Þjóðviljinn - 09.09.1987, Side 7
Myndlist í fjölmiðlum:
Ahersla
á sjónvarp
- niðurstaða námsstefnu NKF, sem hefur það að megin-
markmiði að skýra stöðu myndlistar í nútímasamfélagi
Námsstefna, sem bar heitið
„Myndlist í fjölmiðlum,” var
haldin á vegum Norrænu
myndlistarbandalaganna, í
kjölfar aðalfundar NKF (Nor-
disk Könst Forbund). Varætl-
ast til þess að fjölmiðlafólk
sæti ráðstefnunatil að kynna
sér helstu brotalamir varðandi
umfjöllun um myndlist í fjöl-
miðlum. En myndlistarmenn
eru óánægðir með þátt mynd-
listar í fjölmiðlum og sérstak-
lega finnst þeim að sjónvarpið
sinni myndlistarmálum ekki
nægilega, miðað við t.d.
áhuga almennings á mynd-
list. Og þá væntanlega mikil-
vægi myndlistar.
Starf NKF verður því á þessum
vígvelli næstu tvö árin og að lok-
inni ráðstefnu voru gerðar eftir-
farandi ályktanir:
„Með tilliti til hinna sterku al-
þjóðlegu áhrifa sjónvarpsins nú
og í framtíðinni, meðal annars
gegnum gervihnattasendingar, er
áríðandi að auka gerð þátta og
heimildarmynda á verkum nor-
rænna myndlistamanna, þar sem
áhugi almennings á myndlist fer
stöðugt vaxandi.
1. Allar norrænar sjónvarps-
stöðvar eru hvattar til að auka
skipti á dagskrárþáttum sem
fjalla um myndlist.
2. Að auki eru sjónvarpsstöðv-
arnar hvattar til að auka og lengja
bæði unna þætti og fréttaútsend-
ingar sínar um myndlist.
3. Norræna myndlistarbanda-
lagið hvetur ráðamenn til að auka
fjárframlög og bæta aðstöðu til
gerðar myndbanda um mynd-
Iistarmenn til dreifingar á Norð-
urlöndum, svo sem til sjónvarps-
stöðva og bókasafna.”
Áhersla á sjónvarp
Að lokinni ráðstefnunni var
haldinn blaðamannafundur þar
sem kom fram að myndlistar-
menn telja að sérstaka áherslu
beri að leggja á sjónvarp og svip-
aða miðla, en ekki blöð og út-
varp, þar sem þeir miðlar geri
myndlistarmálum öliu betri skil,
enda umfjöllun blaðanna byggð á
lengri hefð en sjónvarps. Þá telja
þeir að sjónvarpið sé betur í stakk
búið til að gera myndlist víðari
skil en með orðum. Þar er sumsé
hægt að láta verkin tala.
Það kom einnig fram að mynd-
listarmenn telja sig ekki endilega
þurfa að vekja meiri áhuga á sér
eða nota nýjar aðferðir, vegna
þess að áhugi almennings á
myndlist væri fyrir hendi og m.a.
var bent á að fjöldi gesta að Kjar-
valsstöðum á einu ári, væru helm-
ingi fleiri en gestir Laugardals-
hallarinnar. Það sem hins vegar
vantar upp á, að þeirra áliti, er
umfjöllun menntaðra aðila og
skilningur fjölmiðla, á málefnum
þeirra og list.
Færeyingarfengu
inngöngu
Á aðalfundi NKF, sem haldinn
var á Selfossi, var kosinn nýr for-
maður. Gunnar Bay tók við af
Thorstein Rittun. Áuk aðildar-
landanna, íslands, Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og
Samalands voru fulltrúar frá Fær-
eyjum, Álandi og Grænlandi.
Færeyingar fengu nú aðild að
Norræna myndlistarbandalaginu
með fyrirvara vegna aukins
kostnaðar og fjárhagsstöðu
bandalagsins. En á aðalfundi
NKF á Islandi 1981, voru Samar
teknir inn í bandalagið og gekk
ekki alveg átakalaust og því vill
íslandsdeild norræna myndlistar-
bandalagsins vekja sérstaka at-
hygli á því að þessar smáþjóðir
hafa fengið inngöngu á þeim að-
alfundum NKF sem hafa verið
haldnir hér.
Nordisk Konstförbund var
upphaflega stofnað í Stokkhólmi
8. nóvember 1945, sem þótti
merkilegt framtak, með tilliti til
ólíkra aðstæðna Norðurlandanna
í seinna heimsstríði. Hugmyndin
var reyndar um 100 ára gömul en
myndlistarmenn bjuggu oft árum
saman erlendis og þannig urðu til
stór samfélög norrænna mynd-
listarmanna. I upphafi voru Finn-
ar í fararbroddi alls samstarfs og
reynt var að koma á samsýning-
um norrænna listamanna er-
lendis. Fimm ára einangrun
stríðsins kom í veg fyrir sýninga-
hald milli landa og þannig varð
sveinsstykki NKF samnorræn
sýning sem var sett upp í Osló
1946 og skyldi hún spanna síðustu
fimm ár stríðsins. En helstu
markmið bandalagsins skyldu
vera stór samnorræn sýning á ári,
fyrir utan einkasýningar og minni
sýningar, umfjöllun í útvarpi,
önnur upplýsingastarfsemi og
fundir mynlistarmanna. Fjöl-
miðlar, opinberir aðilar og söfn
sýndu stofnun NKF mikinn
áhuga. Þó varð það svo að upp úr
1950 fóru að koma brotalamir í
þessa árvissu viðburði. Þannig
var farið inn á nýjar brautir og
tekin upp samvinna við aðra
starfshópa og í framhaldi af því
haldin sýning í Stokkhólmi sem
fékk nafnið: Industrien og Kun-
sten.
Listamiðstöð og
gestavinnustofur
Starf NKF breyttist svo enn
frekar eftir 1970 þegar í ljós kom
að mæta þurfti nútímakröfum um
upplýsingar til að sinna fjöl-
breytilegri listmiðlun, var ekki
endalaust hægt að vinna sjálf-
boðastörf. Þannig varð Norræn
listamiðstöð að veruleika 1978,
sem hefur það að meginmark-
miði að skipuleggja sýningar,
fundi og bregða birtu á myndli-
stina og skýra stöðu hennar í nú-
tímasamfélagi. Gestavinnustofur
eru einnig mikilsverður áfangi á
leiðinni, en nú eru starfræktar
slíkar stofur á öllum Norður-
löndum, þar sem listamenn fá að
búa án mikils kostnaðar, fá að
kynnast listalífinu á hverjum
stað, listamönnum, galleríum,
skólum og verkstæðum. Þannig
að mikil áhersla er nú lögð á
gestavinnustofur. Þá liggja fyrir
umsóknir frá Álendingum og
Grænlendingum um inngöngu í
bandalagið, en NKF telur að
innganga Sama í bandalagið og
kynni manna af list þeirra hafi
auðgað mjög sambandið.
-ekj
■ ■
Jónína Guðnadóttir formaður NKF á íslandi:
„Fengum ekki
nægan mótleik”
„Það fengust ágætar niðurstöð-
ur á þessari ráðstefnu, þó erum
við óánægð með hvað blaðamenn
mættu illa, þangað til síðasta dag-
inn og sjónvarpið sýndi málinu
allt of lítinn áhuga að okkar viti.
Þannig fengum við ekki nægilega
sterkan mótleik frá fjölmiðlum,
en málið átti einmitt að vera þeim
sérstaklega skylt,” sagði Jónína
Guðnadóttir formaður íslands-
deildar NKF, þegar hún var
spurð um árangur námsstefnunn-
ar.
„Framundan er mikið starf, við
kvörtum að vísu ekki undan blöð-
unum, þau gera þessum málum
þokkaleg skil, en við viljum að
sjónvarpið taki myndlistarmál
meira í dagskrá sína. Skólarnir
þurfa líka að sinna uppeldisstarfi
sínu viðvíkjandi myndlist betur,
en það segir líka sitt að Listasafn
íslands hefur ekki yfir neinum
leiðsögumönnum að ráða fyrir
skólafólk og fjárskorti af hálfu
ríkisvaldsins borið við.
En menn voru hér almennt
hressir og málin mikið rædd, best
var þó hljóðið í Svíum, en þeir
hafa fengið inni fulltrúa hjá sínu
sjónvarpi, til að gera þætti um
myndlist fyrir sjónvarp.”
-ekj
Mlðvikudagur 9. september 1987 |ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7