Þjóðviljinn - 09.09.1987, Side 2
F-SPURNINGIN—
Hvernig fer knattspyrnu-
leikurinn á milli (slands
og Noregs í Evrópu-
keppni landsliöa?
Kristín Guðmundsdóttir,
bankastarfsmaður:
2:1 fyrir ísland. Við erum miklu
betri en Norðmenn í fótbolta.
Þetta verður örugglega hörku-
leikur, ekki spurning um það.
Gísli Guðmundsson,
stöðumælavörður:
2:0 fyrir ísland, það væri vel gert.
Ef þeir vinna leikinn, sem ég hef
trú á, þá megum við vel við una,
því Norðmenn geta verið sleipir.
Arnar Ottesen,
sölumaður:
2:0 fyrir (sland. Ég spái því að
það verði Gummi Torfa og Pétur
Arnþórsson sem skori mörkin.
Að öðru leyti reikna ég með að
þetta verði iíflegur og skemmti-
legur leikur.
íris Williamsdóttir,
menntaskólanemi:
2:0 fyrir ísland. Ég held að þessi
leikur verði léttur fyrir landann,
aldrei þessu vant, og hann verði
skemmtilegur á að horfa.
Erlingur Viggósson,
skipasmiður:
4:2 fyrir ísland. Þetta verða
bræðravíg og hörkuleikur. En ég
vona þó í lengstu lög að norræn
samvinna bresti ekki þrátt fyrir
hrakfarir Norðmanna.
FRÉTTIR
Sjálfstœðisfokkurinn
Þreyttur fortíðarflokkur
með skrifstofumannaforystu
Vandamálanefnd Heimdellinga kemst að því að Sjálfstœðisflokkurinn
er flokkur stórfyrirtœkja og Þorsteinn alveg einsog Geir. Daufar
undirtektir á SUS- þingi
Frá flokksskrifstofunum í Valhöll við Bolholt, sem „líkist meir skrifstofu banka-
stjóra en stjórnmálaflokks. Ljósatöflur eða umferðarljós við dyr framkvæmda-
stjóra og formanns eins og í banka."
í skýrslu sem nefnd nokkurra
Heimdellinga lagði fram á þingi
ungra íhaldsmanna í Borgarnesi
síðustu helgi er Sjálfstæðisflokk-
urinn tekinn rækilega til bæna
sem þreyttur og staðnaður fortíð-
arflokkur undir stjórn einsleitrar
skrifstofuforystu.
Meginkafli skýrslunnar heitir
„Heistu veikleikar flokksins“ og
eru klögumál ungliðanna þar
rakin í sex liðum.
Stórfyrirtæki
Fyrsti liður heitir „Flokkur
stórfyrirtækja en ekki neytenda-
flokkur“. Þar segirmeðal annars:
„Neytendamál ekki eins mikið í
sviðsljósinu eins og nauðsynlegt
væri. Flokkurinn setur oftast á
oddinn málefni sem snerta hag
islenskra fyrirtækja. Kannski
skortur á fjölskyldupólitík.“
„Þreyttur flokkur" heitir annar
liðurinn. Þar segir: „Gamlir
staðnaðir framboðslistar, sem
ekki hafa næga breidd. Þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins elsti
þingflokkurinn. Allir frambjóð-
endur sem eitthvað ber á steyptir
í sama mótið. Hér er ekki aðeins
verið að gagnrýna einstaka fram-
bjóðendur persónulega, þ.e.a.s.
bakgrunn þeirra, heldur kannski
fyrst og fremst framkomu þeirra.
Sækja þarf frambjóðendur í fleiri
þjóðfélagshópa. Halda mætti að
eingöngu ákveðnar týpur þrifust
innan Sjálfstæðisflokksins
menn klæða sig eins - tala eins
o.s.frv. (...) Svifaseinn flokkur-
flokkurinn tapar miklu fylgi en
heldur ekki fund meðal félags-
manna fyrr en einum og hálfum
mánuði eftir kosningar."
„Flokkur fortíðar en ekki
framtíðar“ heitir þriðji kaflinn.
Þar segir að í kosningabaráttunni
hafi verið lögð áhersla á verk fyrri
strjórnar, en ekki sýnt frammá
hvað gera ætti á næsta kjörtíma-
bili. „Þannig flokkur er í raun
ekki áhugaverður. Kjósendur
virðast frekar horfa til þess hvaða
stefnu þeir eru að kaupa, þ.e.a.s.
hverju er lofað, heldur en að
þakka mönnum fyrir vel unnin
störf og tengja þá ekki saman
árangurinn og framtíðarstefnuna
sem skyldi.
Bankastjórar
í Valhöll
„Valhöll óaðlaðandi“ heitir
fjórði kaflinn: „Valhöll er ekki
skemmtileg sem andlit flokksins í
kosningabaráttu. Opna þarf hús-
ið meira og gera það meira
spennandi en jafnframt skapa
þægilegt andrúmsloft. Hér er átt
við reyklituð gler á neðstu hæð og
skrifstofu flokksins sem líkist
meir skrifstofu bankastjóra en
stjórnmálaflokks. Ljósatöflur
eða umferðarljós við dyr fram-
kvæmdastjóra og formanns eins
og í banka. Skrifstofan virkar
þannig þunglamaleg og alls ekki
heimilisleg fyrir þá sem þangað
eiga erindi. Menn fá hálfgerða
sendlatilfinningu við að koma inn
í húsið í fyrsta skipti.“
Næsti kafli er um forystu-
sveitina: „Skrifstofumannafor-
ysta - allir nettir og penir. Sagt
er: „Þorsteinn orðinn annar
Geir“ og er þá átt við framkomu í
fjölmiðlum. Allir virðast gera sér
far um að falla inn í ákveðna
mynd - menn ekki nógu hressir.
Allir sem einhverju ráða virðast
vera úr sömu kreðsunni. Sífellt
verið að verðlauna flokkshesta —
skortur á fagmennsku. Hvernig
er staðið að ráðningu manna í
trúnaðarátöður? Hvað ræður -
fagmennska eða eitthvað annað?
Hvernig eru starfsmenn flokksins
ráðnir? Eru alltaf ráðnir ein-
hverjir úr innsta kjarna? Breikka
þarf forystuna. Flokknum (svo
skrifað í skýrslunni) vantar fleiri
talsmenn - litríka forystusveit. Ef
formaðurinn á að vera ímynd
flokksins verður hann að vera
sterkur og litríkur." Að lokum
er fjallað um „Stofnanir flokks-
ins“ og segir þar að flokkurinn
„virki þunglamalegur - áróður
andstæðinga flokksins um flokks-
bákn virðist eiga greiða leið að
kjósendum. Er flokkurinn sem
boðaði „Báknið burt“ orðinn að
bákni sjálfur?“
Litlar undirtektir
Undirtektir við gagnrýni
skýrslugerðarmanna voru dauf-
legar á SUS-þinginu, og kvarta
höfundar raunar yfir því í formála
að skýrslunni að þeim hafi verið
sýnd óvirðing með því að þrír
þeirra urðu aðeins varamenn
fyrir Heimdall á þinginu „og einn
svo neðarlega á varamannalistan-
um að útilokað var fyrir hann að
reikna með því að komast inn“.
í lokaályktun SUS-þingsins í
Borgarnesi fer lítið fyrir gagnrýni
á flokk og flokksstarf, og í stað
hinna margþættu athugasemda
Heimdallarhópsins kemur þessi
klausa um kosningaósigurinn í
vor:
„Útkoma Sjálfstæðisflokksins í
síðustu alþingiskosningum var
þannig að ekki verður framhjá
henni litið. Tap flokksins í kosn-
ingunum má að mestu leyti rekja
til stofnunar Borgaraflokksins.
Ljóst er að orsakir uppgangs
Borgaraflokksins á kostnað Sjálf-
stæðisflókksins voru aðrar og
meiri en deilur um einstaklinga.
greinilegt er að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ekki það samband við
kjósendur sem nauðsynlegt er.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að
ná upp sínum fyrri styrk og verða
sameiningartákn allra borgara-
legra afla þarf að leggja áherslu á
hvemig útbreiðslumálum hans og
sambandi við kjósendur verði
best háttað. Beita verður nýjum
aðferðum til þess að kanna stöðu
og ímynd Sjálfstæðisflokksins
meðal kjósenda og hagnýta þær
til þess að koma sjálfstæðisstefn-
unni sem best á framfæri.“
Þess má geta að hvorki í skýrslu
Heimdellinganna né í ályktunum
SUS-þingsins er minnst einu orði
á Hafskips- og Útvegsbankamál-
in nema í tengslum við kröfu um
sölu allra ríkisbanka.
-m
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 9. september 1987