Þjóðviljinn - 09.07.1987, Page 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Suður-Kórea
Námsmaður jarðsunginn
ídag verðurgerð útför námsmanns sem lét lífið afvöldum táragassprengju í átökum við lögreglu.
Alls hafa nú 534pólitískirfangar verið látnir lausir
Þrátt fyrir að 357 stjórnarand-
staeðingar hcfðu verið leystir
úr haldi ráðamanna í Suður-
Kóreu í gær munu námsmenn og
stjórnarandstæðingar aðrir efna
til mótmæla í landinu í dag er
námsmaður sem féll fyrir hendi
lögreglu verður borinn til grafar.
Alls hafa nú 534 pólitískir fang-
ar hreppt frelsið að nýju eftir að
Chun Doo Hwan forseti söðlaði
um þann fyrsta júlí og gekk að
öllum meginkröfum andstæðinga
sinna.
í dag munu stjórnarandstöðu-
leiðtoginn Kim Dae-Jung og
2,100 skoðanabræður hans öðlast
þegnrétt að nýju en honum höfðu
þeir verið sviptir fyrir hinar ýmsu
sakir en þó fyrst og fremst af því
að þeir voru á móti Chun.
En engu að síður munu menn
minnast námsmannsins Lee Han-
Yol með viðeigandi hætti í dag en
hann lét lífið á sunnudag eftir að
Panama
Mótmæit
þiátt fyrir
bann
Andstœðingar leið-
toga Panama, Nori-
egas hershöfðingja,
láta ekki deigan síga
ogefnduígœrtil
mjög fjölmennrar
kröfugöngu í trássi
við mótmœlabann
stjórnarinnar
Þúsundir Panamabúa létu í
gær mótmælabann yfirvalda sem
vind um eyrun þjóta, fylktust um
götur höfuðborgarinnar og
kröfðust afsagnar valdamesta
manns landsins, Manuels Anton-
io Noriegas hershöfðingja.
Mótmælafundir og kröfu-
göngur sem þessi hafa verið dag-
legt brauð síðustu viku en aldrei
hafa jafn margir slegist í hópinn
og í gær.
Innanríkisráðherra Panama,
Rodolfo Chiari, kvað hafa lagt
hart að foringja sínum að láta
hart mæta hörðu og grípa til of-
beldis í gær en Noriega virðist
hafa virt ráð hans að vettugi því
fjölmennt slagsmálalið lögregl-
unnar aðhafðist ekki neitt.
Hálfgerð karnívalstemmning
ríkti í miðborg höfuðborgarinn-
ar, mikill fjöldi bifreiðastjóra
sem óku framhjá göngumönnum
þeytti bílhorn sín og skrifstofu-
menn opnuðu giugga á opinber-
um byggingum og veifuðu hvítum
vasaklútum til merkis um andúð
sína á hershöfðingjanum.
Forseti viðskiptaráðs Panama,
Aurelio nokkur Barria, er mikilí
fjandi Noriegas og var hann að
vonum hæstánægður í gær. Hann
kvað almenning ekki láta harð-
stjórnina hræða sig frá því að láta
vilja sinn í ljós og að fyrr en síðar
myndi Noriega velt úr sessi.
í sama streng tók leiðtogi
kennarasambandsins, Ada de
Gordon, og sagði mótmælin
„sýna umheiminum að Panama-
búar kærðu sig ekki um harð-
stjórn." —ks.
hafa legið lengi milli heims og
helju. Lee fékk táragassprengju í
höfuðið er sló í brýnu milli
mótmælenda og kylfusveina
Chuns þann 9. fyrra mánaðar.
Útför hans fer fram við Yonsei
háskólann í höfuðborginni Seoul
en þar lagði hann stund á nám í
viðskiptafræðum. Báðir Kimarn-
ir, Dae-Jung og Young-Sam,
hyggjast vera viðstaddir jarðar-
förina og hafa látið fögur orð falla
um Lee og kallað hann „píslar-
vott er lét lífið í baráttunni fyrir
lýðræði".
Þegar Lee lést á sunnudaginn
var aflýstu allir leiðtogar stjórn-
arandstöðunnar fyrirhuguðum
fundum með fulltrúum ríkis-
stjórnarinnar þar sem ræða átti
kosningaumbætur og lýstu því
yfir að allar viðræður myndu
liggja niðri uns Lee hefði verið til
moldar borinn.
Þorri þeirra sem látnir voru
lausir í gær eru námsntenn er
handteknir höfðu verið eftir átök
við lögreglusveitir. En í hópnum
var einnig þekktur baráttumaður
fyrir mannréttindum, séra Moon
Kimarnir báðir, Young-Sam (til vinstri) og Dae- Jung, hyggjast votta námsmanninum Lee Han-Yol hinstu virðingu sína.
Ik-Hwan. Stúdínan og baráttu-
konan Kwon In-Suk hafði gist dý-
flissur Chuns allar götur frá því í
maí í fyrra og hafði ófagra sögu
að segja af fangavist sinni. Kvað
hún sér hafa þrásinnis verið
nauðgað af fangavörðum og mis-
þyrmt með ýmsum öðrum hætti
Og hefðu margir félaga hennar
svipaða sögu að segja.
Það vakti sérstaka athygli að
þingmaðurinn og vinstrisinninn
Yuh Sung-Hwan var ekki í hópi
frelsaðra í gær. Hann var í fyrra
dæmdur til árs fangavistar fyrir
landráð er hann gerðist svo djarf-
ur að leggja að ráðamönnum að
draga úr andkommúnískum
áróðri sínunt en reyna þess í stað
að vinna að santeiningu kór-
eönsku ríkjanria. _ks.
Um framtíð Suður-Afríku
50 hvrtir funda með ANC
ídag hefjastíDakka, höfuðborg Senegals, viðrœður hóps hvítra
Suður-Afríkumanna ogfulltrúa úrframkvæmdanefnd Afríska þjóð arráðsins
hvítir andstæðingar að-
skilnaðarstefnunnar,
menntamenn, íþróttamenn, lista-
menn og stjórnmálamenn frá
Suður-Afríku, munu í dag hefja
viðræður við fulltrúa Afríska
þjóðarráðsins, frelsissamtaka
blakka meirihlutans í Suður-
Afríku, í höfuðborg Senegal,
Dakka.
Umræðuefnið verður „lýðræð-
jislegur valkostur fyrir Suður-
Afríku“, spurningin um framtíð-
arskipan mála í landinu eftir að
hvíti minnihlutinn hrökklast frá
völdum og þeldökkir hafa öðlast
lýðrétt á við aðra þegna.
Forseti Senegal, Abdou Diouf,
mun segja fundinn settan en að
því loknu mun frú Danielle
Mitterand, eiginkona Francois
Frakklandsforseta, flytja ávarp
en hún er stofnandi mannrétt-
indasamtakanna France-Libertes
sem hafði veg og vanda af skipu-
lagi fundarins.
Þetta er í fyrsta sinni í tvö ár að
hvítir Suðurafríkumenn mæla sér
mót við fulltrúa ANC eða frá því
hópur viðskiptajöfra gekk á fund
leiðtoga samtakanna í Zambíu í
september árið 1985. Þótt leið-
togi ANC, Oliver Tambo, verði
fjarri góðu gamni í Dakka er ljóst
að samtökin telja fund þennan
mjög mikilvægan þar sem fimm
fulltrúar úr framkvæmdanefnd
samtakanna munu mæta.
I gær sættu fundarmenn beggja
fylkinga gagnrýni úr ýmsum átt-
um á heimaslóð. Ríkisstjórn
Þjóðarflokks Bothas forseta
heldur því statt og stöðugt fram
að Afríska þjóðarráðið sé saman-
safn kommúnista og bandítta og
þvíóalandi og óferjandi. Það hef-
ur því vakið nokkra furðu að
ráðamenn hafa ekki minnst auka-
teknu orði á fundarhaldið sem þó
hefur átt sér nokkurn aðdrag-
anda.
En ýmsir félaga valdaflokksins
hafa þó gagnrýnt hvítingjana 50
fyrir að gera ANC hátt undir
höfði í stað þess að eiga viðræður
við „hófsama" blökkumenn.
Ofgasamtök hvítra hægri
manna hafa þó ekki látið sitt eftir
liggja og krefjast þess að einstakl-
ingunum 50 verði straffað og þeir
sviptir vegabréfum sínum.
Breski Verkamannaflokkurinn
Nýtt skuggaráðuneyti
Neil Kinnock, forinaður breska
Verkamannaflokksins, vann
sætan sigur í gær þegar þing-
flokkurinn valdi nýtt skugga-
ráðuncyti.
15 menn voru kjörnir og á sér-
hver þeirra að vera talsmaður
flokksins í ákveðnum málaflokki.
Það er ekki á allra vitorði að í
Verkamannaflokknum starfa
skoðanahópar og kennir ýmsra
grasa í þeim efnum. Til dæmis
taka róttækir vinstrimenn saman
höndum, miðjumenn undir for-
ystu Kinnocks sjálfs mynda hinn
fræga Tribune hóp og hægri krat-
ar mynda fylkingu er þeir nefna
Einingu.
Það er skemmst frá því að segja
að baráttusamtök róttæklinga
fengu engan fulltrúa kjörinn í
skuggaráðuneytið. Hægri kratar
töpuðu hvorki fleiri né færri en
fjórum „ráðuneytum" en Tri-
bune grúppan vann glæstan sigur.
Samherjar Kinnocks hrepptu níu
fulltrúa kjörna, hægri kratar
fimm en einn er hlutlaus.
-ks.
Fimmtudagur 9. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Afríska þjóðarráðið hefur eiga orðastað við þessa hvítu
einnig orðið fyrir gagnrýni. í yfir- menn. „Þetta er hópur afdank-
lýsingu eins af baráttusamtökum aðra uppgjafarpólitíkusa sem
vinstrisinnaðra svertingaja gætir hafa ekki umboð til eins né
reiði í garð leiðtoga ANCfyrirað neins.“ _ks.
OPIÐ DAGLEGA FRÁ KL. 8 TIL 20
cm
OÍl
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FEROAMÁLA Á (SLANOI • INGÖLFSSTRÆTI5 • SiMI 623045