Þjóðviljinn - 21.10.1987, Qupperneq 2
-SPURNINGIN—
Hvorn telurðu líklegri sig-
urvegara í heimsmeist-
araeinvíginu í skák,
Kasparov eða Karpov?
FRETTIR
Ríkisstórnin
Hverjar em efndimar?
Samkvœmt stjórnarsáttmálanum á að efla menntun og rannsóknirí
landbúnaðinum. Allt slíkt skorið burt í lagafrumvarpinu
Istjórnarsáttmálanum, sem
birtur var í júlíbyrjun, þegar
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
var mynduð, er lögð áhersla á að
menntun, starfsfræðsla og rann-
sóknir í landbúnaði verði efldar. í
fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar-
innar er hinsvegar hnífnum
brugðið harkalega á þennan þátt í
iandbúnaðargeiranum.
Einsog fram hefur komið í
Þjóðviljanum eru fjárveitingar til
allra tilraunastöðva utan Sáms-
staða skornar burt, og fjárveiting
til tilraunastöðvarinnar að Sáms-
stöðum fylgir ekki verðlagsþró-
uninni.
f stjórnarsáttmálanum stendur
orðrétt: „Nýjar búgreinar verði
efldar og stærri hluti fjárveitinga
til landbúnaðar renni til þeirra.
Menntun, starfsfræðsla og rann-
sóknir í landbúnaði verði efldar.
Jafnframt verði unnið skipulega
að fjölgun nýrra starfa í sveitum
landsins.“
„Við eigum að leggja megin
áherslu á að efla rannsóknir út
um landið og færa út á land sem
mest af þeim verkefnum sem eru
Eðlisfrœðingar
Fagna fiystingu
á Keldnaholti," sagði Egill Jóns-
son, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, en hann situr í nefnd
ásamt þeim Páli Péturssyni,
Framsókn og Eiði Guðnasyni,
Alþýðuflokki, sem á að endur-
skoða þennan þátt í fjárlagafrum-
varpinu.
Nefndin hefur ekki enn komið
saman og vildi Egill því lítið tjá
sig um það hvernig störfum henn-
ar yrði háttað. -Sáf
*»*w4«**«í>**..,
Ráðstefna
Vatnið og landið
Fyrsta ráðstefnan um íslenska vatnafrœði.
Haldin í tilefni 40 ára afmœlis Vatnamælinga
og tileinkuð Sigurjóni Rist
Jón Óskar Þórhallsson:
fjölbrautarnemi:
tg veðja á Kasparov. Hann vann
síðasta einvígið og þó svo að
hann hafi byrjað illa á hann eftir
að koma til svo um munar.
Magnús Grímsson,
kennari:
Ég skýt á Kasparov. Hann virðist
vera mun ferskari en andstæð-
ingurinn sem er aö brenna út.
Gunnar Þórðarson,
sölumaöur:
Ég veðja á Kasparov. Hann er allt
í senn yngri, betri og efnilegri
skákmaður en Karpov sem má
mun sinn fífil fegri.
Jón Helgi Þórarinsson,
atvinnulaus:
Ekki spurning. Ég veðja hiklaust
á Karpov að hann vinni einvígið.
Hann er mun betri skákmaður en
andstæðingurinn og honum ætti
ekki að verða skotaskuld úr því
að endurheimta titilinn.
Sigfús Sigurðsson,
nemi í bifvélavirkjun:
Ég veðja á Kasparov. Hann er
bæði yngri og betri skákmaður
en Karpov sem ekki virðist lík-
legur til afreka að þessu sinni.
Samtök íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá fagna í
ályktun yfirlýstum stuðningi
utanríkisráðherra við tillögu frá
Mexíkó, Svíþjóð og fleiri löndum
Skagafjörður
Fimmtugt
sögufélag
Sögufélag
Skagfirðinga hálfrar
aldar. Hjalti Pálsson
formaður: Félagar
gera sérglaðan dag í
tilefni tímamótanna.
Afmœlishóf24.
október
Sögufélag Skagfirðinga er
hálfrar aldar um þessar mundir
og er félagið því elst þeirra hér-
aðssögufélaga, sem starfað hafa
samfellt. I tilefni tímamótanna
heldur stjórn félagsins sjálfri sér
og óbreyttum félagsmönnum,
sem eru á vel á áttunda hund-
raðið, gleðskap á laugardagsk-
völdið 24. október í Safnahúsinu
á Sauðárkróki.
Að sögn Hjalta Pálssonar, for-
manns Sögufélagsins, hefur fé-
lagið á fimmtíu ára starfsferli,
gefið út hátt í 40 rit, sem öll fjalla
á einn eða annan máta um hér-
aðssögu Skagafjarðar. Síðustu
árin hefur félagið gefið árvisst út
tvær bækur auk Skagfirðingabók-
ar, sem er nokkurskonar mál-
gagn félagsins og ytri ásýnd þess.
Á afmælisfagnaðinum annan
laugardag verður margt til fróð-
leiks og skemmtunar. Meðal efn-
is lesa leikarar úr Leikfélagi
Sauðárkróks upp valda kafla úr
útgáfuritum Sögufélagsins, Sig-
urjón Björnsson sálfræðiprófess-
or flytur tölu og kjörinn verður
heiðursfélagi Sögufélagsins. -rk
um frystingu kjarnorkuvopna á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna.
í ályktuninni er minnt á að ís-
lendingar hafa einir allra Norður-
landaþjóða setið hjá við af-
greiðslu þessarar tillögu á undan-
förnum árum, og hafi samtökin
ítrekað hvatt ríkisstjórnina til að
endurskoða þá afstöðu.
Þá segja eðlisfræðingarnir:
„í viðtali við Þorstein Pálsson
forsætisráðherra um þessa
ákvörðun utanríkisráðherra kom
fram að frystingartillögur væru
að hans mati orðnar úreltar í ljósi
væntanlegs árangurs í afvopnun-
arviðræðum stórveldanna. Stór-
veldin væru að ræða um raun-
verulega afvopnun og þá skipti
litlu máli hvort ríki greiddu fryst-
ingartillögu atkvæði eða ekki.
I þessu sambandi vilja Samtök
íslenskra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá benda á að viðræður
stórveldanna snúast á hverjum
tíma um ákveðnar tegundir
vopna og höfuðmáli skiptir hvort
vígbúnaðarkapphlaupið heldur
áfram óhindrað í öðrum tegund-
um vopna meðan á viðræðum
stendur. Afvopnunarviðræður
eru eðli málsins samkvæmt flókn-
ar og tímafrekar. Hraði vígbún-
aðarkapphlaupsins er nú slíkur
að lítil von er til þess að verulegur
árangur náist með afvopnunar-
samningum, ef ekki eru jafn-
framt settar skorður við uppsetn-
ingu nýrra vopna. Nefna má að
ný vopnakerfi, svo sem Trident
og Typhoon kafbátar stórveld-
anna bæta á hverju ári þúsundum
kjarnaodda við vopnabúr þeirra.
Til samanburðar mun væntanlegt
samkomulag stórveldanna um
meðaldrægar eldflaugar taka til
1783 odda og samningar þar um
hafa tekið hátt í áratug.
Af þessum sökum gera hinar
ánægjulegu horfur í afvopnunar-
viðræðum stórveldanna frystingu
enn brýnni en ella væri. Ekki má
til þess koma að sögulegt tækifæri
til kjarnorkuafvopnunar fari for-
görðum við það að vígbúnaðar-
kapphlaupið finni sér aðra far-
vegi en samningar ná yfir hverju
sinni.“
Dagana 23. og 24. okt. nk. verð-
ur fyrsta ráðstefnan um ís-
lenska vatnafræði haldin í ráð-
stefnusal ríkisstofnana að Borg-
artúni 6 í Rcykjavík. Tilefni ráð-
stefnunnar er 40 ára afmæli Vatn-
amælinga og er hún tileinkuð Sig-
urjóni Rist, sem varð 70 ára 28.
ágúst sl. og lætur af störfum í árs-
lok.
Orkustofnun bauð nokkrum
stofnunum og fyrirtækjum, sem
hafa haft náin tengsl við Vatna-
mælingar, samstarf um ráðstefn-
una, auk félaga þar sem Sigurjón
hefur verið í forystu.
Tveir þekktir, norrænir vatna-
fræðingar munu flytja afmæliser-
indi. Arne Tollan, Noregi, fjallar
um vatnafræði á Norðurlöndum
og Malin Falkenmark, Svíþjóð,
um ný viðhorf í vatnafræði og al-
þjóðlegt samstarf. Þá verða og
flutt erindi um upphaf, tilurð og
þróun vatnamælinga fyrstu ára-
tugina og um undirstöðuatriði
vatnafræðinnar. Fjölmörg atriði
önnur, sem snerta vatnafræði,
verða rædd á ráðstefnunni.
Sigurjón Rist hefur veitt
Vatnamælingum forstöðu allt frá
upphafi og mótað starfsemi
þeirra manna mest, fyrst á Raf-
orkumálaskrifstofunni og síðan á
Orkustofnun. Hann hætti að
sinna daglegum rekstri Vatna-
mælinga fyrir 2 árum. Síðan hefur
hann unnið við ritstörf. Árni
Snorrason vatnaverkfræðingur
tók við starfi Sigurjóns.
Ráðstefnan er öllum opin með-
an húsrúm leyfir. Ráðstefnugjald
er kr. 3700. Henni lýkur með há-
tíðarkvöldverði til heiðurs Sigur-
jóni Rist. Þeir sem koma þvi ekki
við að vera þar geta samt tekið
þátt í ráðstefnunni gegn 1700 kr.
gjaldi, sem m.a. innifelur kaffi og
hádegisverð báða ráðstefnudag-
ana.
Skráning þátttakenda fer fram
í afgreiðslu Orkustofnunar
Grensásvegi 9 í síma 83600 alla
virka daga frá kl. 9.00 til 16.00.
-mhg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 21. októbcr 1987
l