Þjóðviljinn - 23.10.1987, Page 10
HEIMURINN
Flóttamannahjálpin
Meira en helmingur paiest-
Insku þjóðarinnar er nú
landflótta eða 2,2 af 4 miljónum
þjóðarinnar. Flóttamennirnir
búa allsstaðar við erfiðar aðstæð-
ur og sums staðar við stöðuga
stríðsógn og útskúfun. Fyrir
utanaðkomandi getur verið erfitt
að skilja raunir þeirrar þjóðar,
sem lifað hefur án vegabréfs og
þjóðfána í 40 ár.
Þetta kom meðal annars fram á
biaðamannafundi sem Giorgio
Giacomelli, yfirmaður UNRWA
hélt hér á landi í vikunni, en
stofnun sú sem hann veitir for-
stöðu er ein elsta stofnun Sam-
einuðu þjóðanna og hefur í nærf-
ellt 40 ár haft það verkefni með
höndum að aðstoða palestínska
flóttamenn við það að lifa eðli-
legu lífi við óeðlilegar aðstæður.
Stofnunin, sem byggir á frjáls-
um framlögum aðildarþjóða
Sameinuðu þjóðanna hefur að
jafnaði um 200 miljónir banda-
ríkjadala til ráðstöfunar á ári
hverju, sem duga þó skammt til
lausnar þess gífurlega vanda, sem
þarna er við að etja.
40 ára hjálparstarf
UNRWA, Unated Nations
Relief and Work Agency, var
stofnuð 1948, eftir fyrstu styrjöld
ísraelsmanna og Araba, en sú
styrjöld gerði 700.000 Palestínu-
menn landflótta. Stofnuninni var
ætlað að leysa tímabundið verk-
efni, en nú 40 árum síðar stönd-
um við enn í sömu sporunum með
2,2 miljónir flóttamanna og
stærri verkefni en nokkru sinni,
sagði Giacomelli, forstöðumaður
UNRWA. Upphaflega átti stofn-
unin að sjá um neyðarhjálp, en
með árunum hafa verkefni henn-
ar þróasat yfir í hefðbundna þró-
unaraðstoð, þar sem um 60% af
framlögum hennar renna til
menntamála, um 30% til heilsu-
gæslu og um 10% fara í neyðar-
hjálp.
Úr flóttamannabúðum Palestínumanna í Nablus á vesturbakka Jórdan. Þar hefur andstaðan gegn heranámi ísraels-
manna verið mjög sterk.
Neyðarástand
í Chatilla
Aðspurður um aðstæður
flóttamannanna sagði Giacomelli
að þær væru nokkuð misjafnar,
en hvergi góðar. Um 60 flótta-
mannabúðir eru starfræktar í Jór-
daníu, Sýrlandi, Líbanon, á Vest-
urbakkanum og Gazasvæðinu,
en einungis þriðjungur eða um
700.000 Palestínumenn búa
innan þeirra. Tveir þriðju flótta-
mannanna eða um 1,5 miljónir
þJÓÐVILJINN
■0 68 13 33
Tímiim
0 68 18 66
0 68 63 00
Blaðburður er
|: ] | ■
og borgar sig
BLAÐBERAR ÓSKAST í
Hlíðar
Nýja miðbæ
Fellsmúla
Bakkahverfi (Breiðholti)
Seljahverfi
Ártúnsholt
Kópavog (vestur)
Kópavog (austur)
Smáíbúðahverfi
Fossvog
Vesturbæ
Seltjarnarnes
Hafðu samband við okkur
þJÓÐVILIINN
Sfðumúla 6
0 68 13 33
eru dreifðar víðs vegar um Mið-
austurlönd. Einna alvarlegast
hefur ástandið verið í flótta-
mannabúðunum í Beirút, sem
eru enn í umsátri shiita-múslima.
Þegar þær fréttir bárust loks út
I apríl síðastliðnum, að fólkið í
flóttamannabúðunum í Chatilla
væri að falla úr hungri, tókst
starfsmönnum UNRWA að
koma lágmarksaðstoð inn í búð-
irnar og um leið gátu þeir staðfest
að búðirnar voru í rúst og að 90%
af byggingum og eignum innan
þeirra höfðu verið eyðilagðar.
Búðirnar eru ennþá í umsátri og
ekki hefur tekist að koma öðru en
lágmarksaðstoð í matvælum og
lyfjum til íbúanna, og hafa
hjálparmenn lagt sig í mikla
hættu við það. Hins vegar hefur
umsátrið hindrað alla endurupp-
byggingu búðanna.
18.000 palestínskir
starfsmenn
Aðalstöðvar UNRWA voru
fluttar frá Líbanon til Vínarborg-
ar fyrir 10 árum. Meginþorri
starfsmanna stofnunarinnar
starfar þó víðsvagar um Miðaust-
urlönd, þar sem flóttamennina er
að finna. Hefur stofnunin haft þá
stefnu að ráða fyrst og fremst pal-
estínska flóttamenn til hjálpar-
starfsins, og eru um 18.000 flótta-
menn starfandi á vegum stofnun-
arinnar í Líbanon, Jórdaníu og
Sýrlandi og á hernumdu svæðun-
um. Starf þeirra er áhættusamt
eins og sést best á því að á þessu
ári hafa 7 starfsmenn stofnunar-
innar verið drepnir, og 30 manns
hafa fallið frá 1972 auk þess sem
margir hafa horfið og særst í
starfi.
Giacomelli sagði að starf stofn-
unarinnar væri háð góðu sam-
starfi við deiluaðila í Miðaustur-
löndum og aðildarríki Samein-
uðu þjóðanna. Stofnunin gegndi í
raun mörgum þeim verkefnum
sem ríkisstjórnir annarra þjóða
hafa með höndum, og hann sagði
það sannfæringu sína að starf-
semi stofnunarinnar gegndi
mikilvægu hlutverki, meðal ann-
ars við það að stemma með
óbeinum hætti stigu við örvænt-
ingaraðgerðum öfgahópa hryðju-
verkamanna. Hins vegar sagði
hann fyrirsjáanlegt að lausn feng-
ist ekki á þessum vanda fyrr en
Palestínumenn hefðu fengið sitt
föðurland, ríkisstjórn og þjóð-
fána eins og Allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna hefði á sínum
tíma ályktað um rétt þeirra. Sú
ályktun væri það haldreipi sem
Palestínumenn myndu aldrei
sleppa, hvað sem á gengi, sagði
Giacomelli og vitnaði til náinna
kynna sinna af þjóðinni.
10 þúsupd dollarar
frá íslandi
Það eru Bandaríkin sem nú
veita mestu fé til UNRWA, eða
um 67 miljónum dollara á ári.
Ríki Evrópubandalagsins veita
saman um 40 miljónir, auk þess
sem einstök ríki eins og t.d. Ítalía
veita sérstaklega tvíhliða fram-
lög. Japan leggur til 15 miljónir
dollara á ári, en önnur ríki sem
sýnt hafa örlæti eru m.a. Sviss,
Kanada og Norðurlönd. ísland
veitir nú árlega 10.000 dollara til
UNRWA, og var erindi Giacom-
elli hingað meðal annars að
kynna hérlendum yfirvöldum
ráðstöfun þess fjármagns og að
fara fram á hugsanlega aukningu
vegna fyrirsjáanlegra brýnna
verkefna á næstunni.
Aðspurður um framlag Ara-
baríkja til UNRWA sagði Giac-
omelli að í fjármunum talið hefði
það lækkað hlutfallslega úr 17%
fyrir nokkrum árum niður í 3%
sem það er nú. Hins vegar bæri
ekki að vanmeta það mikla fram-
lag Jórdaníu, Sýrlands og Líban-
on og annarra Arabaríkja, sem
fælist í því að veita flóttamönnun-
um landvist. Hins vegar virtist sá
ótti einnig vera fyrir hendi meðal
margra arabaríkja að vanda þess-
um verði smám saman velt yfir á
arabaheiminn, og hafa þau sjón-
armið einnig heyrst meðal araba-
ríkjanna, að Palestínuvandinn
eigi að vera á ábyrgð þeirra sem
sköpuðu hann.
Uppgjöf kallar
á aukna
ófriðarhættu
Giacomelli sagði að flótta-
mannaaðstoðin við Palestínu-
menn væri jafn mikilvæg nú sem
áður, og að það væri siðferðileg
skylda Sameinuðu þjóðanna að
halda henni áfram þar til réttlát
lausn hefði fundist á vanda Pal-
estínumanna. Stofnunin þarf nú
sérstaka fjárveitingu til endur-
reisnar og uppbyggingar hund-
ruða skóla og heilsugæslustöðva
auk margra annarra brýnna verk-
efna. Pá sagði Giacomelli að
átökin á Persaflóa torvelduðu
lausn Palestínuvandans enn frek-
ar og 'því væri ekki séð fyrir
endann á nauðsyn hjálparstarfs-
ins. Minnkandi aðstoð kallaði
einungis á vaxandi ólgu og ör-
væntingu meðal flóttamannanna,
og þar með aukna ófriðarhættu.
Erindi hans til Norðurlanda nú
væri því að sýna stjórnvöldum og
almenningi fram á nauðsyn
aukins og áframhaldandi hjálpar-
starfs.
-ólg
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. október 1987
Stuðlar
að friði
segir Giorgio Giacomelli, yfirmað-
urflóttamannaaðstoðar Samein-
uðu þjóðanna við Palestínumenn