Þjóðviljinn - 23.10.1987, Page 3
FRETT1R________________________
Hafskipsmálið
Rannsókn án tímamarka
Jónatan Þórmundsson sérstakur ríkissaksóknari: Vilji allra aðila að
hraða henni eins og kostur er. Viðamikil og tímafrek rannsókn
ÖRFRÉTTIR
Sendiherra Mexikó
á íslandi hefur afhént Háskóla fs-
lands að gjöf 200 bækur, flestar á
spænsku, sem fjalla um sögu,
menningu og stjórnmál í Mexíkó.
Gjöfin var afhent í tilefni 75 ára
afmælis Háskólans á síðasta ári.
Samgönguráðherra
hefur skipað nefnd til að fjalla um
eftirlit með ferðum erlendra og
innlendra ferðamanna á íslandi,
sérstaklega innflutning á mat-
vælum og bifreiðum til aksturs
utan þjóðvega og viðurlög við
brotum á gildandi reglum og
lögum. í nefndinni eiga sæti þau
Ragnhildur Hjaltadóttir deildar-
stjóri, formaður, Birgir Þorgilsson
ferðamálastjóri og Böðvar Val-
geirsson forstjóri.
Matvöruverð
í Skagafirði
Húnavatns- og Strandasýslum er
í flestum tilfellum nokkuð hærra
en í Reykjavík. Meðalverðið var í
73 tilfellum af 76 hærra fyrir
norðan en í stórmörkuðum höf-
uðborgarinnar samkvæmt nýrri
könnun Verðlagsstofnunar og í
50 tilfellum af 76 hærra en í stór-
um hverfaverslunum í Reykjavík.
Viltu iæra bridge?
Bridgefélag Hafnarfjarðar ætlar
að halda námskeið fyrir byrjend-
ur og þá sem eru nýbyrjaðir að
spila. Kennt verður í Flensborg
og byrjað n.k. þriðjudagskvöld.
Námskeiðið kostar aðeins 500
kr. og hægt er að tilkynna þátt-
töku í símum 52941,51912 eða
51983.
Mengun í hafinu
verður umfjöllunarefni alþjóð-
legrar ráðstefnu sem forsætis-
nefnd Norðurlandaráðs hefur
ákveðið að efna til í Kaupmanna-
höfn haustið 1989. Tilgangur
ráðstefnunnar er að gefa yfirlit
um orsakir mengunar hafsvæða
og skapa samstöðu Evrópuríkja
um frekari aðgerðirtil að draga úr
slíkri mengun.
Aðeins 4400
atvinnuleysisdagar voru skráðir
á landinu öllu í septembermánuði
sl. Svo fáir atvinnuleysisdagar
hafa ekki verðir skráðir í sept-
ember á yfirstandandi áratug, en
meðaltalið sl. 6 ár eru 8200 dag-
ar. Atvinnuleysið í september
jafngildir því að 200 manns hafi
verið atvinnulausir á landinu öllu.
að er ógjörningur að segja
nokkuð til um það hvað rann-
sóknin kemur til með að taka
langan tíma og við höfum ekki
heldur sett okkur nein tímamörk.
En það er mikill vilji fyrir því,
bæði hjá okkur sem störfum að
rannsókninni og eins hjá lög-
mönnum þeirra aðila sem málið
varðar, að hraða henni eins og
kostur er, segir Jónatan Þór-
Alla tíð frá því Hreyfill var
stofnaður hefur skákáhuginn
hér verið mikill, og hann er
jafnvel enn að aukast,sögðu Jón
Guðbjörnsson og Pétur Péturs-
son, bflstjórar á Hreyfli, er blaða-
maður tók hús á þeim á stöðinni
við Grensásveginn.
- Við teflum soldið í pásum,
sögðu þeir félagar; þetta er nú
bara tómstundagaman hjá okk-
ur, en hér er stór hópur sem sest
niður við að tefla.
mundsson, prófessor og sérstakur
ríkissaksóknari í málum sem
tengjast gjaldþroti Hafskips Vr, í
samtali við Þjóðviljann.
Að sögn Jónatans er málið
mjög viðamikið og erfitt á þessari
stundu að segja nokkuð til um
það hvenær vænta megi niður-
staðna af rannsókninni sem er í
þann veginn að hefjast á nýjan
leik. En sem kunnugt er var mál-
Vel má segja að Karpof,
Kasparof, Jóhann, Kortsnoj og
þeir afreksmenn allir tefli sér til
lofs og frægðar, en aðrir sér til
hugarhægðar, svo lítillega sé snú-
ið út úr Stephani G. Skákáhugi á
íslandi er enda með ólíkindum;
varla er til sá kaffiskúr eða mötu-
neyti að menn sjáist ekki að tafli í
matar- eða kaffitímum. Þessi
sjálfsprottna taflmennska er
reyndar nokkurt einkenni á ís-
lenskum áhugaskákmönnum,
inu vísað frá á sínum tíma vegna
vanhæfni ríkissaksóknara Hall-
varðs Einvarðssonar og sérstakur
ríkissaksóknari því skipaður til
að taka rannsóknina upp að nýju.
„Við erum hér tveir, ég og
Tryggvi Gunnarsson lögfræðing-
ur sem sinnum þessu máli. En við
höfum jafnframt heimild til að
ráða okkur til aðstoðar endur-
skoðanda ef þess þykir þörf. En
þar sem þeir útlendingar sem
tefla á annað borð iðka sína íþrótt
gjarnan í þartilgerðum klúbbum.
- Já, það eru ótrúlega margir
sem tefla. Ekki bara hér; ég rak
lítið veitingahús vestur í Hólmi í
nokkur ár, og þar gátu menn
komið inn og teflt. Þetta var mjög
mikið notað. Oft voru öll borðin
fimm sem voru til reiðu í gangi í
einu, sagði Jón.
HS
bæði hjá Rannsóknarlögreglu og
lögmönnum aðila er mikill vilji
fyrir því að þetta gangi rösklega
fyrir sig, þó óneitanlega sé mikið
verk framundan að komast til
botns í þeim aragrúa skjala sem »
málinu fylgja úr fyrri rannsókn,"
sagði Jónatan Þórmundsson, sér-
stakur ríkissaksóknari í Hafskips-
málinu.
-grh
Rækjukaupendur við Djúp
Bjóða 20%
lækkun
Samtök rækjusjómanna.
Stöndum ekki straum af
yfirborgunum verk-
smiðjanna
„Rækjuverksmiðjur hér við
Djúp munar ekki um að borga
aðkomubátum í sumar 63 krónur
fyrir kflóið af rækjunni, en bjóða
heimamönnum aðeins lágmarks-
verð Verðlagsráðs, 50 krónur
fyrir kflóið, sem er um 20% lækk-
un miðað við verðið í sumar fyrir
komandi vertíð í ísafjarðar-
djúpi,“ segir Kristinn H. Gunn-
arsson í Bolungarvík, starfsmað-
ur samtaka rækjusjómanna við
norðanvert Djúp, í samtali við
Þjóðviljann.
Að sögn Kristins er þetta
dæmigert fyrir rækjuverksmiðj-
urnar að ætla sér að láta heima-
menn borga fyrir það að verk-
smiðjurnar hafi þurft að yfir-
borga hráefnið í sumar, ásamt því
að þær hafa í mörgum tilvikum
einnig borgað veiðarfæri og út-
lagðan kostnað þeirra báta sem
landað hafa rækju til rækjuverks-
miðjanna.
í gær var búið að ákveða samn-
ingafund milli sjómanna og
verksmiðjanna, en honum var
frestað vegna þess að rækju-
kaupendum mislíkaði að sjó-
menn sendu í gær skeyti til sjávar-
útvegsráðherra, þar sem þeir
fóru fram á leyfi til að ráðstafa
sínum afla að vild, eftir því hvar
þeim byðist best verð. En einn
talsmanna þeirra hafði látið þau
orð falla í fjölmiðlum að ef sjó-
menn væru ekki ánægðir með lág-
marksverðið væri þeim í lófa
lagið að selja rækjuna hvert á
land sem væri. -grh
Friðarhreyfing kvenna
Jón Guðbjörnsson og Pétur Pétursson grípa í tafl á kaffistofu Hreyfils við Grensásveginn: Mikill skákáhugi á Hreyfli frá
fyrstu tíð. Mynd: Sig.
Skák
Víðar teflt en í Sevilla
Hreyfilsmenn heimsóttir, en stöðin er eitt afhöfuðvígjum
tómstundataflmennskunnar í bœnum
Opinberir starfsmenn
Til vamar lífeyrisréttindum
Samningar,
hvað svo?
Ólafur Ragnar gestur á
landsfundi
Ráðstefna um lífeyrismál ríkisstarfsmanna á laugardaginn. Birgir Björn
Sigurjónsson: Tillaga 17 manna nefndarinnar felur ísér jöfnun niður á við
Samkvæmt tillögum 17 manna
nefndarinnar verður ríkis-
ábyrgð á lífeyri opinberra starfs-
manna felld niður. Þá verða rétt-
indi þeirra ekki verðtryggð mið-
að við laun eftirmanns cins og nú
er, sagði Birgir Björn Sigurjóns-
son, hagfræðingur BHMR, í sam-
tali við blaðið í gær, en á laugar-
daginn gangast Bandalag há-
skólamenntaðra ríkisstarfs-
manna og Kennarasamband Is-
lands fyrir ráðstefnu um líf-
eyrismál ríkisstarfsmanna.
- Á ráðstefnunni munum við
rekja forsögu þessara mála og til-
lögur þær til breytinga sem liggja
fyrir. Við leggjum kapp á að
vekja fólk til umhugsunar um
hvað þessar tillögur hafa mikil
áhrif á starfskjör okkar ef þær ná
fram að ganga, sagði Birgir
Björn.
Að sögn Birgis Björns er hér
vegið að sáttmála þeim um ævi-
tekjur sem opinberir starfsmenn
hafa jafnan reiknað með. „Margt
fólk hefur verið lengi í þjónustu
ríkisins og sætt sig við lægri laun
en gengur og gerist í von um
skárri lífeyri þegar þar að kemur;
verðtryggðan lífeyri með ríkis-
ábyrgð," sagði hann.
Ríkisstarfsmenn greiða nú 4%
af föstum launum í Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins í 32 ár að há-
marki. Eftir það tekur við
greiðslufrítt tímabil, enda hefur
verið litið svo á að greiðslur í
þennan árafjölda standi undir líf-
eyrisgreiðslum. Tillögur 17
manna nefndarinnar miða að því
að fella þessa 32ja ára reglu úr
gildi.
„Þetta er óviðunandi niður-
staða og felur í sér mikla kjara-
skerðingu," sagði Birgir Björn.
„Sama er að segja um þá fyrirætl-
un að lífeyristaka hefjist almennt
ekki fyrr en við 70 ára aldur, en
geti hafist fimm árum fyrr með
refsistigum. Eins og er getur líf-
eyristaka hafist við 60 ára aldur ef
líf- og sjóðaldur er 95 ár saman-
Iagt.“
HS
a morgun
Landsfundur Friðarhreyfingar
kvenna verður haldinn í Sóknar-
salnum á morgun, á degi Samein-
uðu þjóðanna, og hefst klukkan
14. Gestur fundarins verður
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður þingmannasamtakanna
PGA með meiru, og flytur þar
crindi sem nefnist: Afvopnunar-
samningar stórveldanna, hvað
svo?
Erindi Ólafs hefst klukkan
17.10, en áður munu sex konur úr
friðarhreyfingunni segja frá ráð-
stefnum og kynnisferðum um
friðar- og varnarmál, og rætt
verður um starf hreyfingarinnar.
Landsfundurinn er öllum opinn.
Föstudagur 23. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3