Þjóðviljinn - 09.07.1987, Blaðsíða 8
Brotnarörvar
og horfnir risar
Það er nær ófrávíkjanleg
regla kjarnorkuveldanna að
viðurkenna aldrei slys sem
tengjast kjarnorkuvopnum og
kjarnorkuknúnum herskipum.
Þótt hvergi í veröldinni sé jafn-
greiður aðgangur að upplýs-
ingum og í Bandaríkjunum þá
er það grundvallarstefna þar-
lendra hernaðaryfirvalda að
játa hvorki né neita nokkru er
varðar tilvist kjarnorku vopna. í
samræmi við það hafa þau
venjulega haldið öllum upp-
lýsingum leyndum um kjarn-
orkuvopnaslys nema þau hafi
verið neydd til að birta þær, t.d.
á grundvelli laga um frjálsan
aðgang að upplýsingum (Free-
dom of Information Act) eða
vegna þess að af tvennu illu
var betra að skýra frá slysinu.
Hin kjarnorkuveldin, Sovétrík-
in, Bretland, Frakkland og
Kína hafa aldrei skýrt frá einu
einasta slysi í kjarnorkuher
sínum.
60.000 kjarnavopn
og 522 fljótandi
kjamakljúfar
U.þ.b. 60.000 kjarnorkuvopn
eru sögð vera til í heiminum með
sprengimátt sem nemur 15.000
megatonnum af TNT-
sprengiefni. Stærstu sprengjurn-
ar vega mörg tonn, þær smæstu
komast fyrir í handtösku. Risa-
veldin tvö, Bandaríkin og Sovétr-
íkin eiga bróðurpartinn af þess-
um vopnum. Mikið magn kjarn-
orkuvopna er geymt í námunda
við þéttbýlustu svæði jarðarinn-
ar. Kjarnorkuknúin gervitungl
hafa verið á sveimi yfir höfðum
jarðarbúa. Talið er að til séu 334
kjarnorkuknúin skip og kafbátar
með u.þ.b. 522 kjarnakljúfa
innanborðs; þar af eiga Sovétrík-
in 188 skip, Bandaríkin 113,
Bretland 19, Frakkland 9 og Kína
5 og þessum skipum fer fjölgandi.
Kjarnorkuveldin munu saman-
lagt eiga meira en 7.200 langd-
rægar kafbátaeldflaugar til árása
á heimaland óvinarins og u.þ.b.
5.900 skammdræg kjarnorku-
vopn til nota gegn skipum, kafbá-
tum, flugvélum og skotmörkum í
landi. AIIs munu því vera í
heimshöfunum 13.200 kjarnork-
uvopn en aðalvettvangur þessa
vígbúnaðar er norðaustanvert
Atlantshaf, hafssvæðið fyrir
norðan og austan ísland.
Við vitum að öll þessi kjarn-
orkuvopn geta tortímt lífi á jörð-
inni svo og svo mörgum sinnum.
Milljónir almennra borgara hafa
orðið fyrir mengun geislavirkra
efna vegna tilrauna með kjarn-
orkusprengingar í andrúmsloft-
inu og hundruð þúsunda her-
manna hafa með vitund og vilja
yfirmanna sinna orðið fyrir lífs-
hættulegri mengun af þessum
sökum. Hernaðaryfirvöld kjarn-
orkuveldanna halda því hins veg-
ar fram að engin hætta sé á kjarn-
orkuslysi í hernaði. Þau hrósa sér
af því að kjarnorkusprenging
vegna slysni hafi aldrei átt sér
stað í 40 ára sögu kjarnorkunnar.
Þau fullyrða líka að gerðar séu
miklu strangari öryggiskröfur
innan hersins en almennt tíðkast
og því sé nánast engin slysahætta.
Staðreyndirnar tala hins vegar
öðru máli.
Haustið 1982 skaut danskt
NATO-herskip, Harpoon, stýri-
flaug óvart á danskan sumarbú-
stað ekki langt frá Kaupmanna-
höfn. Eftir slysið voru birtar
nokkrar yfirlýsingar þar sem ým-
ist var talað um mannleg mistök
eða tæknilegar orsakir. Hér var
að sjálfsögðu ekki um kjarnorku-
sprengju að ræða en uppi eru
áform um að setja kjarnaodda í
bandarískar Harpoonflaugar og
sams konar slys hefði hæglegt
getað hent með kjarnorkuflug-
skeyti.
Vorið 1984 kom upp eldur í so-
vésku flotastöðinni í Severem-
orsk á Kolaskaga og miklar
sprengingar urðu. Talið er nær
fullvíst að þarna hafi m.a. brunn-
ið eldflaugar og því gæti hafa orð-
ið alvarlegt kjarnorkuslys.
Föstudaginn 28. desember
1984 var gamaldags stýriflaug af
gerðinni SS-N-3 (Shaddock)
skotið úr sovéskum kafbáti í Bar-
entshafi. Flauginni var ætlað að
vera tilraunaskotmark og var
stefnt í norðausturátt en skyndi-
lega sveigði hún í þveröfuga átt
og stefndi í suðvestur inn yfir
Noreg og Finnland þar sem henni
var að lokum eytt yfir Enare-
vatni. Flaugar af þessari gerð
bera venjulega 350 kílótonna
kjarnaodd (20 sinnum öflugri en
Hírósímasprengjan). Þegar
flaugin kom fram á ratsjárskjám
Norðmanna gátu þeir fljótlega
séð hvers konar flaug var á ferð-
inni en þeir gátu með engu móti
vitað að hún væri óvopnuð né
heldur hvert henni væri stefnt;
þeir urðu einfaldlega að taka
áhættuna af því að hér væri um
mistök að ræða en ekki árás.
Nákvæmlega hálfum mánuði
eftir að þetta atvik átti sér stað
kom upp eldur í hreyfli Pershing
2 eldflaugar, sem verið var að
setja upp í bandarískri herstöð
nálægt borginni Heilbronn í
Þýskalandi. Flaugin sprakk í loft
upp, þrír hermenn fórust og 16
slösuðust. 50 kílótonna kjarna-
oddi hafði ekki verið komið fyrir í
flauginni þegar slysið varð og
talsmaður Bandaríkjahers lagði
áherslu á að þýskur almenningur
hefði aldrei verið í nokkurri
hættu.
Ekkert þessara slysa, nema
sennilega eldsvoðinn á Kola-
skaga, flokkast undir kjarnorku-
slys en þau sýna rækilega hver
hætta er á ferðum og kjarnorku-
slys hafa gerst í hernaði eins og
nánar verður skýrt frá.
Fimm flokkar
kjarnorkuslysa
Bandaríkjaher skiptir kjarn-
orkuslysum í fimm flokka:
1. „Nucflash“ eða kjarnablossi
eru þau atvik kölluð, þ.á m. hugs-
anleg kjarnorkusprenging, sem
skapað gætu hættu á kjarnorkust-
yrjöld milli Bandaríkjanna og So-
vétríkjanna.
2. „Broken Arrow“ eða brotin
ör er notað um alvarleg slys án
þess að um stríðshættu verði að
ræða, t.d. kjarnorkusprengingu,
sprengingu og bruna í kjarnorku-
vopni þannig að geislavirk meng-
un myndast, þjófnað eða kjarn-
orkuvopn tapast með einhverjum
hætti. Hér er yfirleitt um atvik að
ræða þar sem almenningur er í
talsverðri hættu.
3. „Bent Spear“ eða bogið spjót
er notað um hættuleg atvik önnur
en þau sem flokkuð eru sem slys
en valda þó greinilega tjóni á
kjarnorkuvopni eða hluta þess
þannig að nauðsynlegt er að yfir-
fara vopnið eða skipta um það;
atvik sem krefjast tafarlausra ör-
yggisráðstafana og geta leitt til
mótmæla almennings.
4. „Dull Sword“ eða bitlaust
sverð er notað um hættuminni
atvik en í þriðja flokki, sem þó
geta aukið hættu á sprengingu
eða geislavirkri mengun.
5. „Faded Giant“ eða horfínn
risi er notað um slys í kjarnakljúf-
um herskipa og kafbáta, mjög
samsvarandi þeim slysum sem
Kjarnorkuslysí
hernaði
1. grein
eiga sér stað í kjarnorkuverum á
landi.
Kjarnorkusprenging fyrir
slysni samkvæmt 1. eða 2. flokki
hér að ofan hefur aldrei átt sér
stað og flókinn öryggisbúnaður í
kjarnaoddum er talinn tryggja að
ekki séu miklar líkur á slíku slysi.
Nokkrum sinnum hefur þó ekki
munað miklu. Árið 1959 mun
Krúsjof þáverandi forsætisráð-
herra Sovétríkjanna hafa sagt
Nixon varaforseta Bandaríkj-
anna frá sovéskri kjarnorkueld-
flaug sem skotið hafði verið
vegna mistaka í átt til Alaska en
var eytt í lofti meðfjarstýringu. Á
miðjum 7. áratugnum skaut
bandarískur orrustuflugmaður
óvart kjarnorkuflugskeyti á
norður-víetnamska fallbyssubáta
á Haiphong-flóa. í Sex daga
stríðinu í júní 1967 gerðist sé
ótrúlegi atburður að ísraelskar
herþotur réðust á bandaríska
njósnaskipið Liberty skammt
undan ströndum Egyptalands.
Fjórar Phantomþotur frá flug-
móðurskipinu America voru
sendar gegn ísraelsku vélunum,
VIGFÚSGEIRDAL
SKRIFAR
■■ Önnur grein Vigfúsar um
kjarnorkuslys í hernaði birtist
á morgun, föstudag, og hin
þriðja í laugardagsblaðinu
en þær urðu að hætta við árás
vegna þess að á síðustu stundu
uppgötvaðist að þær voru ein-
öngu búnar kjarnorkuvopnum.
nóvember 1979 var þjálfunarf-
orrit óvart sett í tölvu Bandaríkj-
ahers í höfuðstöðvum Loftvarna
Norður-Ameríku, NORAD
(North American Air Defense
System), í Coloradó. Tölvan
sýndi allsherjarárás Sovétríkj-
anna, sex mínútur liðu þangað til
mistökin uppgötvuðust en þá
höfðu B-52 sprengiþotur með
kjarnorkuvopn verið sendar á
loft. Tölvubilanir eru algengar og
meira en 100 svokallaðar „fal-
skar“ viðvaranir eiga sér áríega
stað í varnarkerfi Bandaríkj-
anna.
32 „brotnar örvar“
Bandaríkjaher hefur viður-
kennt 32 „brotnar örvar“ eða al-
varleg kjarnorkuslys á tímabilinu
1950-1968 og vitað er um nokkur
slys af þessu tagi til viðbótar.
Sprengiþota ferst í Norður-
Karólínu: 24. janúar 1961 hrap-
aði B-52 sprengiþota nærri
Goldsboro í Norður-Karólínu en
í þann mund sem það gerðist var
varpað úr vélinni tveimur 24
megatonna vetnissprengjum
(jafngildi 3200 Hírósíma-
sprengja). Fallhlíf annarrar
sprengjunnar opnaðist og hún
kom til jarðar tiltölulega
óskemmd. Hin sprengjan hrap-
aði til jarðar og splundraðist þar.
Hlutar úr sprengjunni, sem inni-
héldu úraníum, hafa aldrei fund-
ist. Sennilega hefur aldrei verið
jafnmikil hætta á kjarnorku-
sprengingu og þarna. Fimm ör-
yggislokar af sex gáfu sig, þannig
að aðeins einn rofi kom í veg fyrir
að 24 megatonna kjarnorku-
sprengja þurrkaði út mikinn
hluta Norður-Karólínufylkis.
Slysið við Goldsboro átti sér
stað aðeins fjórum dögum eftir
að John F. Kennedy sór embætt-
iseið sinn sem forseti Bandaríkj-
anna. Hann komst fljótlega að
raun um að þetta var engan veg-
inn einstakur atburður; honum
mun hafa verið greint frá 60 slys-
um er tengdust kjarnorkuvopn-
um. Þessi atburður hafði þau
áhrif á hinn nýskipaða forseta að
hann fyrirskipaði endurskoðun á
öryggisbúnaði kjarnorkuvopna
og hann lét einnig sjá til þess að
sovéskir diplómatar og vísinda-
menn fengju allar nauðsynlegar
upplýsingar um þessi mál til að
tryggt væri að gerðar yrðu svipað-
ar öryggisráðstafanir varðandi
sovésk kjarnorkuvopn.
Vetnissprengjur falla á Palom-
ares: 17. janúar 1966 varð árekst-
ur milli B-52 sprengiþotu og KC-
135 eldsneytisflugvélar er fyrr-
nefnda vélin var að taka eldsneyti
í lofti. Báðar vélarnar hröpuðu
skammt frá spænska fiskiþorpinu
Palomares. Sprengiþotan bar
fjórar öflugar vetnissprengjur og
féllu þrjár til jarðar nærri Palom-
ares en ein lenti í Miðjarðarhafi
og fannst ekki fyrr en tæpum
þremur mánuðum seinna. TNT-
sprengiefni í tveimur sprengj-
anna sprakk með þeim afleiðing-
um að plútóníummengun
dreifðist yfir byggðarlagið. Fjar-
lægja þurfti u.þ.b. 1400 tonn af
jarðvegi og gróðri og flytja til
Bandaríkjanna í sérstakar
geymslustöðvar fyrir geislavirkan
úrgang. Kostnaður við hreinsun-
araðgerðirnar nam 52 milljónum
dollara.
Flugslys við Thule á Græn-
landi: 21. janúar 1968 hrapaði B-
52 sprengiþota með fjórar vetn-
issprengjur innanborðs nálægt
herflugvellinum í Thule á Græn-
landi. Mikill eldur kom upp þar
sem vélin hrapaði og brunnu
sprengjurnar. Bandaríkjaher
þurfti að fjarlægja 6,5 milljón
lítra af menguðum snjó og ís.
Miklar umræður um þetta slys
urðu nýverið í dönskum blöðum
vegna þess að komið hefur í ljós
óeðlilega há dánar- og sjúkdóms-
tíðni meðal þeirra Dana sem
störfuðu í Thule þegar slysið
varð. Slys þetta sýndi einnig að
Bandaríkin virtu ekki kjarnorku-
vopnabann danskra stjórnvalda.
Titan II eldflaug springur: 19.
september 1980 varð heiftarleg
sprenging í eldflaugasílói fyrir
langdræga Titan II eldflaug, ekki
langt frá Damascus í Arkansas-
fylki í Bandaríkjunum. 740 tonna
þungt lok sílósins splundraðist og
þeyttist í loft upp; sflóið og eld-
flaugin gereyðilögðust. 9 mega-
tonna kjarnaoddur flaugarinnar
féll til jarðar u.þ.b. 180 metrum
frá sflóinu. Einn maður fórst og
21 slasaðist í þessu slysi. Fulltrúi
bandaríska flughersins, Hans
Mark, var spurður eftir slysið
hvort sprenging sem þessi hefði
getað orsakað kjarnorkuspreng-
ingu. Mark áréttaði að mögu-
leikinn á kjarnorkusprengingu
vegna slyss væri afskaplega lítill
en hann viðurkenndi að hann
væri fyrir hendi. Sovéskur
njósnahnöttur varð sprengingar-
innar var og sendi viðvörun um
að bandarískri eldflaug hefði ver-
ið skotið á loft.
Þetta eru fjögur dæmi þeirra
„brotnu örva“ sem bandarísk
yfirvöld hafa opinberlega gengist
við. Vitað er um fleiri slys sem
þau hafa aldrei fengist til að stað-
festa. Fjórum dögum áður en
eldflaugasprengingin varð í Ark-
ansas brann t.d. B-52 sprengi-
þota á herflugvelli í Grand Forks
íNorður-Dakota með kjarnorku-
sprengjur um borð. Álmanna-
varnir fylkisins komust að þessu
með því að hlera tilkynningu
flughersins um „brotna ör“. Pen-
tagon hefur hvorki fengist til að
játa né neita þessu slysi.
Þótt Sovétríkin, Bretland,
Frakkland og Kína hafi aldrei
fengist til að birta skýrslur um
slys er tengjast kjarnorkuvopn-
um þeirra er vitað um slík slys;
samkvæmt árbók sænsku friðar-
rannsóknastofnunarinnar,
SIPRI, 1977 og fleiri heimildum
er vitað með vissu um 7 sovéskar
„brotnar örvar“ og 10 „bogin
spjót“. Einnig er vitað um 3 bresk
„bogin spjót“. Ástæða er til að
ætla að þessi slys séu mun fleiri.
Bandaríkjafloti
viðurkennir 630 slys
Þar til í september í fyrra hatöi
bandaríski sjóherinn aldrei við-
urkennt opinberlega meira en
fimm slys og hættuleg atvik er
tengdust kjarnorkuvopnum en
þá höfðu undangengin fimm ár
staðið yfir merkileg réttarhöld í
Honolulu á Hawaii vegna máls er
bandaríska kvekarahreyfingin,
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. júlí1987