Þjóðviljinn - 09.09.1987, Page 8
Kristín Guð-
rún á listkynn-
ingu MENOR
og Alþýðu-
bankans,
Akureyri
Myndlist
Birta og gleði á miðöldum
„Ég er að kafa inn í sjálfa
mig, til að vita hvað kemur
upp á yfirborðið og reyni að
koma því út í gegnum hend-
urnar. Ég mála blóm, fugla,
fólk og drauma, reyni að ná
sérstöku andrúmslofti og
töfrum sem ég upplifi,“ segir
Kristín Guðrún, myndlistar-
maðurfrá Akureyri, en Menn-
ignarsamtök Norðlendinga,
MENOR, og Alþýðubankinn,
kynna Kristínu Guðrúnu á
listkynningu, og eru myndir
hennar til sýnis í bankanum.
Hún útskrifaðist frá málara-
deiid Myndlista- og handíða-
skólans síðasta vor.
„Ég mála líka í tengslum við
söguna, miðaldasagan er mér
hugleikin, bæði miðaldir íslands
og úti í heimi. Ég er undir sterk-
um áhrifum frá þessum tíma, það
kemur fram í myndunum mínum,
sumar eru trúarlegar eða kirkju-
legar á minn hátt. Helgimyndir
Rússa (íkóna) frá 12. og 13. öld
höfða mjög til mín. Það er
leyndardómur í þessum gömlu
helgimyndum, dularfullt táknmál
og eitthvað mjög hreint. Ég er
hrifin af tónlist frá þessum tíma
og nota hana mikið til að vinna
við. Ég veit ekki um marga mál-
ara sem eru að fást við þetta tíma-
bil og man ekki eftir neinum í
svipinn. Áhugi á miðöldum hefur
samt vaxið síðustu ár og viðhorf
til „myrkursins" breyst. Menn
hafa verið að uppgötva þessa
tíma upp á nýtt og margt er séð í
öðru ljósi en áður. Miðaldimar
eru stórkostlegt tímabil fyrir mér
og óþrjótandi uppsprettulind,
mikil gleði og birta sem fylgir því.
Áhugi minn á miðöldum hefur
alltaf verið mikill en eftir að ég
fór að mála fyrir alvöru, hef ég
getað gert þessum tíma betri skil.
Svo þegar ég byrjaði að sýna,
komu þau viðbrögð frá mörgum,
hvort ætti nú að fara að troða
miðaldamyrkri upp á það aftur.
En það býr svo margt í þessum
tíma. Ég hef líka pælt í íslenskum
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
miðöldum og m.a. mikið málað
Ragnheiði biskupsdóttur.
I sumar hef ég verið með
vinnustofu við sjóinn. Yndislegt
útsýni og gott að mála við sjóinn.
Birtan hér er alveg sérstök og
spennandi að glíma við hana,
finna áhrif hennar f myndunum
og sjá hvernig hún getur breyst á
sekúndubroti. Myndirnar mínar
eru dekkri á veturna, ekki vegna
þess að ég verði þunglynd, síður
en svo. Mér finnst bara sjálfsagt
að notfæra sér árstíðasveiflurnar-
inní mér og lofa þeim að vera til.
Svo eru dimmu litirnir svo
seiðandi.
Ég vinn eins mikið og ég get.
Það gengur náttúrlega ilia fjár-
hagslega, en ég bý heima hjá for-
eldrum. Svo hef ég haldið þrjár
einkasýningar hér á Akureyri í
sumar og það hefur aðeins selst.
Ég hélt t.d. sýningu í Glerár-
kirkju, kirkjuskipið er óklárað og
hrátt. Og myndirnar urðu einsog
frímerki í þessu stóra rými. Ég
vinn mest í olíu og striga, það efni
heillar mig mest. Ég er mjög lengi
með hverja mynd og skissa
mikið. Hugmyndin er líka oft
lengi að velkjast í huganum, áð-
uren eitthvað gerist. En ég teikna
mikið og nota mónóþrykk til að
æfa mig í öðrum aðferðum.
í vetur fer ég til Rómar, og hef
fengið vinnuaðstöðu hjá góðu
fólki. Ég ætla að mála og skoða
söfn, en kem heim næsta sumar
til að eiga við birtuna.“
Myndlist:
Samlífrænar
víddir
Vilhjálmur Bergsson hefur
opnað sýningu í Norræna
húsinu og sýnir olíumálverk,
teikningar og vatnslitamyndir.
Hann hefur haldið einkasýn-
ingar bæði hér heima og er-
lendis og tekið þátt í samsýn-
ingum. Vilhjálmurhefurdvalið
í Þýskalandi undanfarin fjögur
ár.
„Ég kalla þetta samlífrænar
víddir, það er abstrakt hugsun á
bak við myndimar og áhrif frá
hfrænum fyrirbrigðum, þó ég sé
ekki vel að mér í líffræði," sagði
Vilhjálmur á sýningu sinni.
„Annars er ekki gott að útskýra
verkin, það takmarkar hug-
myndaflug fólks og hver verður
að skilja og skynja á sinn hátt. Ég
hef fengið ótrúlegustu viðbrögð
frá fólki, sumir telja myndirnar
trúarlegar, aðrir segja þær koma
úr sjávardjúpunum. Ég hef verið
lengi að skapa þennan heim og
hann hefur skýrst smám saman.
Þetta er líka mikil glíma við efnið
sjálft og tæknina. Mér finnst ekki
hægt að nota einungis hugmynda-
fræði og ef til vill er þetta meiri
hugmyndafræði en hin svokall-
aða concept-list. Þroski er fyrst
og fremst fólginn í ræktun og
þjálfun. Vinna mín við listina,
þroskar mig bæði tilfinningalega
og vitsmunalega. Enda er það svo
að listmálarar standa oft á hátindi
ferils síns milli 40 og 60 ára
aldurs.
Ég skyssa mikið þegar ég vinn.
Þetta eru víxlverkanir, verk í olíu
sprettur inn í teikningu og öfugt.
Eg gæti vel hugsað mér að fara út
í skúlptúr. Mér finnst myndimar
mínar bjóða upp á það.“
Sýning Vilhjálms Bergssonar
er opin frá kl. 2-10, fram til 20.
september.
-ekj.
Vilhjálmur Bergssonar við
eitt verka sinna. Mynd
-Sig.