Þjóðviljinn - 23.10.1987, Blaðsíða 2
Elísabet Ólafsdóttir,
skrifstofustjóri
Mér finnst hún vera fáránleg.
Heilbrigðisyfirvöld með yfirdýra-
lækni í broddi fylkingar eiga að
ráða þessum málum um leyfis-
veitingar, eins og lög gera ráð
fyrir.
Theodór Söebech,
verkamaöur
Þetta lyktar allt af kjördæmapoti.
Málið heyrir undir landbúnaðar-
ráðuneytið og þar á að taka
ákvörðun um sláturleyfið en ekki
á þingi.
Örn Hauksson,
tækjamaður
Ég er fylgjandi afstöðu yfirdýra-
læknis í málinu. Þingmenn eru
aðeins að hugsa um sitt fólk í
kjördæminu og ekkert annað.
Tómas Tómasson,
matreiðslumaður
Mér finnst að öll sláturhús eigi að
fá vissan aðlögunartíma til að
fullnægja heilbrigðiskröfum, en
ekki að ganga að sláturhúsum
með offorsi.
Sigrún Jóhannsdóttir,
húsmóðir
Mér finnst hún fáránleg. Það var
rétt að taka af þeim sláturleyfið
því þeir voru búnir að fá nógu
langa undanþágu.
hSPURNINGIN—
Hvað finnst þér um
sláturhúsdeiluna í Arnar-
firði?
____________________FRÉniP__________________
Iðnaðarráðherra
Stóriðjunefnd lögð af
Áherslubreyting. Einnig horft til smœrrifyrirtœkja. Jóhannes
Nordal ekki í nýrri nefnd sem sér um samninga erlendis
Friðrik Sophusson iðnaðar-
ráðherra hefur ákveðið að
leggja niður stóriðjunefnd, samn-
inganefnd um stóriðju og frum-
kvæðisnefnd. I stað þessara
nefnda hefur hann skipað nýja
nefnd sem á að kanna hvernig
ráðuneytið geti best stuðlað að
samstarfi erlendra og innlendra
fyrirtækja og hvernig ráðuneytið
geti stuðlað að aukinni erlendri
fjárfestingu hér á landi.
Með þessu ætlar ráðuneytið að
beina athygli sinni að almennri
þátttöku erlendra aðila í atvinnu-
lífinu með áhættufjármagni í stað
lánsfjár, segir í fréttatilkynningu
frá iðnaðarráðuneytinu.
í tilkynningunni segir að nú séu
sérstaklega kannaðir möguleikar
á frekari uppbyggingu áliðnaðar í
Straumsvík, en að kanna þurfi
möguleika á samstarfi við er-
lenda aðila bæði í stærri og minni
fyrirtækium. Sú stefnubreyting
virðist því hafa átt sér stað að of-
uráherslan sem lögð hefur verið á
stóriðjustefnuna virðist ekki
lengur við lýði heldur er farið að
horfa til smærri fyrirtækja einnig.
Það vekur athygli að Jóhannes
Nordal á ekki sæti í nefndinni, en
hann hefur verið einn helsti bankastjóri Iðnaðarbankans, er Gunnlaugsson, Guðmundur G.
samningamaður íslenska ríkisins formaður. Aðrir nefndarmenn Þórarinsson og Vilhjálmur Egils-
á erlendri grund. Valur Valsson, eru Geir H. Haarde, Geir A. son. -Sáf
Er að slokkna á stóriðjudraumnum í herbúðum íhaldsins? Friðrik Sophusson er búinn að leggja stóriðjunefndirnar niður.
Skólahjúkrun
Skólalæknar
halda í horfinu
SkúliJohnsen borgarlœknir: Kappkostum að tryggja
nemendum lögboðna skólaheilsuvernd. Ekki við borgina
eina að sakast. Skólahjúkrunarfræðingar urðu eftir ísíðustu
samningum
Við höfum gert áætlun um að
ekki þurfi til þess að koma að
skólabörnin verði af lögboðinni
heilsuvernd, þó skólahjúkrunar-
fræðinga vanti til starfa. Skóla-
læknar eru í öllum skólum og
grunnskólabörn fá því læknis-
skoðun og ónæmisaðgerðir verða
framkvæmdar sem áður. En
meðan hjúkrunarfræðinga vant-
ar til starfa, gerum við ekki meira
en að halda í horfinu, sagði Skúli
Johnsen borgarlæknir vegna
fréttar Þjóðviljans í gær um að
ófremdarástand ríkti í skóla-
heilsuvernd í Reykjavík, sökum
skorts á skólahjúkrunarfræðing-
um.
- Vissulega er rót vandans
fólgin í launum skólahjúkrunar-
fræðinga. En það er ekki einungis
við borgina að sakast í þeim efn-
um. í síðustu samningum hjúkr-
unarfræðinga voru skólahjúkrun-
arfræðingar skildir eftir þegar
aðrir hjúkrunarfræðingar lyftust
upp í launastiganum, sagði Skúli.
Skúli sagði að í gegnum árin
hefði þessum þætti heilbrigðis-
þjónustunnar verið betur fyrir
komið en víðast hvar annarsstað-
ar á landinu.
- í flestum skólum er aðstaða
góð, ef undan eru skildir þeir
skólar sem reknir eru af einkaað-
ilum. Þannig að skólahjúkrunar-
fræðingar hafa almennt ekki
þurft að hrökklast frá vegna að-
stöðuleysis, sagði Skúli.
-rk
Náttúrufræðingar
Þjóðgarðsstöðu
mútmælt
Stjórn félags náttúrufræðinga
harmar að ekki hafi verið
tekið tillit til menntunar og fag-
legrar þekkingar í náttúrufræð-
um þegar Náttúruverndarráð réð
Stefán Benediktsson sem þjóð-
garðsvörð í Skaftafelli.
í ályktun frá stjórninni er vakin
athygli á að við auglýsingu á starf-
inu er gerð krafa um haldgóða
þekkingu á náttúrufræði, enda sé
þjóðgarðurinn friðaður vegna
sérstæðrar náttúru.
Einn þeirra sem um stöðuna
sóttu, Sigrún Helgadóttir, hefur
ákveðið að biðja Jafnréttisráð að
kanna forsendur þessarar stöðu-
veitingar. _m
Síldin
Frjálst í
bræðslu
Verðlagsráð hefur samþykkt
að gefa verðlagningu á sfld og
sfldarúrgangi til bræðslu frjálsaá
þessari haustvertíð.
Síðustu daga hafa sfldveiðibát-
ar orðið að landa töluverðu af sfld
í bræðsiu en áta hefur verið í síld-
inni sem veiðst hefur í Reyðar-
firði og suður með Austfjörðum.
Söltun er nú að stöðvast á
Austfjörðum þar sem menn eru
að klára að salta upp í gerða
samninga við Finna og Svía og
enn er ósamið við Sovétmenn.
-lg
Visitalan
UPP
Reiknaðar hafa verið láns-
kjaravísitala og byggingarvísitala
sem taka gildi 1. nóv. n.k. Bygg-
ingarvísitalan verður 106,5 stig
en lánskjaravísitaian 1841 stig.
Öll verðtryggð lán hækka í takt
við vísitöluhækkanir. Sá sem tók
miljón króna lánskjaravísitölulán
í janúar síðastliðnum skuldar nú
um 1.176 þúsund fyrir utan vexti.
Ef mánaðarlaun viðkomandi
hafa verið 50 þúsund í janúar
þyrftu þau að vera orðin 59 þús-
und nú til að halda í við lánskjara-
vísitöluna. ÓP
Ég hef lagt fram þetta frumvarp J Formenp hjnna stjórnar
sem stjórnarfrumvarp og treysti f|okkanna verða bara að
því að það hafi stuðning \ nassa UDDá sína menn.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. október 1987