Þjóðviljinn - 18.08.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓOVIUINN
Þrlðjudagur 18. ágúst 1987 179. tölublað 52. árgangur
LEON
AÐ EARSCLLí
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
Nýja flugstöðin
Leiguokur og „mllugjaSd
ít
Óánœgja með háa leigu í nýju flugstöðinni. Flugfarþegar greiða „rúllugjald“ að nýjuflugstöðinni. Halldór Sigurðsson,
Arnarflugi: Ákváðum að afsala okkur hluta af úthlutaðri aðstöðu vegna hárrar leigu. Pétur Guðmundsson,
flugvallarstjóri: Breiðu bökin borga mest
Þegar uppvíst varð loksins ____ __________________________________' ______________________________-
fyrir einum þremur vikum hver
jj^j okkurrar óánægju gætir með-
al þeirra fyrirtækja og stofn-
ana, sem nýja nugstöðin hýsir.
Einkum beinist óánægjan að
mjög háu leigugjaldi, sem fyrir-
tækin borga fyrir aðstöðuna og
hefur Arnarflug afráðið að draga
úr starfsemi sinni í flugstöðinni
vegna þessa. Fyrirhugað er að
setja á sérstakt innskráningar-
gjald á flugfarþega, sem nemur
um 200 krónum á hvern farþega,
en eins og komið hefur fram fóru
allar fjárhagsáætlanir við smíði
stöðvarinnar úr böndunum, eða
um rúman milljarð króna.
-Arnarflug hefur afráðið að
fækka innskriftarborðum úr
þremur í eitt í nýju flugstöðinni
og afsala sér lagerplássi, sem fyr-
irtækið hafði fengið úthlutað í
byggingunni og leigja þess í stað
húsnæði í Keflavík undir starf-
semina, vegna þess hve leigan er
óheyrilega há, sagði Halldór Sig-
urðsson, hjá Arnarflugi.
leigan yrði, var ljóst að hún var
ekki í neinu samræmi við það sem
tíðkast fyrir leigu á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði. Ég veit til þess
að íslenskur markaður hefur far-
ið með þetta mál fyrir iðnaðar- og
samgönguráðuneytið, sagði Hall-
dór Sigurðsson.
Pétur Guðmundsson, flugvall-
arstjóri, upplýsti í samtali við
blaðið að leiga fyrir aðstöðu í
flugstöðinni væri allt frá 5500
krónum á fermetra í tæpar 400
krónur. - Hér eru það breiðu
bökin sem borga mest. Fríhöfnin
og flugfélögin einna hæsta leigu,
enda velta þau mestu hér í bygg-
ingunni. Ég get alveg fallist á að
þetta er all verulega há leiga,
sagði Pétur Guðmundsson, en
hann sagði sér ekki vera kunnugt
um að fyrirtæki hefðu gengið úr
skaftinu vegna leigunnar og afsal-
að sér úthlutaðri aðstöðu í flug-
stöðinni. -rk
Varmalandsnefndin
Fundað um allt land
Varmalandsnefndin svokallaða
sem fjallar um stöðu Alþýðu-
bandalagsins og vinstri hreyfing-
arinnar fundaði í Reykjavík um
Húsnæðislánin
Láns-
loforðin
suður
Rúm 76% lánsloforða til
suðvestur-hornsins en
fjárfestfyrir rúm 81 %
lánsloforða
Töluverður fjöldi þeirra hús-
næðislána, sem veitt eru fólki
á landsbyggðinni, fer í Qárfest-
ingar á suðvesturhorni landsins. I
maí sl. var skipting lánsloforða
þannig að rúm 22% loforða fór til
fólks út á landsbyggðinni en ein-
ungis rúm 18% til fjárfestingar.
Imaí sl. höfðu 7626 lánsloforð
verið veitt af Húsnæðisstofnun,
þar af var vitað hvar rúm 3400
loforð yrðu notuð. Sé bara litið til
þeirra loforða kemur í ljós að
1130 loforð fóru til fólks annars-
staðar en í Reykjavík og á
Reykjanesi, hinsvegar einungis
967 loforð, sem verða notuð til
fjárfestinga á landsbyggðinni.
Lánsloforð til Reykvíkinga og
Reyknesinga eru 2317 en á sama
svæði eru 2493 notuð til fjárfest-
inga.
Á landsbyggðinni er því ein-
ungis framkvæmt fyrir 18,7% þó
22,7% loforða fari þangað. Á
suðvesturhorninu er hinsvegar
framkvæmt fyrir 81,3% þó ein-
ungis 76,8% loforða fari til fólks
á þessu svæði.
Mestur er mismunurinn á
Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi eystra. -Sáf
helgina og að sögn Gísla Gunn-
arssonar sem á sæti i nefndinni
var samþykkt að nefndin notaði
næstu vikur til að funda í öllum
kjördæmum með flokksmönn-
um.
- Við hefðum gjarnan viljað
halda fundi í öllum flokksfé-
lögum en því miður höfum við
hvorki tíma né aðstöðu til þess.
Þess í stað verða fundir á vegum j
kjördæmisráðanna opnir öllum j
félagsmönnum.
Nefndin mun síðan koma sam-
an 19. og 20. september n.k. og
skila síðan frá sér áliti til mið-
stjórnar Alþýðubandalagsins
sem mun líklega funda í byrjun
október. Þá hefur nefndin lagt til
að landsfundur Alþýðubanda-
lagsins verði haldinn um miðjan
nóvember. _jg.
Reynir Aðalsteinsson bóndi á Sigmundarstöðum í Borgarfirði vann það afrek að verða heimsmeistari í samanlögðum
fimmgangsgreinum á mótinu. Hér er hann á flugskeiði og tíminn á sprettinum var 21,9 sek. Mynd - G.T.K.
Hestamenn
Koma heim klyfjaðir gulli
Þeir voru hressir íslendingarn-
ir sem voru að koma heim af
heimsmeistaramótinu í hestaí-
þróttum í Weistrach í Austurríki,
og er full ástæða til.
Segja má að íslenska keppnis-
sveitin komi heim klyfjuð gulli.
Hún vann fimm gullverðlaun,
fleiri en nokkurri íslenskri sveit
hefur áður auðnast, og tvenn
silfur- og tvenn bronsverðlaun að
auki. Og allir komust íslensku
knaparnir í úrslit.
Verðlaunahafarnir eru annars
þessir: Reynir Aðalsteinsson
þrenn gullverðlaun. Sigurbjörn
Bárðarson tvenn gullverðlaun og
ein bronsverðlaun. Erlingur Sig-
urðsson ein silfurverðlaun og ein
bronsverðlaun. Hafliði Halldórs-
son ein silfurverðlaun. Einkum
kom sigur Sigurbjörns Bárðar-
sonar í tölti á óvænt, en undanfar-
in ár hafa verið erfið íslensku
keppnissveitunum í fjórgangs-
greinum. Um sex þúsund manns
víðsvegar úr heiminum sótti
mótið og voru íslendingar um
fimm hundruð af þeim. Vel fór
um keppendur og hesta og not-
uðu margir íslensku gestanna
tækifærið og ferðuðust um
Austurríki í tengslum við þetta
mót.
mhg/G.T.K.
Lífeyrissjóðirnir
Sjóðimir í hár saman
1Tilboð ríkissjóðs til sjóðanna lagtfram í gœr. Samband almennra lífeyrissjóða mœtti ekki á fundinn.
Hrafn Magnússon: Vildum með því mótmcela orðum Péturs Blöndal. Pétur Blöndal: Stend fast
við orð mín. Tilboð ríkissjóðs talið óaðgengilegt
Fulltrúar ríkissjóðs afhentu „Ég stend fast við þessi orð
fulltrúum Landssambands líf- mín,“ sagði Pétur Blöndal, for-
maður Landssambands lífeyris-
sjóðanna. „Það var ekki haft
ulltrúar ríkissjóðs afhentu
fulltrúum Landssambands líf-
cyrissjóðanna tilboð ríkisins í
skuldabréf lífeyrissjóðanna i gær.
Fulltrúar Sambands almennra
lífeyrissjóða mættu ekki á fund-
„Með því að mæta ekki vildum
við mótmæla þeim orðum Péturs
Blöndal í Morgunblaðinu, að
ekki hafi verið haft samráð við
lífeyrissjóðina við mótun nýja
húsnæðislánakerfisins. Ég hef nú
samt trú á því að samstaða náist
aftur milli lífeyrissjóðanna,“
sagði Hrafn Magnússon, formað-
ur Sambands almennra lífeyris-
sjóða.
formlegt samband við Landssam-
band lífeyrissjóðanna og hvað
sjálfan mig varðar þá var forðast
að láta mig fylgjast með. Ég á nú
erfitt að sjá að þessi orð mín verði
til þess að vinslit verði á milli okk-
ar og Sambands almennra líf-
eyrissjóða. Ég hef sagt þetta áður
og þá hefur þessu ekki verið mót-
mælt.“
Tilboð ríkisins í gær fól í sér
6,25% vexti umfram verðbólgu
fyrir skuldabréf keypt árið 1988,
en áður hafði verið samið
um
5,9% vexti af þeim. Þá býður rík-
ið 6% vexti fyrir árið 1989 og
5,75% vexti fyrir skuldabréfa-
kaup árið 1990. Þá er í tilboði
ríkisins gengið út frá því að lán-
stíminn lengist úr 20-30 árum í
25-35 ár.
„Þetta tilboð miðast við að
Húsnæðisstofnun verði ekki
nauðbeygð til að hækka útláns-
vexti sína,“ sagði Sigurður E.
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Húsnæðisstofnunar í gær.
„Mér þótti skrýtið að fá þetta
tilboð," sagði Pétur Blöndal.
„Þetta tilboð er ekki á markaðs-
vöxtum einsog talað er um í
lögum.“ Pétur vildi þó ekki
kveða upp úr hvort tilboðinu yrði
hafnað. Sagðist hann ætla að
leggja það fyrir stjóm Lands-
sambandsins.
„Þetta tilboð getur ekki orðið
að samkomulagi," sagði Hrafn
Magnússon, formaður Sambands
almennra lífeyrissjóða. Hann
vildi þó ekki úttala sig frekar um
það þar sem stjóm Sambandsins
ætti eftir að fjalla um málið.
Á miðvikudag mun Samband-
ið funda með fulltrúum ríkisins
og sama dag verður tilboðið lagt
undir stjóm Landssambandsins.
-Sáf