Þjóðviljinn - 18.08.1987, Qupperneq 9
Ferðafélagarnir sem áttu ánægulega ferð um Eyjafjörðinn. Margt var sér til gamans gert á kvöldvökunni.
nokkrir vaskir félagar fyrir ríkisstjórninni.
Alþýðubandalagið á Vesturlandi
Hér
biðja
Sumarierd um
Sumarferð Aiþýðubandaiags-
ins á Vesturlandi 1987 var farin
dagana 1.-3. ágúst og lágu leiðir
tii Eyjafjarðar. Var lagt af stað
frá Akranesi kl. 9.00 f.h. og ekið í
Borgarnes, en þar bættust vestan-
menn í hópinn auk heimamanna.
Þar kom í Ijós að þingmaður vor
Skúli Alexandersson og hans
ágæta kona Hrefna Magnúsdóttir
gátu ekki verið með okkur af sér-
stðkum ástæðum. Þau hafa á
undangengnum árum verið drif-
fjöðrin í þessum ferðum. Einnig
kom í ljós, að féiagi okkar, Hail-
dór Brynjúlfsson í Borgarnesi,
núverandi formaður kjördæmis-
ráðs, gat ekki verið með í hópn-
um vegna anna, en kjördæmis-
ráðið er framkvæmdaraðili þess-
ara ferða.
Málin skipuðust þannig, að
Ólafur Guðmundsson frá Grund-
arfirði og Sigurður B. Guð-
brandsson í Borgarnesi, tóku að
sér forystu hópsins og stóðu sig
með miklum sóma eins og þeirra
var von og vísa. Að þessu loknu
kvaddi félagi Halldór okkur og
óskaði velfarnaðar og fór það
eftir eins og síðar kemur fram.
Lagt var af stað úr Borgarnesi
kl. rúmlega tíu. Förinni var heitið
að Hrafnagili í Eyjafirði, en nátt-
staður okkar þessar tvær nætur
var í Eddu-hótelinu í Hrafnagils-
skóla. Ætlunin var að bregða út
af venjulegri leið í Eyjafjörðinn
og fara um Fljótin og Lágheiði til
Olafsfjarðar og um Ólafsfjarðar-
múla til Eyjafjarðar. Þannig fór,
að ekki var nógu bjart veður til
þess að gaman væri að fara þessa
leið. Var þessum útúrdúr því
frestað til mánudags. Við tókum
góðan stans á Akureyri, enda
höfðum við nægan tíma, fórum í
Lystigarðinn og víðar. Komum
við því á ágætum tíma í náttstað
og þar beið okkar ágæt aðstaða,
eins og vænta mátti.
Næsta dag var Hrísey aðal-
númerið, en hún er að ýmsu leyti
merkilegur staður og kemur
mörgum skemmtilega á óvart,
sem koma þar í fyrsta sinn. Við
tókum Hríseyjarferjuna á Ár-
skógsströnd og vorum komin á
Iand í Hrísey laust fyrir hádegið.
Meðan við dvöldum í eynni, nut-
um við leiðsagnar og ýmissa ann-
arra upplýsinga hjá sveitarstjór-
anum, Guðjóni Björnssyni og
konu hans, Valdísi Kristinsdótt-
ur. Þessum línum fylgja hug-
heilar þakkir til þeirra frá okkur
öllum.
Hrísey eða sögu hennar verða
að sjálfsögðu ekki gerð nein skil
hér, en það sem hlýtur fyrst og
fremst að vekja athygli þar, er
snyrtimennska í allri umgengni
og alúð og nærgætni í umgengni
við náttúruna. Við tókum ferjuna
í land kl. 4.00 og var því enn góð-
ur tími til kvölds og komum við
því við á Hjalteyri. Fórum síðan
austur um eftir nýja leiruveginum
og inn hjá Möðruvöllum og aftur
vestur um og í náttstað.
Um kvöldið glöddum við okk-
ur við góðar veitingar á hótelinu
og höfðum síðan kvöldvöku, eins
og venja er í þessum ferðum okk-
ar. Var þar margt til gamans gert.
Þessar ferðir hafa þróast þannig,
að þær hafa verið að hluta til fjöl-
skylduferðir og meðal þátttak-
enda böm á ýmsum aldri. Þessi
tilhögun hefur verið til mikillar
ánægju fyrir alla þátttakendur og
aldrei valdið neinum erfið-
leikum. Að þessu sinni vakti það
sérstaka athygli, hvað unga fólk-
ið tók mikinn þátt í söng og ýms-
um uppákomum, bæði á kvöld-
vökunni og í ferðinni í heild.
Á mánudagsmorguninn var
þoka og rigningarsuddi á Hrafn-
agili og hefði mátt ætla, að ekki
yrði komið í verk að fara um Ól-
afsfjarðarmúla og Lágheiði til
Skagafjarðar. En það var eins og
við manninn mælt, að þegar við
komum til Akureyrar um kl. hálf-
ellefu, að komið var sólskin, sem
fylgdi okkur heimleiðis. í þessari
ferð höfðum við engan sérstakan
leiðsögumann, nema í Hrísey
eins og áður er getið, en allir
lögðust á eitt um að leggja fram
fróðleik um það sem fyrir augu
bar. Til dæmis er Guðjón Ólafs-
son á Akranesi uppalinn í Skaga-
firði og fleiri mætti telja, sem
kunnu á ýmsu skil, sem gagn og
gaman er að í svona ferð.
í þessum sumarferðum okkar
er jafnan ákveðið hvert halda
skuli næsta sumar og var ákveðið
að kanna Suðausturland. Við
komum til Borgamess um sjö-
leytið og þar skildu leiðir okkar
Skagamanna og félaga okkar,
sem við hittum þar á laugar-
dagsmorguninn.
Ekki verður annað sagt, en að
þessi ferð hafi tekist með ágæt-
um. Þátttaka var góð. Þó voru
talsverð forföll hjá þeim sem hafa
verið í hópnum að jafnaði, sbr.
Skúla og Hrefnu. Ég vil að lokum
þakka ferðafélögunum fyrir sam-
veruna þessa daga og félögum
okkar sem ekki gátu verið með
okkur sendi ég kæra kveðju, -ég
nefni engin nöfn frekar en orðið
er, þess gerist ekki þörf. Bflstjór-
anum okkar, Kristjáni Sigurðs-
syni, sem einnig ók okkur á
Strandirnar í fyrrasumar, þakka
ég síðast en ekki síst fyrir hans
þátt í þessu ferðalagi.
Hanncs A. Hjartarson
Bifvélavirkjar -
járnsmiðir
Flugmálastjórn vantar nú þegar bifvélavirkja og
járnsmiöi á vélaverkstæði Reykjavíkurflugvallar.
Upplýsingar hjá yfirverkstjóra, sími 694100.
Flugmálastjóri
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hafn-
arstjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboöum í hol-
ræsalagnir og gatnagerö við Fiskislóð, örfirisey.
Helstu magntölur:
1. Holræsa- og regnvatnslagnir um 460 metr-
ar.
2. Undirbúningsvinna um 3.300 fermetrar,
götustæði.
3. 13 holræsabrunnar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000.- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn
27. ágúst kl. 11.00
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
1 Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hita-
veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í stál-
klæðningu og fylgihluti í stöðvarhús Nesjavalla-
virkjunar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000.- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðviku-
daginn 2. september kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Manitóbaháskóli.
Prófessorsstaða í ís-
lensku er laus til um-
sóknar
Tekið verður á móti umsóknum eða tilnefningum
til starfs við íslenskudeild Manitóbaháskóla og
boðið upp á fastráðningu (tenure) eftir tiltekið
reynslutímabil í starfi ef öllum skilyrðum er þá
fullnægt. Staðan verður annaðhvort veitt á stig-
inu „Associate Professor" eða „Full Professor“
og hæfur umsækjandi settur frá og með 1. júlí
1988. Laun verða í samræmi við námsferil, vís-
indastörf og starfsreynslu. Hæfur umsækjandi
þarf að hafa lokið doktorsprófi eða skilað
sambærilegum árangri á sviði íslenskra bók-
mennta bæði fornra og nýrra. Góð kunnátta í
enskri tungu er nauðsynleg sem og fullkomið
vald á íslensku rit- og talmáli. Kennarareynsla í
bæði málfræði og bókmenntum er mikilvæg og
æskilegt að umsækjandi hafi til að bera nokkra
kunnáttu í nútímamálvísindum. Þar sem ís-
lenskudeild er að nokkru leyti fjármögnuð af sér-
stökum sjóði og fjárframlögum Vestur-
íslendinga, er ráð fyrir því gert að íslenskudeild
eigi jafnan drjúga aðild að menningarstarfi þeirra.
Þess er vænst að karlar jafnt sem konur sæki um
þetta embætti. Samkvæmt kanadískum lögum
sitja kanadískir þegnar eða þeir sem hafa
atvinnuleyfi í Kanada í fyrirrúmi.
Umsóknir eða tilnefningar með ítarlegum
greinargerðum um námsferil, rannsóknir og
starfsreynslu, sem og nöfnum þriggja er veitt geti
nánari upplýsingar, berist fyrir 30. október 1987.
Karen Ogden
Associate Dean of Arts
University of Manitoba
Þrlðjudagur 18. ágúst 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13