Þjóðviljinn - 18.08.1987, Page 1
Þriðjudagur 18. ágúst 1987 179. tölublað 52. árgangur
Fulltrúar einkaframtaksins, þeir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, Friðrik
Pálsson, framkvæmdastjóri SH og Davíð Scheving Thorsteinsson reyna nú að
troða sér inn um gátt Útvegsbankans.
Útvegsbankinn
Einkageinnn
yfirbýöur
33 aðilar leggjafram tilboð upp á 760 milljónir í Útvegsbankann ígœr
Mikið óðagot greip um sig hjá
einkageiranum þegar fregn-
ir bárust af tilboði Sambandsins í
hlutabréf ríkisins f Útvegsbank-
anum. í gær var lagt fram tilboð
33 fyrirtaekja og einstaklinga í
hlutabréfin.
Tilboðið hljóðar upp á kaup á
hlutabréfum fyrir 760 milljónir
króna, sem er á núvirði rúmar
797 milljónir. 6% af andvirðinu
verður greitt út og eftirstöðvarn-
ar lánaðar til fimm ára og bundn-
ar lánskjaravísitölu.
Eimskipafélag ísland leggur
100 milljónir í púkkið en aðrir
stærstu kaupendurnir eru Líf-
eyrissjóður verslunarmanna með
60 milljónir. Iðnaðarbankinn,
LÍÚ, SH, Tryggingamiðstöðin og
Verslunarbankinn með 50
milljónir. Tveir einstaklingar
ætla að leggja fram 25 milljónir
hvor, þeir Halldór H. Jónsson og
Thor O. Thors, báðir viðriðnir ís-
lenska aðalverktaka.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur LÍÚ, sagði í gær að Lands-
sambandinu hefði verið falið af
ríkisstjóminni að safna tilboðum
frá útvegsmönnum og var gefinn
frestur til 15. nóvember. „Menn
ætluðu sér lengri tíma en þegar
stigið var fram fyrir okkur herti
það á viðbrögðum okkar.“
Tilboð einkageirans er um 100
milljónum hærra en tilboð Sam-
bandsins auk þess sem útborgun-
in er einu prósenti hærri. Einnig
segjast þeir ganga að því að
greiða eftirstöðvarnar á 5 árum
en Sambandið hafði farið fram á
viðræður um eftirstöðvarnar.
„Við teljum að ekki sé um að
ræða uppboð á hlutabréfum og
viðskiptaráðherra þarf því ekki
að bera saman tvö tilboð þar sem
bréfin eru ekki lengur í sölu eftir
að tilboð barst frá okkur,“ sagði
einn fulltrúi Sambandsins við
Þjóðviljann. Sagði hann að ráðu-
neytið hlyti að meta tilboð Sam-
bandsins án þess að hafa tilboð
einkageirans til hliðsjónar og
mátti skilja orð Jóns Sigurðs-
sonar, viðskiptaráðherra í gær á
þann veg, að svo yrði gert.
Þegar Sambandið bauð í bréfin
voru þau tekin af sölu auk þess
sem viðskiptaráðuneytinu var af-
hent ávísun fyrir útborguninni
með þeim fyrirvara að samkomu-
lag næðist.
Að sögn fjármálamanna sem
blaðið ræddi við í gær, er þessi
túlkun Sambandsins rétt. Bent er
þó á að ein leið sé fyrir ráðherra
til að hafna tilboði Sambandsins,
en það er að samkvæmt lögum á.
ekki einn aðili að geta eignast
meirihlutaíbankanum. Þó fjögur
Sambandsfyrirtæki séu skrifuð
fyrir tilboðinu eru þau að meira
eða minna leyti undir sömu
stjórn.
Verði tilboð einkageirans of-
aná munu Iðnaðarbankinn og
Útvegsbankinn sameinast eftir
ársuppgjör 1987. Verslunarbank-
inn íhugar sameiningu einnig en
samtals hafa þessir þrír bankar
26% af heildar bankaviðskiptum
og yrðu næst stærsti banki lands-
ins. Ljóst er að það er sama hvort
tilboðið verður ofan á, þá mun
bönkum fækka. -Sáf
Rúdolf Hess borðar súpu í Nurnberg
árið 1946. Þar var hann dæmdur til
ævilangrar dvalar í Spandau en
henni lauk í gær.
Sjálfstœðisflokkurinn
Spandaufangelsið
Ráðist að fbiystunni
Hess
allur
Árni Sigfússon, formannskandídat SUS kennir forystu Sjálfstœðisflokksins um
kosningaósigurinn. Forystan ekki í tengslum við félagana
Eg held við ættum að viður-
kenna það að flokksforyst-
unni hefur ekki tekist sem skyldi.
Hugarfarsbreyting verður að
eiga sér stað hjá flokksforystunni
þannig að hún sé nær kjósendum
og hinum almenna flokksfélaga.
Það þarf ekki mörg ár til að missa
niður þessi tengsl og það þýðir
einfaldlega að lítið félag verður
enn minna og stórt félag lítið,
sagði Árni Sigfússon, frambjóð-
andi til formanns Sambands
ungra sjálfstæðismanna, í frétta-
tíma Stöðvar 2 á sunnudags-
kvöld.
Tilefni þessarar árásar á hend-
ur flokksforystunni, var álitsgerð
ungra sjálfstæðismanna í kjölfar
kosningaósigurs Sjálfstæðis-
flokksins í vor, en ungliðarnir
krefjast skipulagsbreytinga innan
flokksins.
Árni sagði að þrátt fyrir það að
málefnastaða flokksins hefði ver-
ið góð fyrir kosningarnar hafi
flokkurinn beðið afhroð. „Við
hljótum því að leita að öðrum
sökudólgum og að mínu mati er
það almennt sambandsleysi við
hinn almenna flokksmann sem er
helsta skýringin. Fokkurinn hef-
ur villst af leið. Hann hefur í
gegnum árin verið að tapa tengsl-
unum við hinn almenna flokks-
mann, sem hefur gert mönnum
auðveldara að hlaupast undan
merkjum, - þeir hafa ekki verið í
eins sterkum tengslum við flokks-
forystuna og gilti áður.“
- Ég held því fram að skipu-
lagsbreytingar einar sér hafi lítið
að segja. Það þarf ákveðna hug-
arfarsbreytingu hjá forystunni til
þess að skipulaghsbreytingar hafi
eitthvað að segja. Að mínu mati
er það mál númer eitt. Skipul-
agsbreytingar geta aldrei leitt til
neinna grundvallarbreytinga ef
ekki liggur að baki ákveðin hug-
arfarsbreyting, sagði Árni Sigfús-
son.
Masistaforinginn fyrrverandi,
Rúdolf Hess, er allur, 93 ára
að aldri. Hess var fangi f Spandau
fangelsinu í Vestur-Berlín sem
naut þess vafasama heiðurs að
hýsa þá fyrrum forystumenn
þriðja ríkisins sem ekki voru
dæmdir til dauða í Nurnberg-
réttarhöldunum í stríðslok. Hann
hafði dvalið þar í rúm 40 ár þegar
kallið kom og verið eini fanginn
eftir að fyrrum æskulýðsleiðtogi
nasista, Baldur von Schirach, og
yfirmaður vopnaframleiðslu
Hitlers-Þýskalands, Albert Spe-
er, voru látnir lausir árið 1966.
Hess var nánasti. samverka-
maður Adolfs Hitlersþegar Nas-
istaflokknum var að váxa fiskur
um hrygg á þriðja áratugnum.
Hann mun hafa aðstoðað\for-
ingja sinn við samsetningu bókar
nokkurar er Hitler nefndi „Meh^
Kampf" og var full af þýskri
þjóðrembu og gyðingahatri.
Hess naut ekki jafnmikillar
hylli Hitlers og fyrrum þegar nas-
istar höfðu sölsað undir sig völd í
Þýskalandi. Skömmu áður en
þýski herinn réðist inn í Sovétrík-
in árið 1941 lagði Hess upp í fífl-
djarfa för til Skotlands. Hann
hugðist ná friðarsamningi við
bresku stjómina upp á sitt eins-
dæmi en var umsvifalaust varpað
í dýflissu. Úr fangavist átti hann
ekki afturkvæmt. _ks.
Misgengishópurinn
Sömu kjör fyrir alla
Fulltrúar misgengishópsins áfundi meðfélagsmálaráðherra. Vilja
njóta sömu kjara og þeir semfá lán eftir nýja kerfinu
Fulltrúar svokallaðs misgengis-
hóps fóru á fund Jóhönnu Sig-
urðardóttur, félagsmálaráð-
herra, í gær, til að forvitnast um
hvort ríkisstjórnin hyggðist leið-
rétta hlut þeirra.
Að sögn Sturlu Þengilssonar,
eins talsmanna hópsins var Jó-
hanna spurð að því hvernig ríkis-
stjórnin hygðist skuldbreyta
lausaskuldum fólks, sem keypti
fyrir daga nýja húsnæðislánakerf-
isins. „Það er ljóst að það er
mikið misræmi á milli þeirra sem
fengu lán eftir gamla kerfinu og
þeirra sem fá lán eftir nýja kerf-
inu. Við teljum því eðlilegt að
þeir sem fengu lán fyrir daga
þessa nýja kerfis geti skuldbreytt
skammtímalánum þannig, að lán
þeirra hjá Húsnæðisstofnun séu
þau sömu og þeirra sem fá lán
eftir nýja kerfinu. Það er ekki
hægt að mismuna fólki svona
með einu pennastriki."
Auk skuldbreytinga var rætt
um verðbætur til þessa hóps og
hvemig hægt er að útfæra þær í
nýju skattalögunum. Mun hópur-
inn skila Jóhönnu ítarlegum til-
lögum þar að lútandi.
Að sögn Sturlu lofaði Jóhanna
að koma með útspil í upphafi
næsta mánaðar.
-Sáf
-rk