Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 19
____________SKÁK__________
Short, Ribli og Speelman efstir
Fyrsta millisvæöamótið af
þremur í Subotica í Júgóslav-
íu er nú komið vel á rekspöl.
Þrír af þeim fjórum keppend-
um sem fyrirfram voru álitnir
sigurstranglegastir hafa
skipað sér í efstu sætin. Fjórir
efstu úr hverju millisvæða-
móti komast áfram í sérstaka
áskorendakeppni og þaðan
fjórir í útsláttareinvígi og sigur-
vegarinn öðlast rétt til að
skora á heimsmeistarann. Jó-
hann Hjartarson mun hefja
taflið á millisvæðamóti í Szir-
ak í Ungverjalandi þann 17.
júlí næstkomandi og síðasta
millisvæðamótið fer að líkind-
um fram á Filippseyjum.
Tveir góðkunningjar íslend-
inga frá IBM-mótinu eru í sviðs-
ljósinu í Subotica þeir Nigel
Short og Mikhael Tal. Short var
eftir 12 umferðir í efsta sæti með 8
vinninga og Tal var Vi vinningi
þar á eftir í 4. sæti.
Upphaflega áttu 18 skákmenn
að te.fla á mótinu í Subotica en
þegar til átti að taka mættu aðeins
17 til leiks. Eftir sjö umferðir
varð svo bandaríski stórmeistar-
inn Lubomir Kavalek að hætta
keppni vegna veikinda og eftir
voru 16. Þetta gerði það að verk-
um að mótstaflan varð æði snúin
og mikið um yfirsetur. Eftir 12
umferðir var staðan þessi:
1.-3. Ribli (Ungverjalandi),
Short (Englandi) og Speelman
(Englandi) allir með 8 vinninga úr
11 skákum 4. Tal (Sovétríkin) IVi
vinning úr 11 skákum. 5. Rodriq-
uez (Kúba) 6Vi vinning úr 11
skákum. 6. Zapata (Kólumbíu) 6
vinninga úr 11 skákum 7. Marj-
anovic 6 vinninga (úr 12 skákum).
Þessir komu helst til greina
sem sigurvegarar mótsins en neð-
ar á listanum mátti finna Ung-
verjann Sax með 5Vi vinning og
biðskák af 12 og Vasily Smyslov
með 4 vinninga og biðskák af 12.
Mesta athygli vekur góð
frammistaða Englendingsins
Speelman, en hann tefldi sem 1.
varamaður í sveit Englendinga á
síðasta Ólympíumóti. Speelman
hefur verið samfellt í forystu og
virðist nær öruggur með að kom-
ast áfram. Short hefur greinilega
náð sér á strik eftir hörmulegan
árangur á sterku móti í Brussel og
ætti að komast áfram ásamt Ribli
og Tal. Tal hefur teflt eina skák í
dæmigerðum stíl er hann lagði
Speelman að velli eftir mikla
stórskotahríðsárás.
Mikhael Tal
John Speelman
Caro-Kann
1. e4-c6
2. d4-dS
3. Rd2-dxe4
4. Rxe4-Rd7
5. Bc4
(Nú til dags nýtur leikurinn 5.
Bd3 eða jafnvel 5. Rg5 mikilla
vinsælda).
5. .. Rgf6 8. Bb3-h6
6. RgS-e6 9. Rgf3-a5
7. De2-Rb6 10. a3-Be7
(Hér í eina tíð var álitið heppi-
legast að leika 10. .. a411. Ba2 c5
o.sfrv.)
11. Bd2-Rbd5
12. c4-Rc7
13. Bc2-0-0
14. ReS!
(Geysiöflug peðsfórn sem gerir
svörtum erfitt fyrir. Hann tapar
miklum tíma á því að hirða peðið
og hvítur nær að efla sóknar-
möguleika sína).
14. .. Dxd4?!
15. Bc3-Dd8
16. Rgf3-Rce8
17. g4!-bS
18. g5-hxg5
19. Rxg5-Ha6
20. Df3-b4
21. Dh3!-g6
(En ekki 22. .. fxgó, 23. Rxg6
Kg7 24. Dh7 mát!)
23. Rexf7-Dd2+
24. Kfl-HxH
25. Bxf7-Kg7
26. Hgl!
(Nýr maður bætist í sóknina og
Speelman verður að láta drottn-.
ingu sína af hendi).
26. .. Dxg5
27. Hxg5+-Kxf7
28. bxc3
(Svarta staðan er auðvitað
töpuð en það tekur sinn tíma að
vinna úr svona stöðum. Speel-
man hefur að öllum líkindum ver-
ið í miklu tímahraki því hann
leikur skákinni þegar af sér).
28. .. e5??
29. Dxc8
AUGLYSING
um skatt af erlendum lánum,
leigusamningum o.fl.
Á grundvelli IV. kafla bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir í fjármálum, dags. 10. júlí 1987,
hefst innheimta skatts af erlendum lánum, leigusamningum o.fl. frá og með opnun banka og sparisjóða
mánudaginn 13. júlt 1987.
Til glöggvunar fyrir aðila eru hér dregin fram helstu efnisatriði skattsins og framkvæmdar við innheimtu
hans.
1. Innlendir lántakar og leigutakar skulu greiöa skattinn af höfuðstól erlendra lána, fjármagnsleigu,
kaupleigu og hliðstæðum samningum, sem gerðir eru frá og með gildistöku laganna og að því marki
sem umsamdar heimildir eru notaðar.
2. Innlendir aðilar skv. 1. lið eru einstaklingar, búsettir hér á landi, án tillits til ríkisfangs, fyrirtæki sem eru
skrásett hér á landi, og erlendir einstaklingar og fyrirtæki, búsettir eða skrásett erlendis, að því leyti
sem þau reka starfsemi hér á landi.
3. Skattskyldan nemur 1 % af höfuðstól hvers konar erlendra láns- og leigusamninga með gildistíma til
allt að 6 mánaða, 2% af samningum með gildistíma 6 til 12 mánaða og 3% af samningum umfram 12
mánuði. Samanlagður samningstími segir til um gjaldflokk.
Undantekning er gerð um endurlán beinlínis tekin vegna útflutningsframleiðslu skv. nánari reglum,
sem fjármálaráðherra kveður á um í reglugerð.
4. Skattskyldan nær til samningsandvirðis lána og leigu hvort sem það er reitt af höndum í peningum,
vörum, þjónustu eða framkvæmdum. Greiðsla skattsins í banka, sparisjóð eða við Seðlabankann
skal eiga sér stað eigi síðar en við fyrstu afhendingu samningsandvirðisins eins og nánar greinir i
lögunum.
Fjármálaráðherra getur með reglugerð kveðið á um að skattgreiðslum megi skipta i fleiri en eina
greiðslu til samræmis við afhendingartíma samningsandvirðis sé það reitt af höndum í áföngum, t.d.
smiði eða viðgerð skips eða hliðstæð afhending er tekur langan tíma.
5. Bankar og sparisjóðir sjá um innheimtu skattsins af öllum viðskiptum, sem fara um þeirra hendur.
Heimflutningur andvirðis í reiðufé fari um hérlendan banka eða sparisjóð. Er reiknað með, að
skjalameðferð annarra lána og leigu fari einnig um banka eða sparisjóð nema um annað sé samið og
skulu þá skil skattsins og framsetning skjala fara fram í Seðlabanka, gjaldeyriseftirliti, innan 5 virkra
daga frá því að samningur var gerður.
6. Yfirfærsla gjaldeyris til landsins eftir gerð samnings og gjaldeyriskaup við endurgreiðslu er óheimil
nema skattur hafi áður verið greiddur.
7. Skattskyldir aðilar skulu leggja fram í banka, sparisjóð eða Seðlabanka frumrit láns og leigusamn-
inga, þ.m.t. tilboð og samþykki, fari samningsgerð fram t.d. með telexi, lántökuleyfi, sé það fyrir hendi,
og aðrar upplýsingar, sem innheimtuaðiii krefur og venja hefur myndast um að leggja fram í banka.
8. Undanþegnar skatti eru skuldbreytingar milli sömu aðila á samsvarandi samningsfjárhæð útistand-
andi viðskipta, er stofnað var til fyrir gildistöku laganna hinn 10. júlí 1987, endafari hún fram fyrir 1. júlf
1988.
9. Athygli er vakin á því, að allar erlendar lántökur skattskyldra aðila framhjá banka, þ.m.t. einstaklinga,
þjónustufyrirtækja, t.d. skipafélaga, flugfélaga, umboðsskrifstofa og hliðstæðra aðila, er starfa hér-
lendis og að hluta erlendis, eru skattskyldar.
10. Framkvæmd f.h. fjármálaráðuneytis verður á vegum gjaldeyriseftirlits Seðlabankans.
11. Að öðru leyti vísast til laganna, þar á meðal til ákvæða um viðurlög við misbresti á skattskilum, um skil
banka og sparisjóða á innheimtum skatti og fleiri atriði.
Reykjavík, 10. júlf 1987
({§} SEÐLABANKI ÍSLANDS
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkur, f.h. Gatnamál-
stjórans í Reykjavík, óskar eftirtilboöum í frágang
á malbikuðum götum og stígagerð í Suðurhlíða-
hverfi í Reykjavík.
Verkið felur í sér m.a. hellu og steinalögn ofan á
malbikuð götustæði, endurnýjun og upphækkun
á brunnkörmum, upphækkun á niðurföllum, jarð-
vegsskipti og undirbúning undir malbik og hellur
á stígum og bílastæðum o.fl.
Helstu magntölur eru þessar:
Hellulögn á götustæði 760 m2
l-steinar á götustæði 500 m2
nýir brunnkarmar 25 stk.
hellulagðir stígar 735 m2
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000.- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
28. júlí, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Kennarar - fóstrur
- sjúkraþjálfarar
Hvammstangahreppur óskar eftir að ráða eftirtal-
ið starfsfólk:
Kennara við Grunnskólann einkum til kennslu í
raungreinum og tölvufræði en annað kemur til
greina. í skólanum eru um það bil 160 nemendur
og er andinn meðal starfsfólks og nemenda góð-
ur.
Upplýsingar veitir Fleming Jessen skólastjóri í
símum 95-1367 og 1368.
Forstöðukonu við leikskólann
Fóstru við leikskóiann.
Upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 95-1353.
Heilsugæslustöðin á Hvammstanga óskar eftir
að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Góð vinnuað-
staða í nýju húsnæði. Upplýsingar í síma 95-
1348.
Hvammstangi er miðja vegu milli Reykjavíkur og
Akureyrar og er u.þ.b. 3ja klst. akstur í hvora
áttina sem er. Staðurinn er þjónustumiðstöð fyrir
V-Húnvetninga en með vaxandi útgerðarstarf-
semi. Þar er ný heilsugæslustöð, hótel og sund-
laug og nýlega hefur viðbygging við Grunn-
skólann verið tekin í notkun.
Á Hvammstanga búa nú tæplega 700 manns og
hefur staðurinn vaxið ört síðustu ár.
Ðyggingarhappdrætti
j||j| Sjálfsbjargar
S 6. júlí 1987
Vinningaskrá:
íbúð að eigin vali kr. 1.500.000
119860
Bifreið, hver vinningur á kr. 600.000
6827 63187 112041 114456
Sólarlandaferð, hver vinningur á kr. 50.000.
3069 23694 60037 89342 97272
7051 24067 64408 90118 99726
9631 26110 65883 92438 99835
13844 37758 69768 92555 105566
19891 41720 83866 95233 106234
23256 46873 86669 96217 117538
Vöruúttekt, hver vinningur á kr. 40.000.
5746 18684 31269 73147 102053
10266 18883 60041 96895 109153
14614 29571 70133 99518 112050
Sjálfsbjörg - landssamband fatladra
Hátúni 12 - Sími 29133