Þjóðviljinn - 18.08.1987, Side 2
HSPURMNGIN-—]
Afhverju heldur þú að Útvegs-
bankinn sé allt í einu svona eftir-
sóknarverð fjárfesting?
Guðni Helgason,
hjálparmaður:
Útgerðin er bara að reyna að
stoppa þessa Mafíu, sem Sam-
bandið er.
Matthías Bjarnason,
fyrrv. viðskiptaráðherra:
Það hefur alltaf staðið til að aðilar
í sjávarútvegi sameinuðust um
að kaupa bankann, en þeir voru
seinni til en SÍS. Sjálfur er ég
þeirrar skoðunar að það sé al-
menningur sem eigi að eiga
bankann.
Jórunn Bjarnadóttir,
verkamaður:
Ég hef ekki hugmynd um það.
Það hljóta að vera mikil verðmæti
í bankanum.
Hulda Mjöll Hauksdóttir,
starfsmaður Eimskips:
Hlýtur að vera valdaspursmál.
Getur ekki verið annað.
Þröstur Gunnarsson,
námsmaður:
Það er góð fjárfesting í bönkum.
Þenslan í bönkunum sýnir það.
FRÉTTIR
Einkageirinn
Umfangsmikil fjársmölun
Halldór H. Jónsson og Thor Ó. Thors hjá íslenskum aðal-
verktökum með 25 miljónir á eigin nafni hvor um sig
Inn á meðal |>eirra fyrirtækja og
stofnana einkageirans og
Reykjavíkurborgar, sem gert
hafa tilboð í hlutabréf Útvegs-
bankans eru tveir einstaklingar.
Það eru þeir Halldór H. Jónsson
arkitekt og stjórnarformaður í
fjölmörgum stærstu fyrirtækjum
landsins og Thor Ó. Thors for-
stjóri Islenskra aðalverktaka sem
hvor um sig leggur fram 25 milj-
ónir.
Kauptilboðið ásamt hlut hvers
og eins í tilboðinu er birt hér á
eftir:
KAUPTILBOÐ
Undirritaðir aðUar gera hér
með svofellt kauptilboð í hluta-
bréf Ríkissjóðs íslands í Útvegs-
banka íslands hf.
1. Gert er tilboð um kaup á
hlutabréfum samtals að fjárhæð á
nafnvirði 760.000.000.- sjö-
hundruðogsextíumilljónir króna
- með lánskjaravísitöluálagi nú
4.87365 stig, samtals nú að and-
virði kr. 797.039.740.- sjöhundr-
uðníutíuogsjömillj ónirþr j átíuog-
níuþúsundsjöhundruðogfjöru-
tíukrónur.
2. Útborgun verði 6% af andvirði
hlutabréfanna að fjárhæð á
nafnvirði 45.600.000.- fjörtíuog-
fimmmillj ónirogsexhundruðþús-
undkrónur - með lánskjaravísitö-
luálagi kr. 47.822.384.- fjörutíu-
ogsj ömillj óniráttahundruðtutt-
uguogtvöþúsundþrjúhundruð-
áttatíuogfj órarkrónur.
3. Eftirstöðvar kaupverðsins
verði lánaðar til 5 ára og bundnar
lánskjaravísitölu miðað við
kaupdag og beri vexti, sem eru
meðaltal vaxta verðtryggðra út-
lána á hverjum tíma samkvæmt
upplýsingum Seðlabanka ís-
lands. Gjalddagar verði misseris-
lega, í fyrsta sinn hinn 30. apríl
1988.
4. Hver og einn tilboðsgjafa um
sig mun gera sérstaka grein fyrir
þeim tryggingum, sem hann mun
leggja fram til tryggingar eftir-
stöðvum kaupverðs þeirra
hlutabréfa, sem hann skuldbind-
ur sig að kaupa.
Thor Ó. Thors t.v. og Halldór H. Jóns
son með 25 miljónir hvor en þó ekki
nema hálfdrættingar miðað við
„óskabarn þjóðarinnar".
5. Tilboðsgjafar gera þann fyrir-
vara, að um fleiri kaupendur og
tilflutning á fjárhæðum milli aðila
geti orðið um að ræða frá því sem
í tilboði þessu greinir.
6. Nöfn þeirra aðila, er standa að
tilboði þessu og fjárhæð hluta-
bréfa, sem hver þeirra gerir til-
boð um kaup á, er sem hér á eftir
greinir:
H.f. Eimskipafélag íslands kr.
100.000.000.-, Lífeyrissjóður
verzlunarmanna kr. 60.000.000.-
, Iðnaðarbanki íslands hf. kr.
50.000.000.-, Landssamband ísl.
útvegsmanna kr. 50.000.000.-,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
kr. 50.000.000.-, Tryggingamið-
stöðin hf kr. 50.000.000.-,
Verzlunarbanki íslands hf. kr.
50.000.000.-, Olíufélagið Skelj-
ungur hf. kr. 40.000.000.-, Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja hf. kr.
35.000.000.-, Halldór H. Jóns-
son, arkitekt, Ægissfðu 88, R. kr.
25.000.000.-, Thor Ó. Thors, for-
stjóri, Lágafelli, Mosf. kr.
Hafnarfjörður
Hálfur skóladagur fyrir 6 ára
Foreldrar um 120 barna sem
verða í 6 ára deildum í grunn-
skólum Hafnarfjarðar í vetur,
hafa lýst áhuga sínum á því að
komið verði á fót gæslu fyrir
börnin í skólanum þannig að þau
verði minnst hálfan daginn í
skólanum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að koma slíkri
gæslu á fót þegar í haust. Hefur
þegar verið fundin aðstaða fyrir
þessa daggæslu í öllum grunn-
skólunum. Þessi gæsla verður
rekin með svipuðu sniði og verið
hefur í Kópavogi undanfarin ár
og greiða foreldrar rúmlega 1500
kr. á mánuði fyrir gæslu á hverju
barni.
- Það sýndi sig í könnun sem
gerð var sl. vor að það er mikil
þörf á þessari þjónustu. Við erum
því mjög ánægð að geta drifið
strax í þessu, sagði Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson bæjarritari í
Hafnarfirði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Auk þessar nýju þjónustu,
settu bæjaryfirvöld í fyrravetur á
fót sérstakt tómstundaheimili
fyrir börn á aldrinum 7-11 ára þar
sem þau koma að loknum skóla-
degi og fá aðstoð við heimanám
og aðra þjónustu. Hefur rekstur
heimilisins mælst vel fyrir meðal
foreldra.
- Við teljum að með þessari
þjónustu fyrir yngstu skólabörnin
þá sé búið að bæta verulega úr
brýnni þörf á öruggri aðstöðu
fyrir börnin fyrir eða eftir skóla á
meðan foreldrar eru að vinna,
sagði Gunnar Rafn.
-•g-
25.000.000.-, Ögurvík hf.,
Reykjavík kr. 25.000.000.-,
Grandi hf., Reykjavík kr.
20.000.000.-, Sfldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan hf. Rvík. kr.
20.000.000.-, Hraðfrystistöðin í
Reykjavík hf. kr. 15.000.000.-,
ísfélag Vestmannaeyja hf. kr.
15.000.000.-, Andri hf. Reykja-
vík kr. 10.000.000.-, Fiskanes
hf., Grindavík kr. 10.000.000.-,
Hekla hf., Reykjavík kr.
10.000.000.-, Hraðfrystihús Esk-
ifjarðar hf. kr. 10.000.000.-,
Hrönn hf., ísafirði kr.
10.000.000.-, Miðfell hf., Hnífs-
dal kr. 10.000.000.-, Sjóvátrygg-
ingafélag íslands hf. kr.
10.000.000.-, Soffanías Cecils-
son, útgm. Grundarf. kr.
10.000.000.-, Fiskveiðahlutafé-
lagið Venus, Hafnarfirði kr.
10.000.000.-, Globus hf.,
Reykjavík kr. 5.000.000.-, H.
Benediktsson hf., Reykjavík kr.
5.000.000.-, Kristján Guðmunds-
son, útgm. Rifi kr. 5.000.000.-,
Magnús Gamalíelsson hf., Ólafs-
firði kr. 5.000.000.-, Mjöl-
vinnslan hf., Hnífsdal kr.
5.000.000.-, Siglfirðingur hf.,
Siglufirði kr. 5.000.000.-, Út-
gerðarfélag Flateyrar hf. kr.
5.000.000.-, Þorbjörn hf.,
Grindavík kr. 5.000.000.-. Sam-
tals kr. 760.000.000.-.
Auðvitað hlýt ég að vera
viðskiptaséní fyrst mér tókst að láta
einkageirann eyða öllu sparifé sínu
! að kaupa verðlausan
banka.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 18. ágúst 1987