Þjóðviljinn - 21.10.1987, Síða 6
VIÐHORF
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Starfsfólk óskast á barnadeild og lyflækninga-
deild IA. Vinnutími: 7.30- 15.30. Um fjölbreytt
og skemmtileg störf er aö ræöa.
) -!
Fólk til ræstinga á skurðstofu. Vinnutími: frá
8-16 og 9-17.
jUpplýsingar veitir ræstingarstjóri í síma 19600/
259 frá kl. 10- 14.
Reykjavík 20.10. 1987
Lækningatæki -
Gjörgæslubúnaður
Öskaö er eftir tilboöum í lækningatæki og gjör-
gæslubúnað fyrir legudeildir, gjörgæslu- og
svæfingardeild Fjórðungssjúkrahússins á ísa-
firöi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða
tilboð opnuð á sama stað þriðjudaginn 17.11.
n.k. kl. 11.00 f.h. í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
/ía\
swri
Eiginmaður minn og faðir okkar
Tage Möller
er látinn.
Margrét Jónsdóttir Möller
Birgir, Jón og Carl Möller
Jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Helga J. Halldórssonar
fyrrverandi kennara við Stýrimannaskólann í Reykjavík,
fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 22. október kl.
13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Sigrún Helgadóttir Ari Arnalds
Guðný Helgadóttir
Þorbjörg Helgadóttir Jorgen H. Jorgensen
Áslaug Helgadóttir Nicholas J.G. Hall
og barnabörn
ALÞÝÐUBANDAlAGiP
Alþýðubandalagið Reykjavík
Borgarmálaráð
Fundur í dag, miðvikudag kl. 17.00 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: Umferðarmál og fleira.
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldinn miðvikudag-
inn 28. október kl. 20.00 í Hlégarði.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) önnur mál.
Sem sérstakir gestir á fundinn koma þeir: Svavar Gestsson form. Alþýðu-
bandalagsins, Geir Gunnarsson alþm., og Ólafur Ragnar Grímsson vara-
þingm. Munu þeir flytja stutt ávörþ í tilefni Landsfundar og ræða flokksstarf-
ið, einnig munu þeir fjalla um það sem efst er á baugi í stjórnmálunum.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalagið
Starfshópur um utanríks- og friðarmál
Fundur verður haldinn í Miðgarði, Hverfisgötu 105 Reykjavík, 4. hæð,
fimmtudaginn 22. október kl. 20.30.
Dagskrá: Undirbúningur málefna fyrir Landsfund. Stjórnin
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn laugardaginn 24. október kl.
14.00 í Þinghóli, Kópavogi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin
Ao gefnu tilefni
Kristín Á. Ólafsdóttir skrifar
Viðbrögð ýmissa forystu-
manna Alþýðubandalagsins við
kosningu landsfundarfulltrúa í
Reykjavík hafa einkennst af van-
stillingu. Af því tilefni vil ég
minna á grundvallarréttindi al-
mennra félagsmanna til þess að
hafa áhrif á málefni og val trún-
aðarmanna flokksins. Það er gróf
móðgun við þá 400 félaga sem
kusu til landsfundar á stærsta fé-
lagsfundi í sögu Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík síðastliðinn
fimmtudag að halda því fram að
„bolabrögð‘% „aðför“ eða „óeðli-
leg vinnubrögð“ hafi átt sér stað
við kosninguna.
Það að ætla fólki að kjósa í
blindni eftir tilskipunum er lítils-
virðing við dómgreind og sjálf-
stæði félaga okkar. Skiptir engu
hvort sú „tilskipun" birtist sem
listi uppstillingarnefndar eða í
formi tfttnefnds minnislista.
Það er ljóst að í tillögu uppstill-
ingarnefndar um landsfundar-
fulltrúa hallaði mjög á stuðnings-
menn Ólafs Ragnars Grímssonar
við væntanlegt formannskjör. Að
sjálfsögðu notuðu almennir fé-
lagar lýðræðisleg réttindi sín til
þess að reyna að breyta þeim
hlutföllum. í þeim tilgangi stilltu
stuðningsmenn Ólafs saman
strengi sína, enda ekkert sem
bannar þeim skynsamleg vinnu-
brögð. Þess utan beindist nefnd-
ur minnislisti ekki gegn neinum
félaga í Alþýðubandalaginu í
Reykjavík.
Allir félagar Alþýðubanda-
lagsins hafa fyllsta rétt til þess að
hafa skoðanir og vinna að fram-
gangi þeirra. Það gildir jafnt um
þá sem hvöttu menn til þess að
kjósa lista uppstillingarnefndar í
Reykjavík og um þá sem unnu,
útbreiddu og notuðu margfrægan
minnislista. Félagar og forystu-
menn verða að horfast í augu við
niðurstöður í kosningum innan
flokksins, jafnvel þótt þeir séu
ósammála þeim.
Ég hvet því þá forystumenn
flokksins, sem óánægðir eru með
meirihlutavilja félagsmanna í
Reykjavík, til að gæta stillingar
sinnar og sjálfsvirðingar. En þó
sérstaklega að sýna félagsmönn-
um í Alþýðubandalaginu fyllstu
kurteisi.
Kristín Á. Ólafsdóttir,
varaformaður
Alþýðubandalagsins
Sundmng eða sameining
Einar Gunnarsson skrifar:
Þá liggur fyrir hverjir verða
fulltrúar Alþýðubandalagsins í
Reykjavík á landsfundi flokksins
í nóvemberbyrjun. Ég viður-
kenni að vonbrigði mín með
niðurstöðuna eru mikil og marg-
ar spurningar koma upp í hug-
ann.
Hver er orsök þess að duglegir
félagar með mikla pólitíska og fé-
lagslega reynslu eru ekki valdir til
að sitja landsfund? Hvers vegna
þykir Ólafi Ragnari og félögum
svo mikils um vert að koma í veg
fyrir að þeir séu fulltrúar á Iands-
fundi? Ér kannski hugsanlegt að
reynsla þeirra í flokks- og félags-
málum sé neikvæð fyrir Ólaf
Ragnar Grímsson? Getur verið
að það sé nauðsynlegt að halda
þeim frá landsfundi vegna þess að
þeir viti betur en margir aðrir
hvað þarf til að sameina fylkingar
vinstri manna?
Ólafur Ragnar hefur sagt í fjöl-
miðlum, eftir að úrslitin lágu
fyrir, að þessi mikli áhugi á Al-
þýðubandalaginu sé vegna þess
að fólk vilji „flokk sem klæðir
grundvallarhugmyndir sínar í
sósíalískan búning í nútíð og til
framtíðar" eins og hann kemst að
orði í DV sl. mánudag.
Ég fullyrði að þetta er alrangt,
eða hvernig eiga félagar í Al-
þýðubandalaginu í Reykjavík að
taka afstöðu til þessa þegar engar
umræður hafa farið fram um mál-
ið á vettvangi félagsins? Ólafur
Ragnar hefur skrifað langa
skýrslu um ástandið í flokknum
en almennum flokksfélögum hef-
ur hvorki gefist tækifæri til að
ræða efni hennar eða að kynna
sér hana, þaðan af síður að hann
hafi haft fyrir því að útskýra fyrir
almennum félögum hvað hann á
við þegar hann segir einn hóp
öðrum fremur vilja klæða grund-
vallarhugmyndir sínar í sósíalísk-
an búning í nútíð og framtíð.
Mjög margir af þeim sem tóku
þátt í kosningunni hafa alls ekki
látið sig málefni AB nokkru
skipta nema til að taka þátt í for-
vali og nú að kjósa fulltrúa á
landsfund. Það lýsir, því miður,
ekki innsæi í flokks- og félagss-
tarf, þegar óreyndir nýinn-
gengnir félagar fá fleiri atkvæði í
svo þýðingarmikilli kosningu en
t.d. formaður flokksins.
Það sem gerðist á félagsfundi
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
var þetta: Ólafur Ragnar Gríms-
son og félagar ákváðu að skipu-
leggja kosningu fulltrúa á lands-
fundinn. í því skyni gefa þeir út
lista yfir flokksfélaga sem þeir
telja nauðsynlegt að kosið sé
eftir. Þeir segjast jafnframt
treysta nefndum Ólafi best til að
sameina flokkinn.
Það eru til tvær leiðir til að
sameina alþýðubandalagsmenn
sem svo sannarlega hafa verið
sundraðir undanfarin ár. Önnur
er sú að skapa málefnalega sam-
stöðu, ræða mál, komast að
niðurstöðu og berjast svo sam-
eiginlega fyrir því sem fólk hefur
komið sér saman um. Til að þessi
leið sé fær verður að velja fólk til
trúnaðarstarfa sem leggur
áherslu á það sem sameinar þó
menn séu ekki á einu máli í öllum
atriðum. Hin leiðin, og það er sú
sem stuðningsmenn Ólafs beittu
á umræddum fundi, er að losa sig
við þá sem eru foringjanum
ósammála. Þá verður andrúm-
sloftið í flokknum að lokum bæði
friðsælt og eindrægnin mikil.
Rétt er það að félagsfundurinn
sl. fimmtudag var fjölmennur, en
það er því miður ekki nokkur
trygging fyrir því að hin mikla
fundarsókn standi í sambandi við
pólitískan áhuga. Ef svo væri þá
hefðum við séð þennan mikla
fjölda í pólitísku starfi fyrir Al-
þýðubandalagið. Því miður hefur
svo ekki verið og ef satt skal segja
lofa vinnubrögðin ekki góðu um
næstu framtíð Alþýðubandalags-
ins. Við þurfum á því að halda að
tengja saman ólíka hópa í flokkn-
um, nýliða og reynda félaga. Það
verður aldrei gert undir forystu
þeirra sem líta á það sem skyldu
sína að losa sig við þá sem ekki
eru á sama máli.
Einar Gunnarsson
ritari ABR,
formaður Félags blikksmiða
Þjóðkirkjan
Endurskoðun á starfsháttum
- Það er deginum Ijósara að
starfshættir kirkjunnar þurfa
endurskoðunar og endurnýjunar
við öðru hverju. Margt bendir til
- og er skoðun flutningsmanns -
að slík endurskoðun sé brýn nú
þegar þótt fyrr hefði verið.
Svo segir sr. Gunnar Kristjáns-
son í tillögu sinni um safnaðar-
uppbyggingu sem lá fyrir síðasta
Kirkjuþingi. Leggur sr. Gunnar
til að þingið beini því til biskups
að hann skipi nefnd 5 sérhæfðra
manna er geri áætlun um safnað-
aruppbyggingu og eflingu kirkju-
legs starfs almennt. Jafnframt
kanni nefndin kirkjusókn í kirkj-
um landsins og aðra starfsemi
safnaðanna.
Kirkjuþing féllst í megin-
atriðum á tillöguna en lagði til að
nefndarmenn yrðu 3 í stað 5.
Nefndin geri áætlun um hvað
starfið muni kosta og leggi hana
fyrir Kirkjuráð. Verði fram-
kvæmdir í samráði við ráðið og
það fé sem fyrir hendi er hverju
sinni. Nefndin hafi samráð við
undirbúningsnefnd að 1000 ára
afmæli kristnitökunnar á íslandi
og að því stefnt að verkefnið
tengist kristnitökuafmælinu. Þá
skal hún kveðja sér til ráðuneytis
sérhæfða aðila og gefi Kirkju-
þingi skýrslu um stöðu mála eigi
síðar en 1989. -mhg
’g sÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. október 1987