Þjóðviljinn - 23.10.1987, Síða 1
Föstudagur 23. október 1987 236. tölublað 52. örgangur
ASI-BSRB
Hvatt til samruna
Hrafnkell A. Jónsson hvetur tilsamruna ASÍog BSRB.
Kristján Thorlacius, formaður BSRB: Nýlunda að heyra
þettafrá þessum armi verkalýðshreyfingarinnar. BSRB hefur
ekki staðið í vegifyrir samstarfi við ASI
Eg hef lengi verið þeirrar skoð-
unar að margskipt og klofin
verkalýðshreyfing gerði ekki öðr-
um gagn en atvinnurekendum.
Eg teldi heppilegra að ASI og
BSRB hefðu samstarf um mótun
samræmdrar launastefnu og
stefnt verði að uppbyggingu
heildarsamtaka launafólks, sagði
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
verkalýðsfélagsins Árvakurs á
Eskifirði.
Hrafnkell viðrar sömu skoðan-
ir í greinargerð með tillögu til
þings Verkamannasambandsins
um að skorað verði á miðstjórn
ASÍ að lagðar verði fram á næsta
ASÍ-þingi mótaðar tillögur til
breytinga á uppbyggingu og
starfsháttum verkalýðshreyfing-
arinnar.
- Núverandi skipulag verka-
lýðshreyfingarinnar hefur leitt til
algerrar ringulreiðar í baráttu
launþega fyrir bættum kjörum. í
staðinn fyrir einhuga hreyfingu
með skýr markmið og öflugan
stuðning tugþúsunda félaga á bak
við sig, megum við horfa uppá
sundraða hópa sem att hefur ver-
ið saman í slagsmál um skýrt af-
Ríkisstjórnin
3 minni-
hlutastjórnir
Eru stjórnarfrumvörp
frumvörp
ríkisstjórnarinnar eða
einstakra ráðherra?
„Er það svo að hér á landi sitji
þrjár minnihlutastjórnir en ekki
venjuleg ríkisstjórn?“ spurði
Stcigrímur J. Sigfússon á Alþingi
í gær.
Steigrímur kvaddi sér hljóðs
um þingsköp í upphafi fundar
sameinaðs þings í gær og spurði
hvort þingmenn gætu átt von á
því að öll svokölluð ríkisstjórn-
arfrumvörp verði lögð fram án
stuðnings ríkisstjórnarflokkanna
einsog nú hefur gerst í tvígang,
eða hvort þessi nýskipan mála
eigi bara við um fjárlagafrum-
varpið og húsnæðisfrumvarpið.
Töluverðar umræður spunnust
um þetta mál og lýsti Þorsteinn
Pálsson því yfir að þessi frumvörp
væru ríkisstjórnarfrumvörp.
Svavar Gestsson benti á að það
væri ágreiningur í öllum stjórn-
arflokkunum vegna þessara
frumvarpa.
Ýmsir fleiri tóku til máls en í
lok umræðunnar sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon að það væri mikil-
vægt að fá þessi mál á hreint því
um 4000 manns biðu eftir lánslof-
orði frá húsnæðisstofnun en þau
verða ekki veitt fyrr en frumvarp
Jóhönnu Sigurðardóttur verður
afgreitt.
-Sáf
markaðan hluta þjóðarkökunn-
ar, segir Hrafnkell í greinargerð-
Kristján Thorlacius, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, sagði er hann var inntur
eftir áliti sínu á þessari hugmynd
Hrafnkels, að það hefði ekki
staðið á BSRB að efla samstarf
samtakanna.
- Ég fagna því að þessi sjón-
armið hafi verið sett fram af hálfu
aðila innan ASÍ. Óeining launa-
fólks hefur löngum verið ógæfu-
efni íslenskrar verkalýðshreyf-
ingar. Aukið samstarf milli
BSRB og ASÍ gæti hæglega orðið
grundvöllur síðar að stofnun
einna heildarsamtaka verkalýðs-
hreyfingarinnar. Allt samstarf
þessara samtaka um kjaramál tel
ég vera til heilla, sagði Kristján.
-rk
Nóbelsverðlaun
Brodskí
hreppir
hnoss
Það verður rússnesk/banda-
ríska Ijóðskáldið Jósef Brodskí
sem hlýtur bókmenntaverðlaun
Nóbels í ár. Þessar fréttir lét sæn-
ska bókmenntaakademían berast
út um víða veröld í gær.
Brodskí fæddist í Leníngrað
árið 1940 og er því 47 ára gamall.
Hann komst snemma uppá kant
við ráðamenn eystra sökum yrk-
inga sinna og var vistaður í þræla-
kistu um átján mánaða skeið á
árunum 1963 og 1964. Árið 1972
var hann rekinn í útlegð og nú býr
hann í Bandaríkjunum. Brodskí
yrkir á rússnesku.
Sjá nánar á bls.8
Albert Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Útvegsbankans, gaf viðskiptaráðherra holl ráð áður en ráðherrann kvað upp úr með að hvorki SÍS né
KR-ingar fengju meirihlutaeign í Utvegsbankanum. Mynd E.ÓI.
SÍS/KR
Hvorugur feer bankann
Utandagskrárumrœður um Útvegsbankasöluna. Viðskiptaráðherra lýsirþvíyfirað
hvorugur tilboðsgjafinnfái meirihluta íbankanum. Svavar Gestsson: Mikið íhúfi að tekið sé á
bankamálum af myndarskap, en það hefur ráðherra ekki gert
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði á Alþingi í gær, að
hann hefði ekki hug á að afhenda
annaðhvort SÍS eða KR-ingum
meirihlutaeign í Útvegsbankan-
um. Sagði hann að tilboð beggja
tilboðsgjafa væru enn í athugun
og að hann ætti enn í viðræðum
við þá um leið sem stuðlaði að
dreiHngu eignaraðildar í bankan-
um, en stefndi jafnframt að sam-
einingu banka.
Það var Svavar Gestsson sem
hóf umræðu um bankasöluna
utandagskrár á Alþingi. Spurði
hann viðskiptaráðherra hvernig
hann hygðist leysa úr því klúðri
sem Útvegsbankamálið væri nú
komið í, en þjóðin ætti heimtingu
á skýrum svörum. Sagði Svavar
að sú leið sem valin hefði verið
við söluna væri versta leiðin af
fjórum sem verið hefðu til um-
ræðu, en auk þess hefði viðskipt-
aráðherra tekið málið vetlinga-
tökum. Sagði Svavar mjög mikil-
vægt að tekið væri á bankamálun-
um af myndarskap.
Viðskiptaráðherra neitaði því
að hann hefði klúðrað málinu.
Sagðist hann vera að vinna að
lausn málsins, en eftilvill væri
skynsamlegt að bíða eftir niður-
stöðu matsnefndar á eignum og
skuldum bankans, en sú niður-
staða er væntanleg um áramót og
verður birt þingheimi strax.
Það vakti athygli við um-
ræðuna að enginn framsóknar-
maður tjáði sig, hinsvegar tóku
þrír þingmenn Borgaraflokksins
til máls, þeir Ingi Björn Alberts-
son, Hreggviður Jónsson og
Guðmundur Ágústsson. Voru
þeir á því að SÍS ætti bankann þar
sem það hefði verið fyrra til.
-Sáf
Miklilax h/f í Fljótum
Laxahrogn til Chile
Við höfum gengið frá sölu á 1.5
milljón laxahrognum til Sant-
iago í Chile fyrir mjög hátt verð.
Þau verða flutt í þartilgerðum
plasteiningum með flugi í des-
emberbyrjun, fyrst til Bandaríkj-
anna og þaðan suður á bóginn, en
þau þola ekki nema tveggja sólar-
hringa geymslu, segir Reynir
Pálsson, framkvæmdastjóri lax-
eldisstöðvarinnar Miklalax Vf í
Fljótum í samtali við Þjóðviljann.
Að sögn Reynis er áformuð
sala á 400 þúsund laxaseiðum
annaðhvort til írlands eða Nor-
egs á næsta ári. Þau seiði verða
um 40-70 grömm að þyngd.
Laxeldisstöðin Miklilax h/f í
Fljótum var stofnað síðsumars í
fyrra. Eigendur þess eru heima-
menn í Fljótum og einstaklingar á
Siglufirði, en heimamenn eiga
um 70% í fyrirtækinu.
-grh