Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 7
Þetta er lífið... Af fimmtudagskvöldinu, Sú Ellen, manni í alltof rauðri peysu og fleira góðu fólki Það kunni ekki góðri lukku að stýra: Alltof feit kona horfði hug- fangin á alltof stutt pils í búðarg- lugga í Bankastræti. Tveir fullir menn gengu hjá og hlógu hástöf- um. Það er undir kringumstæð- um eins og þessum sem maður finnur að heimurinn er ekki bara haganlega gert ljóð. 1. Það var fimmtudagskvöld. Bíl- ljósin fálmuðu um berstrípaðan miðbæinn líkt og alltof æstur elskhugi. Það var eitthvað í loft- inu sem krafðist þess að mikilla atburða væri að vænta. Á bensínstöðinni hjá BSR í Lækjargötu stóð syfjulegur leigubflstjóri með slönguna í ann- arri hendi og glóandi sígarettu í hinni. „Þetta er örlagakvöld fyrir mannkynið," sagði róttækur ung- lingur og steytti hnefann á móti Friðrik Friðrikssyni sem rótaði sér ekki fyrir framan Bernhöfts- torfuna. „Ég elska þig, ég elska þig,“ stundi ástfanginn heildsali og af- hjúpaði netsokka vinkonu sinnar á biðstöð Strætisvagna Reykja- víkur án þess að hika. Á Hótel Borg söng Sú Ellen af hjartans list. Sú Ellen er hljóm- sveit frá Neskaupstað og hún gaf út plötu á þriðjudaginn var. Ég er hlynntur Sú Ellen og ég fór á konsertinn. 2. Daníel Ortega - 20 árum áður - sat einsamall við borð og beið eftir byltingunni. Smástelpa með hræðilega ljóst hár krafði bar- þjón með permanent skýringa á reikningi uppá 2204 krónur. „Fyrst fékk ég mér væt russían,“ útskýrði hún. „Svo fékk ég mér viskí. Svo tvöfaldan beilís. Svo annan tvöfaldan beilís. Og svo nú tvöfaldan beilís. Hann,“ og hún benti á aðframkominn unnusta sinn „hefur hinsvegar drukkið kamparí f allt kvöld.“ Barþjónn- inn - greinilega menntaskóla- drengur með óflekkaða fortíð - brosti sjálfsöruggur. Vitfirrt tónaflóð Sú Ellen dundi á gestum Hótel Borgar. Græumar voru a.m.k. 40 desíbel- um of hátt stilltar. Guðhrædd kona bölvaði í sand og ösku. Eiginmaður hennar laut fram og sagði stundarhátt: „Ertu aldrei ánægð!“ Svo stóð hann upp og gekk út. Hún sat eftir og var innan skamms komin með lambakjöt í fangið. „Þetta er lífið," sagði einhver diplómat. 3. Maður í alltof rauðri peysu gekk að stúlku með strípur í hárinu: „Má ég spjalla við þig,“ tilkynnti hann og datt ofaní stólinn. „Auðvitað,“ sagði hún og kink- aði kolli til gítarleikarans í Sú Ell- en. Maðurinn í rauðu peysunni stóð upp og hneigði höfuð sitt til merkis um uppgjöf. Svo fór hann að dansa. Hann dansaði einn. Aleinn, alveg eins og japanskt ljóð. Nema hvað það er ekkert lýrískt við fullan íslending í rauðri peysu. Sú Ellen lék á als oddi. Dreng- irnir í Sú Ellen eru geðþekkir og prúðmannlegir. Maður kemst í gott skap af því að horfa á þá og hlusta á austfirska tónana. Ver- öldin verður eins og tombóla með eintómum vinningsnúmerum. Og svo komust þeir í fyrstu viku f fjórða sæti vinsældalista rásar tvö. Ég kann að meta Sú Ellen. 4. Síðhærður maður með þriggja- dagaskegg hellti hvítvíni í glösin og fullyrti að blómaskeiðið hefði aldrei liðið undir lok. Pönkarinn á næsta borði hló glaðlega: „Neg- rofflían blívur,“ sagði hann og dró upp annarlega sígarettu. Maðurinn í rauðu peysunni var dáinn fram á borðið. „Það er undarlegur andskoti að fara á Hótel Borg til að drepast," sagði fullur ungur drengur og vafði ennþá yngri stúlku örmum. „Ég elska þig,“ ansaði hún og brosti eins og búlgörsk ísafgreiðslu- dama. „Láttu ekki svona,“ sagði drengurinn. „Þú elskar mig ekki. Það er gamaldags. Vertu með mér í nótt og ég skal fyrirgefa þér þessa vitleysu." Skyndilega reis dauði maður- inn í alltof rauðu peysunni upp við dogg og hristi hausinn. Svo klappaði hann saman lófunum og hló. Alveg eins og sfldarkaup- maðurinn í bókinni um góða dát- ann Sveik. Hann reis einmitt PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða starfsfólk í tímavinnu. Vinnutími frá kl. 17.00 til kl. 21.00. Upplýsingar á skrifstofu póstmeistara Ármúla 25. Tilkynning frá Sölu varnarliðseigna Skrifstofa vor og verslanir verða lokaðar frá 20. júlí til 17. ágúst vegna sumarleyfa. uppúr brennivínsdrunganum, barði með hnefanum í borðið og öskraði: Ekki dugir þessi djöfull! Sú Ellen hélt áfram að fylla hlustir viðstaddra. Það var dá- samlegt til þess að vita að klass- ískir hljóðfæraleikarar verða miklu fyrr heyrnarlausir en harð- svíraðir rokkarar. Mér er líka miklu hlýrra til Sú Ellen en Simfóníuhljómsveitarinnar. 5. „Elskarðu mig?“ heimtaði mið- aldra kaupsýslumaður og hélt dauðataki í alltof einkaritaralega lagskonu sína. Hún laut fram og hvíslaði þannig að enginn heyrði: „Mér þætti vænt um að þér þætti vænt um að mér þætti vænt um þig...“ Og lífið í borginni hélt áfram. Ég fer til þess að lifa, þér farið til þess að deyja sagði einhver um leið og tónarnir flögruðu út í daufa skímu miðnætursólarinn- ar. „Hittu mig á kaffihúsi í Istan- búl að ári,“ sagði framandleg stúlka við dularfulla blómið. Og dularfulla blómið brosti. Hrafn Jökulsson EF SVO ER, VERÐUR ÞÚ AÐ GERA EITTHVAÐ í MÁLINU. HROTUSTOPPARINN er einfalt og öruggt tæki sem stoppar hrotur og tryggir væran svefn, sem er öllum lífsnauðsynlegur. Hrotur eru ekki bara hvimleiðar, þær geta verið lífshættulegar. HROTUSTOPPARINN er hljóðnæmt lítið rafeindatæki, sem fest er á fót eða handlegg þegar menn fara að sofa. Hann sendir frá sér boð er hann nemur hrotur. Boðin valda örlítilli ertingu sem líður hjá strax, en veldur því að menn hætta (stoppa) að hrjóta og ná að festa svefn þannig að full hvíldjæst jafnt fyrir sál og líkama. ' ■ Verð kr. 3.950,- *JAPIS BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133 jurti-sf.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.