Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA
NR. 576
BRIDGE
/ Z 3 y 5 c ? 2 9 /0 77 // SP 12
V /3 il 0 X SP 75 ? 11 12 8 1Y 7? 72 // 18
19 12 V /3 /2 7Y 2o 76 21 72 22 /6 3 iy 22
V 23 2o 12 V 2 /6 8 y 78 ? /é> 2? ó ?
2Y SP ? 25 2o 2b s CST' 21 ? 7Y 78 2b Zb V
20 7 76 8 26 Z? 75 28 fíP 3 12 3 78 V
? 8 12 22 8 V e 22 /6 8 12 ?? /6 12 29
V 22 6 2G 9 12 2* iy 8 ? 16 ?Y
f 8 Y 2 iy )Y V /í /Z 29 9 2 2 7? 22
é Z2T 8 2 3 Y cp 19 V /e ZL 2fe 12
2t> 3 o 1 3 SP 8 27 Y 12 V 2é 15 ÍZ 26
V 7? /8 ? 16 Z1 72 V 24 8 21 76 S2 6
9 it Y SP /? 12 16 2 S2 2Z 12 8 2/ y
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá
karlmannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla6, Reykjavíkt, merkt: „Krossgáta nr. 576“.
Skilafresturerþrjárvikur. Verðlaunin verðasend til vinningshafa.
22 12 /? 3/ 7 /6 17 n 2é Vo
Stafirnir mynda ísle.nskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort se. n lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á qða öfugt.
Garðar Óskarsson, Skarðsbraut 19, Akranesi, hlaut verðlaun
fyrir krossgátu númer 573. Hann fær senda bókina Blaðið
okkar eftir Árna Bergmann.
Verðlaunin fyrir krossgátuna
að þessu sinni eru Úr snöru
fuglarans, eftir Sigurð A.
Magnússon. Mál og menning
gaf út.
Fjör í sumarkeppni
Stöðug og góð þátttaka í
Sumarbridge Bridgesambands
fslands, sem spilaður er á hverj-
um þriðjudegi og fimmtudegi í
Sigtúni 9 í sumar, hefur vakið
athygli, langt út fyrir raðir
bridgemanna sjálfra. Að fá yfir
120 manns til að sitja yfir spenn-
andi spilakvöldum, í einstakri
sumarblíðu Reykjavíkur-
sumars anno 1987, hlýtur að
vera meiri háttar (einsog vinur
minn Sverrir stórlax myndi
segja, ef hann væri spurður...).
Tilkoma húsnæðis BSÍ og
Reykjavíkurborgar hefur
breytt þar miklu um, auklega
sem sífellt fleiri „uppgötva"
bridgeleikinn sjálfan sem af-
bragðs afþreyingu. Er sérstak-
lega ánægjulegt að sjá til þeirra
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
skipulögðum keppnisbridge, að
fylgjast með tilkomu „toppa“
og „botna“ og öllum þeim
mannlegu viðbrögðum sem
slíku fylgir.
Flogið hefur fyrir, að í burð-
arliðnum sé myndun „stór-
sveitar" undir nafni Samvinnu-
ferða/Landsýnar á ný. Nýju
liðsmennirnir verði unglinga-
gengið Svavar Bjömsson,
Hrannar Erlingsson, Ragnar
Hermannsson, Matthías Þor-
valdsson auk „gömlu" mann-
anna, Helga Jóhannssonar og
Björns Eysteinssonar. í fram-
haldi af þessu, að Guðmundur
Sv. Hermannsson félagi Björns
í landsliðsæfingum BSI í ár ætli
að „hvfla“ næsta keppnistíma-
bil (líkt og félagi Pórarinn).
Arftaki undirritaðs, sem full-
trúi Bridgefélags Reykjavíkur í
Bridgesambandi Reykjavíkur,
Kristján Blöndal, hefur vakið
máls á ýmsum nýjungum í starf-
semi sambandsins og þarmeð
lagt út á veg breytinga enn á ný í
Reykjavíkursambandinu. Er
ekki nema gott eitt um það að
segja og vissulega fylgja Krist-
jáni bestu óskir um árang-
ursríkt starf. Eitt af því sem orð-
að hefur verið, er að hefja
keppni á Reykjavíkurmótinu í
sveitakeppni í október og not-
ast við annan hvern þriðjudag.
Hvað með Breiðhyltinga og
Skagfirðinga? Þeir ofurhugar
sem hafa ekki betri „úrræði" en
þetta, ættu að snúa sér að allt
öðru en skipuleggja keppni
fyrir aðra en þá sem spila í
Bridgefélagi Reykjavíkur.
Landsmót ungmennafélag-
anna, sem haldið er á Húsavík
þessa dagana, býður upp á ýms-
ar nýjungar í sýningargreinum,
með það í huga að „taka“ þær
inn sem keppnisgrein í komandi
mótum. Bridge er á dagskrá og
munu 14-18 sveitir vera skráðar
til leiks. Keppnisstjóri á mótinu
er Hermann Lárusson en Guð-
laugur Bessason á Húsavík sá
um undirbúning.
Bikarkeppni BSÍ er fram-
haldið af fullum krafti þessa
dagana. Nýlega var dregið til
þriðju umferðar. Helstu leikir á
dagskrá þar eru viðureignir
sveita ELÓ Reykjavík og Flug-
leiða, en fyrirhugað er að spila
þann leik næsta miðvikudag, í
Sigtúni. Annars er óljóst hver
ÓLAFUR
LÁRUSSON
mætir hverjum sökum fjölda ó-
lokinna leikja í annarri umferð.
Umsjónarmaður hyggst taka
sér leyfi frá störfum í næstu
viku. Skrifstofa BSÍ fer þannig í
leyfi einnig, en Hermann Lár-
usson mun annast alla aðstoð
við bridgefólk á meðan.
Heimasími hans er 41507. Hann
hefur einnig lyklavöld að Sig-
túni 9 ef óskir berast um notkun
vegna bikarleikja heimamanna,
svo og má hafa samband við
hann vegna spilamennsku al-
mennt í bikarleikjum (faglegar
úrlausnir).
Tveir léttir í lokin. í kvenna-
bridge: „Svo þú hefur aldrei
spilað við Fríðu? Hún reddar
svo mörgum makkerum út úr
samningum, að hún er orðin
major í Frelsishernum“.
Þegar eiginmaðurinn hafði
tapað pottþéttum samningi,
sagði hann við eiginkonuna, fé-
laga sinn: „Þetta var nú meiri
skiptingin, allir með 13 spil“.
SKYRT OG SKORINORT:
Múmíur og
Malíbúar
i
Meðalaldur á Malí kvað vera 30
ára. Þarerfólksemsagtmiðaldra
um leið og það fermist; aldur-
hnigið þegar það útskrifast úr
menntaskóla-og löngu dautt
þegar það er komið á íslenskan
þingmannsaldur.
II
Ingi Björn Albertsson er fótbolt-
akappi. Hann er hvorki meira né
minna en 36 ára og er því „gömul
kempa“ eða „brýni“. Allir verða
dolfallnir ef gamli maðurinn
stendur sig vel. í íþróttunum er
nefnilega svipaður meðalaldur og
á Malí.
En Ingi Bjöm Albertsson er
líka þingmaður. Og sem slíkur er
hann blautur bakvið eyrun; reifa-
barn með snuð. Það er af því
þingmenn em að meðaltali eldri
en bæði íþróttamenn og Malíbú-
ar. Þingmenn fslendinga væru vel
liðtækar múmíur á Malí.
III
Þorsteinn Pálsson er kornungur
maður. Honum finnst það. Hann
verður fjörutíuára um það leyti
að sporðdrekamerkið heldur
innreið sína í haust. Hann er unga
kynslóðin.
Og trúr sinni köllun og kynslóð
hefur Þorsteinn yngt upp í for-
ystusveitflokksins. Hann ákvað
að henda gamla genginu.
Það er komin ný kynslóð í
landið.
Matthías Á. Mathiesen er full-
trúi hennar.
IV
Meðalaldur ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins er rétt tæp hálf öld.
Þessir menn stjórna landinu.
Þeir eru ungir og vígreifir hug-
sjónamenn. Þorsteinn Pálsson er
af ’68-kynslóðinni - þótt enginn
hafi tekið eftir því hingað til.
Kannski var hann hippi á Sel-
fossi?
77% þjóðarinnareru undir
fimmtugu. Þjóðin samanstendur
semsagt að mestu leyti af korna-
börnum.
Árið 1850 var meðalaldur ís-
lenskra kvenna ein 37 ár. Þær
fengu sem betur fer ekki að
k jósa, enda var meðalaldur karla
ein 29 ár. Alþingi væri semsagt
seint skipað ef þannig háttaði til.
Það mætti brúkast sem grafhýsi.
V
Öll ógæfa íslands er til komin
vegnagamalmenna. Andlegra
gamalmenna að sjálfsögðu. Okk-
ur vantar fólk til að stjórna þessu
landi sem er komið undir hamar-
inn með íbúðirnar sínar, vinnur á
ASÍ-taxta og á helst tvö, þrjú
smábörn.
Meðalaldur þingmanna ætti að
vera sá sami og hjá íbúunum á
Malí.
Þeir ættu að hætta snemma.
Þeir deyja líka ungir sem guð-
irnir elska.
VI
„En fylgi hún þér einhuga hin
aldraða sveit, þá ertu á vegi til
grafar". Þetta sagði Þorsteinn Er-
lingsson og hann vissi nú hvað
hann söng. Þessvegna er full
ástæða til að óttast ríkisstjórnina.
Hún er í rauninni framliðin.
Ríkisstjómarfundirnir eru eins
og hryllingsmynd.
íbúum Malí væri ekki skemmt
ef hálfrar aldar gömul ungmenni
dúkkuðu alltíeinu upp.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. júlí 1987