Þjóðviljinn - 09.07.1987, Side 10
ERLENDAR FRÉTTIR
Indland
Sikhar óttast
skálmöld
3 sikhar voru vegnir ígœr í hefndarskynifyrir
morð trúbrœðra sinna á 72 hindúum. Porri
sikhafordœmirfjöldamorðin en óttast
grimmilega hefnd
Um 1500 bálreiðir hindúar
reyndu í gær að ryðjast inn á
heimili innanríkisráðherra
Gandhistjórnarinnar, sikhans
Buta Singh, í Nýju-Delhi en urðu
frá að hverfa eftir átök við lög-
reglusveitir. Flestir þeirra kváðu
vera félagar í Bharatiya Janata-
flokknum sem er skipaður
heittrúuðum hindúum og finnur
Kongressflokki Rajivs Gandhis
forsætisráðherra flest til foráttu.
Fréttir hermdu að þrír sikhar
hefðu orðið heiftúðugum hindú-
um að bráð, einn í höfuðborginni
og tveir í Haryanafylki. Her og
lögregla voru hvarvetna í við-
bragðsstöðu og mikil spenna ríkti
í Chandigarh, sameiginlegri höf-
uðborg Haryana og Punjab-
fylkja. Flestum skólum, verslun-
um og útimörkuðum þar um slóð-
ir var lokað í gær í mótmælaskyni
við hryðjuverkin í fyrradag og á
mánudag.
Flestir sikha í Nýju-Delhi og
Haryana héldu sig innandyra af
ótta við hefndarvíg hindúa. „Nú
eru erfiðir tímar framundan fyrir
sikha á Indlandi," sagði sikhinn
og læknirinn H.S. Malhotra en
hann starfar við sjúkrahús í
Chandigarh og veitti særðum
fórnarlömbum hryðjuverka-
mannanna umönnun í fyrra-
kvöld.
Margir trúbræðra hans tóku í
sama streng en viðbrögð þeirra
segja meira en mörg orð um ör-
væntinguna sem ríkir meðal al-
mennings í Haryana og Punjab
nú eftir samfellda lotu hrannvíga
og hefndarmorða hindúa og sik-
ha um árabil. Fyrir fáeinum árum
voru samskipti þessara trúhópa
með miklum ágætum og höfðu
verið um aldir.
Sikhar skera sig mjög úr á Ind-
landi og eru auðþekkjanlegir á
vefjarhetti og síðu skeggi. Það er
því litlum vandkvæðum bundið
fyrir hatursmenn þeirra að finna
þá á förnum vegi. Þeir eiga ófag-
rar minningar um hefndaræði
hindúa því að minnsta kosti 2000
þeirra voru vegnir, höggnir í spað
eða brenndir, fyrir tæpum þrem
árum í kjölfar morðsins á Indiru
Gandhi. Það voru tveir sikhar úr
lífvarðarsveitum Indiru sem
skutu hana og voru þeir að hefna
fyrir innrás í Gullna hofið í Am-
ritsar, æðsta helgidóm sikha, en
þar felldu hersveitir stjórnarinn-
ar um 1000 manns á einu bretti.
Rajiv Gandhi hefur aldrei látið
refsa forsprökkum hindúanna
sem frömdu fjöldamorðin og er
það eitt með öðru sem veldur
mikilli beiskju í hans garð í Punj-
ab. Margir sikha eru enn gramir
vegna innrásarinnar í Gullna hof-
ið og ekki bætti úr skák er Gandhi
svipti heimastjórn Punjab völd-
um, tók að stýra fylkinu fráNýju-
Delhi og stórjók umsvif hers og
lögreglu þar um slóðir.
Allt hefur þetta lagst á eitt um
að draga kjarkinn úr sikhum og
það hafa öfgamenn úr röðum að-
skilnaðarsinna, sem berjast fyrir
sjálfstæði „Khalistan" einsog þeir
nefna Punjab, nýtt sér til hins ýtr-
asta. „Hryðjuverkamenn vinna
óharðnaða unglinga á sitt band
með því að sannfæra þá um að
þeir séu undirokaðir af hindúum
og eigi enga framtíð fyrir sér á
Indlandi" er haft eftir ónefndum
Iögregluþjóni úr röðum sikha.
Fæstir sikha hafa styðja öfga-
fulla aðskilnaðarsinna sem kváðu
hafa bækistöðvar á strjálbýlum
svæðum við landamæri Punjab og
Pakistan.
En Gandhi á heldur ekki uppá
pallborðið. Kaupmaðurinn Kas-
hmir Singh segir sínar farir ekki
sléttar. „Eg er sikhi og ég er Ind-
verji. Við höfum enga samúð
með hryðjuverkamönnum en
stjórnin sýnir okkur ekkert rétt-
læti.“
Sikhar hafa frá fornu fari verið
mikils metnir á Indlandi. Þótt
þeir séu aðeins 16 miljónir á móti
680 miljónum hindúa þá eru þeir
mjög áberandi í valdakerfi og
þjóðlífi. Forsefi Indlands, Zail
Singh, er sikhi. Einnig fjölmargir
ráðherra. í hernum ertíundi hver
maður sikhi og 30 prósent allra
embættismanna. Þeir eru enn-
fremur mjög áberandi í verslun
og athafnalífi.
Á þá hefur löngum verið litið
sem sérstaka verndara hindúisma
og Indlands. Til skamms tíma var
elsti sonur í mörgum hindúafjöl-
skyldum alinn um sem sikhi,
„sardar“ eða foringi, gagngert í
því augnamiði að hann verndaði
yngri systkini.
Trú sikha á sér 500 ára sögu.
Höfundur hennar, gúrúinn Nan-
ak, sótti ýmsar hugmyndir í íslam
svo sem kenninguna um bræðra-
lag og hafnaði stéttaskiptingu
hindúa en að öðru leyti ber siður-
inn keim af hindúisma.
Síðar einkenndu sikhar sig
með vefjarhetti, skeggi og bjúg-
sverði. Þeir gátu sér gott orð sem
hermenn og vörðu Indland af
hörku fyrir innrásarherjum mú-
hameðstrúarmanna úr vestri.
Snemma á áttunda áratugi
þessarar aldar fóru raddir þeirra
að gerast háværari sem kröfðust
sjálfstjórnar heimafylkisins Punj-
ab og margir óttuðust að hindú-
ismi myndi ganga af sikhisma
dauðum. Jafnt og þétt tóku að-
skilnaðarsinnar að færa sig uppá
skaftið uns alger óöld ríkti í fylk-
inu og Indira Gandhi fyrirskipaði
innrásina í Gullna hofið í október
árið 1984. Síðan hefur hvert
hryðjuverkið rekið annað og sér
ekki fyrir endann á þeim
ósköpum. _4[S.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingadeildar óskar eftir tilboöum í smíöi og
uppsetningu á loftræstikerfi í aðalsal Borgarleik-
hússins í Reykjavík. Blikkmagn ca. 3900 kg.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri aö Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5000 skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuö á sama staö fimmtudaginn
30. júlí kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Hajiv bandhi þóttist gera vel er hann samdi vio hófsaman sikhaleiðtoga,
Longowal að nafni um heimastjórn í Punjab. Fáeinum dögum síðar var Long-
owal myrtur af hryðjuverkamönnum úr röðum trúbræðra sinna.
------------------ ~.....
hennar, sikhinn Beant Singh. Hann
og einn trúbræðra hans myrtu hana í
nóvember árið 1984.
St. Jósefsspítali
Landakoti
HAFNARBÚÐIR
Lausar stöður
Starfsmann vantar í eldhús, 50% vinna, fyrir
hádegi. Föst staöa.
Einnig vantar okkur starfsmann við ræstingar í
sumarafleysingar. 100% vinna.
Upplýsingar veittar í síma 19600/200 alla virka
daga kl. 10-12.
Reykjavík 8. júlí 1987.
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐA FERÐ!
IUMFERÐAR
Práð
Tjernóbýlréttarhöldin
Tjaldið fellur
Erlendumfréttamönnum meinaður aðgangur að réttarsalnum í Tjern-
óbýl. Málaferlunum lítill gaumur gefinn í sovéskum fjölmiðlum
Sovéskum ráðamönnum virðist
vera umhugað um að réttar-
höldin í málum sex fyrrum yfir-
manna kjarnversins í Tjcrnóbýl
liggi í þagnargildi þrátt fyrir
miklar og fjálglegar yflrlýsingar
að undanförnu um nauðsyn „op-
innar umræðu“ (glasnost) um allt
milli himins og jarðar.
í gær hófst annar dagur mála-
ferlanna og þá brá svo við að
öllum erlendu fréttamönnunum,
sem viðstaddir voru upphaf rétt-
arhaldanna, var meinaður að-
gangur.
Það kemur nokkuð á óvart að
Kremlverjar skuli ekki heimila
almenningi á Vesturlöndum að
fylgjast með málflutningi og bæta
með því að nokkru fyrir þá
ósvífni í fyrra að láta undir höfuð
leggjast í tvo sólarhringa að
viðurkenna hvað orðið hefði í
Tjernóbýl. Alkunna er að geisla-
virkt úrfelli olli miklum búsifjum
víða utan Sovétríkjanna.
Embættismenn í utanríkisráð-
uneytinu báru því við í gær að of
miklum vandkvæðum væri bund-
ið að hýsa skara erlendra frétta-
manna í jafnlitlu þorpi ogTjernó-
býl í þær þrjár vikur sem réttar-
höldin munu standa.
En ýms teikn eru á lofti um að
þetta sé fyrirsláttur og raunveru-
leg orsök fréttabannsins sé
önnur. Það er til dæmis mjög at-
hyglisvert að hinir málglöðu fjöl-
miðlar í austurvegi hafa gefið
réttarhöldunum sáralítinn gaum.
Og skyldi maður þó ætla að so-
vésk alþýða brynni af forvitni um
að fá að vita sem mest um þetta
mál.
Sovéska fréttastofan Tass lét
nægja að greina frá opnun réttar-
haldanna í tveim málsgreinum í
fyrradag. í gær hafði ekki birst
stafkrókur um þau að hálfnuðum
degi.
Helstu dagblöð birtu þessar
tvær málsgreinar án frekari út-
leggingar. Sjónvarpið greindi
stuttlega frá málaferlunum og
birti mynd af réttarsalnum og út-
varpið rétt tæpti á því að mál-
flutningur væri hafinn. -ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 9. júlí1987