Þjóðviljinn - 18.08.1987, Síða 11
ÖRFRÉTTIRi
Allir farþegar
um borð í McDonnel Douglas
þotu Norðaustur flugfélagsins
fórust í gær er hún hrapaði
skömmu eftir flugtak í útborg Det-
roit í Bandaríkjunum. 144 farþeg-
ar og níu manna áhöfn létust
samstundis en auk þess er óttast
að að minnsta kosti tveir vegfar-
endur á jörðu niðri hafi látist.
Þetta er annað mesta flugslys
sem orðið hefur í Bandaríkjunum.
50 vísindamenn
frá Bandaríkjunum, Bretlandi og
Chile munu í dag hefja rannsókn
á himinhvelinu yfir Suðurskauts-
landinu þar sem álitið er að hafi
myndast gat á ósónlagið. Athug-
un fimmtíumenninganna mun
taka sex vikur og ætla þeir að
komast á snoðir um það hvort
gatið hafi myndast af náttúr-
legum orsökum eða hvort það
hafi orðið til vegna efnamengun-
ar. Ósónlagið verndar jörðina
fyrir um 99 af hundraði skaðlegra
geisla sólarinnar og ef það
eyddist yfir mannabyggð myndi
það stórauka tíðni húðkrabba-
meins og hafa uggvænlegar af-
leiðingar í för með sér fyrir lífríki
náttúrunnar.
Uppreisnarmenn
í norðurhéruðum Uganda deila
nú hatrammlega innbyrðis um
ágæti galdrabragðs nokkurs sem
ýmsir þeirra vilja af gefnu tilefni
meina að dugi ekki sem skyldi í
baráttunni við hersveitir ráða-
manna. „Bragðið" var í því fólgið
að smyrja líkama skæruliða með
áburði nokkrum sem átti að verja
þá kúlum andstæðingsins. Efa-
semdamennirnir fullyrða að þús-
undir skæruliða hafi fallið aö
ófyrirsynju þar eð þeir trúðu á
mátt smyrslisins og gerðust um
skör fram djarfir í árásum.
Jafnaðarmenn
og Frjálsir demókratar hafa
ákveðið að taka höndum saman
um stjórn vesturþýska borgfylkis-
ins Hamborgar. Þetta mun vera
fyrsta sinni í fimm ár að flokkar
þessir mynda samsteypustjórn í
Vestur-Þýskalandi eða frá því
sambandsstjórn jafnaðarmanns-
ins Helmuts Schmidts lagði upp
laupana og vék fyrir sambands-
stjórn kristilega demókratans
Helmuts Kohls. í stjórnum beggja
hafa Frjálsir demókratar leikið
nauðsýnlegt aukahlutverk þann-
ig að þær hefðu traustan meiri-
hluta á þingi. Jafnaðarmenn hafa
flesta fulltrúa á fylkisþinginu í
Hamborg og höfðu reynt að bera
víurnar í Kristilega demókrata og
Græningja áður en þeir hófu við-
ræður við þá frjálsu. Stjórnin mun
taka völd fylkisins í sínar hendur
þenn annan september næst-
komandi svo fremi landsstjórnir
beggja flokka fallist á samkrullið.
Á sunnudag
var lítil kapella opnuð almenningi
á ný eftir gagngerðar endurbætur
ísmábæ einum á Ítalíu. Það þætti
svosem ekki í frásögur færandi
þar syðra ef kostnaðurinn við við-
gerðirnar heföu ekki verið
greiddur af eiginkonu Alessand-
ros Natta, formanns ítalska
kommúnistaflokksins. Sjálfur var
Natta ekki viðstaddur opnunina
enda er hann yfirlýstur guðleys-
ingi en hann kvaðst ánægður
með að almenningur hefði nú að-
gang að kapellunni sem fyrrum
var í einkaeign fjölskyldu frúar-
innar. Eitthvað virðist vera að
glæðast vinskapur kirkju og
kommúnista á (talíu því í síðustu
viku keypti flokksdeildin f To-
skaníu forláta kirkjuklukku handa
fjárvana söfnuði staðarins.
_____________ERLENPAR FRÉTTIR_______
Nýja Sjáland
Lange í sjounda himni
Verkamannaflokkurinn áfram við völd eftir þingkjör á laugardag.
Ekki áformað að taka upp hernaðarsamvinnu
við Bandaríkjamenn á ný
vflík þjóð og þvflík dóm-
greind, sagði forsætisráð-
herra Nýja Sjálands, David
Lange, þegar honum bárust nið-
urstöður þingkjörs þarlendis
síðla á laugardagskvöld. Þá mátti
vera ljóst að hann og flokkur
hans, Verkamannaflokkurinn,
höfðu unnið glæstan sigur og
hreppt 15 sæta meirihluta á þing-
inu þar sem 97 fulltrúar sitja.
„Á næstu þremur árum munu
landsmenn njóta ávaxta góðs
efnahagslífs og gaman verður að
búa á Nýja Sjálandi. Menn hafa
fært fórnir og nú munu þeir upp-
skera.“ Lange lét móðan mása í
sjónvarpi og tók síðan í hönd fjár-
málaráðherrans, Rogers Doug-
las, og sagði: „Þessum manni
eigum við mikið að þakka.“
Þegar Lange tók við valda-
taumunum við upphaf síð-
astliðins kjörtímabils kom hann
mörgum í opna skjöldu með rót-
tækum aðgerðum til að rétta við
efnahag landsins. Hann gaf út
reglugerðir í massavís og felldi
gengi nýsjálenska dalsins um heil
tuttugu af hundraði. Hann kveðst
ekki hafa nein slík áform á prjón-
unum nú. „Við náðum fram
markmiðum okkar og nú höldum
við okkar striki. Ráðstafanir okk-
ar munu engum koma á óvart.“
Lange sagði stjórn sína ekki
hafa í hyggju að leita hófanna hjá
Bandaríkjastjórn um hemaðar-
samvinnu. Sem kunnugt er beitti
Reaganstjórnin sér fyrir því að
Nýsjálendingar vom reknir úr
ANZUS varnarbandalagi Ástral-
íumanna, Bandaríkjamanna og
Nýsjálendinga eftir að stjórnin í
Wellington hafði lagt blátt bann
við því að bandarísk herskip með
kjarnvopn innanborðs legðust að
nýsjálenskri bryggju.
„Við höfum ágætis viðskipta-
samband við Bandaríkjamenn en
við ætlum ekki að hefja hernað-
arsamvinnu við Bandaríkjamenn
né ætlum við að hefja samvinnu
við Bandaríkjamenn um neitt
sem viðvíkur kjarnorku.“
Lange sagðist hinsvegar vera
áfram um að samskiptin við Ást-
rali yrðu nánari en verið hefur að
undanförnu. Margir Nýsjálend-
ingar hafa horn í síðu Ástrala sem
þeim finnst ekki bera næga virð-
ingu fyrir smærra eyríkinu.
Bob Hawke, sem nýverið var
endurkjörinn forsætisráðherra
Ástralíu með glæsibrag, sló á
þráðinn til kollega síns þegar úr-
slit lágu fyrir og óskaði honum til
hamingju. Lange sagði að Hawke
myndi koma í sína fyrstu opin-
beru heimsókn til Nýja Sjálands
innan skamms.
Ennfremur tjáði hann lands-
mönnum að nýkjömir þingmenn
Verkamannaflokksins myndu
koma saman í dag til að velja ráð-
herra í stjórn. Sjálfur myndi hann
Suður-Afríka
Viðræður
um ofbeldi
fara með utanríksmál eftirleiðis hyggjuaðverðaráðherraafvopn-
sem hingaðtil auk þess að sitja í unarmála einsog getum hafði ver-
forsæti en hann kvaðst ekki hafa í ið leitt að. -ks.
REYKJÞMIKURBORG
^aaéar Stödcci
Davld Lange verður forsætisráðherra Nýsjálendinga i þrjú ár í viðbót.
Leiðtogar Landssambands námamanna ogforráða-
menn stærsta námafyrirtœkis landsins rœddust ígœr
við um leiðir til að draga úr árekstrum verkfallsvarða
og öryggissveita
Hið víðtæka verkfall blakkra
námamanna f Suður-Afríku
hefur nú staðið í átta daga og sér
ekki fyrir endan á því. 1 gær áttu
forystumenn verkfallsmanna
fund með hæstráðendum stærsta
námafyrirtækis landsins, Ensk-
amerísku samsteypunnar. Til-
gangurinn var sá að ræða leiðir til
að stemma stigu við ofbeldi og
átökum við námur þar sem ekki
er unnið.
Leiðtogar Landssambands
námamanna skoruðu á forráð-
menn fyrirtækisins að fjarlægja
öryggisverði sína burt frá námu-
svæðunum þar eð nærvera þeirra
væri óþörf en ögrandi og oft hefði
skorist í odda með þeim og verk-
fallsmönnum. Fundurinn bar
engan árangur en menn voru
ásáttir um að hittast að nýju í dag
og freista þess að ná samkomu-
lagi. Ekki var minnst aukateknu
orði á meginmálið eða kröfur
sambandsins um launahækkanir
um þriðjung og áhættuþóknun til
handa umbjóðendum sínum.
Engu að síður töldu menn það
góðs viti að deiluaðilar væru farn-
ir að ræðast við því fundurinn í
gær var hinn fyrsti milli þeirra frá
því verkfallið skall á.
Tveir menn hafa beðið bana og
um 240 slasast í átökum verkfalls-
manna og öryggisvarða frá því
vinnustöðvunin hófst. Um 200
námamenn hafa verið handtekn-
ir. Það var af þeim sökum að að-
alritari Landssambands náma-
manna, Cyril Ramaphosa,
óskaði eftir að eiga orðastað við
námaeigendur.
Hann efndi tii fundar með
blaðamönnum í gær og sýndi
þeim gúmmíkúlur og fleiri gripi
úr vopnabúri öryggisvarða nám-
anna sem hann kvað óspart beitt
gegn verkamönnum. Hann gerði
grein fyrir tillögum þeim er hann
hefði lagt fyrir námaeigenduma
fyrr um daginn og em þær í átta
liðum. Meginatriðin eru þau að
öryggisverðimir verði látnir
draga sig í hlé og að lögreglu-
sveitir fái ekki aðgang að náma-
svæðum.
Ramaphosa sakaði stjórnvöld
um afskipti af verkfallinu því
„lögreglan hefur hegðað sér for-
kastanlega, oft hafið skothríð á
verkfallsmenn og reynt að neyða
þá aftur til starfa."
Á fundinum mun Ramaphosa
einnig hafa krafist þess að hand-
teknir námamenn yrðu látnir
lausir úr varðhaldi og kæmr á
hendur þeim látnar niður falla,
að slösuðum verkfallsmönnum
yrðu greiddar skaðabætur og að
fulltrúar fjölmiðla fengju óhindr-
að aðgang að verkfallsnámum.
-ks.
Þriðjudagur 18. ágúst 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15
Ritari óskast
til starfa á Kjarvalsstööum í fullt starf, sem fyrst.
Viökomandi þarf að hafa gott vald á vélritun,
íslensku, svo og kunnáttu í einu Norðurlandamáli
og ensku.
Mikilsvert er aö viðkomandi hafi áhuga á mynd-
list. Laun samkv. kjarasamningi Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar veitir Einar Hákonarson í síma
26180.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Ritari
Ritara vantar frá 1.9. 1987 nk. Verslunar- eða
stúdentspróf nauðsynlegt. Umsóknareyðublöð
liggja frammi I Starfsmannadeild, Öldugötu 19.
Ræsting - Landakot
Hefur þú áhuga á notalegum vinnustað? - Okkur
á Landakoti vantar gott fólk til ræstinga. Við gef-
um upplýsingar I síma 19600-259. (Ræstinga-
stjóri) frá kl. 10-14.
Reykjavík 14.8. 1987