Þjóðviljinn - 23.10.1987, Qupperneq 11
UM HELGINA
i
MYNDLISTIN
Gailerí Grjót. Skólavörðustíg 4.
Ásgeir Lárusson sýnir vatnslita-
myndir og verk, unnin með olíu-
litum og lakki, og nokkra skúlp-
túra. Opið virka daga frá 12-
18.Um helgarfrá 14-18. Síðasta
sýningarhelgi.
Kjarvalsstaðir. Kristján
Steingrímur sýnir olíumálverk og
grafíkverk. Opið frá 14-22, til
2.nóv.
Gallerí Svart á hvítu. Við Oðins-
torg. Georg Guðni með aðra
einkasýningu sína. Hann sýnir ol-
íumálverk og teikningar. Opið alla
daga frá 14-18 nema mánudaga.
Norræna húsið. Outi Hei-
skannen sýnir verk í anddyri Nor-
rænahússins. Húnereinnaf
þekktustu listamönnum Finn-
lands. Opið daglega frá 9-17, til
1 .nóv.
Kjarvalsstaðir. 36 gullsmiðir
sýna og leitast við að gefa innsýn
inní hugarheim gullsmiða. Um er
að ræða skartgripi, korpus, skúl-
ptúra og lágmyndir. Opið alla
dagafrá14-22,til l.nóv.
Slunkaríki. ísafjörður. Kristinn
Guðbrandur Harðarson sýnir
olíupastelmálverk. Opið
fimmtudagatil sunnudaga, frá
16-18, til 1 .nóv.
Gallerí Hallgerður. Guðný
Magnúsdóttir sýnir verk unnin úr
leir. Opið daglega frá 14-18 til 25.
okt.
FÍM-salurinn. Garðastræti 6.
Margrét Jónsdóttir með sýningu
áolíumálverkum. Opið 14-19 til
25. okt.,
Gallerí íslensk list. Vesturgata
17. Hafsteinn Austmann sýnir
vatnslitamyndir. Síðasta sýning-
arhelgi.
Gallerí Borg. Kjartan Guðjóns-
son sýnir teikningar, olíu- og
vatnslitamyndir. Opið virka daga
frá 10-18 og um helgar 14-
18.Síðasta sýningarhelgi.
Gallerí Gangskör. Amtmanns-
stíg 1. Hanna BjartmarÁrnadóttir
sýnir. Opið frá 12-6 og 2-6 um
helgar.
LEIKLISTIN
Þjóðleikhúsið. Brúðarmyndin,
nýtt leikrit eftir Guðmund Steins-
son, frumsýnt í kvöld. Sögusviðið
er íslenskt núttmaheimili, þar sem
er verið að kvikmynda fjölskyldul-
íf. 2. sýning er á sunnudagskvöld.
Bílaverkstæði Badda er búið að
sýna 4 sinnum fyrir fullu húsi og
flestar helgarsýningar uppseldar
fram að 5.des.Sýnt í kvöld og á
sunnudagskvöld. SýningaráLitla
sviðinu hefjast kl. 20.30. Rómú-
lus mikli. Síðasta sýning annað
kvöld.
Leikfélag Reykjavíkur. Faðirinn
eftirÁgúst Strindberg sýnttvisvar
í Iðnó um helgina, í kvöld og
sunnudagskvöld kl. 20.30. Fáar
sýningareftir. Djöflaeyjan, sýnd í
Leikskemmu LR við Meistara-
velli, föstudags-, laugardags,- og
sunnudagskvöld kl. 20.00. Dagur
vonar í Iðnó, laugardagskvöld kl.
20.00
Leikhús í kirkju. í Hallgríms-
kirkju standa yfir sýningar á
leikritinu um dansta prestinn og
skáldið Kaj Munk, sem var myrtur
afnasistum4.jan. 1944. Fjöldi
leikara kemur fram í sýningunni.
Sýnt sunnudag kl. 16 og mánu-
dagskvöld kl.20.30. Sýningum
feraðfækka.
Alþýðuleikhúsið. Tígrisdýr í
Kongó, í Kvosinni. Sýnt á laugar-
dagogsunnudagkl. 13. Innifaliðí
miðaverði er hádegisverður og
kaffi. Miðapantanirallan sólar-
hringinn í símsvara Alþýðul-
eikhússins, 15185. OgíKvosinni.
Sýningum fer fækkandi.
eih-leikhúsið.! Djúpinu Saga úr
Dýragarðinum. Sýntá neðri hæð
á Horninu við Hafnarstræti. Á
sunnudag kl.20.30 og á miðviku-
dag og fimmtudag á sama tíma.
Veitingahúsið Hornið býður sýn-
ingargestum uppáveitingarfyrir
ogeftirsýningar. Upplýsingarí
síma 13340.
TÓNLISTIN
Laugarneskirkja. Kór Langholt-
skirkju flytur ásamt kammersveit
kantötuna Jesús heill míns hjarta
eftir D. Buxtehude, og Gloria eftir
Vivaldi. Einsöngvarar, Sigrún
Gestsdóttir, sópran, Guðný Árna-
dóttir alt, og Halldór Vilhelmsson,
bassi. Stjórnandi Þröstur Eiríks-
son. AnnToril Lindstad leikurein-
leik á orgel. Aðgöngumiðar við
innganginn.
Gerðuberg. Samband ísl lúðra-
sveita mun halda Árna Björns-
syni kaffisamsæti á sunnudag
kl. 14.
Kammermúsíkhópurinn.
Fyrstu tónleikar á starfsárinu á
sunnudag kl. 20:30, í Bústaða-
kirkju. Mendelsohn, Eiríksdóttir
og Ludvig van á dagskrá.
Heiti potturinn. Jazztónleikar í
Duus-húsi, sunnudagskvöld
kl.21.30. RúnarGeorgsblæsí
saxófón ásamt tríó Egils B.
Hreinssonar.
HITT OG ÞETTA
Fyrirlestur um kvikmynda-
greiningu. Sýnd verður hin sí-
gilda my nd John Houstons The
African Queen. Martin Daniel,
sem heldur hér námskeið á veg-
um Háskólans í gerð kvikmynda-
handrita, flytur opinberan fyrir-
lestur, laugardag, kl. 14-17.
MIR-bíó. Kvikmyndasýning nk.
sunnudag kl.16, MÍR-salnum við
Vatnsstíg. Sýndarstuttar
fræðslu- og fréttamyndir. Að-
ganguröllumheimill.
Hjallaprestakall. Stofnað hefur
verið nýtt prestakall í Kópavogi.
Til sölu minningarkort Bygginga-
sjóðs Hjallaprestakalls í Vedu,
bóka- og ritfangaverslun, Hamra-
borgö, Kóp.
Hana-nú. Vikuleg laugar-
dagsganga Frístundahópsins
Hana-nú í Kópavogi verður á
morgun. Lagtaf staðfrá Digra-
nesvegi 12, kl. 10. Markmið:
Samvera, súrefni, molakaffi og
pönnukökur. Allir velkomnir.
Húnvetningafélagið. Vetrar-
fagnaður. Haldinn á morgun
kl.21.30 í Domus Medica. Hin vin-
sæla hljómsveit Upplyfting leikur.
Esk- og Reyðf irðingar í Rvk.
Síðdegiskaffi fyrir eldri sveitunga,
sunnudag kl. 15 í Sóknarsal,
Skipholti 50a.
Skák. Sparisjóður Hafnarfjarðar
og Skákfélag í sömu sveit efna til
flölteflis, sunnudag kl. 19 í íþrótta-
húsinu við Strandgötu. Þar teflir
HelgiÁssGrétarsson, 10ára, við
40 unglinga á aldrinum 5-15 ára.
Þá er mót á laugardag. T efldar 13
umferðir, 15 mínútnaskákireftir
Monrad-kerfi, vegleg peninga-
verðlaun. Flestir stórmeistarar og
alþjóðlegir meistarar búnir að
kynna þátttöku sína. Væntanlegir
þátttakendur eru beðnir að mæta
með töfl. Mætið stundvíslega kl.
10.
Friöarhreyfing íslenskra
kvenna. Landsfundur í Sóknars-
al, Skipholti 50a, á morgun
kl. 14.Ölaf ur Ragnar Grímsson
mun flytja fyrirlestur: Afvopnunar-
viðræðurstórveldanna, hvað
svo? Erindi hans hefst kl. 17.10.
Áður munu sex konur úr friðar-
hreyfingunni segjafrá ráðstefn-
um og kynnisferðum erlendis um
friðar- og varnarmál.Rætt um
starf hreyf ingarinnar. Þá munu
(sl. konurtaka þátt í norrænni ráð-
stefnu í Osló á næsta sumri, sem
haldin er undir kjörorðunum:
jafnrétti, framþróun, friður.
Landsfundurinn eða hluti hans er
öllumopinn. Konursemstarfað
hafa að friðarmálum eru sérstak-
lega hvattartil að mæta.
Útivist. Sunnudagsferð kl. 13.
Gönguferð á Kjalarnes. Létt
ganga. Fyrst gengið í Presthús-
tanga á stórstraumsfjöru og síð-
an um Kjalarnestanga, Músarnes
og Brautarholtsborg. Verð kr.
700. Frítt fyrir börn í fylgd með
fullorðnum. Haustblót í Skaftár-
tungu, helgina 6.-8.nóv. Gist í
nýja félagsheimilinu T unguseli.
Fjölbreyttar gönguleiðir meðfram
Skaftá. Afmælisveisla á laugar-
dagskvöld. Pantið tímanlega.
Uppl. og farmiðar á skrifst. Gróf-
inni 1, s: 14606 og 23732.
Kvæðamannafélagið löunn
minnir á fyrsta fund félagsins að
Hallveigarstöðum, 24. okt. kl. 20.
Fjölbreytt dagskrá og góðar
veitingar. Allirvelkomnir.
Átthagasamtök Héraðsmanna
halda aðalfund (Veitingahöllinni,
húsi Verslunarinnar, 27. okt. kl.
20.30.
Félag eidri borgara í Rvk. og
nágrenni. Goðheimum, Sigtúni
3. Húsið opnað sunnudag 25.
þ.m. kl. 14.00. Dagskrá kl. 17.00.
1. Sr. Emil Björnsson les úr vænt-
anlegri bók sinni. 2. Iris Erlings-
dóttir syngur við píanóleik.
Veitingar- dans fram eftir kvöldi.
Herstödvaandstæðingar hópa sig
Það dylst víst engum að haust-
ið er komið. Hin margvíslegu ár-
vissu teikn haustkomunnar hefur
borið fyrir augu að undanförnu.
Sum þeirra fara ekki framhjá
nokkurri sálu, amk. hljóta allirsjá-
andi að hafa séð fósturjörðina
sveipa sig sínum fegurstu lit-
klæðum og farfuglana hópa sig
og leggja á ráðin um langferðir til
suðlægari landa. En það eru fleiri
fuglar en farfuglar sem hópa sig á
þessum árstíma og bera saman
ráð sín. Mér er hins vegar til efs
að öllum þorra fólks sé það Ijóst
að jafnárvisst og náttúran skartar
sínu fegursta og farfuglar safnast
saman hópur staðfugla, sem
sumir nefna furðufugla að mér
skilst í niðrandi merkingu, til að
leggja á ráðin um það hvernig
best verði stuggað burtu hræ-
gömmum með járnklær og
málmgogga, sem eru kenndir við
stjörnumerki eða bera ókenni-
lega einkennisstafi og þruma ým-
ist á jörðu niðri eða menga
heiðloftin yfir landi okkar með
gný og svælu.
Þessar línur eru til þess festar á
blað, að minna á að furðufuglar
þessir, sem bera fram kröfu um
hlutlaust og vopnlaust land, sem
mun sennilega einsdæmi á þessari
plánetu, ætla að hópa sig
næstkomandi laugardag og leggja
á ráðin hvernig baráttunni skuli
hagað næstu ár og hverjir skuli
veita henni forystu.
Árleg landsráðstefna samtaka
þessara furðufugla sem kenna sig
við herstöðvaandstöðu er að
þessu sinni haldin, er nýverið
hafa borist þau ánægjulegutíð-
indi að samkvæmt nýjustu taln-
ingu færustu vísindamanna fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla ís-
lands hafi þessum furðufuglum
fjölgað allverulega, þannig að
vandséð er hvort hugtök eins og
„fámenn sértrúarsamtök", sem
vinir stálsins hafa valið þeim,
væntanlega til niðrunar þó mér
finnist fremur falið í því lof, eiga
lengur við.
Menn greinir á hvaða vist-
fræðilegu skilyrði hafi breyst sem
leitt hafi til þessarar fjölgunar. Þó
erfitt sé um vísindalega sönnun
vegna skorts á samanburði þá
Guðmundur Georgsson
skrifar:
velkist ég ekki í neinum vafa um
það, að sífellt andófskvak her-
stöðvaandstæðinga hefur skipt
sköpum við að halda stofnstærð-
inni lítið eitt breyttri í þá áratugi
sem liðnir eru frá því hrægömm-
um vígs og stáls var stefnt til okk-
ar, eða finnst þér, sem lest þessar
línur, líklegt að svo öflug and-
staða væri að jafnaði gegn er-
lendri hersetu hérlendis eftir hátt
í fjórða áratug ef engar andófs-
raddir hefðu heyrst. Ég er jafn-
framt þeirrar skoðunar að bar-
átta herstöðvaandstæðinga hafi
undirbúið þann frjóa jarðveg sem
afvopnunar- og friðarumræða
margvíslegra nýrri friðarhreyf-
inga hefur fallið í. Sú umræða
hefur á hinn bóginn örugglega
bætt andrúmsloftið fyrir barátt-
unni fyrir friðlýstu landi.
Á því leikur heldur enginn vafi
að framkoma leiðtoga stórveld-
anna tveggja, þar sem fulltrúi
„ógnarinnar“ úr austri deildi með
okkur, sem störðum tímum sam-
an í ofvæni á dyrnar í Höfða í
væntingu góðra tíðinda, von-
brigðum með að áþreifanlegur
árangur náðist ekki á meðan
„hrægammurinn“ úr vestri setti
upp trúðsfjaðrir á „vellinum",
hefur orðið til þess að slæva bit
kaldastríðsáróðursins. Vafalítið
hafa afskipti „verndaranna" af
hvalveiðum okkar vakið ýmsa til
umhugsunar um hlutverk þeirra
hérlendis og er ekkert við það að
athuga, heldur rennir stoðum
undir þá skoðun okkar her-
stöðvaandstæðinga að öll um-
ræða um samskipti þjóðanna sé
málstað okkar til þurftar.
En okkur herstöðvaandstæð-
ingum er sá sífelldi vandi á hönd-
um að leita sem árangursríkastra
leiða til að ná takmarki okkar,
friðlýstu landi, og velja fólk til að
leiða þá baráttu næsta árið. í því
augnmiði hópum við okkur á
laugardaginn. Viðfögnum nýjum
liðsmönnum og nýjum ferskum
hugmyndum. Það skal minnt á að
þar er sérhver Iiðsmaður
jafnrétthár og enginn spurður um
afstöðu til annarra þjóðmála. Við
sem erum orðin allþaulsetin í for-
ystunni tækjum harðvítugri kosn-
ingabaráttu vel og yndum því vel
að falla fyrir yngra fólki með
ferskar hugmyndir.
Fyllum loftið og flæmum hræ-
gammana burt.
Guðmundur Georgsson
Föstudagur 23. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11