Þjóðviljinn - 21.10.1987, Síða 5
Fiskeldi við Reykjavík
2000 tonn árlega
á Sundunum
Mikilláhugi ogfjölmenni á ráðstefnu Atvinnumálanefndar
borgarinnar um fiskeldi við Reykjavík. Barney Wheelan:
Stórkvíarnar hafa opnað nýjar víddir. Össur Skarphéðinsson:
Geysileg framleiðsla í flóanum í stórkvíum innan fárra ára
Dr. Barney Wheelan t.h. einn helsti sérfræðingur í heiminum varðandi stórkvíaeldi telur allar aðstæður í Faxaflóa hinar
bestu til slíks laxaeldis.
- Ég er sannfærður um að stór-
kvíaeldi á mikla framtíð fyrir sér
hér í grennd við Reykjavík, í
Faxaflóanum og Kollafirði, sagði
dr. Barney Wheelan. Hann var
sérstakur gestur á ráðstefnu sem
atvinnumálanefnd Reykjavíkur
hélt sl. föstudag um fiskeldi í ná-
grenni borgarinnar. Dr. Barney
er yfirmaður 6 fiskeldisstöðva á
írlandi og hefur manna mesta
reynslu af rekstri stórkvía. Hann
tók fyrstu stórkvína í notkun í
Evrópu og í einni af stöðvum
hans er stærsta kvíin í veröldinni,
14 þús. rúmm.
Góöar aðstæður í hvívetna
- íslendingar eiga við svipað
vandamál að glíma og írar, þá
skortir var. Eftir að stórkvíarnar
komu til sögunnar, má segja að
nýj ar víddir hafi opnast fyrir sj áv-
areldi í frlandi og ég er
sannfærður um að það sama muni
gerast hér á íslandi. Barney tók
jafnframt fram, eftir að hafa
skoðað aðstæður í Faxaflóa, að
hann væri sannfærður um að
sjókvíaeldi ætti mikla framtíð
fyrir sér í Faxaflóa og Kollafirði.
Ráðstefnan sem var sótt af yfir
200 manns var haldin að tillögu
Össurar Skarphéðinssonar full-
trúa Alþýðubandalagsins í At-
vinnumálanefnd.
- Ég tel að innan fárra ára verði
geysileg framleiðsla á laxi í stór-
kvíum í Faxaflóa. Mér kæmi ekki
á óvart þó að innan 5-8 ára yrðu
framleidd hátt í 2 þúsund tonn á
þessu svæði. Eftir áratug verður
framleiðslan örugglega komin
yfir 2 þúsund tonn, sagði Össur
Skarphéðinsson.
Ekki hætta á megnun
- Niðurstöður sérfræðinga á
ráðstefnunni voru þær að svæðið
er einstaklega vel fallið til stór-
kvíaeldis. Bæði er dýpið nægilegt
og úti í flóanum virðist ekki hætta
á undirkælingu, straumar sjá um
góða hreinsun og samkvæmt
mjög merkum athugunum
Snorra Páls Kjarans verkfræð-
ings, virðist ekici hætta á neinni
bakteríumengun frá borginni. Ég
tel því að ráðstefnan hafi verið
einstaklega jákvæð og allt bendir
til þess að fiskeldi í stórkvíum eigi
mikla framtíð fyrir sér fyrir utan
Reykjavík og raunar víðar við
höfuðborgarsvæðið, sagði Össur.
Stórseiðaeldi arðbærara
Á síðustu tveimur árum hafa 5
fyrirtæki hafið fiskeldi fyrir utan
Reykjavík, flest í Eiðsvíkinni.
Þar er nú bæði ræktaður lax,
regnbogasilungur, bleikja og sjó-
birtingur. í erindi Hallgríms Ing-
ólfssonar framkstj. Haflax, kom
fram að vöxturinn hefur verið
einstaklega góður og hraðari en
búist var við.
Þá komu einnig fram mjög at-
hyglisverðar upplýsingar í erindi
Sigurðar St. Helgasonar lífeðlis-
fræðings. Hann bar saman hefð-
bundið eldi þar sem sjógöngu-
seiði af venjulegri stærð, 40-50
gr, eru notuð við stórseiðaeldi
þar sem seiðin eru amk. 200 gr
þegar sjávareldi hefst. Niður-
staða hans var sú, að mun arð-
vænlegra væri að nota stórseiðin
til sjávareldis. Slík seiði væri hægt
að ala upp á ódýran máta á þeim
stöðum á landinu þar sem gnótt
er af 10-14 stiga heitu vatni og
með því að flytja seiðin í kvíar úti
fyrir Reykjavík mætti nota
sumarhitann til að ná upp sláturf-
iski á 6-8 mánuðum, sem er miklu
skemmri tími en samkvæmt hefð-
ubundnu eldi.
Ráðstefnugestir voru sammála
um að slík ráðstefna hefði verið
tímabær eins og mikill fjöldi gesta
sýndi.
-Ig-
Skúli Pálsson á Laxalóni, sem kominn er á níræðisaldur, einn af frumkvöðlum
laxeldis hérlendis var að sjálfsögðu mættur á ráðstefnuna og miðlaði þar
fróðleik til þeirra yngri. Myndir Sig.
Góð þátttaka var á ráðstefnunni víðs vegar af landinu. M.a. mættu yfir 20
nemendur af fiskeldisbrautinni á Kirkjubæjarklaustri ogt fylgdust af áhuga með
umræðum. Myndir Sig.
Miðvikudagur 21. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5