Þjóðviljinn - 18.08.1987, Page 8
JULIUS GEIRMUNO
Þaö fer ekkert á milli mála að þeir eru af Júlíusi Geirmundssyni þessir.
Það er vissara fyrir kókdrykkjumenn að birgja sig vel upp af þessu vinsæla
ropvatni fyrir langan togaratúr.
Btyggjulíf á Isafirði
Miðpunktur athafnaiífsins á
ísafirði er vitaskuld höfnin og
næsta nágrenni hennar eins og
alls staðar þar sem fólkið á sitt
undir auðlindum hafsins. Maður
kemur yfirleitt aldrei að tómum
kofunum þegar maður kemur
niður að höfn, allra síst á stöðum
eins og ísafirði þar sem útgerð og
fiskiðnaður er að sprengja utan
af sér athafnaplássið og skipa-
komum fjölgar stöðugt.
Það var engin undantekning
gerð frá þessari reglu þegar
blaðamaður Þjóðviljans gekk
með myndavél um ísafjarðar-
höfn á góðviðrisdegi nýlega. Sól-
in sá að vísu ekki ástæðu til þess
að heiðra manhskapinn, en það
var kyrrt veður inni í Skutulsfirði
og hann hékk þurr.
Áhöfnin á togaranum Júlíusi
Geirmundssyni ÍS 270 var að gera
klárt áður en haldið var á miðin
þegar útsendari málgagnsins kom
á staðinn, vel mettur eftir ágæta
rauðsprettumáltíð á Sjómanna-
stofunni. Vel krydduð rauð-
sprettan jók manninum raunar
svo leti að hann satt að segja
nennti ekki að gefa sig á tal við
áhöfnina eða þá sem stóðu á
bryggjunni og fylgdust með þegar
Júlíus lét úr höfn. Það var þægi-
legra að standa álengdar og fylgj-
ast með í gegnum myndavélarl-
insu og þar af leiðandi getur blað-
amaðurinn ekki gefið skýrslu um
hvað þeim fór á milli, köllunum á
bryggjunni og þeim um borð.
Líklega hafa þeir verið að spjalla
eitthvað um smáfiskadráp eða
kvótakerfi. Eða að skammast út í
skattastjórnina.
Þegar Júlíus var kominn út á
Pollinn bar að tvo reykvíska ung-
linga sem að sögn voru á ísafirði
þeirra erinda að sækja ættarmót.
Þeir bræður voru hins vegar
komnir niður að höfn í þeirri von
að ufsatittir eða koli bitu á öngl-
ana þeirra. Þótt ekki væri nema
marhnútur. En það virtist borin
von, a.m.k. á meðan blaðamaður
stóð yfir þeim. En það var þá ekki
í fyrsta sinn sem hann fældi fisk.
Kannski fór það að glæðast þegar
þeir fengu frið.
-gg
BraBðumir Ólafur og Kristján Jónssynir f rá Reykjavík voru orðnir vonlitlir um afla þegar blaðamaður Þjóðviljans hitti þá að
máli, en hver veit nema einhver marhnúturinn hafi bitið á síðar meir? Þeir bræður voru annars komnir til fsafjarðar þeirra
erinda að taka þátt [ ættarmóti, en ekki kunnum við að rekja ættir þeirra.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 18. ágúst 1987