Þjóðviljinn - 21.10.1987, Blaðsíða 16
681333 Kvöldsími' Þjónusta íþínaþágu
681348 & SAMVINNUBANKI W ISLANÐS HF.
681663
Mlðvikudaour 21. október 1987 234. tðlublað 52. órgangur
Hvalveiðar
Háhymingar veiddir
Félagið Fána veiðir 4 háhyrninga til að létta á skuldum Sœdýrasafnsins. Helgi Jónasson: Vil
ekkertsegjaummálið. Óttast viðbrögð hvalfriðunarsinna
Mótorbáturinn Guðrún frá
Hafnarfirði er fyrir austan
land á háhyrningsveiðum. Ætl-
unin er að veiða fjóra háhyrninga
fyrir fyrirtækið Sea World í
Bandaríkjunum. Það er félagið
Fána sem sér um þessar veiðar
hér á landi, en það félag er ná-
tengt Sædýrasafninu og er til-
gangur veiðanna að létta á
skuldum einstaklinga sem hafa
gengið f skuldbindingar vegna
Sædýrasafnsins.
Helgi Jónasson, formaður
Fánu, vildi ekkert segja um þess-
ar veiðar. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans óttast þeir sem
standa að veiðunum allt umtal
um þær vegna hvalfriðunar-
manna vestanhafs.
Jóhann Sigurjónsson hjá Haf-
rannsóknastofnun sagði að sjáv-
arútvegsráðuneytið hefði veitt
leyfi fyrir að fjórir háhyrningar
yrðu veiddir og seldir úr landi.
Sagði hann að maður á vegum
Hafrannsóknastofnunar væri um
borð í Guðrúnu til að fylgjast
með veiðunum fyrir austan.
Háhymingsveiðar heyra ekki
undir Alþjóða hvalveiðiráðið,
þar sem háhyrningar eru veiddir
lifandi, að sögn Jóhanns.
-Sáf
Skák
Jóhann
hélt jjöfnu
Karpofgaffjórðu skákina
Jóhann Hjartarson tefldi í gær
við sovéska stórmeistarann Salof
á stórmótinu í Belgrad í Júgósla-
víu og sömdu þeir um jafntefli
eftir 47 leiki. Jóhann stýrði svörtu
mönnunum. Hann hefur nú 2
vinninga eftir 3 umferðir.
í gær gaf Karpof áskorandi
fjórðu skák einvígis síns og
Kasparofs heimsmeistara. Þar
með hefur Kasparof jafnað
metin. Staðan er nú 2-2 og verður
fimmta skákin tefld í dag.
Alþingi
Nýtt
bjórfnimvarp
Jón Magnússonflytur
nýtt bjórfrumvarp.
Ekki farið fram á
þjóðaratkvœði. Mjótt
á munum í efri deild
Enn einusinni gera þingmenn
atlögu að áfengislöggjöflnni i
því skyni að leyft verði að brugga
og neyta áfengs bjórs á íslandi.
Jón Magnússon, varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins, lagði í gær
fram nýtt „bjórfrumvarp“ en
meðflutningsmenn hans eru Geir
Haarde, Guðrún Helgadóttir og
Ingi Björn Albertsson.
Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um mál-
ið, heldur að gert verði út um það
á Alþingi.
„Það hvarflaði ekki að mér að
fara fram á þjóðaratkvæða-
greiðslu um þetta mál,“ sagði Jón
Magnússon við Þjóðviljann í gær.
Sagði hann að skoðanakannanir
sýndu þá ótvíræðu niðurstöðu að
meirihluti þjóðarinnar væri
hlynntur því að áfengur bjór væri
seldur hér á landi.
Jón sagðist vona að frumvarpið
kæmi til fyrstu umræðu ekki
seinna en nk. mánudag.
Samkvæmt könnunum sem
gerðar hafa verið er meirihluti al-
þingismanna hlynntur því að ieyft
verði að selja áfengt öl í verslun-
um ríkisins, hinsvegar gæti skipt-
ing þingmanna í deildir haft áhrif
á framgang málsins því mjótt
mun vera á mununum í efri deild
Alþingis.
I fyrra var talið að bjórsala
myndi skila um 900 milljónum í
ríkiskassann á ári, þannig að
reikna má með því að sú tala sé
komin yfir milljarðinn. -Sáf
Verðbólga
Komin
yfir 33%
Lánskjaravísitalan hækkaði í
sl. mánuði um 2.45% og um-
reiknað til árshækkunar
jafngildir það 33.7% verðbólgu í
mánuðinum.
Síðustu þrjá mánuði hefur
lánskjaravísitalan hækkað um
24.5% á ársgrundvelli og 21.4%
miðað við síðustu 12 mánðuði.
Fulltrúarfráfélagasamtökunum sem viljafélagslega húsnæðisstefnu. F.v. Ólöf Ríkharðsdóttir, Asta Þorsteinsdóttir, Sigurjón Þorbergsson, Reynir Ingibjarts-
son og Kristín Jónsdóttir. Mynd Sig.
Ráðstefnuhald
Félagslegt þakyfir höfuðið
Átta almannasamtök með tugi þúsunda félagsmanna boða til
ráðstefnu á Sögu áföstudaginn um mótunfélagslegrarhúsnœðisstefnu
Félagasamtökin átta hafa sam-
einast um þörflna fyrir félags-
legt húsnæði. Við stefnum að
ákveðnu marki, félagslegri hús-
næðisstefnu, og þessi ráðstefna er
liður í því, sagði Ólöf Ríkharðs-
dóttir, fulltrúi Öryrkjabanda-
lagsins, á fundi með blaða-
mönnum í gær.
Þau félagasamtök önnur sem
boða til ráðstefnunnar eru Sjálfs-
björg, landssamtök fatlaðra,
Þroskahjálp, Samtök aldraðra,
Bandalag íslenskra sérskóla-
nema, Stúdentaráð, Leigjenda-
samtökin og Búseti, landssam-
band húsnæðissamvinnufélaga.
Starfshópur ofannefndra sam-
taka hefur látið gera tillögur að
lagafrumvarpi um félagslegar
íbúðabyggingar, en höfuðmark-
miðið er að stuðla að jafnrétti í
húsnæðismálum milli þjóðfélags-
hópa og valfrelsi, þannig að
leigjendum og eigendum íbúðar-
húsnæðis sé gert jafnhátt undir
höfði. Þá er lögð áhersla á aukið
jafnræði milli byggðarlaga og
landshluta.
í lagafrumvarpsdrögunum er
gert ráð fyrir því að núverandi
Byggingarsjóði verkamanna
verði breytt í svokallaðan Félags-
íbúðasjóð og jafnframt verði
hlutverk sjóðsins aukið, þannig
að það spanni svið félagslegra
velferðaraðgerða á sviði húsnæð-
ismála í heild sinni.
Þá fela tillögumar í sér
stjórnkerfisbreytingar á hinu fé-
lagslega íbúðalánakerfi; gert er
ráð fyrir sérstakri þingkjörinni
stjórn fyrir félagslega lánasjóð-
inn. Ekki er gert ráð fyrir setu
fulltrúa hagsmunaaðila í stjórn-
inni eins og nú er í húsnæðismála-
stjórn.
Samkvæmt tillögunum yrði
fjármögnun mun öflugri en nú er,
þar sem lögfest yrði að einn þriðji
andvirðis skuldabréfasölu líf-
eyrissjóða til húsbyggingarsjóð-
anna rynni til félagsíbúðasjóðs-
ins.
Þá gera tillögur félagasamtak-
anna fímm ráð fyrir meðvituðum
aðgerðum í því skyni að draga úr
núverandi misræmi í fjárstreymi
húsnæðislánakerfisins til hinna
ýmsu landshluta.
Ráðstefnan hefst á föstu-
dagsmorguninn klukkan hálftíu á
Hótel Sögu með ávarpi fé-
lagsmálaráðherra, Jóhönnu Sig-
Bara eiim
að er hungurganga í flsk-
bransanum eins og stendur og
útgerðaraðilar hér nyrðra hafa
engan fisk aflögu til að selja á
Fiskmarkaði Norðurlands á með-
an við höfum varla hráefni til að
standa undir dagvinnu í físk-
vinnslunni vegna lélegra gæfta og
fiskskorts, sagði Róbert Guðfinns-
son, framkvæmdastjóri Þormóðs
ramma hf. á Siglufirði, en fyrir-
tækið er meðal þeirra sem tengd
eru við sölukerfi Fiskmarkaðar-
ins á Norðurlandi.
Frá því að Fiskmarkaður
Norðurlands á Akureyri tók
urðardóttur. Ráðstefnan er
öllum opin, en fjölmörgum fé-
lagasamtökum, stofnunum og
sveitarstjórnum hefur verið boð-
ið að taka þátt í umræðunum.
HS
söludagur
formlega til starfa um síðustu
mánaðamót hefur aðeins ein sala
farið fram í gegnum hann. Þá
voru seld nokkur tonn, rétt til að
prufukeyra sölukerfiö sem fram
fer í gegnum tölvur.
„Draumurinn er að fá þessa
stærri útgerðaraðila til þess að
selja allan þann fisk sem togar-
arnir afla á markaðinum svo fisk-
markaðurinn standi undir nafni
og eitthvert mark sé á honum tak-
andi,“ sagði Sigurður P. Sig-
mundsson framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðs Norðurlands.
-grh
Fiskmarkaður Norðurlands