Þjóðviljinn - 18.08.1987, Qupperneq 13
Grænhöfðaeyjar
Fengur heldur á miðin á ný
Nýlega undirrituðu fulltrúar
stjórnvalda á Grænhöfða-
eyjum og Þróunarsamvinnustofn-
unar íslands samkomulag um
áframhaldandi aðstoð íslendinga
við íbúa Grænhöfðaeyja á sviði
fiskveiða, fiskirannsókna og ann-
arra fjölþættra verkefna. í því ti-
lefni heldur rannsóknaskipið
Fengur aftur til fiskirannsókna og
veiðitUrauna við strendur Græn-
höfðaeyja, en skipið hefur undan-
farið legið við landfestar hér
heima.
Rammasamningur að þróun-
arsamvinnu á sviði fiskveiða milli
landanna var fyrst undirritaður
20. mars 1980. Samningurinn
hefur tvívegis verið endurnýjað-
ur og gildir nú til 1990. Upphaf-
lega miðaðist þróunarsamvinna
landanna við fiskirannsóknir og
fiskveiðar, en í seinni tíð hefur
verið tekin upp samvinna um
fleiri verkefni, þar sem íslending-
ar leggja í flestum tilvikum ein-
ungis til fjármagn, en taka að
öðru leyti ekki þátt í framkvæmd-
inni.
Meðal þeirra verkefna sem
komið hafa til uppá síðkastið má
nefna byggingu fræðslumiðstöðv-
ar kvenna á eyjunni Sao Vinc-
ente, þar sem ætlunin mun vera
að kenna konum lestur, heilsu-
fræði og meðferð matvæla. Einn-
ig er áformað að íslendingar leggi
sitt af mörkum til að efla heilsu-
gæslu í höfðuborginni Praiu og
við byggingu eldaskála fyrir mun-
aðarlausa í Praiu. Síðast en ekki
síst munu íslendingar hafa hug á
að leggja stjórnvöldum á Græn-
höfðaeyjum lið við jarðhitarann-
sóknir, sem munu, ef af verður,
fyrst um sinn takmarkast við
eyjuna Fogo, sem er virk eldfjall-
aeyja.
En sem fyrr er höfuðáhersla
þróunarsamvinnunnar bundin
þeim anga fiskveiðanna, sem
lýtur að botnfiskveiðum.
Áformað er að reyna að bæta
geymslu og nýtingu botnfiskafla
og er fyrirhugað að gera gangskör
í því að kanna hugsanlega mark-
aði fyrir afurðirnar, sem fást úr
veiðunum. Einnig verður sjó-
mönnum Grænhöfðaeyja kynnt
og kennd meðferð skakrúlla til
handfæraveiða, en sá afli sem
berst á land úr skaktúrum eyja-
skeggja verður frystur og seldur á
sama hátt og botnvörpuaflinn.
Samhliða fiskveiðunum munu
íslendingar kappkosta að kanna
stofnstærð og hryggningarstöðv-
ar þeirra nytjafiska sem finnast í
einhverju magni á landgrunni
eyjanna.
Samkvæmt áætlun sem Þróun-
arsamvinnustofnun íslands hefur
gert í samráði við yfirvöld á
Grænhöfðaeyjum, heldur rann-
sóknaskipið Fengur fljótlega
suður um höf til rannsókna og
fiskveiða, en skipið hefur verið í
slipp til yfirferðar, auk þess sem
smábreytingar hafa verið gerðar
á skipinu. Þegar er búið að aug-
lýsa eftir yfirmönnum á skipið og
verða þeir munstraðir frá og með
1. september n.k. og gildir ráðn-
ingartíminn fram á mitt ár 1989.
-rk
Starri í Garði
Blesspartí í Reidhöllinni
Á vegum Búnaðarfélags ís-
lands fer nú fram blesspartí í
Reiðhöllinni, í tilefni af hefð-
bundnum búgreinum. Mætti ég
koma með tillögu um tilhögun á
þessari hátíð:
Ég legg það til að látin sé ganga
föst rúta inná öskuhaugana í Guf-
unesi, svo að sýningargestir eigi
þess kost að sjá þá merku enda-
stöð hluta af búvöruframleiðslu
bænda.
Það væri sanngjamt að þeir
sem stjórna sölumálum og land-
búnaðarpólitík nytu á þann hátt
sannmælis.
Ég legg það ennfremur til að
ráðinn sé sem „guide“ á þessa
rútu, Jón nokkur Helgason.
KROSSGÁTAN
Lárétt: 1 fiskur4 nýlega6
fiskur 7 vofa 9 mið 12 rækt-
ar 14 gláp 15 kjaftur 16 spil
19 afturenda 20 hinu 21
mýrajárn
Lóftrétt: 2 sjór 3 dreifir 4 tré
5 eðja 7 ótti 8 hávaði 10
hljóðaði 11 þekktur 13 glöð
17stjaka18runa
Lausnásíðustu
krossgátu
Lárétt: 1 flot 4 smár 6 akk 7
gafl 9 atti 12 linka 14 iða 15
pin16sálga19nekt20
Óður21 ataði
Lóðrétt: 2 lúa 3 tala 4 skak
5 átt 7 gliðna 8 flaska 10
tapaði 11 iðnari 12 Níl 17 átt
18góð
KALLI OG KOBBI
Þar lyftir hann endanum
á risavaxinni
blaðsíðunni...
Þegar Kalli er svona
pínulítill tekur það hann tíu
mínútur að ganga yfir
blaðsíðu í bók.
GARPURINN
FOLDA
Heldurðu aö A / Tjah, manni finnst Á maurunum finnistl / nú einhvern veginn að þeir vera / | þeir hugsi varla V) 0 En þeir virðast ekki ) v / Hafa greinilega \ j ( mauraheila )'
(Ol/ftöH ■*- - -“-.
í BIÍDU OG STRÍDU
Af því að bu ert orðir
svo stór stúika þá held
ég að þu cetir
__Av ... borið abyrgo
- á doliil'.'
Fyri-j.'.an það að leggi''á j P,.
boróið og I0.3- til í . {
hcrbei'ginu þínu pá »e.!a <• j ' „Á
að biðja pig að vö' m ó1, j j":Vj' Jg '•
"^min:‘ J11 '•
. ií
J •
KT/'-r -'t* J K>. \
■ t r:
> , .■>
rK rn ,...J •
• — (—-j-J iti - -■ - •:if.
)
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöld-
varsla lyfjabúða vikuna
14.-20. ágúst 1987 er i Hoits
Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opið
um helgar og annast nætur-
vörslu alla daga 22-9 (til 10
fridaga). Siðarnefnda apó-
tekið er opið á kvöldin 18-22
virka daga og á laugardögum
9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspft-
allnn: alla daga 15-16,19-20.
Borgarspftallnn: virka daga
18.30- 19.30, helgar 15-18, og
eftirsamkomulagi. Fæðlng-
ardeild Landspítalans: 15-
16. Feðratími 19.30-20.30.
öldrunarlæknlngadelld
Landspítalans Hátúni 10 B:
Alla daga 14-20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspftala: virka daga 16-
19, helgar 14-19.30. Heilsu-
vemdarstöðln við Baróns-
stíg: opin alla daga 15-16 og
18.30- 19.30. Landakots-
spftali-.alladaga 15-16 og
19-19.30. Barnadelld
Landakotsspftala: 16.00-
17.00. St. Jósef sspftall
Hafnarfirði: alla daga 15-16
og 19-19.30. Kleppsspfta-
llnn: alla daga 15-16 og
18.30- 19. SjúkrahúslðAk-
ureyrl: alla daga 15-16 og 19-
19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alladaga
15-16 og 19-19.30. SJúkra-
hús Akraness: alla daga
15.30- 16 og 19-19.30.
SJúkrahúsið Húsavfk: 15-16
og 19.30-20.
LÖGGAN
Reykjavík.....sími 1 11 66
Kópavogur......sími4 12 00
Seltj.nes.....sími61 11 66
Hafnarlj......simi 5 11 66
Garðabær......sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabflar:
Reykjavík.....simi 1 11 00
Kópavogur.....símil 11 00
Seltj.nes.....simil 11 00
Hafnárfj......sími5 11 00
Garðabær......simi 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrlr Reykja vfk,
Settjamames og Kópavog
er í Heilsuvemdarstöð
Reykjavikur alia virka daga
frákl. 17til08,álaugardögum
og helgidögum allan sólar-
hringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tíma-
pantanir i sima 21230. Upp-
lýsingar um lækna og lyfja-
þjónustu eru gefnar í sfm-
svara 18885.
Borgarspítallnn: Vakt virka
daga kl. 8-17 og fy rir þá sem
ekki hafa heimilislækni eða
ná ekki til hans. Landspítal-
Inn: Göngudeildin opin 20 og
21. Slysadeild Borgarspital-
ans: opin allan sólarhringinn
sími 681200. Hafnarfjörður:
Dagvakt. Upplýsingar um da-
gvaktlæknas. 51100. Næt-
urvakt lækna S. 51100.
Garðabær: Heilsugæslan
Garðaflöts. 45060, upplýs-
ingar um vaktlækna s. 51100.
Akureyrl: Dagvakt8-17á
Læknamiðstöðinni s. 23222,
hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá
Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýs-
ingars. 3360. Vestmanna-
eyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
ÝMISLEGT
HJálparstöð RKl, neyðarat-
hvarf fyrir unglinga Tjarnar-
götu 35. Sími: 622266 opið
allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin
Ráðgjöf í sálfræðilegum efn-
um.Sfmi 687075.
MS-félagið
Álandi 13. Opið virka daga frá
kl.10-14. Sfmi 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarp-
anum Vesturgötu 3. Opin
þriðjudaga kl.20-22, sfmi
21500, simsvari. Sfálfshjáip-
arhópar þeirra sem orðið
hafa fyrirsifjaspellum, s.
21500, símsvari.
Upplýsingar um
ónæmistæringu
Upplýsingar um ónæmistær-
ingu (alnæmi) í síma 622280,
milliliðalaust samband við
lækni.
Frá samtökum um kvenna-
athvarf, sfmi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir kon-
ur sem beittar hafa verið of-
beldi eöa orðið fyrir nauðgun.
Samtökin 78
Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma Samtakanna
78 félags lesbía og homma á
Islandi á mánudags- og
fimmtudagskvöldum kl. 21 -
23. Símsvari á öðmm tímum.
Síminn er 91 -28539.
Félag eldri borgara
Opið hús i Sigtúni við Suður-
landsbraut alla virka daga
milli kl. 14 og 18. Veitingar.
GENGIÐ
14. ágúst 1987 kl.
9.15.
Sala
Bandaríkjadollar 39,680
Sterlingspund... 62,528
Kanadadollar.... 29,838
Dönskkróna...... 5,4338
Norskkróna...... 5,7561
Sænsk króna..... 6,0304
Finnskt mark.... 8,6761
Franskurfranki.... 6,2700
Belgískurfranki... 1,0083
Svissn.franki... 25,2049
Holl. gyllini... 18,5894
V.-þýskt mark... 20,9587
(tölsklíra...... 0,02891
Austurr. sch.... 2,9818
Portúg. escudo... 0,2686
Spánskurpeseti 0,3085
Japansktyen..... 0,26048
Irsktpund....... 56,054
SDR............... 49,7078
ECU-evr.mynt... 43,4655
Belgískurfr.fin. 1,0015
Þriftjudagur 18. ágúst 1987|þJÓÐVILJINN - SÍÐA 17