Þjóðviljinn - 13.09.1987, Page 19

Þjóðviljinn - 13.09.1987, Page 19
Genesis: Sex tilnefningar. II að mynda Almennt talað Tónlistarmyndbönd eru nú- orðið hluti tónlistariðnaðarins í heild. í>að sem áður var undan- tekning er nú orðið að reglu, eitt eða fleiri lög af hverri breiðskífu, sem út kemur á vegum stærri út- gáfuaðilanna, er skreytt lifandi myndum á bandi og dreift til sjónvarpsstöðva út um allan heim og víðar. Jafnvel alla leið norður á Farsældarfrónið fjöllum prýdda með móðuna allt um kring. Það þykir hámark bjartsýninnar að ætla sér að gera lag vinsælt án aðstoðar myndmiðilsins. Gott myndband getur oft rifið býsna slappa tónsmíð upp í hæstu hæð- böndin fóru að gerast æ stærri hluti dagskrár margra stöðva, og jafnvel eina dagskrárefnið, s.s. hjá MTV, fóru viðhorfin að breytast. MTV borgar árlega háar upphæðir til útgáfufyrir- tækjanna fyrir sýningarrétt á myndböndum og hafa flestar aðr- ar sjónvarpsstöðvar, alltént þar sem MTV starfar einnig, þurft að sætta sig við það sama. Það hefur þó ekki gengið átakalaust. Nýj- asta dæmið um það er Ástralía, en MTV er nýbyrjað að senda út fyrir ýmsa þætti músíkvídeógerð- ar. Má kannski segja að þarna sé um e.k. Óskarsverðlauna/ Grammyhátíð að ræða í sama pakkanum. Veitt eru verðlaun Peter Gabriel: Slaghamarinn slær í gegn. ir, á meðan laklega unnið vídeó getur lagt gæðapopp í gröf sína og kransinn ofan á. Það er því ekki að ástæðulausu, að mikið er til myndanna kostað nú til dags. Líklega má telja Bítlana sálugu upphafsmennina að þessu öllu saman. 1967 gáfu þeir út klassik- erinn Strawberry Fields Forever, og gerðu jafnframt mjög svo framúrstefnulega og sýrukennda kvikmynd við lagið, til sýningar í sjónvarpi. En það leið langur tími áður en fleiri fylgdu í kjölfarið, svo orð sé á gerandi. Flestir telja, og það með nokkrum rétti, að skriðan hafi farið af stað eftir að Queen gerði myndband sitt við Bohemian Rhapsody árið ’74. Síðan þá hefur mikið vatn til sjáv- ar runnið og tónlistarmyndbönd- in orðin tíðari gestir en veður- fræðingar á heimilum sjónvarps- glápenda um veröld víða. Þessum vinsældum hafa fylgt nokkur vandræði. Til skamms tíma fengu sjónvarpsstöðvar þetta efni til sýninga sér að kostnaðarlausu, þar sem talið var að þau hefðu fyrst og fremst auglýsingagildi fyrir tónlistarmennina og útge- fendur þeirra. En þegar mynd- dagskrá sína þarlendis. Þeir lýstu því yfir að þeir myndu greiða sín gjöld þar sem annars staðar, og nú er svo komið að útgefendur krefjast hins sama af öðrum ástr- ölskum stöðvum. Þessu var tekið með miklu bauli og kveinstöfum, segjast forsvarsmenn ástralskra sjónvarpsstöðva engin efni hafa á slíku. Margar stöðvar hafa svo til hætt að sýna músíkmyndbönd, aðrar hafa leitað til sjálfstæðra útgefenda eftir efni til sýningar. Flestum þykir þó einsýnt að Ást- ralir neyðist til að sætta sig við að borga íyrir efnið sem aðrir. Því það kann vart góðri lukku að stýra að hætta sýningum á jafn vinsælu efni og þessu. Þegar pláss leyfir mun ég fjalla um tónlistarmyndbönd sem á boðstólum eru í verslunum og á leigum hérlendis og annað sem að þessum miðli lýtur. Ekki verð- ur endilega reynt að eltast við það nýjasta, eins og gert er með plötur, heldur reynt að bera sem víðast niður á markaðnum. Búið. Músíkvídeó órsins ’86 Á föstudaginn var, þann 11. september, veitti MTV verðlaun eins og fyrir leikstjóm, klippingu, dansa, sviðsframkomu (Stage Vi- deo) o.s.frv., auk þess sem veitt eru verðlaun fyrir besta mynd- bandið, besta „karlmyndbandið” og besta „kvenmyndbandið”. Þegar þetta er skrifað eru úrslit ekki kunn, en verða það vonandi í næsta Heygarðshorni. En línur eru samt nokkuð skýrar í flestum tilvikum. Peter Gabriel fær manna flest- ar tilnefningar fyrir Sledgeham- mer, eða níu talsins. Alls eru flokkarnir sextán, en sumir þeirra (s.s. „kvenmyndbönd” og sviðsmyndband) útiloka hann, þannig að segja má að hann sé alls staðar með þar sem því verð- ur við komið. Aðrir sem oft em nefndir til sögunnar eru U2 (With og without you, 6 tilnefningar), Steve Winwood (Higher Love, 6 tilnefningar), Paul Simon (Boy in the Bubble, 4 tilnefningar) og Genesiss (Land of Confusion, 6 tilnefningar). Madonna á tvö lög í flokknum „kvenmyndbönd”; Papa Don’t Preach og Open Your Heart. Þá má geta þess að bæði Peter Gabriel og Paul Simon eiga tvö lög í þessu verð- launakapphlaupi, lag Gabriels; Big Time, er útnefnt tvisvar, en You can call me A1 frá Paul Simon er útnefnt einu sinni. Ann- ars líta helstu flokkarnir svona út: Myndband ársins: Peter Gabriel: Sledgehammer. Genesis: Land of Confusion. Paul Simon: Boy in the Bubble. Steve Winwood: Higher Love. U2: With or Without You. Besta „karlmyndbandið”: David Bowie: Day in, Day out. Peter Gabriel: Sledgehammer. Robert Palmer: I didn’t mean to turn you on. Paul Simon: You can call me Al. Steve Winwood: Higher Love. Besta „kvenmyndbandið”: Kate Bush: Big Sky. Janet Jackson: Nasty. Cindy Lauper: True Colors. Madonna: Papa don’t preach. Madonna: Open your Heart. Besta hljómsveitarmynd- bandið: Bangles: Walk like an Egyptian. Crowded House: Don’tdream it’s over. Eurythmics: Missionary Man. Talking Heads: Wild Wild Life. U2: With or Without You. (Hvar er Genesis????) Besta sviðsmyndband Bon Jovi: You give Love a bad Name. Bon Jovi: Livin’ on a Prayer. Run DMC: Walk this Way. Bruce Springsteen: War. Bruce Springsteen: Born to run. Látum þetta nægja um mynd- bönd að sinni. Sunnudagur 13. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA Norræni Genbankinn Lausar stöður Norræni Genbankinn er ein af stofnunum Norðurlandaráðs staðsettur á Skáni í Svíþjóð skammt frá Malmö. Stofnunin auglýsir eftir um- sóknum í þrjár stöður á eftirtöldum sviðum. Gagnastjórnun Starfsmaður ber ábyrgð á gagnagrunni bankans, þróun gagnakerfis, tölvuvæðingu og tekur þátt í öðrum störfum stofnunarinnar. Erfðaefni Starfsmaður ber ábyrgð á söfnun, fjölgun og við- haldi erfðaefnis, að skipuleggja „svæðisvernd- un“ á vegum Genbankans, auk þess að taka þátt í annarri starfsemi bankans. öðrum ofangreindra starfsmanna verður að auki falið að vera aðstoðarforstjóri stofnunarinnar. Skrifstofa Starfsmaður skal bera ábyrgð á skrifstofu bank- ans, skjalavörslu og bókasafni. Hæfniskröfur Gagnastjórnun: Háskólamenntun í líffræði auk tölfræði og gagnameðhöndlun. Reynsla á sviði plöntukynbóta og/eða jarðræktar er kostur. Erfðaefni: Háskólamenntun í líffræði með áherslu á sviði erfðafræði og grasafræði. Reynsla á sviði hagnýtrar erfðafraeði og jarð- ræktar er kostur. Skrifstofa: Ritaramenntun, fyrri reynsla af hlið- stæðum störfum, færni í vélritun og notkun tölva. Gott vald á einu norrænu máli, auk ensku. Laun samkvæmt opinberum sænskum launa- samningum auk staðaruppbótar, sem er allt að ÍKR 20.000 á mánuði ef starfsmaður er ekki ' sænskur ríkisborgari. Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður veitir forstjóri NGB Dr. Ebbe Kjellqvist, sími 90-46-40- 415000 og á íslandi, Þorsteinn Tómasson for- stjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins Keldnaholti, sími 82230. Umsóknir um ofangreindar stöður skulu berast eigi síðar en 15. október og sendast til: Norræni Genbankinn (NGB) Box 41 S-23053 Alnarp Sverige A Starfsmaður óskast á sambýli aldraðra Sambýli aldraðra - Skjólbrekka - sem starfrækt er í Kópavogi óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf. Um vaktavinnu er að ræða. Jafnframt vantar starfsmann í hlutastörf frá kl. 17-20 virka daga. Nánari upplýsingar veitir forstööumaður í síma 45088. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skjólbrekku, Skjólbraut 1 A Kópavogi. Umsóknarfrestur er til 21. september n.k. Félagsmálastjóri Ritari Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utanríkisþjónustunni. Krafist er góðrar tungumálakunnáttu og góðrar vélritunarkunnáttu. Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir, að ritarinn verði sendur til starfa í sendi- ráðum íslands erlendis. Eiginhandarumsókn með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist uranríkisráðu- neytinu, Hverfisgötu 115,105 Reykjavík fyrir 17. september n.k. Utanríkisráðuneytið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.