Þjóðviljinn - 13.10.1987, Qupperneq 10
FLÓAMARKAÐURINN
Ódýr bíll
Datsun 510 '78 módel, ekinn 90
þúsund, algerlega öruggur og í
góðu lagi, rúmgóður og þægilegur,
selst ódýrt. Uppl. í síma 688224.
Óska eftir að kaupa
litsjónvarp, einnig „fifties" Ijósa-
stæði. Uppl. í síma 681936.
Handunnar rússneskar
tehettur og matrúskur
í miklu úrvali. Póstkröfuþjónusta.
Ath. Get komið með vörurnar á t.d.
vinnustaði og í saumaklúbba ef
óskað er. Uppl. í síma 19239.
Góður bíll til sölu
Til sölu Fiat árg. '85. Einstaklega
sparneytinn og þægilegur bíll í
toppstandi. Vetrardekk fylgja. Til
greina koma skipti á ódýrari. Uppl. í
síma 681310 kl. 9-17 og í síma
13462 e. kl. 19.
Viltu losna við
gömlu þvottavélina þína?
Ef svo er, hafðu samband í síma
35963.
Húsnæði óskast
Ungt par, háskólanemar óskar eftir
2-3 herb. íbúð á leigu. Uppl. í síma
656299 eftir hádegi.
Snjódekk
Óska eftir að kaupa 4 negld snjó-
dekk, 165x13. Mega vera á Skoda-
felgum. Hringið í síma 53563.
Til sölu
4 nýleg nagladekk 13x145 á nýjum
felgum á Ford Fiesta. Selst ódýrt.
Sími 41373.
23 ára stúlka
óskar eftir einstaklings- eða 2ja
herb. íbúð sem fyrst. Get borgað 5
mán. fyrirfram, er reglusöm. Uppl. í
síma 692273 á daginn og 36487 á
kvöldin.
Halló
Bráðvantar íbúð litla eða stóra.
Erum 2 í heimili, fullorðin og barn.
Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum heitið. Uppl. í síma
50751.
Til leigu
Herbergi til leigu fyrir geymslu á
húsgögnum eða hreinlegri vöru.
Rakalaust, bjart og upphitað. Sími
681455.
Fuglabúr
Nokkur nýleg og vönduð fuglabúr af
ýmsum stærðum til sölu á sann-
gjörnu verði. Góð kaup. Uppl. í síma
73248.
Til sölu fyrir lítið
borðstofuborð, skenkur, sófasett
(3+1 + 1) barnaskrifborð með hill-
um ásamt skáp sem þarfnast smá
viðgerðar. Sími 42662.
Heimilisaðstoð
Vantar aðstoð við heimilisstörf einu
sinni í viku, 2-4 tíma eftir samkomu-
lagi. Sími 23171 eftir kl. 17.
Viltu passa?
Unglingsstúlka óskast til að gæta
4ra mánaða stúlku 3-4 klukkutíma
2svar til 3svar í viku í Hlíðahverfi.
Sími 10660. Vilborg.
Ignis ísskápur
stærð 85x45x60 til sölu. Verð kr. 5
þús. Á sama stað óskast skápur
fyrir leirtau o.þ.h. ekki meira en 40
cm djúpur. Uppl. í síma 15841.
Ódýrt eða gefins
Óskum eftir húsgögnum eða hús-
munum allt frá blómum upp í píanó
til að gera barnaheimili okkar enn
heimilislegra. Sækjum á staðinn.
Uppl. í síma 685154 næstu daga.
Forstöðumenn.
íbúð í Garðabæ
óskast sem fyrst. Algjör reglusemi
og góðri umgengni heitið. Öruggar
greiðslur. Uppl. í síma 656622/
656705.
Til sölu
hentugt í stúlknaherbergi. Rúm-
stæði, snyrtiborð lítið, klæða-
skápur, borð og stóll, bókahilla og
vegghilla (útskorin). Sími 33094.
Snákafjall
Vill einhver sem er búinn að fá leiða
á snákafjallinu sínu, selja mér það
ódýrt. Sölvi 5 ára sími 13339.
Viljum kaupa
notaða ryksugu
og einnig rafmagnsritvél. Sími
38587.
Kisa er týnd
Tapast hefur grábröndótt læða frá
Baldursgötu 12. Hún er með gula
hálsól með merkispjaldi sem á eru
allar upplýsingar. Gegnir nafninu
Táta. Sást síðast við Þórsgötu 7,
má. 5. okt. Gott væri ef fólk í ná-
grenninu vildi athuga kjallara og
geymsluskúra sína. Fundarlaunum
heitið. Uppl. í síma 25859.
Ferðaritvél óskast
til kaups. Þarf að vera í góðu standi.
Hringið í síma 22507 eftir kl. 5.
Ef þig vantar -
fæst gefins
rimlarúm m/dýnu sem þarf að mála,
þá skaltu hringja í síma 40682 eftir
kl. 16.
Barnahúsgögn
kojur, 60x160 á kr. 5.000.- (dýnur
geta fylgt), hillur frá Ikea kr. 1.000.-
hillur og stór borðplata frá 3K á
4.500.-. Uppl. í síma 621880 Auður
á skrifstofutíma.
Óska eftir að kaupa
leikgrind og barnarúm. Uppl. í síma
18348.
Ódýr bíll
Citroén GS 77 til sölu. Ekinn 113
þús. km. Skoðaður '87 allur yfirfar-
inn. Verð kr. 30.000,- Uppl. í síma
34252 fyrir hádegi og á kvöldin.
Heimilshjálp vantar
í 3-5 klst. á viku. Vinnutími sveigjan-
legur. Uppl. í síma 34498.
Renault 12 TL ’78 til sölu
skoðaður '87. Sumar- og vetrar-
dekk. Góður og snyrtilegur bíll.
Sparneytinn. Uppl. í síma 41831
milli kl. 5 og 7 á kvöldin.
Óskast keypt
Svefnbekkur - rúm óskast keypt.
Sími 96-22132.
Til sölu fallegur
íslenskur hnakkur
sem nýr. Á sama stað eru til sölu
íslendingasögurnar, nýtt eintak,
(íslendingasagnaútgáfan). Auk
þess vandaður cellóbogi. Uppl. í
síma 29105.
Til sölu
4 nýjar felgur á Sunny '87. Seljast á
verði þriggja. Sími 78896.
Olíuofn „Husquarna"
til sölu
Tilvalinn í sumarbústað eða vinn-
uskúr. Uppl. í síma 27319 eða
21920.
Trommusett
Ludvig trommusett til sölu með
töskum og fylgihlutum. Verð
35.000.- Uppl. í síma 12056 eftir kl.
15.
Óska eftir
tölvuleikjum
í Acorn Electron + 1. Uppl. í síma
91-54140.
Til sölu
Lítið tekkskrifborð með skúffum, 7
raðstólar og 2 armstólar, 3 borð 2
ferköntuð 70 cm og 1 hringlaga 1 m
í þvermál. Allt vel með farið. Tilvalið
á biðstofu eða sjónvarpsherbergi.
Selst ódýrt. Uppl. í síma 51638 á
kvöldin.
Tvíburakerra
Vel með farin Maclaren tvíbura-
kerra til sölu á hálfvirði. Sími 73248.
Laufásborg
Dagheimili v/Laufásveg
Okkur vantar starfsfólk í 100% stööu. Vinnutími
9-17 og 75% stööu, vinnutími 11.30-17.30.
Upplýsingar gefur Sigrún forstöðumaður í símum
17219 og 10045.
ERLENDAR FRETTIR
Bandaríkin
Jackson í slaginn
Blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson höfðar til allra sem
fara halloka í bandarísku samfélagi, hvítra jafnt sem blakkra
Jesse Jackson lýsti því opinber-
lega yfir á laugardag að hann
gæfi kost á sér sem forsetaefni
Demókrataflokksins. Það kemur
vitaskuld ekki nokkrum manni á
óvart þar eð Ijóst mátti vera fyrir
löngu að predikarinn og
mannréttindafrömuðurinn
stefndi á æðstu metorð.
Jakcson er ótvírætt þekktasti
blökkumannaleiðtogi Bandaríkj-
anna og í kosningabaráttunni
árið 1984 vann hann stórvirki
með því að fá mikinn fjölda þel-
dökkra Bandaríkjamanna til að
láta skrá nöfn sín á kjörskrá og
greiða atkvæði. Þetta hefur vald-
ið miklum breytingum í banda-
rísku samfélagi sem sést best á því
að íhaldssamir öldungadeildar-
þingmenn Demókrataflokksins
að sunnan þora ekki að styðja
Reagan forseta í baráttu hans
fyrir skipun Róberts Borks í emb-
ætti hæstaréttardómara. Bork
þykir andsnúinn blökkumönnum
og þingmennirnir óttast missi
svartra atkvæða í heimafylkjum.
Árið 1984 var það forgangs-
verkefni Jacksons að virkja svert-
ingja til þátttöku í bandarískri
flokkapólitík. Kosningabaráttu
sína hóf hann seint en hún var
mjög árangursrík, tugþúsundum
saman streymdu blökkumenn í
hverfis- og sveitarskrifstofur og
létu skrifa nafn sitt á kjörskrá.
Þegar upp var staðið hafði Jack-
son hreppt 3,5 miljónir atkvæða í
forkosningunum og sat í þriðja
sæti, næst á eftir Walter Mondale
og Gary Hart.
En nú reynir Jackson að höfða
til allra sem eiga undir högg að
sækja, án tillits til litarafts.
Keppinautar hans í demókrata-
slagnum þykja fremur litlausir
Uwe Barschel, fyrrum forsætis-
ráðherra Slésvíkur-Holseta-
lands, virðist hafa látist úr hjart-
aslagi á hótelherbergi sínu í Genf í
Sviss á sunnudag en óvænt fráfall
hans olli miklum vangaveltum í
fjölmiðlum sem ýmist gerðu því
skóna að hann hefði verið myrtur
eða að hann hefði fallið fyrir eigin
hendi.
Barschel þessi hafði verið for-
sætisráðherra Slésvíkur-Holseta-
lands um nokkurra ára skeið en
neyddist til að segja af sér fyrir
mánuði síðan í kjölfar alvarlegra
ásakana á hendur honum um
svínarí og ljótan leik í kosninga-
baráttu þar fyrir skemmstu.
Það var fyrrum blaðafulltrúi
hans sem kom að máli við blaða-
menn þýska vikuritsins „Der Spi-
egel“ og hélt því fram að Barschel
hefði gefið sér fyrirmæli um að
láta njósna um einkalíf höfuð-
fjanda síns í kosningunum, jafn-
aðarmannsins Björns Engholms,
í því augnamiði að sverta hann í
augum almennings. Ennfremur
átti blaðafulltrúinn að kæra Eng-
holm fyrir skattsvik í nafnlausu
bréfi til skattyfirvalda.
Uppljóstrun þessi olli miklu
fjaðrafoki í Vestur-Þýskalandi og
varð pólitískur banabiti Barsc-
hels sem fram að því hafði verið
rísandi stjarna innan Kristilegs
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
miðjumenn á amerískan mæli-
kvarða og Jackson kveður sig ein-
an halda á lofti gunnfána frjáls-
lyndisins. Og nú beinir hann orð-
um sínum óspart til atvinnulausra
verkamanna og gjaldþrota smá-
bænda.
demókrataflokks Helmuts Kohls
kanslara.
Sjálfur hafði Barschel látið
hafa það eftir sér að hann hefði
orðið fyrir miklum vonbrigðum
þegar honum varð ljóst að helstu
broddar flokks síns í Bonn skelltu
skollaeyrum við fullyrðingum
sínum um sakleysi. Þó fannst
honum fyrst taka í hnúkana þegar
flokksbræður hans í Kiel, höfuð-
stað Slésvíkur-Holsetalands,
lögðu hart að honum að segja af
sér þingmennsku.
„Styðjum við bak verkamanna
og bænda, búum börnunum ör-
ugga framtíð og látum friðarmál
hafa algeran forgang,“ segir í
stuttri samantekt stefnuskrár
Jesse Jacksons.
-ks.
Uwe Barscel. Vesturþýskir fjölmiðlar
töldu í fyrstu að hann hefði framið
sjálfsmorð eða verið myrtur.
Allt var þetta til þess að menn
töldu í fyrstu að Barscel hefði
fyrirfarið sér en sú er ekki raunin.
-ks.
ffl REYKJKtÍKURBORG HFI
Mr Stödu%
Fjölskylduheimili fyrir ung-
linga
Laus er staöa starfsmanns við fjölskylduheimili
fyrir unglinga. Um er aö ræða vaktavinnu kvöld,
nætur og helgar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og/eða
reynslu á sviði uppeldismála.
Upplýsingar um starfið eru gefnar í síma 681836
eftirkl. 16.00. Umsóknarfresturertil 25. október.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðublöðum sem þar fást.
Jesse og Jackie Jackson. Kosningabarátta í anda Meistarans frá Nazaret.
Uwe Barschel
Lést úr hjartaslagi
ífyrstu vartalið aðfyrrumforsœtisráð-
herra Slésvíkur-Holsetalands hefðifall-
ið fyrir eigin hendi