Þjóðviljinn - 09.09.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUIN
Mlðvikudagur 9. september 1987 198. tölublað 52. árgangur
SKOIAVELTA
LEON
AÐFV\RS€LU
SKÓLACÖNQJ
#
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Bandaríski herinn
Fylgismönnum fækkar
Skoðanakönnunin um viðhorfin til hersins vekur mikla athygli. Svan-
ur Kristjánsson dósent: Skýringanna að leita ístirðum samskiptum við
Bandaríkin undanfarin ár. Ingihjörg Haraldsdóttir formaður SHA:
Áróður hœgri flokkanna ekki trúverðugur
Eg túlka þetta þannig að á það
berí að horfa hvaða hópar það
eru sem eru að skipta um afstöðu;
það er mestan part fólk sem hefur
áður veríð fylgjandi hernum,
sagði dr. Svanur Kristjánsson,
dósent í stjórnmálafræði við Há-
skóla íslands, er hann var inntur
álits á þeirri athyglisverðu stað-
reynd að fjórði hver kjósandi tel-
ur veru hersins ekki skipta máli.
Þetta kemur fram f skoðanakönn-
un um afstöðu landsmanna til
Keflavfkurstöðvarinnar og eru
niðurstöðurnar birtar í septemb-
erhefti Þjóðlffs.
„Það góða við könnunina er
hve úrtakið er stórt og að hún nær
að hluta til til sama fólksins nú og
1983,“ sagði Svanur. „Það var
áður fylgjandi hemum en segir
nú að því sé sama. Það er rökrétt
að líta svo á að þetta fólk vilji ekki
Rót h/f
Kynningar-
fundur í kvöld
Grasrótarútvarpið
Rót hlfstofnað 13.
júlí síðastliðinn.
Nauðsynlegt að fé-
lagssinnað fólk ogfé-
lagasamtök taki
höndum saman
í kvöld, miðvikudagskvöldið 9.
september kl. 20.30 verður hald-
inn kynningarfundur um Út-
varpsfélagið Rót h/f í samkomu-
sal Sóknar að Skipholti 50A, en
það var stofnað 13. júlí síð-
astliðinn af 30 manns, sem starf-
að hafa f hinum ýmsu áhuga- og
hagsmunasam tök u m.
Til þess að Útvarp Rót geti
orðið að veruleika og til þjóð-
þrifa er henni lífsnauðsynlegt að
félagssinnað fólk og félaga-
samtök taki höndum saman í
uppbyggingunni og fyrirhugaðri
starfsemi. I þessu skyni hafa ver-
ið send út fundarboð til um 250
félagsmanna sem vonast er til að
láti sjá sig á kynningarfundinum í
kvöld.
Meðal þeirra félaga og sam-
taka sem eru stofnendur að Rót
h/f eru meðal annars Samtök her-
stöðvaandstæðinga, Samband ís-
lenskra námsmanna erlendis,
SÍNE, Kvennalistinn, Alþýðu-
bandalagið, Vinstri sósíalistar,
Flokkur mannsins, Samtökin ’78,
Æskulýðsfylkingin, Leigjenda-
samtöícin og Stúdentaráð og fleiri
og fleiri.
Tilgangurinn með stofnun
þessa Útvarpsfélags er að koma á
fót grasrótarútvarpi, sem senda á
út á Faxaflóasvæðinu til að skapa
vettvang fyrir þjóðfélagslega og
menningarlega umræðu.
grh
taka afstöðu í málinu. Það er ekki
lengur fylgjandi veru hersins, en
vill heldur ekki skipa sér í sveit
með andstæðingum hans.
Það er nærtækt að leita ekki
bara skýnngarinnar íhvalveiði-
deilunni, heldur í samskiptum ís-
lendinga og Bandaríkjamanna
undanfarin ár, en þau hafa verið
mjög stirð að mörgu leyti. Breytt
afstaða kemur heldur ekki aðeins
fram meðal almennings, heldur
einnig hjá ýmsum stjómmála-
mönnum. Þannig hefur Borgara-
flokkurinn þá opinberu stefnu að
endurskoða vamarsamninginn,“
sagði Svanur.
„Ég bendi sérstaklega á að við
sem emm afgerandi á móti hern-
um emm orðin fleiri en þau sem
em afgerandi fylgjandi vem hans
hér,“ sagði Ingibjörg Haralds-
dóttir, formaður Samtaka her-
stöðvaandstæðinga, aðspurð um
niðurstöður könnunarinnar.
„Það er að meginhluta vegna þess
að stór hluti þjóðarinnar trúir
ekki því sem hægriflokkamir
hafa reynt að halda að fólki um
eðli herstöðvarinnar, og að
Bandaríkjamenn hafi okkar
hagsmuni að leiðarljósi með vem
hersins." HS
Búseti
Bjartera
framundan
„Húsnæðissamvinnufélagið
Búseti hefur gengið frá kaupum á
46 íbúðum fyrír félagsmenn sína í
fjölbýlishúsi sem verið er að reisa
í Grafarvogi,“ sagði Reynir Ingi-
bjartsson, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, í viðtali við blaðið í gær.
Kaupverð íbúðanna er í kring-
um 170 milljónir og hefur fengist
lánveiting úr Byggingarsjóði
verkamanna. íbúðimar verða af-
hentar fullbúnar 1. desember á
næsta ári. Hér verður um að ræða
fyrstu búseturéttaríbúðir á
landinu.
í haust em fjögur ár liðin frá
stofnun félagsins. Búseti hefur nú
lagt inn umsóknir um lán og lóðir
fyrir 180 íbúðir á höfuðborgar-
svæðinu, auk þess sem slíkar um-
sóknir em í gangi víða á lands-
byggðinni.
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt í gær í fjögurra daga tónleikaferð til Nuuk,
höfuðstaðar Grænlands í tilefni af vígslu norrænnar menningarmiðstöðvar
fimmtudaginn 10. september. Þetta eru merk tímamót í grænlenskri menn-
ingarsögu, því þetta eru fyrstu sinfóníutónleikarnir á Grænlandi. Sinfóníu-
Sinfónían til Grænlands
hljómsveitin heldur tvenna tónleika, barnatónleika og tónleika fyrir íbúa
Nuuk, auk dagskrár í tilefni af opnun menningarmiðstöðvarinnar, sem
hljómsveitin flytur ásamt grænlenskum kór.
Framleiðniátak
Ólga vegna auglýsingaherferðar
Verkalýðshreyfingin óánœgð með birtingu 8 síðna litauglýsingu í Morgunblaðinu. Páll
Kr. Pálsson: Engar athugasemdir gerðar á samráðsfundi. Guðmundur Þ. Jónsson:
Alltof lítið gert úr þœtti stjórnenda iðnfyrirtækja
Þessi gagnrýni sem fram hefur ferð til að ná litlum árangri. Þórir ingur ASÍ, fyrir iðnaðarráðu-
komið á birtingu 8 síðna lit- Daníelsson framkvæmdastjóri neytið Baldur Pétursson við-
essi gagnrýni sem fram hefur
komið á birtingu 8 síðna lit-
auglýsingu í Morgunblaðinu um
helgina um framleiðniátak í iðn-
aði hér á landi, kemur mér
spánskt fyrir sjónir og ég er
reyndar frekar fúll yfir þessum
viðbrögðum hjá þeim forystu-
mönnum verkalýðshreyfmgar-
innar sem hafa tekið birtingu
hennar óstinnt upp, segir Páll Kr.
Pálsson, forstjóri Iðntæknistofn-
unar íslands.
í Alþýðublaðinu í gær er haft
eftir Ásmundi Stefánssyni forseta
Alþýðusambands íslands að birt-
ing auglýsingarinnar sé dýr að-
ferð til að ná litlum árangri. Þórir
Daníelsson framkvæmdastjóri
Verkamannasambandsins segir
auglýsinguna virka hræðilega illa
á sig.
Að sögn Páls var haldinn
samráðsfundur 10 dögum áður en
margnefnd auglýsing var birt
meðal þeirra aðila sem standa að
verkefnisstjórnun framleiðniá-
taksins, án þess að nokkrar at-
hugasemdir hafi komið þar fram.
Karl Friðriksson hjá Iðntækni-
stofnun segir að í verkefnisstjórn
framleiðniátaksins hafi verið
fyrir hönd verkalýðshreyfingar-
innar Björn Björnsson, hagfræð-
skiptafræðingur, fyrir Félag ís-
lenskra iðnrekenda Páll Kr. Páls-
son, áður en hann gerðist for-
stjóri Iðntæknistofnunar, en
byrjað var að vinna að þessu
framleiðniátaki fyrst á dögum
Ingjalds Hannibalssonar, en eng-
inn sérstakur fulltrúi er frá
Landssambandi iðnaðarmanna,
en stjóm þess alltaf verið gerð
grein fyrir starfseminni.
Að sögn Guðmundar Þ. Jóns-
sonar, formanns Landssambands
iðnverkafólks er alltof lítið gert
úr þætti stjórnenda fyrirtækja í
iðnaði í fyrmefndri auglýsingu á
kostnað hins óbreytta verka-
manns. „Það hefði mátt að ó-
sekju, fyrst farið var út í svona
viðamikla auglýsingu að gera
stjórnunarþættinum miklu meiri
skil, því hann skiptir jú geysi-
miklu máli við að ná meiri fram-
leiðni í iðnaðinum. Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að
það era stjómendur á hverjum
stað sem stjóma rekstri fyrirtækj-
anna og okkar dugmikla og fóm-
fúsa iðnverkafólki sem ekki er
öfundsvert af sínu kaupi," sagði
Guðmundur Þ. Jónsson.
grh