Þjóðviljinn - 09.09.1987, Síða 11
m ÖRFRÉTTIR meshs
Mattías Rust
ætlar að fara fram á náðun
Kremlverja. Það er kunnara en
frá þurfi að segja að Vestur-
Þjóðverjinn ungi var fyrir
skemmstu dæmdur í fjögurra ára
vist í sovéskum vinnubúðum fyrir
að hafa flogið lítilli Cessnavél inní
Sovétríkin og lent henni á Rauða
torginu án þess að hafa til þess
tilskilið leyifi. Hann getur ekki
áfrýjað þeim dómi en Gorbatsjof
getur náðað hann og því snýr
Rust sér til hans.
Varnarmálaráðherra
ísraels, Yitzak Rabin, er nú í op-
inberri heimsókn í Vestur-
Þýskalandi þótt ekki sé henni
gert jafn hátt undir höfði í fjölmiðl-
um og heimsókn Honeckers hins
austurþýska. Rabin brá sér til
Dachau í gær þar sem tugir þús-
unda gyðinga voru myrtir á
valdaskeiði nasista. Rabin hélt
ræðu í Dachau og varaði menn
við því að slaka á verðinum gegn
gyðingahatri og nýnasisma. Því-
næst skoðaði hann vopnaverks-
miðju nærri Nurnberg og átti að
lokum viðræður við Frans Jósef
Strauss hæstráðanda í Bæjara-
landi.
Skæruliðar
vinstrimanna í Perú rændu í gær
stórri flutningabifreið í úthverfi
höfuðborgarinnar Lima. Bifreiðin
var á leið á aðalmarkað höfuð-
staðarins með nokkur þúsund
kjúklinga. Skæruliðarnir óku bif-
reiðinni í fátækrahverfi steinsnar
frá ránsstaðnum og afhentu íbú-
um þess farminn með þeim orð-
um að „þeir gerðu það upptækt
sem heyrði alþýðunni til.“
Utanríkisráðherra
og varaforseti Filippseyja, Salva-
dor Laurel að nafni, lét þau orð
falla í gær að ef til vill væri orðið
tímabært að landsmenn ykju
samskipti sín við Sovétmenn,
einkum á sviði verslunar og við-
skipta. Hann sagði ennfremur að
andstaða almennings gegn
bandarískum herstöðvum á
eyjunum færðist í vöxt. „Fólk
virðist í auknum mæli vera þes
sinnis að herstöðvar Bandaríkja-
manna ógni sjálfstæði Filipps-
eyja, auki hættu á því að landið
verði fyrir kjarnárás dragi til styrj-
aldar og séu auk þess uppspretta
margs þess sem 'miður fer í
samfélaginu."
886 miljónir
jarðarbúa eru ólæsir. Þetta kom
fram í máli framkvæmdastjóra
UNESCO á dögunum. Af þess-
um mikla fjölda kváðu 200 miljón-
ir vera búsettar í Kína. Fram-
kvæmdastjórinn sagði um helm-
ing íbúa Afríku ekki kunna að
lesa, 17 af hundraði í Asíu og 14
af hundraði í Rómönsku Amer-
(ku. Þrír fjórðu hlutar ólæsra búa í
strjálbýli og um 60 af hundraði
eru konur. Hann bætti því við að í
Bandaríkjunum byggju 20 miljón-
ir manna sem að nafninu til væru
læsir og skrifandi en gætu hins-
vegar ekki „aflað sér þekkingar
með lestri," einsog hann komst
að orði.
Fangar
eru hvorki fleiri né færri en
570,519 í bandarískum betrunar-
húsum um þessar mundir og
hafa aldrei verið fleiri að sögn
dómsyfirvalda þarlendis. Föng-
um hefur fjölgað um fimm af
hundraði frá því um síðustu ára-
mót og um átta af hundraði frá því
um mitt ár í fyrra. Á fyrstu sex
mánuðum þessa árs bættust 25
þúsund nýir tugthúslimir í hóp
þeirra sem sátu á fleti fyrir í
bandarískum dýflissum. Hvort
fjölgun afbrota veldur þessum
ósköpum ellegar aukin drift og
árvekni bandarískra löggæslu-
manna höfum við ekki hugmynd
um.
Danmörk
ERLENDAR FRÉTTIR
opnar
Allir stjórnarflokkarnir utan Miðdem-
ókratar töpuðufylgi. Stjórn Schlúters er
fallin sjái Glistrup ekki aumur á henni.
Það er mikið púsluspil fram-
undan fyrir danska
stjórnmálaforingja. Niðurstöður
þingkosninganna í gær geta þýtt
það að dagar minnihiutastjórnar
Pauls Schlúters séu taldir og í stól
forsætisráðherra setjist Anker
Jörgensen. En stjórnin gæti einn-
ig haldið velli og ennfremur gætu
Danir þurft að ganga að kjör-
borði öðru sinni innan skamms.
Lítum fyrst á stöðuna á hægri
væng danskra stjómmála eftir
kosningarnar í gær: Hægriflokk-
urinn fékk 38 menn kjörna (tap-
aði 5), hægriflokkurinn „Ven-
stre“ fékk 19 menn (tapaði 4),
Miðdemókratar eru nú 9 á þingi
(8 áður) og Kristilegi þjóðarf-
lokkurinn hreppti 4 þingsæti (5
áður). Þetta eru þeir flokkar sem
fara með stjórn í Danmörku. Þeir
hafa fram að þessu notið stuðn-
ings „Róttæka vinstriflokksins“
sem varið hefur hana falli og sam-
þykkt frumvörp hennar í efna-
hagsmálum. Sá flokkur hreppti
11 sæti en hafði 10 áður.
En þótt „Róttæki vinstriflokk-
urinn“ haldi áfram hlífiskildi yfir
Schlúter dugir það skammt úr því
sem komið er. Samtals hafa
flokkarnir fimm umráð yfir 81
sæti og kemur þá út á eitt þótt
helmingur fjögurra fulltrúa
Grænlands og Færeyja leggi þeim
lið. Stjórnin heldur því aðeins
velli að Framafaraflokkur Mog-
ens Glistrups gangi til liðs við
hana. Sá flokkur vann 3 þingsæti í
gær, hafði 6 áður en hefur 9 nú.
Jafnaðarmannaflokkurinn tap-
aði örlitlu fylgi og fékk 54 menn
kjörna í stað 56 áður. Sósíalski
þjóðarflokkurinn vann hinsvegar
glæstan sigur, hreppti 27 þingsæti
í stað 21 áður. Vinstrisósíalistar
voru afmáðir af þingi, þeir höfðu
fyrrum umráð yfir 5 sætum. Nýr
flokkur sem nefnist „Fælles kurs“
fékk 4 menn kjörna. Óljóst er
hvað fyrir honum vakir annað en
að gera formanninn að forsætis-
ráðherra í vinstristjórn! Þegar allt
er talið hefur vinstriblokkin um-
ráð yfir 85 þingsætum (með
„Fælles kurs“) og ef reiknað er
með hinum helmingi fjögurra
fulltrúa Grænlands og Færeyja þá
skríður talan uppí 87. En það er
ekki nóg, 90 sæti eru lágmark til
að geta myndað meirihluta-
stjórn.
Schlúter var kokhraustur í gær-
kveldi þrátt fyrir tapið. „Þar sem
vinstriflokkarnir fengu ekki
meirihluta liggur ljóst fyrir að
það verður ekki mynduð vinstri-
stjórn."
Allt veltur nú á „Róttæka vin-
striflokknum.“ Leiðtogi hans,
Níels Helvig Petersen, lýsti því
yfir hvað eftir annað í kosninga-
baráttunni að ekki kæmi til
greina að hann styddi ríkisstjórn
sem legði fjöregg sitt í hendur
Mogens Glistrups. Anker Jörg-
ensen rifjaði þessi ummæli hans
upp í sjónvarpsumræðum í gær-
kveldi en tókst ekki að knýja
fram skýr svör. En það má vera
ljóst að ef Petersen og félagar
söðla um og hallast á sveif með
vinstriblokkinni þá mun Anker
verða forsætisráðherra að nýju
eftir fimm ára hlé. -ks.
Anker Jörgensen. Forsætisráðherra á nýjan leik?
Vestur-Pýskalands
Kohl boðið austur
Aöðrum degi heimsóknar Erich
Honeckers, ieiðtoga Austur-
Þýskalands, í Vestur-Þýskalandi
átti hann þrjá einkafundi með
Helmut Kohl gestgjafa sínum.
Báðir sögðu viðræðurnar hafa
verið afar gagnlegar.
Talsmaður kanslaraembættis-
ins, Wolfgang nokkur Schauble,
sagði eftirfarandi í gær, skömmu
áður en Honecker hélt á brott úr
Bonn: „Þrátt fyrir hugmynda-
fræðilegan ágreining hefur sam-
vinna okkar aukist verulega. Við-
ræður Kohls kanslara og Hon-
eckers aðalritara voru þungt lóð á
þær vogarskálar.“
Honecker bauð Kohl í opin-
bera heimsókn til Austur-
Þýskalands og þá kanslarinn boð-
ið. Hinsvegar var engin ákvörðun
tekin um hvenær heimsóknin fer
fram né þess getið til hvaða stað-
ar í Austur-Þýskalandi Kohl var
boðið.
Félagarnir gerðu hlé á einka-
fundi sínum til að vera viðstaddir
hátíðlega athöfn er umhverfis- og
vísindaráðherrar landanna undir-
rituðu samninga um samvinnu á
sviðum vísinda, tækni og varna
gegn geislun frá kjarnverum.
Schauble sagði leiðtogana hafa
í þrígang sest niður til viðræðna í
gær og í öll skiptin hafi Kohl lagt
hart að Honecker að láta binda
enda á ofbeldisaðgerðir
austurþýskra landamæravarða
gegn fólki sem reynir að flýja
vestur. -ks.
Suður-Kórea
Söguleg heimkoma
Um 300þúsund manns fögnuðu stjórnarandstöðuleiðtoganum Kim
Dae-Jung er hann kom til heimaborgar sinnar eftir 16 árafjarveru
Oryggislögregla Kwangjuborg-
ar í Suður-Kórcu hafði mik-
inn viðbúnað í gær og girti af allar
helstu stjórnarbyggingar. Á
stæðan var sú að stjórnarand-
stöðuleiðtoginn Kim Dae-Jung
var væntanlegur í bæinn, fyrsta
sinni í 16 ár.
Kim íhugar nú hvort hann eigi
að gefa kost á sér í forsetakosn-
ingunum í desember og keppa við
Kim Young-Sam um útnefningu
stjórnarandstöðunnar. Hann
hyggst ferðast vítt og breitt um
landið á næstunni og þreifa fyrir
sér um undirtektir almennings.
Hann kom á fyrsta viðkomustað í
gær, gömlu heimaborgina sína,
Kwangju, og ekki var annað að
sjá en íbúamir vilji ólmir og upp-
vægir að hann gefi kost á sér.
Hátt í 300 þúsund manns
flykktust út á götur borgarinnar
til að fagna gestinum. Nokkur
þúsund námsmenn tóku sér stöðu
fyrir utan aðsetur borgarstjórnar-
innar og hrópuðu: „Niður með
einræði!" og „Lengi lifi Kim!“
í Kwangju kom til uppreisnar
gegn herforingjastjórn landsins
árið 1980 en hún var brotinn á
bak aftur af mikilli hörku af her-
sveitum undir stjóm Chuns Doo-
Hwans, núverandi forseta.
Kim lét það verða sitt fyrsta
verk eftir komuna til borgarinnar
að sækja heim kirkjugarðinn þar
sem fallnir uppreisnarmenn
liggja grafnir. „Þess mun ætíð
minnst í sögu landsins að þið út-
heltuð blóði í þágu lýðræðis og
frelsis,“ sagði hann meðal ann-
ars.
Sjálfur var Kim fundinn sekur
um hlutdeild í uppreisninni og
dæmdur til dauða. Vegna þrýst-
ings frá erlendum ríkjum var
dómnum breytt og næstu sex árin
sat hann í dýflissu ráðamanna.
Um skeið dvaldi hann í útlegð í
Kim Dae-Jung var vel fagnað í
heimaborg sinni.
Bandarikjunum en sneri heim á
leið fyrr á þessu ári. Hann var
snimmhendis settur í stofufang-
elsi en þann l.júlí síðastliðinn var
hann látinn laus eftir að almenn-
ingur hafði knúið Chun forseta til
lýðræðisumbóta. -ks.
Bandaríkin
Jackson
í framboð
Hinn nafntogaði blökku-
mannaleiðtogi og prestur, Jesse
Jackson, lýsti þvi yfir í fyrradag
að hann hygðist keppa að því að
verða frambjóðandi Demókrata-
flokksins f forsetakjöri f Banda-
ríkjunum að ári.
Hann sagðist ætla að gefa út
formlega yfírlýsingu um framboð
sitt þann 10. október
næstkomandi á fundi „Regnbog-
asamtakanna," stjómmálafylk-
ingar er hann stofnaði sjálfur árið
1984 um samskonar framboð sitt
þá
I raun hefur Jackson fyrir
löngu hafíð baráttu fyrir útnefn-
ingu flokks síns. Hann er fyrsti
blökkumaðurinn sem gerir alvar-
lega tilraun til að verða hæstráð-
andi í Hvíta húsinu.
Eftir að Gary Hart dró fram-
boð sitt til baka fyrir nokkru
sökum legorðsvillu hefur skoð-
anakönnun á skoðanakönnun
ofan bent til þess að Jackson njóti
mestra vinsældra framboðslyst-
hafa Demókrataflokksins.
Ekki síðar en á sunnudag var
bandaríska
heyrin-
að 26 af
Jack-
Næstur
nokkur
Schröder
slík könnun á
vikuritsins
kunn. Þar
hundraði
son í
honum
með 11 af
einhver,
vitað að hafi áhuga á æðstu met-
orðum, var þriðji f röðinni með
velvilja 9 af hundraði aðspurðra.
-ks.
etnu stnni
%*-
Mlðvlkudagur 9. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11