Þjóðviljinn - 09.09.1987, Síða 3
i ÖRFRÉTTIR bbh
Bera Nordal
listfræðingur hefur verið sett í
stöðu forstöðumanns Listasafns
Islands til eins árs frá og með
deginum í gær. 4 aðrir sóttu um
stöðuna en Bera hefur gengt
forstöðumannsstarfinu undan-
fama mánuði.
Skoðunarmenn
kvikmynda
eru nú eftirtaldir samkvæmt
skipan menntamálaráðuneytis-
ins: Adolf Petersen og Guðrún
Birgisdóttir fjölmiðlafræðingar,
Helga Þórðardóttir félagsráð-
gjafi, Steingrímur Þórðarson
kennari, Svein Klausen MA og
Auður Eydal kennari.
Félagsstofnun
stúdenta
hefur tekið við rekstri Húsnæð-
ismiðlunar stúdenta en um árabil
hefur Stúdentaráð haft þá starf-
semi með höndum. Ráðinn hefur
verið starfsmaður til að annast
daglegan rekstur húsnæöismiðl-
unarinnar og er opið frá kl. 9 -
12.30 alla virka daga og síminn
er 29619.
íslenska óperan
hefur ráðið Kristínu H. Árnadóttur
viðskiptafræðing sem fram-
kvæmdastjóra óperunnar. Kristín
lauk námi frá Háskóla íslands
árið 1984 og stundaði síðan
framhaldsnám í alþjóðasam-
skiptum í Hollandi.
Handritasýningin
sem verið hefuropin i Árnagarði í
sumar, fer nú að Ijúka en aðsókn
að sýningunni hefur verið mjög
góð. Síðustu reglulegar sýningar
verða í dag og á fimmtudag, en
hægt er panta sýningar fyrir
skóla og ferðamannahópa ef
þess er óskað með nægilegum
fyrirvara.
Ráðgjafanefnd
um efnahagsmál sem ætlað er
að vera ráðherranefnd ríkis-
stjómarinnar til ráðuneytis hefur
verið skipuð. í henni eiga sæti
þeir Björn Björnsson aðstoðar-
maður fjármálaráðherra, Arnar
Bjarnason hagfr. og Ólafur (s-
leifsson efnahagsráðgjafi ríkis-
stjórnarinnar.
50 kr. mynt
verður sett í umferð hérlendis í
dag. Frá sama tíma hættir Seðla-
bankinn að gefa út 50 kr. seðla. Á
framhlið myntarinnar nýju er
mynd af landvættunum eins og á
5 og 10 kr. myntinni og á bakhlið
er mynd af bogakrabba.
FRETT1R
Hvalveiðideilan
Hvað er verið að fela?
Hjörleifur Guttormsson: Frekleg íhlutun Bandaríkjamanna. Attum að geraþeim Ijóst að
þeir tefla hagsmunum sínum í hœttu. Eigum ekki að una svona framkomu
Pað cr nýtt að það sé farið að
taka ákvörðun um svör við er-
indi frá Bandaríkjaforseta án
þess að kveðja utanríkismála-
nefnd saman og kynna henni
málavexti og leita samráðs við
nefndina sem fulltrúa Alþingis
um málsmeðferð, sagði Hjör-
leifur Guttormsson við Þjóðvi|j-
ann i gær.
Utanríkismálanefnd hefur nú
verið boðuð til fundar í dag eftir
að Hjörleifur hafði farið fram á
það í fyrrakvöld.
„Það hefur verið farið mjög
Eggert Magnússon og Pétur Hraunfjörð við stærsta og minnsta verk sýningarinnar; Steypireyði Eggerts og Gullmunn
Péturs. „Steypireyður” bergmálar hinn þögla meirihluta í landinu sem telur rangt að drepa hvali, og „Gullmunnurinn” er
botniaus og gegndarlaus, enda endurspeglar hann óseðjandi græðgi yfirstéttarinnar að sögn Péturs.
Listasafn ASÍ
Barattulist á tombóluprís
SýningfrístundamálaraíDagsbrún velsótt. Pétur Hraunfjörð: Ölllist
er stéttarlist
Það er mikil breidd í sýning-
unni og víða komið við, en allt
er þetta baráttulist,” sagði Pétur
Hraunfjörð er Þjóðviljinn leit inn
á sýningu frístundalistamanna í
Dagsbrún í gær. Sýningin er hald-
in í Listasafni ASÍ og stendur til
13. september.
Málararnir fjórir sem eiga verk
á sýningunni eru aliir af eldri kyn-
slóðinni, fæddir á bilinu 1915 til
1923. Þeir eru auk Péturs Birgir
Nurmann Jónsson, Eggert
Magnússon og Jón Haraldsson.
„Mér finnst að fólk ætti að nota
sér það að koma hingað og gera
góð kaup, því að málverkin eru á
tombóluverði,” sagði Eggert. Að
hans sögn hefur aðsóknin að sýn-
ingunni verið góð. Hún hefur nú
staðið í tíu daga og að meðaltali
hafa komið um hundrað manns á
dag.
„Öll þjóðfélög eru stétta-
þjóðfélög og því er öil list stéttar-
list,” sagði Pétur og vill meina að
það sé einkum láglaunafólkið
sem hefur sótt sýningu þeirra fé-
laga.
Sýningunni lýkur að kvöldi
sunnudagsins 13. september og
verður opið til kl. 10 um helgina.
Virka daga er opið milli kl. fjögur
og átta.
HS
Fiskvinnslufólk
Sérsamband eina lausnin
Freyja Eiríksdóttir, verkakona Akureyri: Jólaföstusamningarnir
fœrðu mér eina krónu
Jólaföstusamningarnir færðu
mér einnar krónu hækkun á
tímann, segir Freyja Eiríksdóttir,
verkakona, sem starfað hefur í 20
ár við fiskvinnslu hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyrar.
„í þeim samningum voru
starfsaldurshækkanir, sem verka-
Dagvistun
Oþolandi ástand
„Það ástand sem nú ríkir í dag-
vistunarmálum barna er óþolandi
og verður ekki lengur við unað.
Það lýsir vftaverðri vanrækslu og
ábyrgðarleysi gagnvart velferð
barna og vanmati og virðingar-
leysi á störfum kvenna. Þetta
ástand vitnar um úrræða- og
viljaleysi ráðamanna til að rækja
þær skyldur sem þeir buðust til
að gcgna,“ scgir m.a. f ályktun
Borgarmálaráðstefnu Kvenna-
listans sl. laugardag.
í ályktuninni segir að störf við
uppeldi og umönnun séu eins lágt
metin og raun beri vitni, lýsi fyrir-
litningu á lífi og störfum kvenna
og að það bitni á þeim sem síst
skyldi, bömunum.
„Sú þjóð sem elur böm sín upp
á vergangi á sér vafasama fram-
Breytinga er þörf - strax!“
tíð
segir í lok ályktunarinnar.
-Sáf
fólk hafði barist fyrir í áratugi,
þurrkaðar út, auk þess sem prem-
iur og bónus lækkuðu.“
Freyja bendir á þetta sem
dæmi um að þrátt fyrir stór orð
um að stöðugt eigi að gera
eitthvað fyrir láglaunafólkið, þá
hafi það ætíð verið svikið.
„Það er megn óánægja meðal
fiskvinnslufólks með launakjör-
in. Kaupmáttaraukningin hefur
farið fram hjá dymm okkar og til
að ná endum saman höfum við
orðið að lengja vinnutímann.
Þetta er ástæðan fyrir því að fisk-
vinnslufólk eygir ekki lausn á sín-
um málum nema með því að
stofna sérsamband."
Eining á Akureyri hefur lýst sig
andvíga því að fiskvinnslufólk
stofni sérsamband en hvert er álit
fiskvinnslufólks á Akureyri?
„Á mínum vinnustað er al-
mennur hugur í fólki að standa að
leynt með þessi gögn og innihald
þeirra hvorki verið kynnt nefnd-
armönnum né fjölmiðlum. Sú
spurning hlýtur því að vakna,
hvað sé verið að fela?“ sagði
Hjörleifur.
Hann sagði að fylgja hefði átt
eftir ákvörðun ríkisstjómarinnar
frá því í síðustu viku og mæta
öllum frekari þrýstingi og
seinkunaraðgerðum af fyllstu al-
vöru og ákveðni.
„Ríkisstjórnin átti að gera
Bandaríkjamönnum skiljanlegt
að hér væra þeir að tefla öllum
sínum hagsmunum í tvísýnu. Af-
skipti Bandaríkjastjórnar á
rannsóknaráætlun íslendinga á
hvölum og veiðar á nokkrum
tugum hvala í því skyni, eru
auðvitað frekleg íhlutun í íslensk
málefni. Við eigum ekki að una
því að þannig sé komið fram við
okkur og að Bandaríkjamenn
ætli að leika hér hlutverk al-
þjóðalögreglu. Þetta tel ég í raun
kjarna málsins óháð því hvert
viðhorf menn hafa til veiða á
hvölum,“ sagði Hjörleifur að lok-
um.
-Sáf
stofnun sérsambands. Eining
hefur hinsvegar hvorki haft
vinnustaðafundi né félagsfundi
um málið. Ég fagna þeirri fram-
vindu mála að nú hyllir undir
stofnun sérsambands fiskvinnslu-
fólks og ég vona að það verði
stofnað sem fyrst. Reynslan af
forystu Verkamannasambands-
ins í kjarasamningum hefur fært
okkur heim sanninn um það að
hún muni ekki ná þeim kjarabó-
tum sem við höfum beðið eftir
undanfarin ár og nauðsynlegar
eru.
Frystihúsin standa hálf tóm og
afleiðing þess er að fiskurinn er
unninn í verðminni pakkningar,
sem þýðir gjaldeyristap fyrir
þjóðina. Myndi það ekki borga
sig að bæta kjör fiskvinnslufólks
þannig að fólk sæki aftur í þessa
starfsgrein?“ sagði Freyja að lok-
um.
-Sáf
Mlðvlkudagur 9. september 1987 ÍÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3
VMSÍ
Valdbeitingu
mótmælt
Dröfn Jónsdóttir:
Bein atlaga að mögu-
leikum minnifélaga
Astæða þess að ég gekk út af
fundi formannaráðstefnu
VMSÍ, var að sú að ég vildi mót-
mæla þeirri valdbeitingu sem
varaformaður Verkamannasam-
bandsins viðhafði, segir Dröfn
Jónsdóttir, formaður Verka-
lýðsfélags Ffjótsdalshéraðs m.a. f
eftirfarandi yfirlýsingu, sem hún
bað Þjóðviljann að koma á fram-
færi.
Vegna ummæla í fjölmiðlum
um afstöðu mína við atkvæða-
greiðslu á formannaráðstefnu
Verkamannasambands íslands
sl. sunnudag vil ég taka eftirfar-
andi fram:
Tillaga Karls Steinars Guðna-
sonar, varaformanns VMSÍ, þar
sem afl hinna fjölmennari félaga
átti að beita gegn fámennari fé-
lögum landsbyggðarinnar var
bein atlaga að möguleikum minni
félaga til að hafa sín áhrif innan
VMSÍ. Ástæða þess að ég gekk af
fundi var sú að ég vildi mótmæla
þeirri valdbeitingu sem varafor-
maður VMSÍ viðhafði með því að
krefjast allsherjaratkvæða-
greiðslu, sem aldrei hefur verið
viðhöfð á formannafundum
VMSÍ. Lagagreinin er hinsvegar
ekki véfengd.
Með slíkum vinnubrögðum
innan VMSÍ tel ég að minni félög
iandsbyggðarinnar eigi lítið er-
indi inn á slíka fundi, þar sem
stærð félaga ein á að ráða. Ég gat
því ekki séð ástæðu til þess að
taka þátt f atkvæðagreiðslu í
þessu formi.
Hitt undrar mig svo að bæði
varaformaður VMSÍ og fjölmiðl-
ar, m.a. Þjóðviljinn, virðast telja
það til algerrar undantekningar,
að samkennd og samstaða með
fiskvinnslufólki, skuli ná út fyrir
raðir þess innan verkalýðshrej'f-
ingarinnar.
-Sáf