Þjóðviljinn - 23.10.1987, Qupperneq 7
Moskva
Shultz
Utanríkisráðherrar risaveld-
anna, George Shultz og
Edvard Shevardnadze, funduðu
stíft í Moskvu í gær um lokadrög
að samningi um útrýmingu meðal
og skammdrægra kjarnflauga
sinna og fleiri mál. Að sögn tals-
manna beggja komust þeir vel
áleiðis með að leysa ýms á-
greiningsmál sem ekki vannst
tími til að ganga frá áður en bráð-
abirgðasamningurinn var undir-
ritaður í Washington fyrir
skemmstu.
Talsmennirnir, þeir Charles
Redman og Gennadí Gerasímof,
tjáðu fréttamönnum að hús-
bændur sínir hefðu tvívegis
stungið saman nefjum í gær og
hygðust efna til þriðja fundarins
að kvöldverði snæddum.
Redman kvað þá kollega hafa
Persaflói
Hefnt í
hefndarskyni
fyrir hefnd
r
Iranir skutu í gær silkimaðks-
skeyti á olíuvinnslustöð Kuw-
aitmanna skammt undan strönd-
um smáríkisins og oili hún mikl-
um skaða. Stjórnvöld í Washing-
ton sögðust ekki ætla að hefna
þessa þar eð skuldbindingar
þeirra við Kuwaitstjórn um her-
vernd tækju aðeins til olíuflutn-
ingaskipa er sigldu undir banda-
rískum fána.
Meðan þessu fór fram sendu
líbanskir íransvinir frá sér yfirlýs-
ingu í tilefni af því að fjögur ár eru
liðin frá því þeir sprengdu banda-
rískar og franskar herbækistöðv-
ar í loft upp í Beirút. Þar var því
hótað að skipulagðar yrðu sjálfs-
morðsárásir á bandarísk og vest-
urevrópsk skotmörk ef ekki yrði
lát á fjandskap Vesturveldanna í
garð Irana.
Olívinnslustöðin er varð fyrir
silkimaðksspjöllunum í gær kvað
framleiða um þriðjung allrar
þeirrar olíu er Kuwaitbúar flytja
út. Þeir sögðu hinsvegar í gær að
árásin myndi ekki hafa áhrif á
olíuútflutning þeirra og viðgerðir
væru þegar hafnar.
Silkimaðkurinn skæði mun
vera framleiddur í Kína og hyggj-
ast Bandaríkjamenn refsa
stjórnvöldum í Peking fyrir þá
ósvinnu að selja klerkastjórninni
í Teheran vopn. Kínverjar
myndu ekki fá ýmsan hátækni-
búnað er þeir hefðu pantað að
vestan fyrr en þeir lofuðu því að
láta af vígtólasölu til íran. Ráða-
menn í Washington hafa vita-
skuld efni á því að tala digur-
barkalega um slíka hluti því þeir
eru sjálfir, einsog alkunna er, ný-
hættir að selja Persum fullkomin
vopn.
-ks.
og Shevardnadze funda
Menn eru vongóðir um að kollegarnir nái að leggja
lokahönd á undirbúning samnings um eyðingu
meðaldrœgra kjarnflauga
náð umtalsverðum árangri við
lokafrágang samningsins um
flaugaeyðingu en ýms ljón væru
enn í vegi, ágreiningur væri um
eftirlit með framkvæmd samn-
ingsins og dagsetningar.
Gerasímof sagðist vera mjög
bjartsýnn á að öll ágreiningsmál
yrðu leyst. Hann vitnaði í Shevar-
dnadze er kvað hafa sagt milli
súpu og steikar í hádegisverðar-
hléi: „Það benda allar líkur til
þess að við göngum frá samningi
um eyðingu kjarnflauganna með-
aldrægu ef sérfræðingarnir
bregðast okkur ekki.“
A morgun mun Shultz koma að
máli við Míkael Gorbatsjof aðal-
ritara. Gerasímof vísaði til þess
fundar er hann sagði: „Menn
gera sér miklar vonir...en mikið
mun velta á fundi Shultz og Gor-
batsjofs.“
Enn stinga þeir saman nefjum, kollegarnir Shevardnadze og Shultz. Að þessu
sinni í Moskvu.
Sri Lanka
Hjakka í sama fari
Indverskar hcrsveitir ráða nú
um þriðjungi Jaffnaborgar á
samnefndum skaga nyrst á Sri
Lanka eftir látlausa bardaga í 13
daga. Tveir þriðju hlutar borgar-
innar eru enn á valdi Tamíltígra.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi í indverska sendiráðinu í
höfuðborginni Kólombó í gær.
Ennfremur fullyrti talsmaður
þess að indversk herfley hefðu
siglt strandhöggssveitum til Gur-
unagar hafnargarðsins við vestur-
bæ Jaffna en hann lét þess ógetið
hvort þær hefðu haft erindi sem
erfiði.
Talsmaðurinn sagði að enn
hefðu engin svör borist frá Tíg-
rum við áskorunum Indverja um
að þeir legðu niður vopn. „Við
búumst ekki við skjótu svari. Þeir
þurfa án efa að bera saman bækur
sínar.“
Srilenskur fréttamaður sem
nýkominn er frá bardagasvæðun-
um fullyrðir að það sé af og frá að
Tfgrar hyggist gefast upp. Hann
segir að næstæðsti leiðtogi skæru-
liðanna, Mahattaya nokkur,
hefði tjáð sér að 500 liðsmenn
sínir hefðu boðist til að mynda
sjálfsmorðshersveitir er gera
Dönum
Pólland
frelsi
Tveir Danir sem fundnir höfðu
verið sekir um njósnir í Pól-
landi af þarlendum herdómsstóli
voru látnir lausir og flugu heim til
átthaganna í gær eftir að dönsk
stjórnvöld höfðu pungað út með
tryggingarfé að upphæð 500 þús-
und bandaríkjadalir.
Þeir Jens Ellekjer kaupsýslu-
maður og Niels Hemmingsen
námsmaður kváðu hafa verið hálf
þreytulegir eftir sex mánaða vist í
pólskri dýflissu. „Miðað við að-
stæður erum við hraustir," sagði
Ellekjer.
Félagarnir ferðuðust með ferju
frá Danmörku til Póllands þann
19.apríl síðastliðinn. Fáeinum
dögum síðar voru þeir gripnir
glóðvolgir við ljósmyndun hern-
aðarmannvirkja á Eystrasalts-
ströndinni að sögn pólskra yfir-
valda. Þeir voru sem fyrr segir
dregnir fyrir herdómstóla og báð-
ir dæmdir til langrar fangelsisvist-
ar, Ellekjer í níu ár en Hemming-
sen í sjö. Báðum var gert að afp-
lána dóminn í betrunarhúsi Kosz-
alinbæjar.
Fyrr í vikunni ýjuðu pólskir
ráðamenn að því að hugsanlega
kæmi til greina að láta þá lausa
gegn greiðslu tryggingafjár. Talið
er líklegt að þessi undanlátssemi
stjórnarinnar í Varsjá sé tilkomin
af því að í næsta mánuði er utan-
ríkisráðherra Dana, Uffe
Ellemann-Jensen, væntanlegur í
Suður-Kórea
Ovinsæll frambjóðandi
Roh Tae-Woo, forsetafram-
bjóðandi valdhafa í
oh
bjóðandi valdhafa í Suður-
Kóreu, hefur frestað kosninga-
fundi í borginni Iri í suðvestri um
óákveðinn tíma þar eð miklar
óeirðir hafa átt sér stað þar vegna
væntanlegrar komu hans.
Roh virðist ekki njóta mikilla
vinsælda í þessum landshluta því
hvarvetna hafa átök lögreglu og
mótmælenda verið undanfari
komu hans til stærri borga. Þegar
hann kom til Kwangju í fyrradag
var eggjum og táragassprengjum
varpað að honum og sú saga
Redman tjáði fréttamönnum
að utanríkisráðherrarnir hefðu
rætt um mannréttindamál í morg-
unsárið en eftir hádegi hefðu þeir
tekið til við atriði viðvíkjandi
meðal og langdrægum kjarn-
flaugum. Um kvöldið hygðust
þeir síðan bera saman bækur
sínar um ýms svæðisbundin
vandamál í heiminum.
Viðsemjendurnir í Moskvu
settu á laggirnar átta vinnu-
nefndir sérfræðinga í gær. Hlut-
verk þeirra er að fjalla um með-
aldrægar og langdrægar kjarnf-
laugarnar, hefðbundinn vígbún-
að, efnavopn, vandamál í sam-
skiptum stórveldanna, svæðis-
bundinn heimsvanda,
mannréttindamál og tilraunir
með kjarnsprengjur.
-ks.
myndu indverskum dátum skrá-
veifur meðan meginhluti skærul-
iðanna kæmi sér á brott úr hinni
umsetnu borg.
í Kólombó leggur stjórnarand-
staðan nú hart að Hæstarétti Sri
Lanka að fella úr gildi ákvæði í
friðarsamningi ríkisstjórnarinnar
og Indverja er kveða á um sjálf-
stjórn Tamíla í norðri. Andstæð-
ingar Jayewardenes forseta segja
slíkt jafngilda landsafsali en það
brýtur í bága við ákvæði stjórnar-
skrárinnar.
-ks.
heimsókn til Póllands. Samband
ríkjanna hefur verið stirt frá því
starfsmenn danska sendiráðsins í
Varsjá uppgötvuðu í fyrra að
sendiráðsbyggingin var öll mor-
andi í hlerunartækjum.
-ks.
endurtók sig snemma í gær þegar
leið hans lá um Jongju. -ks.
Bonn/RAF
Sáttaboð
Vesturþýska leyniþjónustan
hyggst grípa til séstakra ráSstaf-
ana í því augnamiði að fá borg-
arskæruliða til að gefa sig fram
við yfirvöld, hugsanlega með því
að gefa þeim upp sakir. Innan-
ríkisráðuneytið og yfirstjórn
gagnnjósnamála í landinu kváðu
hafa átt frumkvæðið að ákvörð-
unum þessum og eru þær liður í
áætlun um að uppræta leifar
Rauðu herdeildarinnar (RAF).
Yfirmaður í gagnnjósnadeild-
inni ræddi nýverið við blaðamenn
vinstrisinnaðs tímarits í Frank-
furt og sagðist ekki kæra sig um
að „leggja óyfirstíganlegar hindr-
anir í götu fólks er segja vildi
skilið við hryðjuverkasamtök.“
Hann var spurður að því hvort
félagar í RAF gætu vænst annars
en að verða umsvifalaust dæmdir
til langrar fangelsisvistar ef þeir
gæfu sig fram við yfirvöld. Kvað
hann slíkt ekki jafn óhjákvæmi-
legt og margir teldu þar eð dóms-
yfirvöld hefðu visst olnbogarými
og myndu vega og meta hvert mál
fyrir sig. En vitaskuld kæmi upp-
gjöf saka ellegar vægari dómur
ekki til greina ef hlutaðeigandi
væri morðingi.
Nú eru tíu ár liðin frá því of-
beldisverk Rauðu herdeildarinn-
ar náðu hámarki í Vestur-
Þýskalandi með morðinu á fyrir-
liða þarlendra atvinnurekenda,
Hans-Martin Schleyer. Samtökin
hafa ekkert látið til sín taka frá
því þau vógu embættismann í
utanríkisráðuneytinu í fyrra en
stjórnvöld eru fullviss um að þau
séu enn skipuð um 20 mönnum er
þá og þegar geti lagt til atlögu.
-ks.
Föstudagur 23. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Beriín
Borgarstjórar hittast
B
orgarstjórar austur og vest-
urhluta Berlínarborgar hitt-
ust í gær f fyrsta sinni frá því
henni var skipt í tvo hluta fyrir 42
árum.
Eberhard Diepgen, borgar-
stjóri Vestur-Berlínar, brá sér
yfir í austurhlutann til að vera
viðstaddur athöfn í Maríukirkj-
unni í tilefni 750 ára afmælis
borgarinnar. Þar var kollegi
hans, Erhard Krack, á fleti fyrir.
Heilsuðust þeir innvirðulega og
spjölluðu saman drykklanga
stund.
-ks.