Þjóðviljinn - 18.08.1987, Page 6
FLOAMARKAÐURINN
Sóleyjarsaga Til sölu
Ógallaö eintak af „Sóleyjarsögu" Stórt barnarimlarúm úr furu ásamt
eftir Elías Mar óskast keypt, l.ogll. dýnu. Verð 2.500 kr. Er úr Vöru-
bindi. Hafiösamband við ElíasMarí markaðinum. Upplýsingar í síma
sima 38218 eða 681333. 72072.
Dagmamma
Dagmamma óskast frá 1. okt. fyrir
10 mán gamla stelpu hálfan dag-
inn, eftir hádegi. Bý í Hlíðahverfi.
Uppl. í síma 21262. Anna Rósa.
Lada 1600 '80 til sölu
skoðaður ’87. Gott eintak. Verð kr.
75 þús. Uppl. í slma 621308 e.h.
Til sölu
þvottavél, lítillega biluð, selst ódýrt.
Uppl. í síma 75403.
Til sölu
stórt burðarrúm á vagngrind. Kr.
1.000.-, lítill grillofn kr. 1.500.-, og
þríhjól kr. 800. Uppl. í síma 13092
eftir kl. 19.
Óska eftir að kaupa
píanó á hóflegu verði. Vinsam-
legast hringið í síma 681333 f.h.
eða í 666842 e.h., Bára.
Til sölu Kalkoff 3ja gíra
kvenreiðhjól ársgamalt. Gott verð.
Uppl. í síma 29819 eftir kl. 17.
Til sölu
karlmannsreiðhjól. Vel með farið.
Selst ódýrt. Sími 617016.
Vantar gott eintak af VW bíl
á sanngjörnu verði. Uppl. í síma
35584 eftir kl. 18.
Til sölu
tvöfaldur stálvaskur og blöndunar-
tæki á kr. 3 þúsund. Gamall B.M.V
til niðurrifs til sölu. Sími 671817.
Commodore 64
með diskettudrifi, tölvuskjá og
prentara. Einnig fylgir segulband
og ca 1000 forrit. Uppl. í síma
651672 eftir kl. 19. Vantar ódýrt
hamstrabúr. Sími 611632.
Vantar ekki einhvern
stórt uppgert orgel fyrir lítið verð?
Uppl. í síma 35054.
Fallegur kettlingur
fæst gefins
Sími 621737.
Biluö frystikista
fæst gefins gegn því að vera sótt.
Sími 71679.
Til sölu vegna brottflutnings.
Citroén GS Club 78, vetrar/
sumardekk, útvarp/kassetta, af-
ruglari, Kenwood stereotæki (al-
vörugræjur) og Ferguson sjónvarp
20". Upplýsingar í síma 24836.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Uppl. í síma 35236.
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Vistarvera
Ef þú ert heiðarlegur húseigandi á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og átt 1-
3 herbergja íbúð sem þú vilt leigja
fyrir sanngjarnt verð þá erum við
tvær 21 árs og reyklausar Elínar
ofan úr Borgarnesi sem bjóðum þér
á móti: öruggar mánaðargreiðslur,
(fyrirframgreiðslu ef þú ert blankur)
og snyrtilega og hávaðalausa um-
gengni. Við erum í skóla og vinnum
í banka og höfum meðmæli. Uppl. í
síma 23089 (á kvöldin) og 93-
71337.
III REYKJKJÍKURBORG ffl
ACUíMl Stö4wi 'I'
Vinnumiðlun
fyrir fatlaða
Ráðningastofa Reykjavíkurborgar óskar eftir að
ráða félagsráðgjafa eða starfsmann með
sambærilega menntun. Reynsla af störfum á
sviði félagsmála æskileg.
Starfið felst m.a. í móttöku umsókna á verndaða
vinnustaði og vinnumiðlun og atvinnuleit vegna
starfa á almennum vinnumarkaði. Laun skv.
kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar. Upplýsingar gefur Elísabet Guttorms-
dóttir í síma 622648. Umsóknarfrestur er til 1.
september 1987. Umsóknum ber að skila til
starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem
þar fást.
fsa) Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Læknaritarar
Viljum ráða læknaritara á bæklunar- og lyfja-
deild. Upplýsingar veita læknafulltrúar viðkom-
andi deilda. Skriflegar umsóknir ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf sendist skrif-
stofustjóra F.S.A.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Þórður Steindorsson
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudag-
inn 18. ágúst kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Ester Sæmundsdóttir, börn og tengdabörn
FRÁ LESENPUM
Matarskatturinn
Það er nú komið á daginn að
nýja ríkisstjórnin ætlar að veru-
legu leyti að leggjast á þá þegna
þjóðfélagsins er minnst bera úr
býtum. Matarskatturinn ber þess
ljósastan vottinn. Það á að
minnka í buddu launþegans, og
gamla og útslitna fólkið á að
herða sultarólina.
Kristín Halldórsdóttir ein af
foringjum Kvennalistans (og
kannski sú greindasta) skrifar í
DV mánudaginn 27/7 ’87 þar sem
hún segir að núverandi stjórnar-
flokkar hafi í samningum um
stjórnarmyndun ekki viijað fall-
ast á að hækka lægstu launin í
landinu, heldur skerða kjör
hinna tekjulægstu með siðlausri
aðgerð á brýnustu nauðsynjar.
Þessi skattur stjómarherranna
er talinn um 290 millj. í ríkissjóð
á þessu ári en um 700 millj. á því
næsta, um slíka upphæð munar
vitaskuld í soltinn ríkissjóð, hana
mætti sækja eftir öðrum leiðum,
er snerti hina tækjulægstu lítið
sem ekkert. Þá bendir þingkonan
á leið til tekjuöflunar, t.d. að
fella niður undanþágur af sölu-
skatti sem orðnar em svo marg-
víslegar að hægt væri að auka
tekjur ríkissjóðs um 5 millj. á ári.
Undir þetta skal tekið. En það
em fleiri en stjómarandstaðan
sem em andsnúnir þessari spán-
nýju ríkisstjórn, höfðingjarnir í
verslunarráði hafa sitthvað að at-
huga við sáttmála hennar og fer
þá skörin að færast upp í bekk-
inn. Þeir spá vaxandi verðbólgu
og gengisfellingu eftir áramót og
fordæma svo matarskattinn í
þokkabót, svo Jón Baldvin verð-
ur að fara að spjara sig og sýna
fólki það svart á hvítu hverjir eigi
ísland eins og þegar hann fór á
puttanum hringveginn fyrir kosn-
ingar og hrópaði hástöfum hverj-
ir ættu þetta fagra og auðuga fóst-
urland okkar, hnarreistur og
sjálfumglaður.
En er stjórnin hnarreist og
traustvekjandi? Þessa spumingu
lagði ég fyrir Jón vin minn hjá
Borgaraflokknum, áður hjá
íhaldinu eins og menn muna.
Kallinn hefur hækkað í tign og
fylgir goðinu fast eftir. Sagt er að
hann hafi öll lyklavöld hjá huldu-
hemum og geti kallað hann út
með stuttum fyrirvara ef á þyrfti
að halda. Samtal okkar Jóns fór
fram á einu af þessum litlu og
þægilegu kaffihúsum í Kvosinni,
þar sem hægt er að vera í næði og
láta sér líða vel frá öllu argaþras-
inu. Jón var spakur og sæll eftir
sigur Borgaraflokksins og segir:
Já, það er rétt hjá ykkur komm-
um og kvennó að þessi matar-
skattur var ekki bráðnauðsyn-
legur og er eiginlega til skammar
bolsinn þinn. Ef Borgaraflokkur-
inn hefði lent í stjórn hefði þessi
skattur aldrei verið lagður á, það
mátti fara aðrar leiðir.
Við fengum nú aftur í bollana
og létum okkur líða vel. Jón í
besta skapi og lét dæluna ganga
um ágæti Borgaraflokksins. Eg
var nú orðinn hálfleiður á vaðlinu
í kallinum og segi: Mig langar nú
að síðustu að segja þér frá afar
merkilegum draum er mig
dreymdi þegar verið var að
mynda nýju stjórnina. Báðir
emm við spíritistar og trúum á
annað iíf. Það var eitt kvöldið að
ég kom heim og settist inn í stofu
og var þreyttur. Eins og þú veist á
ég það stundum til að falla í trans
eða hverfa í svefn, og svo var nú,
Já, haltu áfram, ég sé það að ég er
að verða tímabundinn. Já, nú
kemur draumurinn. Mér finnst
að ég sé staddur í skrifstofu
Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar og þá sé ég þrjá kófsveitta
menn vera að reyna að mynda
ríkisstjórn í landinu. Mér fannst
þetta mjög einkennilegt í
draumnum að þessir menn væm
þarna að koma sér saman um
hvernig ætti að stjóma landinu,
en þá gerist það í draumnum að
allir helstu verkalýðsforingjar
félagsins, sem, allir em látnir
birtast, þeir Héðinn, Hannes,
Eðvarð og Sigurður Guðnason
með tóbaksbaukinn á lofti og em
allir reiðilegir á svip. Mér fannst
Sigurður hafa orð fyrir þeim og
segja: Hvað em þessir menn að
gera hér inni? í þessu höfuðvígi
verkalýðsins fyrr og síðar. Hvers
vegna rekur Guðmundur J. þá
ekki út? Er það hér sem verið er
að leggja matarskattinn á fólk
sem hefur vart til hnífs og
skeiðar? Er það hér sem sá er
kallar sig vin litla mannsins
gengur út og inn eins og grár
köttur og reynir að fóðra sálar-
heill sín að axlarklappi og guðs-
orði. Og mér fannst allt svo skín-
andi bjart í draumnum, Nonni
minn, í kringum þessar gömlu
bardagahetjur, og þá vaknaði ég.
Jón gamli vinur minn stóð nú upp
úfinn og reiður og sagði: Þú hefur
sama háttinn á og venjulega að
vera með lygar og kjaftæði, já
meira að segja um látið fólk, svei
því. Já, svona fór það í þetta sinn
hjá okkur Jóni, og allt var þetta
útaf því að ég fór að tengja vin
litla mannsins í draumnum við
þennan makalausa matarskatt
ríkisstjórnarinnar í öllu góðær-
inu.
Páll Hildiþórs
Kennarar - Kennarar
Kennara vantar að Gagnfræðaskóla Selfoss:
Kennara í samfélagsfræði - heil staða - og kenn-
ara í erlendum málum - heil staða.
Upplýsingar gefa Óli Þ. Guðbjartsson í síma 99-
1178, Jón Ingi Sigurmundsson í símí 99-1273 og
Sigríður Matthíasdóttir í síma 99-2409.
Skólanefnd
Heilsugæslustöð
í Þorlákshöfn
Tilboð óskast í að reisa og gera fokhelda heilsu-
gæslustöð í Þorlákshöfn.
Verkinu skal vera lokið 1. júlí 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg-
artúni 7, Reykjavík gegn 10.000.- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1.
sept. 1987 kl.11.:00 f.h.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844