Þjóðviljinn - 09.09.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
Upton skrifaði undir
Þjálfar ÍBK nœsta keppnistímabil
Frank Upton þjálfari IBK
skrifaði í gær undir eins árs
samning við félagið sem gildir út
næsta keppnistímabil.
Frank Upton hefur náð góðum
árangri með liðið. Hann tók við
því á erfiðum tíma af Peter Kee-
ling og þá var ÍBK í mikilli fall-
hættu. Þeir eru nú sloppnir og eru
um miðja deild.
„Það er mjög gott að þetta
skuli vera komið á hreint" sagði
Kristján Ingi Helgason formaður
ÍBK. „Við vissum það áður en
hann kom að hann væri góður
þjálfari, en hann kom okur
ánægjulega á óvart.
Frank Upton var áður aðstoð-
arþjálfari hjá Aston Villa og Co-
ventry. Hann heldur út til Eng-
lands fljótlega eftir helgi, en
kemur svo aftur í mars er
Keflvíkingar hefja undirbúning
fyrir næsta keppnistímabil.
-SOM/Suðurnesj um
1 x 2
3. vika
ls > ,i lo ts !
Valur-Völsungur............................x 11111111
Víðir-KR...................................x 12 1x11x2
KA-ÍA......................................1 2 2x121x2
FH-Þór.....................................2 2222222X
Fram-ÍBK...................................1 11111111
Liverpool-Oxtord...........................1 1 1 1 1 1 1 1 1
Luton-Everton..............................2 1 x 2 2 2 x 2 2
Norwich-Derby..............................1 x 1 1 1 1 x x x
Nott.Forest-Arsenal........................x 2x111112
Portsmouth-Charlton........................1 11111112
Sheff.Wed-Watford..........................2 2 1 2 1 1 x 1 x
Wimbledon-West Ham.........................2 1 1 x x 2 1 12
í síðustu umferð var enginn með 12 rétta og vinningurinn flyst því yfir á
næstu viku. En það sem meira er að það var enginn með 11 réttaog enginn
með 10 rétta heldur. Annar vinningur var því greiddur út fyrir 9 rótta og var
6.976 kr. á mann.
Stúlka úr Breiðholtinu var með 9 rétta á 16 raða kerfisseðli, en hún
gleymdi að setja merki á tvo heila leiki! Nokkuð sem hlýtur að vera eins-
dæmi í Getraunum.
Brosmildir kappar á æfingu í gær. Guðmundur Torfason, Atli Eðvaldsson og Friðrik Friðriksson. Mynd:E.ÓI.
Landslið
SegirAtli Eðvaldssonfyrirliði íslenska landsliðsins sem
mætir Norðmönnum í kvöld
Sigi Held landsliðsþjálfari hef-
ur ekki enn tilkynnt byrjunarlið-
ið. Líklegt er að Guðmundur
Torfason, Ólafur Þórðarson,
Guðni Bergsson og Viðar Þork-
elsson komi í stað þeirra fjögurra
leikmanna sem ekki leika með.
Það kemur þó ekki í ljós fyrr en á
morgun.
Landsieikurinn í kvöld er 22.
landsleikur þjóðanna. íslending-
ar hafa sigrað í 5 leikjum, einum
hefur lokið með jafntefli, en
Norðmenn hafa 15 sinnum sigr-
að. Síðasti sigur íslands gegn
Noregi var 30. júni 1977 í Reykja-
vík, 2-1.
„Þetta verður erfitt. Það er
mikil pressa á okkur eftir tapið
gegn Austur-Þjóðverjum, en við
gerum okkar besta,“ sagði Atli
að lokum.
-íbe
„Við ætlum að gera eins og við
getum, við getum ekki gert meira
en það, en þetta verður mjög erf-
itt.“ Sagði Atli Eðvaldsson fyrir-
liði íslenska landsliðsins í samtali
við Þjóðviljann í gær. íslendingar
mæta Norðmönnum á Laugar-
dalsvelii í dag og hefst leikurinn
kl. 17.15.
„Það hefur svo oft verið þannig
að það hafa verið gerðar of mikl-
ar kröfur. Svo kemur einn skellur
á 10-15 ára fresti og tryllist allt“,
sagði Atli. „En við erum ákveðn-
ir í að standa okkur í dag og ætl-
um að ná góðum úrslitum."
í lið íslands vantar fjóra leik-
menn sem voru í byrjunarliðinu
gegn Austur-Þjóðverjum: Ásgeir
Sigurvinsson, Arnór Guðjohn-
sen, ÓmarTorfason og Ágúst Má
Jónsson.
Lið Norðanna hefur einnig
orðið fyrir skakkaföllum og í það
vantar einnig fjóra úr byrjunar-
liðinu.
Haraldur Ingólfsson og Ólafur Viggósson kljást hér við pólska varnarmenn í leiknum í gær. Mynd:E.ÓI.
Landslið/U-18
Endalaus óheppni!
Enn tap hjá unglingalandsliðinu þrátt fyrir góðan leik
Punktar úr 17.
umferð
Það á ekki af íslenska unglinga-
landsliðinu U-18 að ganga. Ótrú-
leg óheppni í landsleikjum, nú
síðast í gær gcgn Pólverjum. Eftir
jafnan leik tókst Pólverjunum að
tryggj^ sér sigur á síðustu mínút-
unum, 2-3.
Það var mjög sárt að tapa þess-
um leik því að íslenska liðið lék
lengst af mj ög vel. En líkt og gegn
Belgum og Dönum náðu Islensku
strákarnir ekki sigri.
Leikurinn var opinn og fjörug-
ur. íslendingar byrjuðu af krafti
og á ló.mínútu náðu þeir foryst-
unni. Steinar Adolfsson skoraði
með skalla eftir hornspyrnu.
Skömmu síðar átti Haraldur Ing-
ólfsson skot framhjá eftir að hafa
komist einn í gegnum vörn Pól-
verja.
Eftir markið tóku Pólverjar
heldur betur við sér. Pyc Grzeg-
urz jafnaði á 31. mínútu eftir
þvögu og sex mínútum síðar
skoruðu Pólverjar stórglæsilegt
mark. Gersior Pariusz fékk bolt-
ann við vítatieg og skaut þrumu-
skoti í þverslána og í netið. Glæsi-
legt mark og útlitið heldur dökkt
hjá íslendingum. En Steinar
Adolfsson jafnaði að nýju á 41.
mínútu með góðum skalla.
Síðustu mínúturnar fengu Pól-
verjar góð færi. Grzegurz komst
einn í gegn, en Karl Jónsson
bjargaði með góðu úthlaupi.
Skömmu síðar átti Karzysciof
skot í stöng, en fslendingar
sluppu með skrekkinn.
Síðari hálfleikurinn byrjaði vel
og íslendingar fengu gott færi
þegar Ólafur Viggóson og Har-
aldur Ingólfsson komust í gegn-
um vöm Pólverja. Ólafur renndi
boltanum framhjá markverðin-
um, en einnig framhjá markinu.
Það var svo tveimur mínútum
fyrir leikslok að áfallið kom. Pól-
verjar náðu góðri sókn og úr
henni skoraði Tutacz Tomasz af
stuttu færi. Fögnuður Pólverja að
vonum mikill og kom markvörð-
ur þeirra alla leið í vítateig íslend-
inga til að fagna sigurmarkinu!
Unglingalandsliðinu hefur
ekki gengið vel í landsleikjum
sínum, þrátt fyrir að leika vel.
Eftir að hafa verið með forystuna
gegn Belgíu, 2-1, misstu strák-
arnir það niður í 2-3 tap og eitt
stig úr tveimur viðureignum gegn
Dönum gefur ekki rétta mynd af
þeimur viðureignum. Það er
engu líkara en að íslensku strák-
arnir tapi einbeitingunni á lok-
amínútunum.
íslenska liðið lék vel í þessum
leik. Vömin var sterk og í sókn-
inni voru þeir sprækir Ólafur og
Haraldur. Þá áttu þeir góðan leik
Steinar Adolfsson og Rúnar
Kristinsson.
Þrátt fyrir tapið var leikurinn
skemmtilegur og fjömgur. Hann
var þó leikinn á nokkuð óvenju-
legum tíma, kl 12 á hádegi á KR-
vellinum, en engu að síður lögðu
fjölmargir áhorfendur leið sína í
Frostaskjólið og höfðu gaman af.
-Ibe
Árni Stefánsson, varnarmaður
úr Þór, lék sinn 100. leik í 1. deild
gegn KA í 17. umferðinni á
laugardaginn. Aðeins tveir Þórs-
arar hafa áður náð þeim áfanga,
Nói Björnsson og Jónas Róberts-
son fyrr á þessu ári.
Siguróli Kristjánsson, Þór, lék
um leið sinn 50. leik í 1. deild.
Hlíðar Sæmundsson, Víði,
skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark
þegar hann tryggði liði sínu hinn
dýrmæta sigur á ÍA.
Gestur Gylfason, ÍBK, lék
sinn fyrsta 1. deildarleik á laugar-
daginn, gegn FH.
xBK hefur eftir þann leik hlotið
samtals 500 stig í deildakeppninni
frá upphafi. Þar af 428 í 1. deild
en 72 í 2. deild.
Valur hefur til þessa ekki tapað
1. deildarleik á KR-vellinum. KR
hefur að auki aðeins sigrað
þrisvar f síðustu 29 leikjum félag-
anna í 1. deild, frá 1972.
Þór hefur til þessa ekki tapað
fyrir KA í 1. deildarleik. Reyndar
hafa félögin skilið jöfn 4 sinnum í
6 leikjum í 1. deild en Þór unnið
tvisvar. KA vann Þór síðast í
deildaleik árið 1980, þá í 2. deild.
í A hefur ekki náð að sigra Víði
í síðustu fjórum 1. deildarleikjum
félaganna. Víðir hefur unnið
tvisvar í röð á Akranesi og tvíveg-
is hefur orðið jafntefli í Garðin-
um.
-VS
★★★★★★★★★★
Aiíöíó
Það er engin breyting á
Stjömuliði 17. umferðar. Stjörn-
unum hefur þó fjölgað.
Pétur Ormslev er enn hæstur,
en Halldór Áskelsson og Birkir
Kristinson geta komist yfir hann í
síðustu umferðinni.
Stjörnuliðið eftir 17. umferð,
stjömufjöldi í svigum:
Birkir Kristinsson, ÍA (14)
Erlingur Kristjánsson, KA (9)
Sævar Jónsson, Val (13)
Guðni Bergsson, Val (13)
Sigurður Lárusson, ÍA (10)
Gunnar Oddsson, ÍBK (11)
Andri Marteinsson, KR (11)
Halldór Áskelsson, Þór (15)
Pétur Ormslev, Fram (16)
Pótur Pétursson, KR (13)
Sveinbjörn Hákonarson, (A (9)
Miðvlkudagur 9. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
„Verður mjög erfitt“