Þjóðviljinn - 09.07.1987, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN
Til sölu
Vil selja Baby Björn barnabaðborð,
barnarimlarúm og þurrkara. Uppl. í
síma 46504.
Reiðhjól óskast
Bráðvantar 2 notuð kvenreiðhjól
annað 10gíra. Uppl. ísíma 689910
eða 34250.
Óska eftir að kaupa
vel með farið stórt reiðhjól, má vera
gamalt en vel með farið og barna-
stól á hjólið. Á sama stað er til sölu
gamalt eins manns rúm með dýnu.
Sími 17087.
Skenkur úr tekki
til sölu á kr. 1 þús. Góð eign. Sími
76229.
Gömul þvottavél óskast
gefins. Uppl. í síma 17161, 40667
og 46538.
Rafha eldavél
52 cm breið í ágætu lagi fæst fyrir
1500 kr. Uppl. I síma 22983.
Herbergi til leigu
Gott herbergi til leigu. Uppl. í síma
25193.
Stofuskápur - dúkkuvagn
Stofuskápur með glerjum módel
1947 til sölu ódýrt. Á sama stað
óskast ódýr en heill dúkkuvagn.
Upplýsingar í síma 681310 á dag-
inn og í síma 36718 á kvöldin.
Til sölu
Mercury Comet árg. 1974, tveggja
dyra, sjálfskiptur með vökvastýri.
Ekinn 126 þús. km. Dökkbrúnn
með vinyltopp. Tveir eigendur frá
upphafi. í góðu lagi og selst á góð-
um kjörum. Uppl. í síma 23982.
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Óska eftir skrifborði
gefins eða mjög ódýrt. Uppl. í síma
17593 eða 25814.
Til sölu
2ja mánaða gamalt svart AIWA
kassettutæki með útvarpi, tvöföldu
kassettukerfi, 5 banda tónjafnara
og lausum hátölurum. Uppl. í síma
612486 eftir kl. 7 á kvöldin.
Húsmóðir óskast
Kona óskast til að sjá um heimili og
3 börn. Góð laun í boði. Uppl. í síma
20278.
2ja-3ja herb. íbúð
óskast á leigu
Uppl. í síma 32372 og 671333.
Óska eftir að kaupa
framstuðara
á Datsun '77 og millibilsstöng. Á
sama stað er til sölu 5 gata 14
tommu felgur og framhúdd á Dats-
un diesel ’83-’87 á gjafverði. Sími
76282 eftir kl. 18.
Til sölu
austurlenskt hnífaparasett mjög fal-
legt, 144 stk. í teaktösku. Uppl.í
síma 16457.
Tvö notuð
kvenreiðhjól óskast helst 26 tommu
gírahjól. Á sama stað eru ánamað-
kar til sölu. Uppl. í síma 681274.
Til sölu
teak borðstofuborð + 4 stólar. Selst
ódýrt. S. 686439.
Þvottavél óskast
Notuð þvottavél óskast keypt, helst
CANDY, má vera biluð. Uppl. í síma
16099 eða 35368.
Fyrir ungabörn
Nýlegur kerruvagn til sölu selst á kr.
6 þús. Uppl. í síma 16628.
Barnagæsla
4ra ára stelpu vantar einhvern góð-
an, stelpu eða strák, til að vera með
sér úti fyrir og/eða eftir hádegi. Um
er að ræða júlímánuð og fyrstu vik-
una í ágúst. Tímalengd fer eftir
samkomulagi. Góð laun fyrir góðan
krakka. Uppl. í síma 20772.
Geymsluhúsnæði
til leigu, rúmgott, upphitað
geymsluhúsnæði m/sérinngangi.
Uppl. í síma 41039 í dag og næstu
daga.
íbúð óskast
Er ekki einhver sem vill leigja ungu
og reglusömu pari 2-3ja herb. íbúð
á sanngjörnu verði? Öruggum
greiðslum og reglusemi heitið.
Ibúðin má þarfnast lagfæringar.
Uppl. í síma 45801.
íbúð óskast
Námsmaður óskar eftir íbúð fyrir sig
og konu sína frá og með 1. sept.
Reglusemi og öruggar greiðslur.
Einhver fyrirframgreiðsla. Uppl. í
síma 84117.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð til leigu. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Uppl. í síma 91-686856 og
93-2567 á kvöldin.
Rafha-eldavél
fæst gefins, sé hún sótt. Sími 33241
e. kl. 19.15 í kvöld.
þJÓÐVlLliNN
Mötuneyti -
sumarafleysingar
Þjóðviljann vantar starfsmann til að sjá um létta
máltíð í hádeginu næstu 6 vikurnar (sendill sér
um innkaup).
Vinnutími kl. 10-14. Upplýsingar gefur fram-
kvæmdastjóri í síma 681333.
Iðnbúð 3, Garðabæ.
Önnumst hverskonar biikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
46711
Fiskifræðingar segja að verði farið að tillögum þeirra um 20% minni sókn í þorskstofninn næstu tvö ár muni fiskgengd á
vertíðarsvæðunum aukast að nýju.
Hafrannsóknastofnun
Ástand fiskstofna
og aflahorfur
Hafrannsóknastofnun vill að góðœrið ísjónum verði notað til
að byggja upp þorskstofninn. Ýsansjaldansterkari, ufsinn
stöðugur og hrun karfastofnsins stöðvað
Tillögur Hafrannsóknastofn-
unar um 300 þús. tonna hámarks-
þorskafla á næsta ári sem kynntar
voru fyrir hagmsmunaaðiium
sjávarútvegs í fyrri viku, hafa
mætt meiri skilningi og jákvæðari
undirtektum bæði sjómanna og
útgerðarmanna en tillögur stofn-
unarinnar frá fyrri árum um
samdrátt í þorskveiði.
Jakob Jakobsson forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar segir það
ánægjuefni hve viðbrögð hafa
verið góð við tillögum stofnunar-
innar sem þýða um 20% samdrátt
í þorskveiði á næsta ári miðað við
þau 360 þús. tonn sem líklega
veiðast á þessu ári. Hann segir
jafnframt að samsetning þorska-
flans síðustu ár hafi einmitt fært
sönnur á fyrri spár fiskifræðinga
um stöðu þorskstofnsins og því sé
trúlega tekið betur í tillögurnar
nú en þegar svarta skýrslan var
kynnt á sínum tíma.
Annar hver þorskur
smáfiskur
í úttekt Hafrannsóknastofn-
unar á nytjastofnum sjávar og afl-
ahorfum fyrir næsta ár kemur
m.a. fram að trúlega mun annar
hver þorskur sem veiðist á þessu
ári verða ýmist þriggja eða fjög-
urra ára gamall, árgangur 1984 og
83, meðalþyngd 1.5-2 kg. Hlut-
fall smáfisks í heildaraflanum er
þannig sífellt að aukast, og fari
aflinn fram yfir 360 þús. tonn á
þessu ári eykst hlutfall smáþorsks
enn frekar.
Fiskifræðingar gera ráð fyrir að
veiðistofn þorsks í ársbyrjun hafi
verið um 1 miljón tonn og ársafl-
inn er því hátt í 40% af veiðistofn-
inum, þe. fjögurra ára fiskur og
eldri. Veiðistofninn um næstu
áramót verði um 1.160 þús. tonn,
aukist um 12% vegna sterka árg-
angsins frá 1984. Argangurinn frá
1985 í meðallagi stór en árgan-
gurinn frá í fyrra er hins vegar
mjög slakur og það veldur
mönnum áhyggjum.
300 þús. hámark
næstu tvö ár
Ef veidd verða 400 þús. tonn af
þorski á næsta ári og sama magn
árið 1989 mun hrygingarstofninn
standa í stað að mati Hafrann-
sóknastofnunar en veiðistofninn
minnka úr 1.160 þús. tonnum í
950 þús. tonn. Ef ársaflinn bæði
þessi ár verður hins vegar 350
þús. tonn helst veiðistofninn
óbreyttur árin 1988 og 1989 en
minnkar um 10% árið 1990.
Stofnunin leggur hins vegar til að
ekki verði veitt meira en 300 þús.
tonn hvort árið um sig en það yrði
til þess að veiðistofninn myndi
vaxa lítillega en hrygningastofn-
inn mun meira og verða kominn
upp í 500 þús. tonn árið 1990, sem
myndi þýða aukna fiskgengd á
vertíðarsvæðunum sunnan- og
vestanlands.
Ýsustofninn
sjaldan stærri
Ástand ýsustofnsins hefur
sjaldan verið betra en nú og fiski-
fræðingar eru það bjartsýnir að
þeir leggja til að veiðin úr stofnin-
um verði aukin á næsta ári úr 50
þús. tonnum í 60 þús. tonn og
aftur árið 1989 í 70 þús. tonn.
Þessi væntanlega aukning í ýsu-
veiði ætti að geta komið að
nokkru leyti uppí niðurskurð í
þorskveiði, verði farið að til-
lögum fiskifræðinga.
Veiðistofninn þ.e. fjögurra ára
og eldri ýsa, er nú áætlaður 175
þús. tonn og hrygningarstofninn
rúm 105 þús. tonn. I stofnmæl-
ingaleiðangri sem farin var í mars
sl. kom fram að árgangarnir frá
1984 og 85 eru mjög sterkir, þó
sérstaklega 85 stofninn sem er nú
talinn vera um 180 miljónir fiska
sem er Iangstærsti ýsuárgangur
sem fram hefur komið í 30 ár, en
meðalárgangur ýsu telur um 66
miljónir fiska. Þetta er því nær
þrefaldur meðalárgangur sem
kemur inn í veiðina á næsta ári.
Ufsinn líka sterkur
í ár er búist við að ufsaaflinn
verði um 70 þús. tonn sem er ívið
meiri afli en fékkst í fyrra. í nýju
stofnmati er gert ráð fyrir að 1983
árgangurinn sé stór og að bæði
veiðistofn og hrygningarstofn
ufsa fari vaxandi á næstu árum.
Hafrannsóknastofnun hefur
því lagt til að aflahámarkið á
næsta ári verði 75 þús. tonn og 80
þús. tonn árið 1989. Með þessum
veiðum mun veiðistofninn vaxa í
450 þús. tonn árið 1990 og hrygn-
ingarstofninn í tæp 300 þús. tonn.
Karfinn að
ná sér aftur
Fiskifræðingar telja að hnign-
un karfastofnsins á undanförnum
árum hafi nú stöðvast í bili. í ár er
reiknað með að karfaaflinn verði
um 85 þús. tonn sem er svipaður
afli og á sl. ári.
Niðurstöður úr nýju stofnmati
á karfa benda til þess að veiðist-
ofninn (11 ára og eldri) sé nú um
740 þús. tonn en hann hefur hrap-
að úr um 900 þús. tonnum árið
1981. Sömu sögu er að segja um
hrygningarstofninn sem er nú
áætlaður um 400 þús. tonn en
hann var um 460 þús. tonn árið
1981.
Djúpkarfaaflinn á íslandsmið-
um hefur minnkað töluvert á sl.
árum og var í tæp 19 þús. tonn, en
um 25 þús. tonn árið á undan.
Hafrannsóknastofnun leggur til
að áfram verði dregið úr sókn í
djúpkarfann og að hámarkskarf-
aafli á íslandsmiðum á næsta ári
verði 75 þús. tonn af báðum karf-
ategundunum. Með því afla-
magni mun stofninn standa nokk-
uð í stað.
-Ig.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. júlí 1987