Þjóðviljinn - 13.10.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓWflUINN
Þriðjudaour 13. október 1987 227. tölublað 52. óroangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Umhverfismálaráðstefna AB
ÁTVR
Osónlagið að eyðast
Sigurbjörg Gísladóttir efnafrœðingur á ráðstefnuAB: Ósónlagið minnkar
um 3 prósent. Tíðni krabbameina mun aukast í kjölfarið. Nauðsynlegt að
minnka notkun freons í spreybrúsum og kœlikerfum
Osonlagið í heiðhvolfinu virðist
hafa minnkað um rösk 3 pró-
sent á síðustu árum og mögulega
mun þetta leiða til nokkurrar
aukningar á krabbameinum, að
sögn Sigurbjargar Gísladóttur,
efnafræðings. En óson,
lofttegund á mörkum gufuhvolfs-
ins verkar sem skjöldur gegn út-
fjóiublárri geislun sólar, sem er
krabbamyndandi. Þetta kom
fram í erindi Sigurbjargar á fjöl-
sóttri opinni ráðstefnu Alþýðu-
bandaiagsins um umhverfismál í
Gerðubergi á sunnudaginn.
„Það er talið að minnki óson-
lagið um eitt prósent, þá aukist
útfjólublá geislun sólar á jörðu
niðri um 2 prósent, og sérífræð-
ingar eru þeirrar skoðunar að
ekki sé ólíklegt að í kjölfarið
fjölgi tilsvarandi krabbameinum
allt að fjögur prósent,“ sagði Sig-
urbjörg, en tók jafnframt fram,
að nokkur óvissa fylgdi ósónmæl-
ingunum og ekki væri hægt að
fullyrða neitt með óyggjandi
vissu um ósoneyðinguna.
Ýmis konar efni sem notuð eru
í kælikerfi og spreybrúsa, svo-
kölluð freonefni, eru mjög lífseig
og stíga upp í heiðhvolfið þar sem
þau hvata eyðingu ósonsins. Sig-
urbjörg sagði að þetta mál væri
svo alvarlegt, að þegar hefðu
nokkrar þjóðir bannað notkun
freons og skyldra efna.
Hún kvað það jafnframt
áhyggjuefni, að það tæki mörg
ár, ef til vill áratugi, fyrir þessi
efni að stíga upp í heiðhvolfið,
sem er tugkílómetra ofan við yfir-
borð jarðar. Því væri alls ekki víst
að mestu spjöllin á ósónlaginu
væru komin fram nú þegar, og ef
til vill ætti ósónlagið eftir að
minnka verulega á næstu árum og
áratugum með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.
Hún gat þess jafnframt, að yfir
suðurskautinu væri ósónlagið
orðið svo þunnt að þar myndaðist
gat á það árlega.
-ÖS
Sjá bls. 5
8% hækkun
AHt áfengi og tóbak hækkaði
að jafnaði um 8 af hundraði.
Afengis og tóbakshækkunin mun
vera einn liðurinn í áformum
ríkisstjórnarinnar til að draga úr
fjárlagahallanum, en gert er ráð
fyrir að þessi hækkun færi ríkis-
sjóði allt að 300 milljónir króna í
tekjur á næsta ári.
Eftir hækkunina kostar þriggja
pela flaska af Svarta dauða, - ís-
lensku brennivíni, 880 krónur í
stað 810 króna fyrir hækkun. Al-
geng vodkategund kostar um
1400 krónur, en var áður um
1300. Flaskan af miðlungsgóðu
viský kostaði rétt rúmar 1400
krónur, en er eftir hækkun komin
í um 1550 krónur.
Pakkinn af algengum vind-
lingum kostar nú 130 krónur, en
var áður á 118 krónur og pakkinn
af ófínni vindlum, sem kostaði
180 krónur, fer uppí 190 krónur.
-rk
Þotuslysið
I öruggum
höndum
MariaJesús Sanchis: Björgunarmenn-
irnir eiga miklarþakkir skildar. Ferða-
langarnir heim til Spánar í dag
Mei, við bjuggumst ekki við að haida upp á þjóðhá-
tíðardaginn í Reykjavík, og það með þessum að-
draganda, sagði María Jesús Sanchis, eina konan í
hópi spænsku þotuferðalanganna sex sem nauðlentu á
sjónum 40 sjómílur vestur af Reykjanesi á sunnu-
daginn. Þjóðhátíðardagur Spánar var í gær og í tilefni
þess færði Þjóðviljinn fólkinu rósavönd í spænsku
fánalitunum, rauðu og gulu, og eins til að samfagna
því með giftusamlega björgun.
Flugvélin var á leiðinni frá Miami til Spánar, og var
ætlunin að millilenda í Keflavík, en vélin varð elds-
neytislaus og setti það óhapp strik í reikning ferðal-
agsins.
- Ég vissi allan tímann að þetta færi vel og að við
slyppum lifandi. Börgunarmennirnir eiga miklar
þakkir skildar; það eru menn sem kunna sitt fag, og
þegar við áttuðum okkur á því hvað við vorum í
öruggum höndum rann mesta hræðslan af okkur,
sagði Maria Jesús.
Aðspurð um hvort það hefði verið vont í sjóinn
sagði Maria Jesús að öldugangurinn hefði verið alveg
nógu mikill fyrir sinn smekk, en björgunarmennirnir
sögðu okkur að við mættum prísa okkur sæl að hafa
ekki verið á ferðinni degi eða tveim fyrr, og þá lent í
norðanbálinu sem gekk yfir landið.
Spánverjarnir halda heimleiðis í dag.
Feðginin Salvador og Maria Jesús Sanchis og Jose Maria Medina, helftin af þotuferðalöngunum sem lentu í sjónum
vestur af Reykjanesi á sunnudaginn: Við erum uppfull af þakklæti til allra sem að björguninni stóðu. Mynd: E.ÓI.
i
Kjaramál
Kauphækkun ekki á dagskra
Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags iðnrekenda: Óþarfifyrirfólk að gera sér
gyllivonir um kauphækkun. Launaskatturinn duldar álögur á launþega.
Niðurskurður og skattaálögur duga skammt. Gengisfelling óhjákvœmileg
Framfærsluvísitalan
21.7%
verðbólga
Framfærsluvísitalan hækkaði
um 1.65% í september. 0.3%
starfa af hækkun matvöru, 0.4%
af hækkun á verði fatnaðar og um
1% stafa af hækkun ýmissa vöru-
og þjónustuliða.
Síðustu 12 mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 21,8% og
hækkunin í september svarar til
21.7% árshækkunar. Síðustu
þrjá mánuði hefur framfærslu-
vísitalan hækkað um 5.4% og
jafngildir sú hækkun um 23.2%
verðbólgu á heilu ári. - Ig
Almennt þurfa launþegar ekki
að reikna með kauphækkun-
um meira en orðið er. Að nafninu
til er verið að skattleggja fyrir-
tækin, en í raun og veru er verið
að skattleggja launþega, sagði
Víglundur Þorsteinsson, formað-
ur Félags íslenskra iðnrekenda,
en í fjárlgafrumvarpi næsta árs,
sem lagt verður fyrir alþingi í
dag, er gert ráð fyrir að 1-1,5%
launaskattur verði að nýju lagður
á útflutnings- og iðnaðarfyrir-
tæki.
Víglundur sagði að boðaður
launaskattur væri ekkert annað
en feluleikur með nafngiftir á
álögum. Launaskatturinn myndi
takmarka mjög greiðslugetu fyr-
irtækja og gera þeim ókleift að
standa undir frekari kaup-
greiðslum en orðið væri.
- Ég fer ekkert í felur með þá
skoðun að gengisfelling er óhjá-
kvæmileg. Ef hún verður ekki á
næstunni, þýðir það einfaldlega
að hún verður þeim mun meiri
eftir því sem stjórnvöld láta
lengur hjá líða að fella gengið,
sagði Víglundur.
- Áform stjórnvalda um það
að leggja á nýja skatta og skera
niður útgjöld þess opinbera uppá
1300 miljónir króna, koma lyrir
lítið þegar það stefnir í 3000
milljón króna viðskiptahalla í ár
og 8-9000 miljónir króna á því
næsta, sagði Víglundur.
-rk