Þjóðviljinn - 09.07.1987, Blaðsíða 7
Rúdolf Kristinsson formaður
Fornbílaklúbbsins lenti í klónum á
blaðamönnum þar sem hann var
að taka bensín á Fordinn sinn á
Esso stöðinni í Borgarnesi. Þetta
er A-model af Ford frá 1929, en
auk hans á Rúdolf sömu gerð frá
1930. „Ég er búinn að liggja í
þessum bílum í fimm ár, þeir eru
nýkomnir á götuna. Ég hafði
ákveðið að fara hringinn á þeim
með fjölskylduna, en félagar mín-
ir í klúbbnum gripu hugmyndina á
lofti og við útfærðum hana í þessa
mynd. Þessi ferð er farin til þess
að kynna klúbbinn í tilefni 10 ára
afmælisins, en ekki síst til þess að
vekja athygli á góðum málstað
Krýsuvíkursamtakanna og safna
áheitum fyrir starf þeirra. Við von-
um auðvitað að sem flestir fé-
lagar okkar í klúbbnum taki þátt í
þessu með okkur og að sem mest
fé safnist," sagði Rúdolf. Fordinn
hans er elsti bíllinn sem ætlað er
að aka hringinn að þessu sinni.
Eldri bíll er að vísu með í för og
verður hann með á þeim fjöl-
mörgu sýningum sem klúbburinn
stendur fyrir í ferðinni.
Á heitasöfnun
Fombílar í tangarsókn gegn vímu
Yfir tuttugu bílar úr Fornbílaklúbbnum lögðu afstað í tíu daga hring-
ferð um landið ígœrmorgun. Fagna tíu ára afmœli klúbbsins ogsafna
áheitumfyrir málstað Krýsuvíkursamtakanna. Krakkar úr Þrótt-
heimum hjóla á móti þeim og hitta þá á Egilsstöðum
Félagar í Fornbflaklúbbnum
héldu í langferð frá Reykjavík kl.
9.00 I gærmorgun. Þeir hyggjast
fara hringveginn og fagna þannig
10 ára afmæli klúbbsins um ieið
og þeir safna áheitum fyrir Krýs-
uvíkursamtökin í Tangarsókn
gegn vímu.
„Það héldu yfir 20 bílar af stað
frá Reykjavík í morgun en við
eigum von á að fleiri taki þátt í
ferðinni. Félagar í Fornbíla-
klúbbnum eru 320 talsins og
margir þeirra búa utan Reykja-
víkur og við væntum þess að þeir
taki þátt í þessu með okkur. Við
gerum ráð fyrir að ferðin taki 10
daga og hyggjumst koma aftur til
Reykjavíkur 17. júní,“ sagði Rú-
dolf Kristinsson formaður klú-
bbsins þegar Þjóðviljamenn hittu
hann og félaga hans eftir fyrsta
áfangann. Bílalestin var þá í
Borgarnesi og var í þann mund að
leggja af stað norður.
Fjölmargir aðilar styrkja þessa
ferð klúbbsins, sem farin er öðr-
um þræði í þeim tilgangi að safna
áheitum fyrir Krýsuvíkursam-
tökin, sem eru að koma upp með-
ferðarheimili fyrir unglinga í
Krýsuvíkurskólanum.
Krakkar úr félagsmiðstöðinni
Þróttheimum taka einnig þátt í
söfnuninni. Þeir héldu af stað frá
Reykjavík á reiðhjólum í gær og
nefna uppátækið Hringhjól.
Þróttheimakrakkar fara öfugan
hring við fornbílaeigendur, en
gert er ráð fyrir að ferðalangarnir
hittist á Egilsstöðum.
Fornbílaeigendur verða með
sýningar á bílunum á áningar-
stöðum og verður sú síðasta hald-
in í Reykjavík að leiðarlokum.
Margar glæsikerrur eru þarna
með í för og er sá elsti rúmlega 60
ára gamall. Fæstir þeirra hafa far-
ið hringinn áður svo hringferðin
er nokkurs konar eldskírn fyrir
Sveinn Meyvantsson leigubílstjóri á Bæjarleiðum hefur farkost við hæfi í hringferð F ornbílaklúbbsins og ekki er
búningurinn af verra taginu. Vagninn er af Austin gerð frá 1971. „Þessir bílar hafa verið framleiddir sérstaklega í
leigubílaakstur í Lundúnum frá því skömmu eftir stríð. Þeir eru mjög fornir að sjá, enda hefur þeim varla verið breytt að
ráði frá því framleiðslan hófst," sagði Sveinn í stuttu spjalli við blaðamann. Stýrið er auðvitað hægra megin í þessum
Lundúnaleigubíl, sem er sá eini sinnar tegundar á íslandi. Sveinn sagði að hægt væri að keyra þessa bíla nánast
endalaust og honum ætti því ekki aö verða skotaskuld úr því að komast þessa 1596 kílómetra frá Reykjavík til
Reykjavíkur. Þessi eðalvagn er í eigu Úlfars Eysteinssonar veitingamanns í Reykjavík. Myndir Loftur Atli.
sumaþeirra,þóttþeirséukomnir eldri bílar hafa ekki farið hring-
á háan aldur. En það er víst að veginn áður. -gg
Nær sextugir Fordbílar eru ekki algeng sjón á þjóðvegum landsins nú til dags
og það er hætt við að margir ökumenn stálfáka nútímans reki upp stór augu
þegar þeir bruna fram úr þessum virðulega vagni á næstu dögum.
Bílarnir í tangarsókn gegn vímu eru samviskuksamlega bónaðir og vel til hafðir
eins og öldungum sæmir. Ljósmyndarinn Loftur brá út af venjunni í gær og
myndaði sjálfan sig í króminu á einum þeirra.
Fimmtudagur 9. júli 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 7