Þjóðviljinn - 21.10.1987, Síða 10
ERLENDAR FRÉTTIR
Tékkneskt efnahagslíf
Það „vorar“
hjá Husak
í Prag
Husak ogfélagar grípa nú til aðgerða í
efnahagsmálum sem um margt minna á
aðgerðir leiðtogans er þeir sjálfir tóku þátt í að
steypa, Alexanders Dubceks
Hinir öldnu leiðtogar Tékkó-
slóvakíu standa enn í skugga
innrásar herja Varsjárbanda-
lagsins árið 1968 sem tróð um-
bótastefnu Alexanders Dubceks í
svaðið. Nú hyggjast þeir hinsveg-
ar sjálfír brydda uppá ýmsu því í
efnahagsmálum sem talið var hin
mesta goðgá fyrir taepum tveim
áratugum.
Gustav Husak og félagar hafa
nýverið boðað stjórnaraðgerðir
sem ætlað er að losa lítillega um
járnkló miðstýringarvaldsins á
efnahagslífinu og auka sjálfstæði
fyrirtækja. Það er einkum tvennt
sem knýr leiðtogana úr sporun-
um. Fyrri orsökin er náttúrlega
hið slæma efnahagsástand. Hin
síðari er ótvírætt talin eiga rót að
rekja til umbótastefnu Míkaels
Gorbatsjofs í Moskvu og heim-
sóknar aðalritarans til Prag fyrr á
þessu ári.
En ólíkt nýsköpuninni í So-
vétríkjunum sem tekur til allra
þátta þjóðlífsins, svo sem vald-
dreifingar og endurskipulagning-
ar stjórnkerfisins, þá ná breyting-
arnar í Tékkóslóvakíu aðeins til
vissra þátta efnahagslífsins.
„Sú skoðun er býsna algeng í
Tékkóslóvakíu að landsmenn
hafi einu sinni farið yfir strikið og
verið harðlega refsað fyrir það.
Það er því líklegt að umbæturnar
sæti andstöðu, jafnvel frá verka-
mönnum,“ er haft eftir ónefnd-
um vestrænum sendimanni í
Prag.
Hann heldur áfram: „Menn
hafa áhyggjur af því að Gorbat-
sjof takist ekki ætlunarverk sitt
og sjá þar að auki hve slæma raun
nýmæli hafa gefið í Ungverja-
landi og Júgóslavíu. fhaldssemi
og varkárni virðast vera landlæg
viðhorf um þessar mundir."
Ota Sik. Husak og félagar drápu
„vorið í Prag" en þykjast nú ætla
að standa í umbótum.
Embættismenn viðurkenna að
þær aðgerðir sem nú er gripið til
beri um margt keim af því er
bryddað var uppá í „vorinu í
Prag“ árið 1968 og olli þá innrás
„bandamanna“ í Varsjárbanda-
laginu.
„Það eru vissar hliðstæður,
umbætur sem þá stóð til að gera
og umbætur er við hyggjumst
hrinda í framkvæmd nú eru
byggðar á sömu meginforsend-
um,“ segir talsmaður ríkisstjórn-
arinnar, Frantisek nokkur Kour-
il. „Munurinn er liggur hinsvegar
í því að allt fór úr böndunum árið
1968, undir lokin misstu bæði
kommúnistaflokkurinn og ríkis-
stjórnin tök á þróun mála.“
Samkvæmt nýmælunum munu
einstök fyrirtæki og markaðs-
lögmál fá aukna hlutdeild í efna-
hagslífinu en skrifræði flokks og
ríkis engu að síður hafa yfirum-
Reiðir, ungir menn mótmæla innrás herja Sovétmanna og annarra Varsjárbandalagsríkja árið 1968. „Gorbatsjof
kynslóðin var rekin úr flokknum."
sjón með öllu.
„Hlutverk miðstýringarstofn-
ana verður að fást við margvísleg
verkefni sem aðeins er hægt að
leysa á æðstu stöðum, til að
mynda langtímaþróun í efna-
hagsmálum eða endurskipulagn-
ingu efnahagslífsins." Þannig
mælir Milos nokkur Werner, að-
stoðarforstjóri stjórnstofnunar
efnahagslífsins. „Framvegis
munu fyrirtæki ekki einvörðungu
taka á móti og framfylgja skipun-
um að ofan heldur verður þeim
gert kleift, og þær raunar skyld-
aðar til, að taka frumkvæðið en
innan ákveðins ramma sem
miðstjórnarvaldið setur.“ Wern-
er var spurður að því hvort ekki
væri óframkvæmanlegt að sam-
ræma tvö gagnólík efnahagskerfi
þannig að einhver árangur næð-
ist. „Við erum fullvissir um að
það er hægt en það væri einfeldni
ef við segðum allt liggja í augum
uppi. Við verðum að þreifa okk-
ur áfram og gera tilraunir."
Verið er að gera tilraunir með
ýms þessara nýmæla í 22 fyrir-
tækjum vítt og breytt um landið.
Til dæmis hafa fulltrúaráð verka-
manna í þrem verksmiðjum kjör-
ið sér framkvæmdastjóra en sá
háttur verður hafður á í framtíð-
inni. Fram til þessa hafa þeir ver-
ið skipaðir af ríkisstjórninni.
Mörgum erlendum og ýmsum
innlendum hagfræðingum er
mjög til efs að aðgerðirnar skili
tilætluðum árangri ef ekki verður
hróflað við verðmyndunarkerf-
inu þannig að vöruverð verði í
beinu samræmi við framleiðslu-
kostnað.
Dæmin sanna að verðlagning
er mjög eldfimt mál í Austur-
Evrópu. Oft gerist það að til
óeirða kemur ef vöruverð, eink-
um á lífsnauðsynjum, hækkar að
ráði. Atburðirnir í Póllandi á
öndverðum þessum áratug eru
skýrt dæmi um þetta.
En megin þrándurinn í götu
umbótanna er, að mati tékkn-
eskra andófsmanna og fleiri, sú
staðreynd að þeim er hrint í fram-
kvæmd af sömu íhaldsfauskunum
og höfðu forgöngu um að kveða
niður umbæturnar árið 1968.
„Meginvandi kommúnista-
flokks Tékkóslóvakíu er sá að þar
er engin „Gorbatsjof kynslóð“
því flestir gáfuðustu einstakling-
anna á hans aldri voru reknir úr
flokknum í kjölfar innrásar herja
Varsjárbandalagsins," var nýlega
haft eftir ónefndum andófs-
manni.
Ota Sik var einn af leiðtogum
umbótastjórnar Alexanders Du-
bceks á ofanverðum sjöunda ár-
atugnum og helsti höfundur efna-
hagsstefnu hennar. Hann býr nú í
Sviss. Nýlega var komið að máli
við hann um breytingabrölt
Husaks og félaga. Honum fórust
orð meðal annars á þessa lund:
„Gorbatsjof getur stigið fram á
sjónarsviðið sem einstaklingur er
enga ábyrgð ber á axarsköftum
forvera sinna. En allir tékknesku
leiðtogarnir tóku þátt í lífláti
„vorsins í Prag.““
-ks.
Mengun hafsins
Barngóð kona
óskast til að gæta 11 mánaða stráks á heimili
hans á Flókagötunni frá kl. 12-18 fimm daga
vikunnar.
Upplýsingar í síma 28412 eftir kl. 18 á daginn.
Fóstrur athugið
Ein heil staða og ein hálf staða lausar hjá okkur í
Steinahlíð. Komdu og kynntu þér staðinn og
starfið. Upplýsingar í síma 33280.
18.30
UTVARP Mjolmsholti 14 Brautarholti 3
Simi 62 36 10 (tvær linur)
Danskir sjómenn stöðvuðu eiturskipið í Norðursjónum
Asunnudag vannst sá sigur - ef
til vill tímabundinn - í barátt-
unni við úrgangsskipið Vulcanus
annan í Norðursjó, að dönskum
sjómönnum tókst að flækja
skrúfu skipsins í trolli og var þá
slökkt á öllum þrem brennsluofn-
um skipsins
Greenpeacemenn og danskir
sjómenn hafa í sameiningu reynt
að koma í veg fyrir að Vulcanus
brenndi um 3000 tonn af eit-
ruðum úrgangsefnum á Norður-
sjó, og hófst sá slagur í síðustu
viku með miklum vatnsslag í
Rotterdam áður en Vulcanus
lagði þar úr höfn.
Greenpeacemenn sögðust á
sunnudag ánægðir með að ofnar
skipsins voru stöðvaðir en ekki
voru þeir eins glaðir yfir aðferð-
inni - töldu jafnvel að sjómenn-
irnir dönsku hefðu ekki beitt
nógu friðsamlegum aðferðum við
að skipuleggja „ óhapp “ þetta.
í leiðara um málið segir danska
blaðið Information á þessa leið:
Enda þótt fiskiskip og skip
náttúruverndarmanna geti ekki
haldið uppi samfleytt siglinga-
Þegar slagurinn hófst: Greenpeacemenn reyna að komast um borð í eitur-
skipið Vulcanus II.
banni á eiturskipin, þá getur ver-
ið að mótmælaaðgerðir af því tagi
sem nú eru stundaðar verði virk-
ari en fundahöld sérfræðinga og
stjórnmálamanna. Á þeim fund-
um hefur því verið slegið föstu
fyrir löngu að eiturbrennsla á hafi
úti sé forkastanleg og að það
verði fyrir árið 1990 að ná
samkomulagi um það hvenær eigi
að hætta þessum ósóma. En
smám saman hafa menn verið að
fresta ákvörðunum um þetta mál,
og margt bendir til þess að ýmis
ríki vilji reyna að lögleiða brenns-
lu þessa með einhverjum ráðum.
áb.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. október 1987