Þjóðviljinn - 21.10.1987, Qupperneq 1
Miðvikudagur 21. október 1987 234. tölublað 52. árgangur
TJtanríkisráðherra
Engin kjamorkuvopn
Steingrímur Hermannsson lýstiþvíyfir á Alþingi ígærað kjarnorkuvopn yrðu ekki staðsett
hér á landi, hvorki áfriðar- né ófriðartímum
Nauðgun
Tveir í gæslu
Tveir bandarískir hermenn úr
setuliðinu á Miðnesheiði hafa
verið úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 30. október næstkomandi
í kjölfar kæru 19 ára stúlku sem
segir þá hafa nauðgað sér í heima-
húsi í Keflavík aðfaranótt
fimmtudags í síðustu viku.
Að sögn Óskars Pórmunds-
sonar lögreglufulltrúa hjá rann-
sóknarlögreglunni í Keflavík líta
yfirvöld þar syðra málið mjög al-
varlegum augum, en hermenn-
irnir höfðu ekki útivistarleyfi frá
herstöðinni nema fram til mið-
nættis umræddan dag.
Eftir hinn meinta atburð kom-
ust hermennirnir inn í herstöðina
með því að klifra yfir herstöðv-
argirðinguna fyrir ofan bæinn, en
voru gómaðir af íslensku og
bandarísku lögreglunni í bólinu
heima hjá sér. -8rh
að er margyfirlýst stefna Is-
lendinga að hér á landi verða
ekki staðsett kjarnorkuvopn,
sagði Steingrímur Hermannsson
á Alþingi í gær.
Hjörleifur Guttormsson hafði
beðið Steingrím að staðfesta það
að hvorki á friðar- né ófriðartím-
um yrðu staðsett kjarnorkuvopn
á íslandi.
Steingrímur varð við þessu en
sagði að íslendingar hefðu ekki
séð ástæðu til að gera upp á milli
fríðar- og ófriðartíma, þannig að í
yfirlýsingu íslendinga er talað um
að hér verði ekki staðsett kjarn-
orkuvopn.
„ Allt sem frá okkur hefur kom-
ið um þetta mál er afdráttarlaust
og gerir ekki mun á friðar- og
ófriðartímum," sagði Steingrím-
ur.
Hjörleifur sagði þetta hina
merkustu yfirlýsingu hjá ráð-
herra, en með henni væri kveðið
upp úr með að öllum, og ætti það
við bæði hernaðarbandalögin,
væri óheimilt að gera áætlanir um
flutninga á kjarnorkuvopnum til
íslands.
Eyjólfur Konráð Jónsson
kvaddi sér hljóðs og sagði að með
þessari yfirlýsingu væri ekki um
neina stefnubreytingu að ræða.
Einsog kunnugt er neita
bandarísk hernaðaryfirvöld að
gefa upp hvort herskip eru með
kjarnorkuvopn. Þetta hefur orð-
ið tii þess að deilur hafa verið
milli Bandaríkjamanna og Ný-
Sjálendinga, þar sem ekki er hei- (
milt að flytja kjarnorkuvopn til
Nýja-Sjálands. Nú á eftir að
reyna á það hér hvort utanríkis-
ráðherra krefst þess að herskip
sem koma til landsins séu ekki
með kjarnorkuvopn innanborðs.
-Sáf
• '
% ■ 9
1 j ■JmMœFW á s
I'1 ln? % mkM 'i
Ríkisspítalar
Einföld mynd
DavíðÁ.
Gunnarsson: I
auglýsingunni er
miðað við meðal-
tekjur
Þetta eru meðallaunin sem við
greiðum, en auðvitað þekkjast
bæði hærri og lægri laun á
sjúkrahúsunum, sagði Davíð Á.
Gunnarsson, forstjóri Ríkisspít-
alanna, en að undanförnu hcfur
stofnunin auglýst stíft eftir fólki.
Eins og fram kom í viðtölum við
forystukonur Sóknar og Sjúkra-
liðafélagsins í blaðinu í gær finnst
þeim einfölduð mynd af launum
vera dregin upp i auglýsingum
Ríkisspítalanna.
Þessir nemendur í Hólabrekkuskóla njóta ekki lögboðinnar skólaheilsuverndar. Hjúkrunarfræðing vantar til starfa við skólann til að fylgjast með
heilsufari og velferð rúmlega 1000 nemenda. Mynd Sig.
Grunnskólar
Skólaheilsuvemd í molum
Ófremdarástand ígrunnskólum Reykjavíkur. 4000 börn án lögboðins heilbrigðiseftirlits.
Sveinn Már Gunnarsson barnalæknir: Mikilvœgt forvarnarstarf fer forgörðum
Um 4000 börn í grunnskólum
borgarinnar pjóta ekki lög-
boðinnar heilsuverndar sökum
skorts á skólahj úkrunarfræðing-
um. Að sögn Sveins Más Gunn-
arssonar, skólalæknis í Breið-
holtsskóla, hefur ástandið aldrei
verið eins slæmt og í haust. - Þess
Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður Verkamannasam-
bands íslands og þingmaður Al-
þýðuflokksins, sagðist í gær
styðja hugmyndir fjármálaráð-
herra um að leggja 10% söluskatt
á matvæli.
„í fyrirmyndarríkjum jafnað-
armanna einsog Svíþjóð, er sami
skattur á matvæli og annað. Á
er vart að vænta að ur rætist og
hjúkrunarfræðingar fáist til
starfa, fyrr en þeim verða tryggð
sambærileg kjör og hjúkrunar-
fræðingar á sjúkrahúsunum hafa
og tryggð dagvistun fyrir börnin,
sagði Sveinn.
I bréfi sem Sveinn ritaði
móti koma svo félagslegar að-
gerðir þannig að séð er fyrir þörf-
um stórra fjölskyldna og lág-
launafólks,“ sagði Karl Steinar
við Þjóðviljann í gær.
Karl Steinar sagði að hug-
myndin að baki þessari skattlagn-
ingu væri þáttur í einföldun
skattakerfisins til þess að korna í
veg fyrir stórfelld söluskattsvik.
Heilbrigðisráði borgarinnar 1.
þessa mánaðar, segir að neyðar-
ástand ríki í skólaheilsuvernd í
borginni „vegna þess að hjúkrun-
arfræðingar fást ekki til starfa í
skólunum og hafa snúið til ann-
arra starfa í ríkari mæli nú en
nokkurn tíma áður“.
„Matarskatturinn er ekkert
einangrað fyrirbæri. Ég tel
skynsamlegt að hafa sem fæstar
undanþágur líkt og á hinum
Norðurlöndunum en gæta þess
jafnframt með félagslegum að-
gerðum að hagur stórra fjöl-
skyldna og hinna lægst launuðu
sitji í fyrirrúmi. Ég mun gera mitt
til að svo verði.“ -Sáf
- Meðan þetta ástand er við-
varandi fer mjög mikilvægt for-
vamarstarf forgörðum í skóla-
kerfinu. Mikilvægi þess starfs
sem skólahjúkrunarfræðingar
vinna verður seint ofmetið. Ef
ekki verður tekið á þessu máli og
gerðar ráðstafanir sem duga, er
tæplega hægt að skoða það á ann-
an veg en sem lftilsvirðingu við
skólaheilsugæsluna og skilnings-
leysi á mikilvægi þessa starfs,
sagði Sveinn.
„Lág laun, fagleg einangrun og
aðstöðuleysi í skólum,“ telur
Hrafn V. Friðriksson skólayfir-
læknir í bréfi til Heilbrigðisráðs
24. sept. s.l., vera helstu ástæður
fyrir því að skólahjúkrunarfræð-
ingar hafi hætt skyndilega í starfi.
„Þetta vekur þá spurningu
hvort ekki hafi mátt sjá þetta fyrir
og beita nauðsynlegum aðgerð-
um til varnar,“ segir í bréfi
Hrafns. _rk
„Það er satt og rétt sem þær
segja, Þórunn Sveinbjörnsdóttir í
Sókn og Hulda Ólafsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, að
dregin er upp mjög einfölduð
mynd af launakjörum á sjúkra-
húsunum, en f ramh j á því er erfitt
að komast í auglýsingatexta,“
sagði Davíð. „Markmiðið hjá
okkur er enda að fá fólk til að
kynna sér málið og skoða hvað
spítalamir hafa upp á að bjóða
sem vinnustaðir.“
Davíð sagði að rúmlega hundr-
að manns vantaði í vinnu á Ríkis-
spítölunum, og væri þá miðað við
fullt starf. Erfitt væri að segja til
um að áberandi vantaði í eitt starf
öðmm fremur, þar sem skortur á
starfsfólki dreifðist nokkuð jafnt
yfir kerfið.
Aðspurður um hvort auglýs-
ingarnar hefðu skilað árangri
sagði Davíð erfitt að segja til um
það að svo komnu máli. „En við
finnum að meira hefur verið
spurt um störf upp á síðkastið en
verið hefur, einkum af hinum al-
menna starfsmanni. Það er meiri
óvissa með heilbrigðisstéttirnar
sjálfar,“ sagði hann.
„Það er vilji fyrir því að stóru
sjúkrahúsin taki sig saman og
auglýsi í sameiningu eftir fólki,
og ég býst við að af því verði á
næstunni. Við viljum vekja at-
hygli á heilbrigðisþjónustunni
sem góðum vinnustað,“ sagði
Davíð.
HS
Matarskatturinn
Karl Steinar meðmæltur