Þjóðviljinn - 18.08.1987, Blaðsíða 15
Akureyri
125 ára kaup
staðarafmæli
Mikið verður um dýrðir á Ak-
ureyri þann 29. ágúst næstkom-
andi þegar bæjarbúar halda upp
á 125 ára kaupstaðarafmæli
bæjarins.
Hátíðarhöldin hefjast raunar
föstudaginn 28. ágúst með ráð-
stefnu undir yfirskriftinni „Iðn-
aður á Norðurlandi" og opnun
iðnsýningar í íþróttahöllinni á
Akureyri. Iðnfyrirtæki á Akur-
eyri og víðar hafa sýnt mikinn
áhuga á að taka þátt í sýngunni og
að sögn Porleifs Þórs Jónssonar,
sem séð hefur um skipulagningu
sýningarinnar, er hver fermilli-
metri í sýningarplássi upppantað-
ur. Sýningin verður opin til sunn-
udagsins 6. september.
Á sjálfan afmælisdaginn hefst
dagskráin klukkan 8:20 með mót-
töku á Akureyrarflugvelli þegar
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands kemur í opinbera heimsókn
til Akureyrar.
Klukkan 10:00 hefst hátíðar-
fundur í bæjarstjórn að viðstödd-
um gestum og klukkan 10:40
verður samkoma í Akureyrar-
kirkju. Þar flytur Gísli Jónsson
erindi um sögu Akureyrar,
sóknarprestar sjá um andakt og
gestir flytja ávörp. Þessi dagskrá
verður svo krydduð á viðeigandi
hátt með tónlistarflutningi.
Klukkan 12:00 hefst hádegis-
verður fyrir gesti í boði bæjar-
stjórnar Akureyrar að Hótel
KEA.
Fyrir hádegi munu strengja-
sveit barna úr Tónlistarskólanum
og kórar heimsækja Fjórðungs-
sjúkrahúsið, dvalarheimilin og
Sólborg og gefa þeim sem á þess-
um stofnunum eru og heilsu sinn-
ar vegna geta ekki tekið þátt í
útihátíðarhöldunum kost á njóta
nokkurrar skemmtunar í tilefni
dagsins
Fyrir almenning hefst hátíðin
síðan fyrir alvöru klukkan 14:00
þegar skrúðgöngur leggja af stað
úr stærstu íbúðarhverfum bæjar-
ins og er áætlað að þær komi í
göngugötu klukkan 14:30. Þar
verður fjölbreytt dagskrá með
götuleikhúsi, tónlist o.fl. þar sem
fjölmargir koma við sögu. Leik-
tæki verða fyrir börnin í Skáta-
gili, hesta- og reiðsýning og fall-
hlífastökk austan Samkomuhúss
og siglingamenn sýna listir sínar á
Pollinum, svo fátt eitt sé talið.
Frá klukkan 9:00 til 17:00
verða söfnin í bænum opin al-
menningi til sýnis og sérstakar
strætisvagnaferðir verða úr Mið-
bænum í Innbæ til að flytja fólk í
söfnin sem þar eru.
Klukkan 20:30 hefst leikin dag-
skrá Leikfélags Akureyrar í
íþróttaskemmunni og hefur
henni verið gefið nafnið: Afmæl-
sveisla handa eyrarrós. Höfundar
eru Óttar Einarsson og Eyvindur
Erlendsson ásamt Jóni Hlöðveri
Áskelssyni sem valdi tónlistina.
Að sögn höfunda er hér um að
ræða leikna dagskrá í tilefni 125
ára afmælis Akureyrar sem sam-
sett er úr sönglögum, hljóðfæra-
slætti, leiknum myndum, sögum,
vísum, kvæðum, bröndurum,
prakkaraskap, lýðhvetjandi hug-
vekjum, bulli og spakmælum.
Klukkan 21:00 hefjast ungling-
ahljómleikar í göngugötu þar
sem fram koma m.a. Stuðkomp-
aníið, Sniglabandið og Látúns-
barkinn. Þessir hljómleikar
standa til miðnættis.
Fyrir þá sem kjósa kyrrlátari
kvöldskemmtun verðurgarðsam-
koma í Lystigarðinum og hefst
hún upp úr klukkan 22:00 og
þangað verða gestir bæjarstjórn-
ar leiddir að lokinni sýningu
Leikfélagsins. Á nokkrum stöð-
um ígarðinum munu hljómlistar-
menn leika og boðið verður upp á
kaffiveitingar.
Á miðnætti hefst svo flugelda-
sýning í umsjá skáta og lýkur þar
með þessari fjölbreyttu hátíðar-
dagskrá á 125 ára afmæli Akur-
eyrarkaupstaðar. Þómun Leikfé-
lagið endursýna dagskrá sína
daginn eftir og áður er getið um
iðnsýninguna sem opin verður
alla næstu viku. -yk.
vi
Svona leit Oddeyrin út fyrir rúmum 50 árum.
Það er þægilegt að greiða
orkureíkninginn sjálfkrafa!
/ffíymwi EUROCARP e?a F/8A
Nú býður Rafmagnsveita Reykjavíkur þér
nýja, mjög þægilega leið til að greiða
orkureikninginn. Þú getur látið taka reglu-
lega út af EUROCARD/VISA reikningnum
þínum fyrir orkugjaldinu, án alls auka-
kostnaðar. Þannig losnar þú við allar rukk-
anir, færð einungis sent uppgjör og
greiðsluáætlun einu sinni á ári.
Með þessari tilhögun, sem er nýjung í
heiminum, sparar þú þér umstang og
hugsanlega talsverða peninga því að það
er dýrt rafmagnið sem þú dregur að
borga. Jafnframt ertu laus við áliyggjur af
ógreiddum reikningum og dráttarvöxtum.
Hafðu samband við Katrínu Sigurjónsdótt-
ur eða Guðrúnu Björgvinsdóttur í síma
68-62-22.
Þú gefur upp númerið á greiðslukortinu
þínu og málið er afgreitt!
Láttu orkureikninginn
hafa forgang — sjálfkrafa!
RAFMAGNSVEITA
REYKIAVIKUR
SUDURLANDSBRAUT34 SIMI6862 22
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
ARSU5'S'A_______________________________________________________________IW ’