Þjóðviljinn - 13.10.1987, Side 9

Þjóðviljinn - 13.10.1987, Side 9
Á eftir frædreifingarflokknum kemur svo Jónas Árnason með áburðarpokann og fer léttilega með hann. þekkt fyrirbrigði í Mývatnssveit og víðar að heimalönd séu af þessum sökum blásnari en lönd fj ær. Gamlir pistlar segj a sögur af harðindavorum þegar hjarðir fjallabændanna voru reknar út á sjávarjarðirnar og haldið þar til beitar vikum saman á móum og á sjávarbökkum, sem upp úr stóðu og voru svartir eftir árum saman. En þetta er sem betur fer liðin tíð, ég held ég hljóti mega segja algjörlega. Sá mikli heyfengur, sem nú er aflað, innifóðrun, vetrarrúning, gott ástand búfjár- ins þegar því er sleppt af ræktuðu landi, oftast á góðan gróður o.s.frv. allt hefur þetta sín áhrif. Ekki síst á gróður í heima- löndum, sem vetrarbeitin lék löngum grátt og hér skal því hald- ið fram, að glettilega víða á lág- lendi í heimalöndum og afréttum næst bæjum sé gróður í framför, þ.e.a.s. þar sem vaxandi hrossa- beit hefur ekki fyllt í skarðið. Þessi vinnutilgáta mín styðst m.a. við það sem ég hef hér að framan sagt um líkleg áhrif breyttra búskaparhátta, en ég hvet menn einnig til þess að huga að því á ferðum sínum hvernig vinsælum bitjurtum sauðkindarinnar, eins- og t.d. Guðvíðinum miðar áfram. Athygli mín hefur þó verið vakin á því af glöggum bændum í Hrafnkelsdal og víðar, að líklega sæki kindur, aldar á mjúkfóðri nútímans, hlutfallslega meira í við eða grófefni, en áður var og gæti það komið á móti í þeirri takmörkuðu vetrarbeit eða viðr- un fjárins, sem enn tíðkast. En sem sagt, horfum ekki framhjá því að harðæri fortíðarinnar bitn- uðu með margföldum þunga á gróðrinum en það sjálfvirka sam- hengi er nú rofið og hjarð- mennska fyrri tíma og búskapar- lag nútímans eru lítt sambærilegir hlutir. Tvífættir grasbítar Umferð og átroðningur manna sjálfra verður varla með réttu flokkuð undir frumorsök gróður- eyðingar þó að forfeður vorir hafi vissulega riðið til þings og farið í flokkum á ófriðartímum. En nú er hinsvegar svo komið, að erfitt er að fjalla um þetta viðfangsefni án þess að nefna þennan þátt og þar er allt í senn áhyggjuefni áhrif ökutækja, mannsfótar, tjald- botna, hrosshófa og tanna o.s.frv. Vonandi skilst hvað ég er að fara og þarf ekki fleiri orð til. Hvað er til ráða? 1. Efla þarf það starf, sem í gangi er og hefur verið. Land- græðslan fái a.m.k. jafn mikið fé og hún hefur mest haft að raun- gildi og öfluglega verði stutt við bakið á öðrum aðilum, svo sem Skógræktinni og skógræktarfé- lögunum. Stóraukið samstarf við bændur, landeigendur og sveitarfélög ekki síst. 2. ítölu verði beitt í allar þær afréttir, sem ástæða þykir til að hafa áhyggjur af. Upprekstrar- tími og göngur verði sömuleiðis hluti af stjórnun þessara inála. Notkun afréttargirðinga og heimalandagirðinga verði hluti af markvissri beitarstjórnun. Upp- rekstur hrossa stöðvaður. 3. Búskaparhættir í landinu verði aðlagaðir landkostum. Nú loks örlar á tilburðum, þótt veikburða séu, í þá átt að nota framleiðslukvóta og stjórnun landbúnaðarmálanna til þess arna. í þessu liggja miklir mögu- leikar, bæði að flytja til fram- leiðslu þannig að hún sé í betra samræmi við aðstæður og eins hitt, að samdráttur komi þar fram, sem helst skyldi. 4. Virkja þarf almenning og áhuga hans betur en gert hefur verið og - með fullri virðingu - með markvissari hætti en bensín- sjoppupokarnir eða „flag í fóstur“-herferð Sjónvarpsins og ýmsir slíkir tilburðir gera. Hvað með að setja sérstök ákvæði inn í skógræktarlög og landgræðslulög um „sjálfstæð áhugamannafélög" um upp- græðslu og/eða skógrækt á til- teknu landssvæði, sem að upp- fylltum settum skilyrðum fengi styrk til girðinga, sáningar eða plöntunar eftir atvikum? Skilyrð- in gætu t.d. verið, að félögin væru hrein áhugamannafélög, sem afs- öluðu sér hugsanlegri ágóðavon, (timburréttindum) til líknar- mála, og að viðkomandi svæði væri opið almenningi til útivistar, eftir því sem kleift væri. Hvað með að velja sumarbú- staðalöndum framtíðarinnar stað á mörkum gróðurs og eyddra svæða (í stað þess að troða þeim ofan í það litla skóglendi sem finnst, eins og gert er í mörgum landhlutum) og láta menn fá þá allvæna spildu í eiginlegt fóstur. Ætli mörgum þætti ekki, í fyll- ingu tímans vænna um sínar lúp- ínur og lerki ef hann hefði fylgst með þeim vinna nýtt land í bókstaflegri merkingu? Hvað með uppgræðslu eða hreinlega í stórum stíl á láglendi eða í heimalöndum, sem liggja að illa förnum afréttum til að draga úr beitarálagi þar, (hvað skyldi uppgræðsla vegaflaga hafa dregið mikið úr beitarálagi annars stað- ar. Margt, margt er hægt og ég fullyrði að okkur íslendingum er í lófa lagið að tvöfalda til þrefalda a.m.k. það land, sem við klæðum á hverju ári. Ef á móti kæmi að með skynsamlegri og betur skipulagðri landnýtingu tækist okkur að helminga tapið og þannig í eitt skipti fyrir öll að snúa rækilega vörn í sókn, þá mundi náttúran sjálf, fyrr en var- ir, slá út allar landgræðslur. Lokaorð Gróðureyðing, upphaf og or- sakir eru flókið margþætt mál, sömuleiðis ástandið í dag og það, sem gera ætti til úrbóta. Ekkert einfalt töfraorð er til, ekki einu sinni það, að farga öllum kindum og öllum hrossum og senda bændur í útlegð. Því jafnvel þótt einhverjum fyndist þessu til kost- andi, myndi áfram lengi blása, yrði ekkert annað gert og naumast er ísland framtíðarinnar í hugum manna með gróðurjafn- vægi miðað við algera fjarlægð grasbíta. Mín sannfæring er sú, að með því að takmarka beitarálag og dreifa því skynsamlega, um- gangast landið að öðru leyti með aðgætni og stórefla landbótastarf af öllu tagi, mega snúa vörn í sókn þannig að varanlegt verði. Það verður einmitt best gert með því að nýta með hófsamlegum hætti sem stærstan hluta gróður- lendisins fyrir þá grasbíta, sem hér verða í framtíðinni. Fjölda þeirra er auðvelt að stjórna og dreifingu þeirra um landið er best að tryggja með því að láta byggðakeðjuna hverfi rofna. Þri&judagur 13. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.