Þjóðviljinn - 09.07.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVI
Fimmfudagur 9. júll 1987 146. tölublað 52. árgangur
LEON Í 'i
AÐFIARS€LU
SKÓLACÖNCU
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
4-5000 krónur aukalega afmeðal bíl. 235 milljónir íár-610 áþví
nœsta. Jónas Bjarnason, frmkv.stj. FÍB: Líst ekki á blikuna. Bifreiða-
eigendur þegar ofskattlagðir. Öryrkjar látnir borga til jafns við aðra
etta eru töiuverðar fjárhæðir,
sem hér er um að ræða. Bif-
reiðaeigendöur hafa lengi verið
ofskattlagðir. En það sem mér
sýnist þó vera það versta við
þennan skatt, er að hann tekur
ekkert tillit til misjafns efnahags
manna. Stjórnvöld þurfa að
svara því undanbragðalaust
hvort þessi skattur eigi til að
mynda að taka til öryrkja. Ör-
yrkjar hafa töluvert hringt hing-
að og lýst áhyggjum sínum yfir
þessum áformuðu aðgerðum
ríkisvaldsins, segir Jónas Bjarna-
son, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda.
- Okkur líst afleitlega á fyrir-
hugaða viðbótarskattlagningu á
bifreiðaeigendur. Á þessu ári er
áætlað að tekjur ríkissjóðs af
þessum aukaskatti nemi 235
milljónum króna í ár og litlum
610 milljónum á því næsta, segir
Jónas Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiða-
eigenda.
Ein aðgerða ríkisstjórnar Þor-
steins Pálssonar, til að rétta af
ríksbúskapinn, er að setja sér-
stakan þyngdarskatt á allar bif-
reiðar. Fjögurra króna gjald
verður lagt á hvert kíló bifreiða,
sem vega allt að tveimur og hálfu
tonni að þyngd, en 10.000 krónur
á þyngri bifreiðar. Á þessu ári er
innheimt hálft gjald, en fullt á
næsta ári.
- Ætli það láti ekki nærri að
meðalþyngd einkabifreiða sé um
1000 til 1200 kíló. Það jafngildir
því að hver bifreiðaeigandi verð-
ur að greiða aukalega 4000 til
4800 krónur á ári, segir Jónas
Bjarnason.
-RK
Keppendur á Landsmóti 1987 eru 2000 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Loftur
Atli tók þessa mynd af keppendum HSK þar sem þeir áöu við Þyril í Hvalfirði á
leið sinni norður í gær. Fararstjórar sögðu hópinn telja um 200 manns og voru
þó ekki allir fulltrúar HSK þar saman komnir.
Leiðin liggur á landsmót
Landsmótsgestir flykktust til
Húsavíkur í gær og tjaldborgir
risu á mótsstað í ágætu veðri.
Keppnin byrjar klukkan sex í
kvöld með körfuknattleik, skák
og víkingaleikum. Pálmi Gíslason
formaður Ungmennafélags ís-
Vestfirðir
lands mun setja mótið annað
kvöld.
„Við gerum ráð fyrir að kepp-
endur á mótinu verði um 2000 alls
staðar að af landinu, en þeir hafa
aldrei verið fleiri. Til samanburð-
ar má geta þess að á Laugum árið
1961 voru þátttakendur um 350.
Mér sýnist þetta ætla að verða
myndarlegar tjaldbúðir. Flest
héraðssamböndin eru með stór
tjöld og svo minni búðir í kring.
Mótið virðist ætla að fara vel af
stað,“ sagði Guðni Halldórsson
Borgarnes
framkvæmdastjóri landsmótsins í
gær.
Um 400 hlauparar munu taka
þátt í afmælishlaupi UMFÍ, sem
fram fer á landsmótinu í tilefni af
80 ára afmæli þess.
-gsv
Samið
um fiskverð
Sífellt skakkt númer
Erla Daníelsdóttir í Borgarnesi: Hefhaft heilmikið ónæði af nýju
símaskránni. Svara ísímannfyrirkaupfélagið, sýsluskrifstofuna og
sparisjóðinn. Nýja símstöðin í notkun von bráðar ogþá erþetta
vandamál úr sögunni
Samningurinn gildir
frá 15. júnítil30.
september
Fiskkaupendur og fulltrúar
sjómanna á Vestfjörðum náðu
samkomulagi um fiskverð í fyrri-
nótt eftir tvo stranga samninga-
fundi. Niðurstaðan var sú að mið-
að við almenna aflasamsetningu
skuttogaranna að undanförnu
hækkar fiskverðið á þorski í
fyrsta flokk um 13,5-14,5% með
kassauppbót miðað við síðasta
lágmarksverð Verðlagsráðs.
Línufiskur hækkar um 16,7-18%
og þorskur 5 kíló og yfir hækkar
um 22%. Þetta fiskverð gildir frá
15. júní til 30. september í ár.
Að sögn Sigurðar Ólafssonar
formanns Sjómannafélags ísfirð-
inga, sem sæti átti í samninga-
nefndinni fyrir sjómenn er
samkomulagið talið viðunandi.
grh
Eg hef verið í því að svara i
símann fyrir kaupfélagið,
sýsluskrifstofuna og fyrir spari-
sjóðinn hérna í Borgarnesi frá því
nýja símaskráin kom út. Eins og
gefur að skilja er af þessu heil-
mikið ónæði, en ég reyni að sýna
þolinmæði á meðan þetta stendur
yfir, en samkvæmt síðustu frétt-
um eiga nýju símanúmerin að
komast í gagnið seinnipartinn í
mánuðinum, segir Erla Daníels-
dóttir eigandi bókabúðar Grön-
felds í Borgarnesi.
Frá því að símaskráin fyrir árið
1987 kom út hafa íbúar á Vestur-
landi með svæðisnúmer 93, á
Austurlandi með svæðisnúmer 97
og á Suðurnesjum með svæðis-
númer 92, haft veruleg óþægindi
af símnotendum sem hafa farið
eftir nýju símaskránni. En á þess-
um svæðum átti að vera búið að
taka í notkun ný símanúmer, en
reyndin verið önnur.
Að sögn Sigurðar Ólafssonar,
stöðvarstjóra Pósts og síma í
Borgarnesi var það auglýst þegar
eftir að nýja símaskráin kom út
að notendur sem þyrftu að
hringja í þessi svæðisnúmer, yrðu
að fara eftir gömlu símaskránni
þar sem nýju númerin væru ekki
komin í gagnið. Sagði Sigurður
að þrátt fyrir að þetta hafi verið
auglýst hafi fólk ekki tekið nægi-
lega vel eftir því og þessvegna
hefðu margir orðið fyrir óþæg-
indum vegna þess að viðkomandi
sem hringdi fengi vitlaust númer.
„En þetta stendur nú allt til bóta
og vonumst við til að nýja sím-
stöðin hér í Borgarnesi komist í
notkun innan skamms og þá geta
menn hringt í þau númer sem
nýja símaskráin segir til um. En
það er alveg rétt að það hafa ver-
ið viss óþægindi af þessu fyrir
suma,“ sagði Sigurður stöðvar-
stjóri að lokum.
grh
Krabbameinsfélagið
í skoðunum
Samningur við
heilbrigðisráðuneyti
um skipulega legháls-
og brjóstkrabbam-
einsleit. Stefnt að 160
þús. skoðunum á
næstu fjórum árum
Heilbrigðisráðuneytið hefur
gert samning við Krabbameinsfé-
lagið um skipulega legháls- og
brjóskrabbameinsleit hérlendis
næstu fjögur árin og tekur samn-
ingurinn gildi um næstu áramót.
Leitarstarfið verður fram-
kvæmt í samvinnu við heilsu-
gæslulækna og aðra sérfræðinga
en reiknað er með því að fram-
kvæmdar verði allt að 25 þúsund
leghálsskoðanir árlega og allt að
15 þúsund brjóstskoðanir. Gangi
þetta eftir eru að mati heilbrigðis-
yfirvalda góðar horfur á að draga
megi stórlega úr þessum sjúk-
dómum og fækka dauðsföllum af
þeirra völdum.
Kostnaður ríkissjóðs af þessu
leitarstarfi er áætlaður um 45
miljónir kr. árlega en gert er ráð
fyrir að þátttakendur greiði fyrir
skoðunina sama gjald og fyrir
sérfræðiaðstoð.
-•g-
Svíþjóð
Viðurkenning
til Steinunnar
Sœnska ríkisútvarpið
veitir Steinunni Jó-
hannesdóttur viður-
kenningufyrir smá-
sögu
- Það er rétt, þeir keyptu af
mér smásögu sem ég sendi inn í
smásagnakeppni ríkisútvarpsins,
sagði Steinunn Jóhannesdóttir
ieikkona og leikritahöfundur sem
nú er búsett í Stokkhólmi, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
- Þetta var smásagnasam-
keppni, sem efnt var til á meðal
innflytjenda hér í Svíþjóð á veg-
um útvarpsþáttar sem fjallar um
málefni þeirra. Það bárust yfir
300 sögur í keppnina, 4 fengu
verðlaun en 10 voru keyptar að
auki og ein þeirra var sagan mín.
Saga Steinunnar heitir Yllel-
inne eða Ullarbolurinn, og fjallar
um það hvernig lítil stúlka getur
þurft að fórna ýmislegu til þess að
geta orðið gjaldgengur Svíi. Það
var markmið samkeppninnar að
sögurnar skyldu lýsa stöðu inn-
flytjenda í Sviþjóð.
- Þetta var nú meiri þátttaka
en búist hafði verið við, innflytj-
endur hér eru taldir vera hátt í
miljón eða 10. hluti þjóðarinnar,
sagði Steinunn sem bætti við að
eftir erfitt vor væri nú loks komin
sól og sumar í Svíþjóð.
-ólg.
/