Þjóðviljinn - 21.10.1987, Blaðsíða 7
Umsjón:
Elísabet Kristín
Jökuisdóttir
Kvikmyndaleikstjóri hyggst
kvikmyndafjölskyldulíf. Um-
fram allt venjulegtfjölskyldulíf
til að gefa sanna mynd af
veruleikanum. Þrjár kynslóðir
koma við sögu, þrjú pörog
„brúðarmyndin" ervendi-
punktur í lífi þeirra; daginn
sem allt breyttist. Endaði og
hófst. Þegarfjölskyldaner
búin að fara hamförum á svið-
inu: Elskast, slást, þykjast,
sættast, reyna veikum mætti
að gera upp fortíðina, bjóða
framtíðinni heim - og deyja,
þá fer maður að efast um að
það sé nokkur kvikmyndaleik-
stjóri á sviðinu. Hvort þetta sé
ekki bara veruleikinn sjálfur,
sem útrýmir allri fantasíu,
með heljargreipum sínum;
stöðluðu lífsviðhorfi og vænti-
ngum.
Hver býr til veruleikann?
Hvernig förum við með veru-
leikann? Húsbóndinn stendur
ráðvilltur fyrir framan vélbrynj-
aðan kvikmyndaleikstjórann og
öskrar framan í persónugerving
veruleikans: Hver ertu? Og
myrkrið svaraði engu. Spegillinn
brestur og gefur engin svör. Þú
verður bara að treysta á sjálfan
þig á ferðalaginu, en það getur
verið erfitt því vegurinn er holótt-
ur af væntingum og meðfram
ferðalaginu standa háir múrar og
þú kemst ekki út af veginum og
þegar bílljósin nálgast í myrkr-
inu, áttu enga undankomuleið:
Þú ert keyrður í klessu. Lista-
maðurinn með sína sérstöku lífs-
sýn hefur komið sér fyrir uppi á
múrnum með hugsjónina í bak-
pokanum og ætlar væntanlega að
lýsa slysinu, orsök og afleiðingu -
og blóðinu...
Það er langt síðan spurt hefur
verið beint um hlutverk listarinn-
ar - og ábyrgð listamannsins. Er
hann skyldugur að taka á sig
meiri ábyrgð en aðrir? Þegar
listamaðurinn hefur orðið vitni
að mörgum slysum, er alveg eins
víst að þrengjast taki um hug-
sjónina í bakpokanum og að
hann komi ekki lengur auga á
dauðann sem skiptir lífið mestu.
Ábyrgð listamannsins segir
Gudmundur Steinsson vera
kveikjuna að nýjasta leikriti sínu,
„Brúðarmyndinni," sem frum-
sýnd verður í Þjóðleikhúsinu á
föstudagskvöld. Á síðstliðnu
hausti var „Brúðarmyndin*'
leiklesin á miklu leikskáldaþingi í
Eugene O’Neill-miðstöðinni á
austurströnd Bandaríkjanna og
vakti þar óskipta hrifningu.
Leikstjóri er Stefán Baldurs-
son og leikmyndahönnuður Þór-
unn Sigríður Þorgrímsdóttir.
Gunnar Reynir Sveinsson semur
tónlistina. Ásmundur Karlsson
er á ljósunum. Þau stóðu öll að
frumflutningi á Stundarfriði í
Þjóðleikhúsinu, fyrir nærfellt
áratug, en síðan hefur sá friður
verið á fjölum leikhúsa víða um
heim.
Kristbjörg Kjeld og Erlingur
Gíslason fara með hlutverk hjón-
anna sem eru miðdepill verksins.
Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert
Arnfinnsson leika foreldra frúar-
innar, Guðný Ragnarsdóttir
leikur dóttur þeirra, nýútskrifað-
ur Ieikari, Halldór Björnsson
leikur vin hennar. Guðrún Gísla-
dóttirleikm kvikmyndaleikstjór-
ann, Arnór Benónýsson aðstoð-
armann hennar og Sigurður
Skúlason leikur prest.
Leikritið Brúðarmyndin kem-
ur út á bók á frumsýningardag-
inn. Það er Svart á hvítu sem
stendur að útgáfunni. -ekj.
Guðný Ragnarsdóttir ( hlutverki dótturinnar. Allar myndirnar eru teknar á
æfingu.
Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gíslason.
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7
Fjölskylda undir smásjá
Stefán Baldursson leikstjóri: Þetta hefur allt sprottið út úr samvinnu
Stefán Baldursson, einn okk-
ar reyndasti leikstjóri og
fyrrum leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, setur
upp Brúðarmyndina.
- Hvaða leið valdir þú sem leik-
stjóri?
„Það var náttúrlega um margar
leiðir að velja eins og oft er. Þessi
fjölskylda er undir smásjá. Mér
fannst skipta máli að sýna, hvern-
ig fjölskyldan virkar venjulega og
hins vegar hver viðbrögð hennar
verða undir smásjá kvikmynda-
augans og hvernig allt breytist.
Nú er gert ráð fyrir því í leikrit-
inu, að heilu kaflamir séu endur-
sýndir í vídeótæki þar sem fjöl-
skyldan horfir á sjálfa sig. En við
töldum mikilvægara að sýna
áhorfendum viðbrögð fjölskyld-
unnar við þessum upptökum en
að sýna salnum upptökurnar. Þá
er leitast við að draga sýninguna,
skýrum sterkum dráttum, sjón-
rænt séð og þannig hefur verið
um nána samvinnu við leik-
myndateiknara að ræða. Þetta
sprettur allt út úr samvinnu."
- Er þetta venjuleg íslensk fjöl-
skylda?
„Að mörgu leyti já. En hún er
náttúrlega ýkt eins og gjarna ger-
ist í leikhúsi. Þannig reynir höf-
undur að sýna okkur hegðunar-
mynstur, sem staðnar oft í mann-
legum samskiptum. Fólk hættir
að horfa hvert á annað og áttar
sig ekki á því, nema undir
ákveðnum kringumstæðum.
Guðmundur hefur áður sent fólk
á sólarströnd. Nú notar hann
kvikmyndavél, sem er nærgöngul
og þrúgandi nærvera, inni á
heimilinu."
- Er leikritið frábrugðið öðrum
verkum Guðmundar?
„Efnislega já. Þetta er annar
rammi sem hann notar, en það
eru viss höfundareinkenni sem
ganga aftur. Hann er þarna að
fjalla um ábyrgð listamannsins,
hve langt hann getur gengið í list
sinni, gagnvart öðru fólki og þá
jafnframt um fómir hans, sem
bitna gjarna á þeim sem næst
honum standa. Og hvað verður
þá um alheimsástina, sem lista-
maðurinn lagði upp nteð?“ -ekj.
Hver býr tíl
veruleikann ?
Arnór Benónýsson, sem aðstoðarmaður kvikmyndaleikstjórans, Guðrún Gísladóttir í hlutverki kvikmyndaleikstjórans og
Kristbjörg Kjeld í hlutverki eiginkonunnar.
Ábyrgð listamannsins kveikjan að nýjasta leikriti Guðmundar
Steinssonar, Brúðarmyndinni