Jónsson, blikksmiður, hefur
unnið átta mánuði við byggingu
Kringlunnar.
Steinar Waage, skókaupmaður, er
einn þeirra sjötíu aðila sem hyggur á
verslunarrekstur í Kringlunni.
Myndir E.ÓI.
Þeir höfðu i nógu að snúast strákarnir, sem vinna við að gljáfægja marmarann,
sem þekur góðan hluta af 30.000 fermetra gólffleti Kringlunnar.
sem er örlitlu fyrir ofan um-
samdan taxta,“ sagði Óskar Jóns-
son.
Þótt óðum styttist í þann dag,
sem Kringlan verður tekin f notk-
un, er ljóst að enn eiga þeir, sem
bera hitann og þungann af fram-
kvæmdunum, - iðnaðarmennirn-
ir, eftir að inna mörg handtök af
hendi, áður en allt verður tilbúið.
Hard Rock Cafe, - greiðastaður,
virtist næst því að vera tilbúinn til
notkunar. Þegar er „general-
prufan“ búin á Rokk kaffinu, því
4. júli, á þjóðhátíðardegi Banda-
ríkjanna, var bandaríska sendi-
ráðið með veislu þar inni fyrir
hátt í hundrað manns. Að sögn
starfsfólks Kaffisins virtust Kan-
arnir,skemmta sér hið besta, þótt
ekki væri enn búið að fjarlæga öll
verkfæri og hefilspænina á gólf-
unum.
-RK
Flmmtudagur 9. júlf 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5