Þjóðviljinn - 09.09.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.09.1987, Blaðsíða 1
Danmörk Óvissa! Flokkarnir fjórir sem mynda ríkisstjórn undir forsæti Pauls Schliiters töpuðu verulegu fylgi í þingkjörinu í gær og takist fors- ætisráðherranum ekki að fá Framfaraflokk Mogens Glistrups til liðs við sig og halda jafnframt velvi|ja „Róttæka vinstriflokks- ins“ er stjórnin fallin. Jafnaðarmenn töpuðu tveim þingsætum en Sósíalski þjóðar- flokkurinn vann sex. Samtals hafa þessir flokkar nú umráð yfir 81 sæti af 179 á þingi Dana. Nýr flokkur vann 4 sæti og hann hall- ast á sveif með vinstrimönnum. Það er því ljóst að „Róttæki vinstriflokkurinn“ hefur það í hendi sér hvort Danmörku verð- ur stýrt af vinstri- eða hægristjóm næstu fjögur árin. ks. Sjá nánar á bls. 11 Miðvikudagur 9. september 1987 198. tölublað 52. árgangur Hvalveiðideilan Hvalveiðunum hætt Allt útlit erfyrir að hvalveiðum íslendinga sé lokið nú ísumarog jafnvel til lengri tíma litið. Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra hittirfulltrúa Bandaríkjanna íKanada. Hjörleifur Guttormsson: Hvað er verið að fela? Tvö hvalveiðiskip eru á miðun- um við talningu og áttu að hefja veiðar á sandreyðum þegar talningunni er lokið seinna í vik- unni. Nú virðist ljóst að skipin koma inn án afla og ólíklegt að þau haldi aftur á miðin í sumar né næstu sumur. Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra og Ronald Reagan, Banda- ríkjaforseti hafa staðið í bréfa- skriftum og er ljóst að Banda- rikjaforseti hefur gert Þorsteini Pálssyni ljóst að um leið og fyrsta sandreyðurin verður veidd mun viðskiptaráðuneytið leggja fram staðfestingakæru. Flest bendir til þess að um leið og kæran verður lögð fram muni Japanir hætta að kaupa hvalkjöt af Islendingum af ótta við að Bandaríkjamenn beiti þá viðskiptaþvingunum. Þar með er kippt gmndvellinum undan hvalveiðum. Steingrímur sagði í gær að á meðan viðræður við Bandaríkja- menn stæðu yfir myndu veiðar liggja niðri. Hann sagði jafnframt að í viðræðum sínum myndi hann taka upp endurskoðun á öllum samskiptum þjóðanna, en vildi hvorki játa né neita að afstaða Völundarhúsiö rifift: Framkvæmdir eru hafnar við að fjariægja hús timburverslunarinnar Völdundar sem Sveinn M. Sveinsson byggði í upp- hafi aldarinnar undir timburverslun og trésmiðju. Það verður að víkja fyrir íbúðarhverfi sem þama á að reisa, samkvæmt Skúlagötuskipulaginu sem borgarstjómin samþykkti fyrir fáum ámm. Mynd: Sig. VMSÍ Sérsamband í burðarliðnum Hrafnkell Jónsson: Náist ekki samstaða innanAlþýðusambands Austurlands bendir allt til að fyrstivísir sékominn að sérsambandi fiskvinnslufólks. Þórarinn V. Þórarinsson: Þarfað komastáhreintfyrir hverja VMSÍ er að semja Eg hef ekki verið talsmaður sérsambands fiskvinnslufólks, en náist ekki samstaða innan Al- þýðusambands Austurlands en hinsvegar meðal þeirra félaga sem gengu út af formannaráð- stefnu VMSÍ, þá er kominn vísir að stofnun landssamtaka fisk- vinnslufólks, sagði Hrafnkell A. Jónsson, formaður verkalýðsfé- lagsins Árvakurs á Eskifirði. Verkamannasambandið átti fund með atvinnurekendum í gær og lagði fram kröfugerð sína. Þar er farið fram á að byrjunarlaun hækki í 32.400 krónur á mánuði auk þess sem gert er ráð fyrir fjór- um launaflokkum með 3% bili á milli flokka og að aldursþrepin verði fimm. Frekar lítið gerðist á fundinum en ákveðið var að skipa sex manna nefnd til að kanna kröfur VMSÍ og kaupmáttarþróunina í landinu. Að sögn Þórarins V. Þórarinssonar, framkvæmda- stjóra VSÍ, eru aðilar tilbúnir að ræða áfram saman á þeim grund- velli að samið sé um kaupmátt frekar en krónuhækkanir. Er næsti fundur ákveðinn nk. þriðjudag. Þórarinn sagði að fyrir þann fund þyrfti að liggja fyrir fyrir hverja Verkamannasambandið væri að semja. „Einsog málin standa í dag hef- ur Verkamannasambandið ekki samningsrétt fyrir okkur,“ sagði Hrafnkell í gær. Fulltrúar verkalýðsfélaganna í Neskaupstað og á Seyðisfirði gengu ekki út af formannaráð- stefnunni og því óljóst hvort sam- staða næst meðal félaganna innan Alþýðusambands Austurlands um að standa sameiginlega að kröfugerð. Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði hefur einsog Árvakur lýst því yfir að VMSI hafi ekki umboð fyrir þá. Óljóst er um afstöðu hinna níu féíag- anna sem yfirgáfu formannaráð- stefnuna. Ljóst er hinsvegar að forysta VMSÍ leggur ofurkapp á að finna lausn á deilunni sem komin er upp. -grh/Sáf Sjá bls. 3 íslendinga til hersetunnar yrði þar til umræðu. Utanríkismálanefnd kemur saman til fundar í dag, en nefnd- armenn eru mjög óánægðir með að þeir skuli ekki hafðir með í ráðum í jafn viðkvæmu deilu- máli. Það var Hjörleifur Guttorms- son sem fór fram á að utanríkis- málanefnd yrði kölluð saman. „Það hefur verið farið mjög leynt með bréfaskriftir Þorsteins Páls- sonar og Reagans og innihald þeirra hvorki verið kynnt nefnd- armönnum né fjölmiðlum," sagði Hjörleifur í gær. -Sáf Sjá viðtal við Hjörleif Guttormsson á bls. 3 Húsnœðismálin Stórfundur í haust Á tta félagasamtök þinga umfélagslegt húsnœði „Það hefur náðst mjög jákvæð samstaða og samstarf um hús- næðismálin milli átta félagasam- taka. Þau eru Öryrkjabanda- lagið, Sjálfsbjörg, Þroskahjálp, Stúdentaráð, Samtök aldraðra, Bandalag íslenskra sérskóla- nema, Búseti og Leigjendasam- tökin,“ sagði Reynir Ingibjarts- son, framkvæmdastjóri Húsnæð- issamvinnufélagsins Búseta i gær, en félagsmenn í samtökum þess- um eru um 40.000 talsins. Að sögn Reynis stefna þessi fé- lagasamtök að því að halda ráð- stefnu um félagslegt húsnæði hinn 23. október, og verða þar kynntar ítarlegar tillögur um hvert beri að stefna. „Einnig verður vart vaxandi áhuga hjá sveitarfélögunum á því að breytt verði um stefnu í húsnæðismálun- um, og því munu mörg þeirra væntanlega sýna þessari ráð- stefnu áhuga,“ sagði hann. „Það sem er núna í deiglunni í húsnæðismálunum er það helst að félagasamtök af ýmsu tagi og sveitarfélögin eru að þreifa sig áfram um að ná samstöðu með ríkisvaldinu um leið út úr ógöng- unum, en allar breytingar að und- anfömu virðast hafa skapað ný vandamál. Það er að renna upp fyrir fólki að síðustu breytingar á húsnæð- islögunum voru slys. Þar vegur þyngst sjálfvirkriin, hversu kerfið er opið og að stórir hópar hafa verið skildir eftir. Viðhorfs- breytingin núna er ekki síst af- raksturinn af okkar starfi undan- farin ár. Til dæmis em augu stjómenda atvinnufyrirtækja, sérstaklega utan Reykjavíkur, að opnast fyrir því að það sé þeirra hagur að koma inn í þessi mál og stuðla að því að tryggja fólki húsnæði," sagði Reynir. HS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.