Þjóðviljinn - 12.07.1987, Page 2
FLOSI
Miku
skamrintur
af öndverðum þrítugsaldri
Mikið ofboðslega finnst mér nú gaman þegar
eitthvað getur orðið til þess að koma mér í gott
skap. Og þessa dagana eru satt að segja svo
margir sólskinsblettir í heiði, að maður getur
bókstaflega verið kátínunni ofurseldur dægrin
löng.
Eitt er það, öðru fremur, sem löngum hefur
getað vakið mér Ijúfa kátínu, en það eru skýrslur
sem eru afrakstur vísindalegra rannsókna fé-
lagsvísindadeildar Háskóla Islands.
Þær geta svo sannarlega verið óborgan-
legar. Ég held bara á við fjóra sólskinsdaga, ef
ekki meira.
Nú er síðasta afreksverk félagsvísindadeildar
Háskólans komið fyrir almenningssjónir, en það,
er könnun á viðhorfi fjölmiðlanna til fjölmiðla-
manna. Manni gæti bókstaflega dottið í hug að
þjóðin væri ekki búin að fá sig fullsadda af því að
hlusta, horfa og lesa um það í fjölmiðlum hvað
fjölmiðlafólki finnst um fjölmiðlafólk í fjölmiðlum.
Þessi nýja skýrsla er semsagt byggð á svo-
kallaðri „Fréttamannakönnun“ og er alveg un-
aðsleg lesning. Áreiðanlega óborganlegt vega-
nesti fyrir hin íslensku „fjölmiðlafrík“ framtíðar-
innar.
Mér er sagt að ungt, meðvitað fólk á uppleið,
eigi sér þann draum heitastan að komast í fjöl-
miðla, helst sem blaða- eða fréttamenn. Þetta
eru oft ungir dándismenn, sem taka sig vel út og
vita oftast hvað þeir vilja en sjaldnar hvað þeir
geta, stundum kallaðir „upparar". Þá er sagt að
þegar ungar föngulegar, snoppufríðar og með-
vitaðartelpurdreymi eitthvað sem ekki erdóna-
legt, þá séu það helst fjölmiðlar og þær í þeim.
Svo verða sumir af þessu fólki góðir og gjald-
gengir blaða- frétta- og fjölmiðlamenn og -kon-
ur, en aðrir halda áfram að vera fjölmiðlafrík
sem nota hvert tækifæri til að fjalla um sjálf sig
og önnur fjölmiðlafrík í tíma og ótíma í fjölmiðl-
um.
Öll er svo þessi fjölmiðlun um fjölmiðla og
fjölmiðlafólk í fjölmiðlum að verða talsvert bros-
leg og þess vegna af hinu góða, því það er nú
einu sinni svo, að hláturinn lengir lífið.
Nú er ég semsagt með margumrædda
skýrslu félagsvísindadeildar Háskóla íslands
fyrir framan mig og ég segi það bara alveg
einsog er, að ég er sannfærður um að hún er
umfram allt annað til þess fallin að lengja lífið að
mun.
Þetta er semsagt „fréttamannakönnun fé-
lagsvísindadeildar Háskólans", mikil skýrsla
um viðhorf 115 fréttamanna.
í þessari félagsvísindalegu könnun gefst
blaðamönnum kostur á að tjá sig um það, með-
al annars, hvernig þeir álíti að dæmigerður
fréttamaður eigi að vera.
Á blaðsíðu 5 undir töflu 3 stendur orðrétt:
- Hinn dæmigerði fréttamaður, einsog
hann blasir við könnuninni er karlmaður á
ÖNDVERÐUM ÞRÍTUGSALDRI og hann hef-
ur verið nálægt því hálfan áratug í starfi.
Og nokkru neðar á síðunni undir töflu 4:
- Fréttamaðurinn dæmigerði hefur lokið
háskólaprófi, en ekki endilega í blaða-
mennsku.
Um þetta er það helst að segja, að sá er á
þrítugsaldri sem orðin er tvítugur og allir sem
mæltir eru á tungu vora, íslensku (ekki síst há-
skólamenn) vita að á öndverðum þrítugsaldri er
maður rétt rúmlega tvítugur, en á ofanverðum
þrítugsaldri eru menn farnir að nálgast þrítugt.
Hinn dæmigerði fréttamaður hefur því orðið
stúdent 10-12 ára, lokið háskólaprófi 16-17 ára,
unnið síðan hálfan áratug sem fréttamaður, eða
þartil hann hefur náð umræddum „öndverðum
þrítugsaldrinum“.
Þessi dæmigerði fréttamaður fékk skv.
skýrslunni (á bls. 6) 66-100.000 krónur í kaup í
mars s.l. og er skv. skýrslunni á bls. 8:
...hvorki mjög sáttur, né mjög ósáttur við
laun sín.
Hinsvegar teiur hinn dæmigerði fréttamaður
einnig á 8. síðu að því hærra kaup sem hann
hafi, þeim mun líklegra sé að hann verði
áfram í starfi.
Á bls. 10 er frá því greint að hinn „dæmigerði"
fréttamaður lesi: Mannlíf, Heimsmynd eða
Þjóðlíf og er það að sjálfsögðu vísbending um
andlegan þroska þessa rétt rúmlega tvítuga
drengstaula á öndverðum þrítugsaldrinum,
sem orðinn er gjaldgengur fréttamaður.
Nú kem ég að því sem mér finnst einna mark-
verðast við þessa hávísindalegu, félagsfræði-
legu Háskólaskýrslu.
Aðstandendur þessa verkefnis, semsagt
nemendur í fjölmiðlafræði við Háskóla íslands,
draga fram það sem þeim að eigin dómi finnst
eftirsóknarverðustu kostir góðra blaða- og
fréttamanna, í því skyni að láta starfandi blaða-
og fréttamenn dæma um mikilvægi hvers um
sig.
Kostirnir eru 22:
Heiðarlegur, áreiðanlegur, vandvirkur,
fróðleiksfús, hugmyndaríkur, óhlutdrægur,
forvitinn, ákveðinn, úthaldsgóður, kurteis,
ósérhlífinn, skilningsríkur, taugasterkur,
metnaðargjarn, samvinnuþýður, ágengur,
fágaður, vel klæddur, ópersónulegur, til-
finninganæmur, slóttugur, frekur.
Þessi upptalning á kostum góðs blaðamanns
talar sínu máli. Greinilega ekki gert ráð fyrir því
að máli skipti hvort blaðamaður sé, það sem
stundum var áður kallað RITFÆR eða VEL
MÁLI FARINN.
Getur það verið að í fjölmiðlafræðideild hinn-
ar virtu félagsvísindadeildar Háskóla íslands sé
það ríkjandi skoðun að ekki sé lengur þörf á því
sem áður var gert að skilyrði til að fólk fengi
vinnu við blaðamennsku.
Semsagt að blaðamenn væru læsir og
skrifandi.
„Félagar! Byltingunni er ógnað...
Það er svikari á meðal okkar!1'
„Ó, nei! Ekki þó hamstrar enn einu sinni!"