Þjóðviljinn - 21.10.1987, Qupperneq 11
■mmÖRFRÉTTIRbhbbbi
Forseti
El Salvador, Jose Napóleon Du-
arte, er nú staddur í Hollandi.
Hann ræddi við fréttamenn í gær
og sagðist andvígur því að
Bandaríkjastjórn héldi áfram fjár-
stuðningi við Kontraliða í Nicar-
agua. Ennfremur hvatti hann
Evrópuríki til þess að skipta sér í
auknum mæli af málefnum Mið-
Ameríku til þess að vega upp á
móti áhrifum Bandaríkjamanna.
Ekki voru Duarte vandaðar
kveðjurnar í Haag þar sem hann
hélt blaðamannafundinn. Um
150 mótmælendur hrópuðu f sí-
bylju „morðingi!", „morðingi!" er
hann kom út af fundi, hrækt var
að honum og hnefahögg látin
dynja á bifreið hans.
Forsetl
Frakklands, Francois Mitterrand,
er nú staddur í opinberri heim-
sókn í Vestur-Þýskalandi í boði
Helmuts Kohls vinar síns. Á dag-
skrá hans eru viðræður við
kanslarann um leiðir til að treysta
enn frekar gott samband
grannríkjanna og nána samvinnu
ríkja Vestur-Evrópu. Þetta mun
vera fyrsta opinbera heimsókn
Mitterrands til Vestur-Þýska-
lands en þar hefur hann engu að
síður verið tíður gestur á undan-
förnum árum.
Nicaragua
Kontrafbringi
leitar sátta
Að sögn ríkisútvarpsins í Man-
agua, höfuðborg Nicaragua,
hyggst Edgar Chamorro, fyrrum
Kontraforingi, snúa heim og leita
sátta við stjórnvöld í landinu.
Ríkisstjórn landsins hefur marg-
sinnis ítrekað að sérhverjum
kontraliða er snýr aftur verði
gefnar upp sakir. Þessi fyrirheit
kváðu vera orsök afturhvarfs
Chamorros sem og ýmsar tilslak-
anir ríkisstjórnarinnar gagnvart
andstæðingum sínum innan-
lands.
Chamorro var einn af helstu
stjórnmálaforingjum Kontralið-
anna allar götur frá valdatöku
Sandinista í Nicaragua árið 1979
og fram til ársins 1984 að hann
var rekinn úr samtökum þeirra
fyrir að saka tvo féiaga sína um
misnotkun bandarísks stuðnings-
fjár. Að undanförnu hefur hann
gagnrýnt fyrrum vopnabræður
sína harðlega fyrir gróf
mannréttindabrot og hryðju-
verk. —ks.
I
Wall Street. Táraflóðið f rónun.
ERLENDAR FRÉTTIR
Sri Lanka
Indverjar
senda liðsstyrk
Tamíltígrar saka indverska hermenn um
ofbeldisverk gegn óbreyttum borgurum í
Jaffnaborg en Indverjar vísa því á bug
Indverjar sendu enn frekari
liðsstyrk til Sri Lanka í gær en
heimildamenn úr röðum tamíla
og erlendra sendiráðsmanna í
höfuðborginni Kólombó efast um
að það nægi til að brjóta skæru-
liða Tígrasamtakanna á bak aftur
og telja að þeir reyni nú að læðast
út úr Jaffna í skjóli myrkurs.
Þúsundir tamflskra flótta-
manna halda áfram að streyma
frá átakasvæðum á Jaffnaskaga
suður til miðhéraða landsins.
Fullyrða þeir að Jaffnaborg sé ein
samfelld sprengjugildra fyrir ind-
verska hermenn og því fari þeir
sér hægt í sókninni á hendur Tíg-
runum.
Ennfremur kveða þeir kúlna-
og sprengiregn á undanförnum
dögum hafa lagt stóran hluta
húsa í borginni í rúst og að rotn-
andi lík liggi einsog hráviði um
allar götur. Bæði Indverjar og
Tígrar hafi orðið fyrir miklu
mannfalli.
Fyrirliðar Tígranna hafa ítrek-
að krafist þess að Rauði krossinn
láti fara fram hlutlausa rannsókn
á rétmæti þeirra fullyrðinga sinna
að Indverjar hafi gerst sekir um
ofbeldisverk í garð óbreyttra
Japan
Takeshita
erfir Nakasone
Forsætisráðherra Japans, Yas-
uhiro Nakasone, útnefndi
snemma í gærmorgun arftaka
sinn í embætti forseta Frjálslynda
lýðræðisflokksins en sá flokkur
hefur farið með völd í landinu um
langt árabil. Forseti hans gegnir
ætíð embætti forsætisráðherra.
Lukkunnar pamffllinn heitir
Noboru Takeshita og gegndi
hann til skamms tíma stöðu fjár-
málaráðherra. Hann þykir ærið
gætinn og litlaus stjórnmálamað-
ur, mikili sáttamaður en gersam-
lega reynslulaus í utanríkismál-
um.
Hann var ekki einn um að
sækjast eftir æðstu metorðum
japanskra stjórnmála. Tveir
flokksbræðra hans öttu kappi við
hann. Þeir eru núverandi fjár-
málaráðherra, Kiichi Miyazawa,
og fyrrum utanríkisráðherra
landsins, Shintaro Abe.
Þrátt fyrir formleg leiðtoga-
skipti er talið að Nakasone verði
eftir sem áður „sterki maðurinn"
Verðandi forsætisráðherra Japans,
hinn gætni Noboru Takeshita.
í japönskum stjórnmálum. Frétt-
askýrendur eru almennt þeirrar
skoðunar að framundan sé tíma-
bil „samvirkrar forystu“ Takes-
hitas, Nakasones, Miyazawas og
Abes. -ks.
Wall Street
Eyjólfur hressist
Skýr batamerki á verðbréfamarkaði Wall
Street. Hagfræðingar vara við móðursýki
Bandarísk verðbréf hækkuðu
nokkuð í verði í gær eftir
hrunið mikla á mánudag. Þá
lækkuðu bréf um 508 stig eða
22,6 af hundraði en í gær hækk-
uðu þau á ný um 104 stig. Það er
því talið öruggt að efnahagskerfi
Bandaríkjanna riðar ekki til falls.
Verðhrunið í Wall Street hafði
áhrif vítt og breitt um heiminn. í
Lundúnum féll verð á bréfum um
12,2 af hundraði og í Tókýó um
14,9 af hundraði. Alls er talið að
hlutarfjáreigendur í heiminum
hafi tapað 80 þúsund miljónum
króna í fyrradag og fyrir helgi!
Ýmsir rekja orsök verðfallsins
í Wall Street á mánudag og fyrir
helgi til ágreinings bandarískra
og vesturþýskra stjórnvalda um
vaxtamál. Aðrirsegjaskýringuna
liggja í því að bandarísk verðbréf
hafi að undanförnu verið skráð á
allt of háu verði og því hafi lækk-
un verið óhjákvæmileg. Hinsveg-
ar hafi það komið ölium í opna
skjöldu hve skjót og mikil lækk-
unin varð.
í gær gekk hagfræðingur undir
hagfræðings hönd til að sannfæra
menn um að verðhrunið nú
myndi ekki hafa jafn alvarlegar
afleiðingar í för með sér og verð-
fallið árið 1929 sem markaði upp-
haf kreppunnar miklu. Ekki var
það að ófyrirsynju því viðbrögð
bandarískra dagblaða í gær við
verðhruninu voru ekki þess leg
að þau drægju úr ótta almenn-
ings.
I Vesturheimi gat að líta blaða-
fyrirsagnir á borð við þessar í
gær: „Hrun!“, „Blóðbað!" og
„Ragnarök!" -ks.
Indversklr dátar á Sri Lanka. Þeir eru nú 18-20 þúsund talsins og þorri þeirra
berst við Tígra í og við Jaffnaborg.
borgara í Jaffna. Indverjar hafa
vísað þessum ásökunum á bug.
Heimildamenn í Nýju-Delhi,
höfuðborg Indlands, sögðu í gær
að stjórnin hefði sent liðsauka til
Sri Lanka. Á tímabilinu frá
fimmtudegi til gærdags hefði á að
giska 4-6 þúsund hermönnum
verið flogið til eyríkisins og ættu
þeir að taka þátt í bardögum við
Tígra. í og við Jaffnaborg eru nú
um 8 þúsund indverskir hermenn
auk 6 þúsund annars staðar á Sri
Lanka.
Indverjar kváðust í fyrradag
hafa náð miðborg Jaffna á sitt
vaid eftir að hafa barist sleitu-
laust við Tígra í tíu daga en viður-
kenndu í gær að hersveitir þeirra
mættu enn harðri mótspyrnu í
borginni.
Heimildamenn í Kólombó
sögðu í gær að óvíst væri hvort
sigur Indverja á Tígrum í Jaffna
myndi þýða endalok andspyrnu
skæruiiðanna. „Sigur Indverja
þar í borg væri vissulega mjög
þýðingarmikill en ekki er víst að
það verði lokasigur yfir skærulið-
unurn," sagði einn þeirra. Og
annar bætti við: „Verið gæti að
þeir héldu bardögum áfram í au-
stri þar sem búa menn af fjöl-
mórgum þjóðabrotum og þeir
yrðu án efa mjög mannskæðir-
...eða þá að þeir sigldu á bátum
yfir Jaffnalón og hyrfu inní frum-
skógana." -ks.
Húsvörður
Staða húsvarðar við Menntaskólann á isafirði er laus til umsóknar.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 1988.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til
skólameistara Menntaskólans á isafirði sem veitir nánari upplýs-
ingar.
Menntamálaráðuneytið
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla:
Vlð Menntaskólann á ísafirði er staða stærðfræðikennara laus til
umsóknar. Ráða þarf í stöðuna hið allra fyrsta og gefur skóla-
meistari nánari upplýsingar.
Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði er staða kennara í viðskipta-
greinum laus frá áramótum. Umsóknarfrestur til 15. nóvember.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneýtinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
Q
KVENNA
ATHVARF
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 22.
okt. kl. 20.30 að Hallveigarstöðum (gengið inn
Öldugötumetin).
Gestur fundarins, Carla Risseeuw, mun sýna
kvikmynd um sifjaspell.
Samtök um kvennaathvarf
Iðnskólinn
í Reykjavík
Námskeið í Ijósaskoðun bifreiða verður haldið
í Iðnskólanum í Reykjavík laugardaginn 24. októ-
ber kl. 8 til 17. Skráning er í síma 26340 frá kl. 8 til
16. Námskeiðsgjald kr. 2.000,- greiðist við
innritun.
Iðnskólinn í Reykjavík
Miðvikudagur 21. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11