Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 20
BROKK, ROKK OG SPRELL!
Sniglabandið stendur í stórrœðum
„Grunntónninn í hugmynda-
fræði Sniglabandsins er nátt-
úrurómantík. Við fjöllum um
og dásömum þá hluti sem
snerta bifhjólaökumanninn:
Náttúruna, járnið, malbikið og
fósturjörðina," sögðu tveiraf
meðlimum Sniglabandsins
góðkunna í spjalli við Sunnu-
dagsblaðið, - þeir Stefán
Hilmarsson söngvari og
Bjarni Bragi Kjartansson
bassaleikari.
Sniglabandið gaf út plötu fyrir
skömmu sem heitir „Áfram veg-
inn - með meindýr í maganum“.
Þetta er önnur plata hljóm-
sveitarinnar á skömmum tíma.
Hún hlýtur því að taka sjálfa sig
þó nokkuð alvarlega - eða hvað?
„Til að byrja með spilaði
Sniglabandið einkum fyrir vini og
vandamenn. Það hefur hins vegar
þróast útí að vera ballgrúppa,“
sögðu Stefán og Bjarni. „Og nú
erum við hættir öllum fyrri störf-
um og einbeitum okkur að tón-
listinni. Það var skynsamleg
ákvörðun. Við svoleiðis vöðum í
seðlum!“
- Einmitt það já. En eru Snigl-
arnir ekki litnir hornauga af fólki,
- leðurklæddir mótorhjólatöffar-
ar?
„Þar sem við förum um er hler-
um skotið fyrir glugga og fólk
hleypur í skjól,“ fullyrða þeir.
„En við erum að reyna að brjóta
þessa ímynd upp - þessa ógn-
þrungnu mynd sem fólk hefur af
Sniglunum. Hljómsveitin er til
dæmis farin að koma fram í kjól-
um...“
- Kjólum?! Er það einhver
klæðskiptingsárátta í ykkur?
Sniglarnir glotta. „Nei, ekki
beinlínis. En kjólar og gíitklæði
eru andstæða hins ógnvekjandi
leðurklæðnaðar. Með þessu gef-
um við af okkur aðra mynd en
fólk á að venjast.
Og síðan við tókum þessa
stefnu er mikið um að fólk biðji
okkur að taka Madonnulög."
- Hvurslags tónlist spilar
Sniglabandið svo fyrir utan mad-
onnskan stfl?
„Hm... Þetta með Madonnu
var nú eiginlega bara sagt í gríni.
En Sniglabandið er ein fjölhæf-
asta hljómsveit íslands! Efnis-
skráin er kaos... Innan vébanda
okkar eru bæði forstokkaðir
bárujárnsblesar og harðsoðnir
málsvarar sveiflunnar.
Á plötunni kennir þannig ým-
issa grasa; brokk, rokk og
sprell!“
- Og Sniglabandið verður
væntanlega á þönum í allt sumar?
„Það verður eitt allsherjarspil-
erí - vítt og breitt um landið. Við
höfum líka hug á því að halda
konsert uppi á Valaheiði. Þá
tökum við með okkur rafstöð og
slátrum kind. Við ætlum að spila
rokk og ról og borða grillað vega-
lamb...“
- Er það eitthvað sérstakt sem
hljómsveitin vill koma til hinna
fjölmörgu lesenda Þjóðviljans?
Sniglarnir hugsa sig um. „Já,
það er eitt sem við viljum koma á
framfæri. Við höfum nefnilega
fullan hug á því að koma plötum
okkar í hendur forseta lýðveldis-
ins við hátíðlega athöfn... Við
vonum að samningar takist við þá
Bessastaðamenn um þetta því
það er okkur mikið hjartans mál,
- við erum eiginlega alltaf á
leiðinni þangað.
Þannig að við viljum biðja fors-
etaritara að taka okkur vel þegar
við höfum samband.
Að öðru leyti biðjum við að
heilsa þjóðinni.“
-hj
Stefán Hiimarsson og Bjarni Bragi
Kjartansson í Sniglabandlnu: Við
viljum biðja forsetaritara að taka okk-
ur vel þegar við höfum samband...
(Mynd: Loftur).
Hveragerði
Opið virka daga frá kl. 13-22
Opið um helgar frá kl. 10-22