Þjóðviljinn - 18.08.1987, Side 3
Skytturnar
Auka-
verðlaun
í Sviss
Gamla sagan um
spámanninn og
föðurlandið, en
aðsóknin var drœm hér
heima
Skytturnar, kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, fékk sér-
staka viðurkenningu á alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Locarno í
Sviss á dögunum. Verðlaunasæti
hreppti hún að vísu ekki, en litið
er á viðurkenninguna sem fyrstu
aukaverðlaun.
Eins og allt of fáum er kunnugt
- aðsóknin var dræm hér heima -
fjalla Skytturnar um félaga í
hvalfangarastétt. Myndin hefst
þegar vertíðin endar, og að von-
um finnst þeim félögum heimur-
inn á við hálft kálfsskinn í vertíð-
arlokin. Þeir fá uppgert hjá út-
gerðinni og puttast því næst í bæ-
inn, hvort tveggja með miklum
illindum. Tónninn er þar með
gefinn; útistöður við allt og alla
halda áfram eftir að í bæinn er
komið og enda með skotbardag-
askelfingu.
Fyrstu verðlaun á hátíðinni
hreppti portúgölsk mynd. Önnur
verðlaun mynd frá Taiwan, og í
þriðja sæti kom sovésk mynd, og
hefur sú verið í smíðum í ein tíu
ár.
Ekki náðist í Friðrik Þór í gær-
dag, en eins og fram hefur komið
í fréttum má ætla að hann sjái
fram á bjartari daga við að
„markaðssetja" Skytturnar í nán-
ustu framtíð. Þá er það mjög
ánægjulegt að utangarðsmaður-
inn í íslenskri kvikmyndalist hafi
hlotið þessa viðurkenningu.
HS
Kringlan
Hálf þjóðin
______________________________________FRETTIR___________________________________________
Fiðurbúskapur
Unghænur á Ihaugana
Geir Gunnar Geirsson bóndi á Vallá: Borgarsig ekki að setja
unghœnur á markað
r
Eg fór með sjö þúsund unghæn-
ur á haugana um daginn. Það
borgar sig ekki lengur að setja
þær á markað, sagði Geir Gunnar
Geirsson, bóndi á Vallá á Kjal-
arnesi, í spjalli við blaðið í gær.
„Málið er einfaldlega það að
unghænur eru seldar á undir
hundrað krónur kílóið út úr stór-
mörkuðunum. Ég hef selt þær á
sama verði og það kostar að
slátra þeim. Það hefur því verið
sjálfboðavinna hjá mér að standa
í að slátra og frysta,“ sagði Geir
Gunnar.
í útvarpsfréttum nýskeð kom
fram að Geir Gunnar er tilbúinn
að gefa fólki fuglinn lifandi, og
verður það þá sjálft að sjá um að
slagta og og reyta. Geir segir
reyndar að það borgi sig engan
veginn fyrir fólk að bera sig eftir
þessari björg, þar sem lágt verð
sé á unghænum, eða um 80 krón-
ur út úr búð.
Við þetta bætist að það mun
með öllu óheimilt að slátra fugl-
um nema undir eftirliti, sam-
kvæmt upplýsingum Hollustu-
verndar nícisins.
Að sögn Geirs Gunnars er slát-
urkostnaðurinn við unghænurnar
alltof hár, og vill hann meina að
þar sé ástundað algjört okur.
„Þeir sem hafa með dreifingu og
sölu að gera standa sig ekki, enda
beinist áhugi þeirra fyrst og
fremst að kjúklingunum. Ung-
hænunum er safnað saman í
frosti, og svo fáum við að vita
eftir dúk og disk að þær hreyfist
ekki í verslununum,“ segir hann,
og bætir við að það sé skaði, þar
sem unghænurnar séu heilbrigðir
fuglar og afurðirnar hollur og
góður matur.
Unghænurnar eru aukageta á
Vallárbúinu. Megináherslan er
lögð á eggjaframleiðslu, og nem-
ur hún tæpum tveimur tonnum á
dag. Geir Gunnar Geirsson, bóndi á Vallá á Kjalarnesi, með unga í fanginu. Eggjaframleiðsla er það sem máli skiptir á
HS Vallárbúinu, og nemur hún tæpum tveimur tonnum á dag. Mynd: Sig.
Kvótadeilan
Stefnir í málaferli
Skúli Alexandersson: Leita réttar míns fyrir dómsstólum dragi ráðuneytið
ekki úrskurð sinn til baka. Ráðuneytisins að sanna en ekki mitt að afsanna
hefur
skilað sér
Jón Asbergsson,
forstjóri Hagkaupa:
120 til 130 þúsund
manns komu þrjá
fyrstu dagana
að er reiknað með að 120 til
130 manns hafi komið þrjá
fyrstu dagana, og við erum að
vonum mjög ánægð með þær
móttökur sem húsið hefur fengið,
sagði Jón Ásbergsson, forstjóri
Hagkaupa, þegar Þjóðviljinn
forvitnaðist um hvernig hljóðið
væri í þeim Kringlumönnum eftir
opnunina.
Jón var spurður hvort salan
hefði dottið niður í Hagkaupa-
versluninni í Skeifunni, og kvað
hann nei við því. „Það var mjög
góð sala þar, að vísu minni en
hefur verið verið, en samt mun
meiri en við bjuggumst við.“
Var salan í Kringlunni opnun-
ardagana eitthvað í samræmi við
fólksfjöldann sem lagði leið sína
til ykkar?
Nei nei, það er heldur ekki
hægt að búast við því. Kaup-
mennirnir eru allir ánægðir með
sína sölu - líkja henni helst við
umsvifin á Þorláksmessu - en það
er ljóst að mjög margir komu til
að skoða, og sýna sig og sjá aðra.
Ef salan hefði verið í samræmi við
fólksfjöldann þá væru kaupmenn
búnir með allar sínar birgðir.
HS
Eg er margbúinn að gefa ráðu-
neytinu tækifæri til þess að
draga þessar rangfærslur sínar til
baka en þeir hafa ekki sinnt því.
Eg gef þeim enn færi þar til kæru-
frestur rennur út á úrskurði
ráðuneytisins gagnvart mínu fyr-
irtæki. Að öðrum kosti verð ég að
kæra þennan úrskurð og þær sak-
ir sem á mig eru bornar og leita
réttar míns fyrir dómstólunum,
segir Skúii Alexandersson alþm.
og framkvæmdastjóri Jökuls hf. á
Hellissandi varðandi ásakanir
sjávarútvegsráðuneytisins á
hendur honum og fyrirtækinu
fyrir meint kvótasvindl.
Skúli boðaði fréttamenn á sinn
fund í gær þar sem hann skýrði
afstöðu sína í deilunum við ráðu-
neytið. Hann bauð sjávarútvegs-
ráðherra og fulltrúum ráðuneyt-
isins að sitja fundinn sem þeir
þáðu ekki.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur ráðuneytið gert
upptæk 96 þorskígildi af þeim
afla sem unninn var hjá Jökli á sl.
ári að verðmæti rúm 1.5 miljónir.
í úrskurði ráðuneytisins kemur
fram að það hefur ekki neinar
skýringar á meintu misræmi á
keyptum afla fyrirtækisins og
afurðum.
-Ráðuneytið hefur ekki ennþá
getað bent á hvaðan þessi ólög-
mæti afli á að vera kominn og
hefur engar sannanir fyrir full-
yrðingum sínum, enda eru þessar
ásakanir hrein ósannindi, sagði
Skúli. - í þessu máli hvílir sönn-
unarskyldan á ráðuneytinu, en ég
á ekki að þurfa að sanna sakleysi
mitt. Það vantar öll sönnunar-
gögn, ráðuneytið byggir einvörð-
ungu á getgátum og fullyrðing-
um, sagði Skúli Ale'xandersson.
-*g-
Snœfellsás ’87
Hóphugleiðsla í pýramída
Mótshaldarar ísjöunda himni. 400 manns þegar mest var
Jökullinn hefur staðið fyrir
sínu. Að vísu erum við í
skugga hér á Arnarstapa, en ég er
á því að það sé kostur. Ég veit
ekki hvernig þetta væri ef við
fengjum orkuna frá jöklinum ó-
tempraða“, sagði starfsmaður
Þrídrangs í gær, þegar Þjóðvilj-
inn leitaði frétta af Sálvaxtarmóti
því sem haldið var á Arnarstapa
um helgina og nefndist Snæfcllsás
’87, en félagshópurinn Þrídrang-
ur bar hitann og þungann af
undirbúningi mótshaldsins.
Að sögn starfsmannsins tókst
mótshaldið frábærlega vel í alla
staði, og þátttakan var góð. Voru
mótsgestir vel á fjórða hundraðið
þegar mest var.
Hóphugleiðsla var stunduð í
þar til gerðum pýramída sem var
reistur á mótssvæðinu, og var hún
nokkuð samfelld um helgina.
Alheimsfriðarhugleiðsla var
ástunduð vítt og breitt um jarðar-
kringluna um helgina, einkum á
helstu orkustöðvum jarðar en ein
þeirra er Snæfellsjökull, og var
Andrew Nevai tengiliður Snæ-
fellsáss ’87 við umheiminn. Af
því tilefni kom hann fram í út-
varpi í Boulder í Colorado í
Bandaríkjunum og gaf skýrslu
um mótshaldið. Útvarpað var í
gegnum gervitungl.
Veðrið lék við mótsgesti alla
helgina, og fyrir bragðið var unnt
að flytja dagskrána að mestu
undir beru lofti. Dagskráin hófst
klukkan m'u að morgni mótsdag-
ana, og stóð þar til eftir miðnætti.
Að sögn mótshaldara var dag-
skráin svo fjölbreytt að þátttak-
endur héldu sig svo til eingöngu á
svæðinu, og fór lítið fyrir göngu-
ferðum um nágrennið. „Við
smíðuðum líka frábæran róluvöll
fyrir krakkana, enda héldu þau
sig þar öllum stundum.“
HS
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3